Dagur - 16.04.1994, Side 19
Laugardagur 16. apríl 1994 - DAGUR -19
Æ5KUBLOMI
SOLEY RANNVEIC HALLCRIMSDOTTIR
„Fólk á að
vera duglegra að
safna f sparibaukana
Lóan er komin og víst boðar hún komu vorsins. Ég veit ekki
með ykkur en sjálf þrái ég ekkert heitar en sumar og sól. En
vorið líður, sumarið rennur og brennur upp, því miður allt of
fljótt. Haustið litfagra er skollið á. Það eru merk tímamót
þegar við hvert og eitt stígum okkar fyrstu skref í skólann.
Hver man ekki eftir fyrstu kennslustundinni, skólatöskunni
sem er dálítiil fjársjóður í minningunni? Munið þið? Þau
gera það, enda ekki ýkja langt síðan. Þetta eru nemendur J
í 1. bekk Barnaskóla Akureyrar; Þórgnýr Helgason, Jó-
hann Sigurðsson, Þórhalla Asgeirsdóttir og Símon Sím-
onarson.
- Munió þió hvernig ykkur leió fyrsta skóladaginn?
ÞÁ: „Eg man ekkert eftir honum."
ÞH: „Eg var pínulítió feiminn, þekkti ekki þessa
konu, hafði aldrei séð hana áður. Ég þekkti bara
Sunnu sem er 7 ára.“
JS: „Mér fannst skrítið aó byrja í alvöruskóla og að
Lilý væri kennarinn minn.
Hún er líka frænka mín."
SS: „Mér fannst fyrsti dag-
urinn skemmtilegur því ég
þekkti Þórhöllu og Jóhannes."
- En hvað er nú skemmtileg-
ast að læra?
SS: „Að gera vinnubókina.“
JS: „Mér finnst eiginlega ekkert skemmtilegt, en þaö er gaman þegar
vió megum koma með dót.“
ÞH: „Það er að læra stafina, gera vinnubókina og svo þegar vió
komum meó dót.“
ÞA: „Að gera vinnubókina."
Ætla að verða ævintýramaður
- Eruð þið búin að hugsa um hvað ykkur langar til að verða þegar
þið eruóorðin fullotðin?
ÞH: „Ég ætla að verða fótboltamaður og listamaður."
SS: ;,Ég ætla að veróa ævintýramaður.“
JS:_„Eg vil verða kafari."
ÞÁ: „Ég ætla bara aó veróa eitthvað."
- Er einhver annar staður en Akureyri sem þið
vilduð búa á?
ÞÁ: „Nei, mér finnst skemmtilegt að búa á
Akureyri."
ÞH: „Þaó er ágætt að búa hér, en ég vil
frekar vera í Reykjavík eða á Majorka."
SS: „Ég vil bara búa á Akureyri af því
að ísland er best.“
JS: „Ég vil búa í útlöndum. Það er alltaf
svo kalt á Akureyri."
- Eigið þið uppáhaldsleiki?
SS: „Já, feluleik og að fela hlut.“
JS: „Ég vil helst vera í körfubolta af því að ég æfi hann.“
ÞH: „Uppáhaldið mitt er fótbolti."
ÞÁ: „Að fela hluti.“
Að hafa enga vinnu og
vera þreyttur
- Vitið þið hvað atvinnuleysi er og
hvaó haldið þió að hægt sé að gera
í því?
ÞÁ: „Nei, ég veit ekki hvaó það
er.“
ÞH: „Það er að hafa ekki
vinnu. Fólk á að vera duglegra
að safna í sparibaukana."
SS: „Er það ekki aó hafa
enga vinnuog vera þreyttur?"
JS: „Ég veit að þaó er
þegar fólk er ekki með neina
vinnu. Fólk sem hefur ekki
vinnu á að flytja til Majorka."
- Hvað langar ykkur að gera skemmtilegt um helg-
ina?
JS: „Mig langar að fara í Vín eða bíó.“
ÞH: „Ég ætla að horfa á sjónvarpið, allar íþróttir
sem hægt er að horfa á, enska boitann og NBA,
eða fara á skíði eóa skauta."
SS: „Mig langar að leika mér úti.“
ÞÁ: „Ég verð að vera inni af því að ég er búin að vera
svo lasin.“
Það var mjög fræðandi að tala við þetta unga, spræka fólk.
Kærar þakkir.
Akureyringar og
nærsveitarmenn
Tökum á móti fötum í Gránufélagsgötu 5.
e.h.
Opið verður á mánudögum frá kl. 4-6, svo
eru til föt á vægu verði.
Komið í heimsókn, það verður tekið vel á
móti ykkur.
Með þökk fyrir góðan stuðning.
MÆÐRASTYRKSNEFND.
Rafveita
Sauðárkróks
sími 95-35367
Rafvirki!
Rafveita Sauðárkróks óskar að ráða rafvirkja við
dreifikerfi rafveitunnar.
Upplýsingar gefur rafveitustjóri.
Verslunarstjóri
Óskum eftir að ráða verslunarstjóra.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
menntun og fyrri störf ásamt kaupkröfu
óskast fyrir 30. apríl n.k.
Upplýsingar um starfið gefur kaupfélags-
stjóri.
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga,
530 Hvammstanga, sími 95-12370.
F ramsóknarvist
Þriggja kvölda keppni
Fyrsta spilakvöld aó Hótel KEA
þriðjudaginn 19. apríl kl. 20.30.
Kvöldverðlaun fyrir hvert kvöld og einnig
góö heildarverðlaun fyrir öll þrjú kvöldin.
Framsóknarfélag Akureyrar.