Dagur - 26.05.1994, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 26. maí 1994 - DAGUR - 7
Þess vegna Framsóknt
Mismunandi leiðir
A framboðslistum allra flokka fyr-
ir bæjastjórnarkosningarnar er hið
ágætasta fólk, sem vill hag Akur-
eyrar sem mestan, en hefur mis-
jafnar skoðanir hvaða leiðir séu
bestar og á hvaó skal leggja
áherslu. Þó virðast allir, sem betur
fer, vera sammála um að atvinnu-
leysið sé sá vandi, sem fyrst þarf
að taka á.
Atvinnumál
I atvinnumálum höfum við fram-
sóknarmenn kynnt ítarlega hvaða
leiöir viö viljum fara og við telj-
um að þær muni stuðla að aukinni
atvinnu. Vandi þessi er tvíþættur,
annars vegar þarf að frnna
skammtímalausn og hins vegar
þarf að vinna markvisst aó þess-
um málum til framtíðar.
Það er nokkuð ljóst að á sam-
dráttartímum verður bærinn að
styðja vió atvinnulífið, en það má
samt ekki gleymast að flest fyrir-
tæki verða til fyrir áræðni og þor
manna, sem eru tilbúnir til að gefa
sig út í rekstur. Ég hef alltaf verið
þeirrar skoöunar að í stað eins 100
manna vinnustaðar, sé betri lausn
að hlú að rekstrarumhverfinu
þannig að 100 fyrirtæki geti bætt
við sig einum manni hvert.
Við erum svo heppin að fag-
þekking hér er mjög góð og við
eigum eina bestu iðnaðarmenn
landsins. Einnig eigum við mjög
vel menntað fólk í öðrum störfum.
Unga fólkió í dag hefur menntun-
ina, dugnaðinn og kjarkinn til að
berjast áfram. Þetta þarf að virkja.
Tækifærin eru víða, það þarf bara
að frnna þau og nota.
Baráttuaðferðin
Við framsóknarmenn höfum verið
gagnrýndir af öðrum flokkum fyr-
ir að telja ekki upp þaó sem miður
hefur farió í stjórn bæjarins und-
„Því segi ég: Til að
fella þennan meiri-
hluta þurfum við að
koma að fímmta
manni Framsóknar.
Allt annað er ávísun á
áframhaldandi meiri-
hlutasamstarf Alþýðu-
bandalags og Sjálf-
stæðisflokks í bæjar-
stjórn Akureyrar og
framlenging á ör-
deyðu atvinnulífsins.“
anfarið kjörtímabil. Við teljum
betri leið að benda kjósendum á
hversu góóur valkostur X-B er, en
að biðja þá að kjósa okkur af því
að við séum ekki eins slæmir og
hinir.
Oddur Helgi Halldórsson.
Tveir Sjálfstæðisflokkar
frú Sigríðar
Sigríður Stefánsdóttir reynir nú að
telja okkur bæjarbúum trú um aó
það séu tveir Sjálfstæðisflokkar í
landinu, því hún dásamar Sigurð
J, en bölvar Davíó. Þetta segir
okkur að ef núverandi meirihluta-
flokkar fá aftur samtals sex bæjar-
fulltrúa er mjög líklegt að þeir
haldi samstarfi sínu áfram, burtséð
frá því hvort annar fær fjóra og
hinn tvo, eða hvort þeir fái sína
þrjá hvor.
Fimmti maðurinn
Því segi ég: Til að fella þennan
meirihluta þurfum við að koma að
fimmta manni Framsóknar. Allt
annað er ávísun á áframhaldandi
meirihlutasamstarf Alþýðubanda-
lags og Sjálfstæðisflokks í bæjar-
stjórn Akureyrar og framlenging á
ördeyðu atvinnulífsins.
Oddur Helgi Halldórsson.
Höfundur er blikksmióur og iðnrekstrarfræó-
ingur og skipar 6. sætió á B-lista Framsóknar-
flokks í bæjarstjómarkosningum á Akureyri á
laugardaginn.
Sundlaug Akureyrarbæjar - fjöl
skyldugarður framtíðarinnar
Nú fyrst í lok kjörtímabils núver-
andi bæjarstjónar er hafist handa
við framkvæmdir við Sundlaug
Akureyrar. Og kominn tími til
mætti eflaust segja. Sem daglegur
morgunsundsgestur hef ég í það
minnsta mátt svara mörgum
spurningum og þola ntargar háðs-
glósur frá félögum í heita pottin-
um um þennan seinagang fram-
kvæmda.
Þegar núverandi íþrótta- og
tómstundaráð tók vió voru allir
meðlimir þess sammála um að
láta það hafa forgang aó Ijúka við
Iþróttahöllina, sem þá hafði verið
urn það bil 15 ár í byggingu. Sem
sagt að allir flokkar gætu tekið út
úr stefnuskrá sinni þessa setningu
sem þar hafði verið í það minnsta
þremur kosningum á undan þ.e.
„stefna ber aö því að ljúka fram-
kvæmdum við íþróttahöllina á
kjörtímabilinu'1 Þetta hefur nú
tekist að mestu leyti. Þó er enn
eftir aö ganga endanlega frá lóð
fyrir sunnan Höllina meö hellu-
lögn. I þessar framkvæmdir fór
nær allt framkvæmdafé I.T.A. og
einnig í endanlegan frágang sund-
laugar í Glerárhverfl.
Þaó var því ákveðið að reyna
að hefjast handa við framkvæmdir
á síðastliðnu ári, en vegna ýmissa
ástæóna var það ekki unnt. Eftir
„Er það von mín
að þeir sem koma
til með að hafa
völdin að loknum
kosningum haldi
áfram þeirri upp-
byggingu sem nú
er hafin við sund-
laugina og láti
þessa framkvæmd
hafa forgang“.
miklar vangavcltur og athuganir,
bæði hönnuða, starfsmanna I.T.A.
og nefndarmanna, var útfærslan á
viðbyggingu og breytingum á lóó
kynnt fyrir bæjarstjórn í desem-
ber 1993 og samþykkt í bæjar-
stjórn í janúar 1994 af fulltrúum
allra flokka. Var því algjör pólit-
ísk samstaða um þessa fram-
kvæmd og er þaö von mín aó hún
haldist út framkvæmdatímann.
En hvað á svo að gera á
svæðinu? I hverju eru endurbæt-
umar fólgnar? Vil ég gera stutt-
lega grein fyrir þeim hér á eftir.
Nú er unnið viö lagfæringu á
heitum pottum, uppbyggingu
rennibrautar sem er 55 m löng og
annarar sem er 11 m löng og 3 m
á breidd. Þá er verið aó koma fyrir
eimbaði á milli núverandi heitu
potta. Nýtt sólbaðssvæði verður
sett vió hliðina á minni renni-
brautinni og þar vcróur busllaug
fyrir yngstu börnin. Þessum fram-
kvæmdum á að verða lokið í júní
næstkomandi.
A næstu 3. árum verður byggt
við gamla húsið, um leið og það
verður allt endurbætt. I nýbygg-
ingu verður anddyri, búningsklcf-
ar kvenna, kaffitería og afgreiðsla
svo og „pottasalur" með heitum
potti. A útisvæðum verður komið
fyrir nýrri sundlaug. Þá verður
gamla laugin lagfæró, hún gerð
grynnri og koniið fyrir leiktækj-
um í grynnri cnda hcnnar.
Þá cru ótaldir þeir möguleikar
sem lóð sundlaugarinnar bíóur
upp á. Þegar tjaldstæði , sem er á
milli sundlaugar og Hallarinnar,
verður lagt niður, tel ég rétt að
sctja það undir lóð sundlaugarinn-
ar. A þessari stóru lóð er hægt að
gera sannkallaóan tjölskyldugaró,
þar sem sundlaugin yrði
miðpunkturinn. A lóöinni væri
t.d. hægt aö koma fyrir tennisvelli,
upphituðum hlaupabrautum svo
Allir í Þorvaldsdals-
skokkið 10. júlí
í nir a ,,:u r— ' *... .*h.
Sunnudaginn 10. júlí nk. fer
fram landslagshlaup eftir endi-
löngum Þorvaldsdal í Eyjafirði.
Svo sem mörgum Norðlending-
um mun kunnugt þá er Þor-
valdsdalur opinn í báða enda,
opnast í norður á Arskógs-
strönd og suður í Ilörgárdal.
Skokkió hefst við Fornhaga í
Hörgárdal, 60 m yfir sjávarmáli
og endar viö Arskógsskóla, sem
einnig er 60 m yfir sjávarmáli, og
er vegalengdin um 23 kílómetrar.
Allbratt er fyrsta spölinn upp frá
Fornhaga og dalbotninn nær 500
m hæð eftir um 5 km, en úr því
hallar undan með þeim frávikum
sem landslagið býður upp á.
Skokkarar fylgja sennilcga helst
fjárgötum, en mega stytta sér leið
að vild. Farið er um móa, mýr-
lendi og norólenskt hraun (fram-
hlaup). Fjórar drykkjarstöðvar
verða á leiðinni og bíll mun aka
munum hlauparanna frá rásmarki
að endamarki. Ferðaþjónustan á
Ytri-Vík/Kálfsskinni mun sjá um
afþreyingu fyrir fylgdarlið hlaup-
ara í námunda við Arskógsskóla,
svo sem sund, kaffidrykkju, hesta-
ferðir og sjóstangaveiði. Þorvalds-
dalsskokkið er ætlað öllum, bæði
konum og körlum, sem telja sig
komast þessa leið hlaupandi,
skokkandi eða gangandi. Tíma-
töku verður hætt eftir 5 tíma.
Keppt er í aldursflokkum 16-39
ára, 40-49 ára, 50-59 ára, 60-69
ára og 70 ára og eldri. Þátttöku-
gjald greiðist við rásmark. Þátt-
tökutilkynning á skrifstofu UMSE
(sími 96-24477, fax 96-27144) og
við rásmark.
Götuskokkarar, göngumenn og
aðrir! Fariö þið að þjálfa ykkur
fram aó 10. júlí. Breytið til og
skipuleggið sumarfríið með Þor-
valdsdalsskokkið í huga. Ef þið
eruð með gesti, þá bjóóið þeirn
með í skokk um þennan fagra dal.
Skipuleggjendur og fram-
kvæmdaaðilar Þorvaldsdals-
skokksins eru Ferðafélagið Hörg-
ur, Ungmennafélagið Reynir,
Björgunarsveitin Ströndin og
Ferðaþjónustan Ytri- Vík/Kálfs-
skinni. Upplýsingar veitir Bjarni
E. Guðleifsson Möðruvöllum
(vinnusími 96- 24477 heimasími
96-26824). (Frétlalilkynning)
og ótal leiktækjum fyrir alla ald-
ursllokka.
Er það von mín að þeir sem
koma til meó að hafa völdin að
loknum kosningum haldi áfram
þeirri uppbyggingu sem nú er haf-
in vió sundlaugina og láti þessa
framkvæmd hal’a forgang.
Gunnar Jónsson.
Höfundur er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
íþrótta- og tómstundaráði Akureyrar og for-
maður þess.
“1
Við setjum X við
HERRAMENN
á laugardagskvöldið
Auk glæsilegs sérréttaseðils bjóðum viö
Ovænta ánægju
5 rétta „surprise menu" ásamt kaffi
Verð aðeins kr. 3.200.-
vt/ '•/
Maítilboð á Súlabergi
Kryddlegnar lambahryggsneióar
meó kryddsmjöri og frönskum kartöflum
ásamt súpu dagsins
Verð aðeins kr. 690.-
Ennfremur okkar vinsælu pizzu- og
hamborgaratilboð
Hamborgari meó salati, lauk og sósu kr. 185.-
Hamborgari með salati, lauk, sósu og
frönskum kr. 250.-
Pizzur „tvær fyrir eina"
Sé pizzan tekin með heim, færö þú
aðra eins fría
Tilboðin gilda aðeins út maímánuð
HÓTEL
KEA
Sími 22200
JE