Dagur - 19.05.1994, Page 1
77. árg.
Akureyri, fúnmtudagur 19. maí 1994
93. tölublað
Venjulegir og
cfemantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Vopnafjöröur:
HágangurI
bilaði á leið
í Smuguna
Hágangur I, annar kanad-
ísku togaranna sem Úthaf
hf. á Vopnafirði keypti fyrr á ár-
inu frá Kanada, hélt til veiða í
Smugunni á þriðjudag. Úthaf
hf. er sameign útgerða á Vopna-
flrði og Þórshöfn. Togarinn hélt
til veiða í síðustu viku en er
hann var kominn um 300 mflur
áleiðis var vélarbilun og rak tog-
arann stjórnlaust í sólahring
meðan skipt var um slíf í vél-
inni.
Verið er að ganga frá vinnslu-
línu um borð í Hágang II, til salt-
fiskvinnslu, sem cr eins og í Há-
gangi I, og heldur hann einnig á
veiðar í Smugunni. Þar eru fyrir
íslensku skipin Bliki frá Dalvík,
Drangey frá Sauóárkróki og
Skúmur frá Hafnarfirði auk þess
scm Rcx, scm skráöur er erlendis,
cr þar einnig. Ekki er búist vió
flciri skipum í Smuguna fyn' en
cftir sjómannadag en þá cr búist
vió „trafflk" cf fréttist af sæmilcg-
um aflabrögðum. Fréttir bcrast af
mokvciði hjá Rússum á Tor Ivc-
scn- bankanum á Svalbarðasvæð-
inu cn sá flskur mun vcra á hraðri
leið austur svo kannski berast
fréttir innan tíðar af vaxandi veiöi
hjá íslcnsku skipunum.
I gær var rússncskt strand-
gæsluskip væntanlegt á veiðislóð
Islendinganna í Smugunni en
Rússar og Norömenn virðast hafa
sameinast um „gæslu" á þessu
hafsvæði scm þó er alþjóðlcgt og
á ekki að lúta yfirstjórn þcirra. GG
Menntaskólinn kvaddur
Stúdentsefni í Menntaskólanum á Akureyri klœddu sig upp í hin furðulegustu gervi í gær og kvöd iu lœrifeður sína. Að
vanda fóru þau um strœti Akureyrarbæjar í vögnum. Framundan er próflestur og hvítu kollana fá hinir verðandi stúdentar
þann 17. júní. Mynd: Robyn
Könnun á atvinnuhorfum skólafolks á Akureyri:
Astandið verst hjá 1977-árganginum
Fundur miðstjórnar ASÍ:
Ummæli
Þórarins
alvarleg og æru-
meiðandi
Fundur miðstjórnar Alþýðu-
sambands íslands og for-
ystumanna lands- og svæðasam-
banda innan ASI, mótmælir
harðlega þeim ósvífnu og raka-
lausu fullyrðingum Þórarins V.
Þórarinsspnar, framkvæmda-
stjóra VSÍ, um að 4-5000 manns
sem eru án atvinnu hafi í raun
engan áhuga á því að fá vinnu.
Fullyrðingar Þórarins urn aó
þcssi mikli fjöldi lolks sé að mis-
nota atvinnuleysisbótakerfið og
brjóta þar mcó lög cru óþolandi
og ætti hann að hafa manndóm í
scr til að biójast opinberlega af-
sökunar á þessuni ummælum sín-
um, eins og segir í fréttatilkynn-
ingu frá ASI.
Fundurinn telur augljóst að or-
sakir atvinnulcysisins séu ckki
þær að fólk vilji ekki vinnu og það
að halda slíku fram sé^ hrein
móðgun við launafólk á Islandi.
„Ummæli Þórarins cru alvarleg og
ærumciðandi aðför að því Ij'öl-
rnarga fólki sem má þola það að
vera án atvinnu og fullt tilefni til
lögsóknar á hendur þeim scnt
hafði þau í frammi," segir enn-
fremur í flcttatilkynningunni. KK
Atvinnuhorfur skólafólks á
Akureyri í sumar eru mjög
mismunandi. Bróðurpartur
nemenda í efri bekkjum fram-
haldsskólanna hefur fengið sum-
arvinnu en ástandið er öllu lak-
ara í neðri bekkjunum. Þetta
kemur fram í niðurstöðum
könnunar á atvinnuhorfum
skólafólks sem atvinnumála-
nefnd Akureyrar hefur gert.
Rctt um sexhundruð nemendur
í skólunum á Akureyri tóku þátt í
könnunni. Þeir elstu eru fæddir ár-
ið 1969 cn þeir yngstu árið 1978.
Könnunin tók annars vegar til
fólks sem á lögheimili á Akureyri
og hins vegar til fólks sem á lög-
hcimili utan Akureyrar.
Ef fyrst er litið til þeirra sem
eiga lögheimili á Akureyri kemur
í Ijós aó samtals 19 manns á aldr-
inum 18-25 ára höfðu ekki fengið
sumarvinnu þegar könnunin var
gerð. Þegar kemur síðan að ár-
ganginum 1977 harðnar verulega
á dalnum. Samtals höfðu 48 nem-
endur fæddir árió 1977 ekki feng-
ið vinnu þegar könnunin var gerð
og 35 unglingar fæddir 1978
höföu ckki fengið vinnu.
Samkvæmt könnuninni viróist
atvinnuástand nemenda sem eiga
lögheimili utan Akureyrar vera
betra en nemenda meó lögheimili
á Akurcyri. 31 nemandi með lög-
heimili utan bæjarins hafði ekki
fengið vinnu. óþh
. '
Leikskólamálið
rætt í bæjarráði
Síðdegis í gær áttu for-
svarsmenn Akureyrar-
bæjar viðræður við eiganda
hússins í Giljahverfi þar sem
Leikskóli Guðnýjar Önnu
hefur verið til húsa um leigu
á því til skamms tíma, hugs-
anlega tveggja mánaða.
Ekki fengust upplýsingar
um niðurstöðu þcssa máls áður
cn Dagur fór í prentun í gær-
kvöld, en stefnt var að því að
halda lund í gærkvöld með for-
eldrum bama á leikskólanum.
Bæjarráó kom saman í gær
þar sem málefni lcikskólans
voru á dagskrá. Samþykkt var
að fela bæjarstjóra og bæjar-
lögmanni aö leita eftir viðræð-
um við eiganda hússins um
hugsanlega leigu bæjarins á
því til skamms tíma á mcðan
leitað yrði annarra úrlausna á
málefnum leikskólans.
Eins og komiö hefur fram
var leikskólinn innsiglaður sl.
föstudag að kröfu eiganda
hússins vegna þess að rekstrar-
aðili leikskólans hefur ckki
staöiö í skilum með greiðslur
af húsinu. öþh
Samþykkt bæjaryfirvalda á Akureyri um kaup á flotkví:
Atvinnuskapandi verkefni og
styrkir skipasmíðaiðnaðinn
- segir Halldór Jónsson, bæjarstjóri
Akvörðun hafnarstjórnar og
bæjarstjórnar felur það í sér
að hér er ætlunin að útbúa að-
stöðu sem á að verða mjög at-
vinnuskapandi og styrkja skipa-
smíðaiðnaðinn. Eigendur SIipp-
stöðvarinnar-Odda telja að til-
koma flotkvíar verði mjög já-
kvæður þáttur fyrir rekstur
skipasmíðaiðnaðarins í bæn-
urn,“ segir Halldór Jónsson,
bæjarstjóri á Akureyri.
Eins og fram kom í Degi í gær
samþykkti hafnarstjórn Akureyrar
sl. þriðjudag aó kaupa flotkví til
Akurcyrar og sama dag staðfesti
bæjarstjórn Akureyrar þá bókun.
Það liggur því ljóst fyrir að til Ak-
urcyrar vcrður keypt ilotkví sem
hugmyndin er að geti tekið skip
nreð allt að 8.0 metra djúpristu og
að minnsta kosti 3.500 þungatonn.
Halldór Jónsson segir þessa
bókun hafnarstjórnar hrcina og
ótvíræöa og um hana hafl vcriö
mikil samstaða. Hann segir að þaó
sem næst gerist í málinu sé að
óska eftir því vió Hafnamálastofn-
un að hún vinni útboösgögn í
samráði við Akureyrarbæ vcgna
flotkvíar af áóurnefndri stærð og
henni verði falið aó kanna aðstöðu
fyrir flotkvína. Einnig verði farið í
viðræður viö samgönguráðuneytiö
um hlut ríkisins í kaupum á llot-
kví, en eins og fram hcfur komið
taldi ráðuneytið kaupin vera styrk-
hæft verkefni.
Flotkvíin vcróur keypt crlcndis
frá og segir Halldór að til scu
ýmsar upplýsingar þar að lútandi,
„og þaó er ljóst að það verða útbú-
in útboðsgögn fyrir ílotkvína,
hvort heldur sem er notaða cða
nýja. Útboðið verður opinbcrlega
auglýst þegar þar að kemur.
Eg treysti mér ekki til þess að
nefna dagsetningar í þessu sam-
bandi. Eg met það svo að það eigi
ekki að þurfa svo langan tíma til
þcss að gera útboösgögn fyrir flot-
kvína. I mínum huga mun hönnun
á tilheyrandi halnarmannvirkjum
vcróa að taka mið af þeirri llotkví
scm verður keypt. Eg geri mér
vonir um að í þetta mál vcrði nú
farið af miklum kralti og ég hefði
gjarnan vilja sjá þessa hluti geta
gerst á allra næstu mánuðum,"
sagði Halldór. óþh