Dagur - 26.05.1994, Blaðsíða 1

Dagur - 26.05.1994, Blaðsíða 1
Skandia Ufandi samkeppni W - lœgri iðgjöld Geislagötu 12 • Sími 12222 Mecklenburger Hochseefisherei: Risatogarinn Hercules landar á íslandi Hercules, stærsta skip í tog- araflota þýska útgerðarfyr- irtæksins Mecklenburger Hochseefisherei, sem Útgerðar- félag Akureyringa á meirihluta í, landar í dag í fyrsta skipti á ís- landi. Togarinn landar 700 tonnum af heilfrystum karfa í Hafnarfírði og er aflaverðmæti 50-60 milljónir króna. Ingi Björnsson, framkvæmda- stjóri Mecklenburger Hochseefls- Eyjafjarðarsveit: Handverks- hátíðin endurtekin Verslunarstjóri KEA NETTÓ segist alltaf hafa átt von á hörðu verðstríði við Bónus: herei, segir að Hercules sé fyrst og fremst síldar- og makrílskip en togarinn hefur vcrið á karfaveið- um undanfarið. Ingi taldi að Herculcs sé einn stærsti togari sem landað hefur á Islandi því skipið cr 102 metrar að lengd 15 metrar á breidd og er skráð 3200 brúttótonn. I áhöfn eru 64 mcnn. Frá Hafnarfirði fer togarinn til Þýskalands þar sem hann verður útbúinn til síldveióa. Hercules var smíðaður í Þýskalandi árið 1982 og er elsta skip fyrirtækisins. Tog- arinn hefur verió á söluskrá en aö sögn Inga hafa ekki fengist viðun- andi boð í skipið. JOH Hunaur afsundi. Mynd: Benni Efnt verður til handverkshá- tíðar á Hrafnagili í Eyja- íjarðarsveit dagana 10.-12. júní næstkomandi. Yfirskrift hátíð- arinnar er Handverk ’94 og er Ijóst að fleiri sýnendur verða á hátíðinni en í fyrra. Þá var að- sókn almennings mjög góð því á þriðja þúsund manns kom á há- tíðina og skoðaði það sem hand- verksáhugafólk hringinn í kring- um landið er að fást við. Ataksverkefnið Vaki stendur fyrir hátíðinni og segir Elín Antonsdóttir, verkefnisstjóri, að sýncndur komi alls staðar aó af landinu. Sýningarbásar verða 50- 60 en sýnendur eru í raun mun fleiri því í mörgum tilfellum standa hópar handverksfólks sam- eiginlega að básum. Elín leggur áherslu á að um sé að ræða sölusýningu á handverki en jafnframt henni fær handverks- fólk tækifæri til aó sækja fræóslu- íýrirlestra um ýmis málcfni sem varða framleiðslu og markaðsmál. I Ijósi mikillar aðsóknar að sýn- ingunni í fyrra var ákveóið að hafa opnunartímann lengri nú og verður sýningin opin föstudaginn 10. júní milli kl. 16 og 20. Laug- ardaginn 11. júní verður opið milli kl. 13 og 20 og sunnudaginn 12. júní milli kl. 13 og 18. Þá verður á staónum boðið upp á ýmsa þjón- ustu og skemmtun, t.d. verður aö- staða fyrir börn til leikja og barna- gæsla, hestaleiga, sundlaug er á staðnum og loks verður efnt til grillveislu síðla laugardagsins og tískusýningar um kvöldið. JÓH Reksturinn hefur gengið vel og verslunin er komin til að vera - segir Júlíus Guömundsson - KEA Nettó á Akureyri fagnar tveggja ára afmæli Eg átti alltaf von á hörðu verðstríði þegar Bónus setti upp verslun á Akureyri og sú varð raunin. Og það kom reynd- ar fyrir að einstaka verð fóru úr böndunum. Ég átti hins vegar ekki von á því að Bónus gæflst upp svo fljótt á Akureyri, eftir allar þær yfirlýsingar sem Jó- hannes Jónsson hefur gefíð,“ sagði Júlíus Guðmundsson, verslunarstjóri í KEA Nettó. Eins og kom fram í Degi í gær, hefur Bónusversluninni á Akur- eyri nú verið lokað. „Þrátt fyrir að Bónus hafl lokað verslun sinni, munurn við ál'ram leggja áherslu á að bjóða lágt vöruverð. KEA Nettó er komin til að vera og vió rnunum bera okkar verð saman við lægstu verðin í Rcykjavík.“ Jóhannes Jónsson í Bónus, sagði í Degi í gær, það vera trufl- andi að umræðan snérist um flutn- ing á fjármunum frá Akureyri því þá staðreynd verði að hafa í huga að Bónus versli í hverri viku við fyrirtæki á Akureyri l'yrir um sjö milljónir króna. Júlíus Guómunds- son svarar því til að KEA versli einnig viö fyrirtæki í Reykjavík fyrir milljónir króna í hverri viku. Þá sé það rangt hjá Jóhannesi að Bónus hafi þurft að kaupa mjólk- urvörurnar í gegnum samkeppnis- aðilann, þ.e. Mjólkursamlag KEA. „Jóhannes segir einnig að Bón- us geti ekki leyft scr aó tapa eins og sumir. Arsreikningar fyrirtæk- isins hafa ekki legið fyrir almenn- Akureyri: „Sprenging“ í atkvæða- greiðslu utan kjörfundar Eg held að óhætt sé að segja að sprenging hafl orðið í ^ Akureyrarbær: 0 A launum í Abo Bæjarstjórn Akureyrar sam- þykkti í liðinni viku að veita starfsmönnum bæjarins leyfi á launum í fjóra daga til þess að sækja kvennaþingið í Ábo í Finnlandi. Jafnréttisnefnd hafði samþykkt bókun í febrúar sl. þar sem þeirri ósk var beint til bæjarstjórnar aó hún veitti starfsmönnum bæjarins, sem hefðu áhuga að sækja kvennaþingið, leyfi í fjóra daga á launum. Bæjarstjórn samþykkti eftirfar- andi tillögu Siguróar J. Sigurós- sonar, forseta bæjarstjórnar, sam- hljóða: „Bæjarstjórn Akureyrar sam- þykkir aö starfsmenn sem sækja þingið skuli halda launurn í allt að fjóra daga meðan þingió stendur. Forstöðumenn stofnana bæjarins skulu leitast við að mæta jtessu leyfi án þess að til viðbótarút- gjalda komi fyrir viðkomandi stofnun.“ óþh utankjörfundaratkvæðagreiðsl- unni,“ sagði Björn Rögnvalds- son, fulltrúi hjá sýslumannsemb- ættinu á Akureyri í gær. Björn sagði að eftir rólega byrj- un í utankjörfundaratkvæða- greiðslunni hafi heldur betur færst fjör í leikinn síðustu daga. Hann skaut á að sl. þriðjudag hafi um 65 manns kosið á skrifstofu sýslu- mannsembættisins vió Hafnar- stræti og miðjan dag í gær hafði álíka fjöldi greitt atkvæði. Síðastliðinn þriójudag fóru fulltrúar sýslumannsembættisins á dvalarheimili aldraðra á Akureyri og i Skjaldarvík, Fjórðungssjúkra- húsið, Kristnes og í fangelsið á Akureyri og gáfu fólki kost á að greiða atkvæði utan kjörfundar. Björn sagói að í dag og á morg- un yrói opið fyrir utankjörfundar- atkvæóagrciðslu á venjulegum skrifstofutíma kl. 9-15 og síðan aftur kl. 17-19 og 20-22. Á kjör- dag verður opið kl. 9-21. Björn sagðist vilja hvetja fólk til þcss að draga það ekki fram á síðasta dag að greiða atkvæði utan kjörfundar. „Bcst væri að fólk kæmi hingaó utan skrifstofutíma, þ.e. kl. 17-19 eða 20-22. Á þess- urn tíma er sérstök vakt vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslunn- ar og þá eru minnstar líkur á bió- röð,“ sagði Björn. óþh ingi á meðan ársreikningar KEA eru geróir opinberir og því er ekki hlaupið að því að skoða stöðu fyr- irtækisins. En hver á Bónus í dag og hver átti Bónus fyrir 5 árunr. Það væri fróðlegt aó fá svar vió því,“ segir Júlíus. KEA Nettó er þcssa dagana að fagna tvcggja ára afmæli og al' því tilefni eru tilboðsdagar út þessa viku. „Það eru um 60 vörunúmer á sérstöku tilboðsverði og er verð- lækkunin allt að 90%.“ Júlíus segir að reksturinn þessi tvö ár hafi gengið mjög vel. Velta verslunarinnar hefur veriö mun meiri en upphaflega var gert ráðið l’yrir og reksturinn hcfur veriö réttu meginn við strikið frá upp- hafi. Hjá KEA Nettó eru um 10 stöðugildi. KK Veðurathugunarmenn: Um 20 pör vilja á Kjöl Umsóknarfrestur um starf veðurathugunarmanna á Hveravöllum á Kili rann út 20. maí sl. og samkvæmt upplýsing- um frá Veðurstofu íslands bár- ust umsóknir frá um það bil 20 pörum. Oskað var cftir tvcimur ein- staklingum, hjónum eða einhleyp- ingum, til að gcgna starfi veðurat- hugunarmanna á Hveravöllum frá lok júlí nk. til eins árs. Vióbrögðin við auglýsingunni voru góó og er nú verið að vinna úr umsóknun- um. Búist er við því að ráðið verði í starfið í vikulokin. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.