Dagur - 26.05.1994, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 26. maí 1994
íP
íþróttamibstöbin
Glerárskóla
SUND ■ SUND ■ SUND
Sundnámskeiðin í Sundlaug Glerár-
skóla hefjast mánudaginn 30. maí!
Skráning og allar nánari upplýsingar veröa í
síma 21539.
DiA Útvarp unga
“IU fólksins.
Dabbi R. Konni
Dabbi K. Simmi
Siggi Bibbi
Kalli Valgó
Maggi Sæbbi
Gunni Kiddi
Gústi Pési
Nonni Gulli
Sími 26776
ingi og 26775
Allan sólarhringinn.
••
wÉmMÉi
ORBIIBIN
*
Maggi II vegetablesi
Frá
Kr.
Frönsk smábrauð fín og
SvaXí- appelsínu og epla
6 í pakka 114 kr.
Kynning fimmtudag og föstudai
Skyndiiéttir „Fiigodan" 3 teg
15% afsláttui
Vegna mikillar eftirspurnar
endurtökum við vinsæla tilboðii
á nautahakki
Nautahakk 545 kr. kg
Nautagullash 779 kr. kg
lt
KIÖRBUÐIN
SfMI 12933 - FAX: 1293S
Frá fortíð tíl framtíðar
Það styttist óóum í sveitarstjórnar-
kosningarnar. Hin eiginlega kosn-
ingabarátta er senn að baki og til
starfa tekur ný bæjarstjórn sem, ef
marka má skoðanakannanir, verð-
ur að meirihluta skipuð reyndu
fólki. Við hinni nýju bæjarstjórn
blasa ærin verkefni. Þeirra á meó-
al verða atvinnumálin.
Fyrir þá sem reynt er að telja
trú um að ekkert hafi verió gert af
hálfu Akureyrarbæjar í þeim
málafiokki undanfarin ár er rétt að
rifja upp nokkrar staóreyndir.
1. Vegna átaks gegn atvinnu-
leysi var á árinu 1992 varió kr.
7.613.430,- og 1993 kr.
18.835.603.- eóa samtals kr.
26.449.038.-.
2. Að tillögu Alþýðubandalags-
ins var á árinu 1990 fyrst varið
auknum fjármunum vegna sumar-
vinnu skólafólks 16 ára og eldri.
A árinu 1993 nam þessi fjárhæð
kr. 8.162.835.
3. Framlag bæjarins til At-
vinnuleysistryggingasjóðs skv.
ákvörðun ríkisstjórnarinnar nam á
síóasta ári kr. 28.608.450,- og
kom að verulegu leyti til baka í
formi átaksverkefna.
4. Atvinnumálanefnd hóf aö
styrkja einstaklinga og fyrirtæki
til ýmissa verkefna til atvinnu-
aukningar á árinu 1992 og hafði
alls varió til ársloka 1993 kr.
9.136.678.- í þessu skyni.
5. Framkvæmdasjóður Akur-
eyrar hefur frá árinu 1987 greitt út
framlög sem nema kr.
39.978.718.- þar af á árunum
1990-’93 kr. 28.377.636,-
6. Akureyrarbær hefur keypt
hlutabréf frá 1987 fyrir kr.
562.363.997,- Frá árinu 1991 hef-
ur verið keypt í eftirtöldum fyrir-
tækjum: Fiskeldi Evjafjarðar kr.
1.082.375.-, Iðnþróunarfélag
Eyjatjaröar kr. 3.402.000.-, ÚA
kr. 25.088.655.-, Krossanesi hf.
kr. 100.000.000.-, Kaupþingi
Noróurlands kr. 185.625.-, Laxá
hf. kr. 20.079.967.-, Foldu hf. kr.
38.000.000.-, Hlutabréfasjóði
Norðurlands kr. 1.000.000.-,
Ómak hf. 200.000.-, Slippstöðinni
hf. kr. 35.000.000.-, Úrvinnslunni
hf. kr. 4.000.000,- og Skinnaiðn-
aói hf. kr. 22.500.000,-.
Frá 1991 til 1993 nema hluta-
Heimir Ingimarsson.
„Fram eru komnar
hugmyndir um nýtt
hlutverk fyrir Heklu-
húsið. Þær hugmyndir
sýnast geta skapað
60-80 störf ef allt
gengur upp. Verkun
sjávarafla er augljós-
lega að taka nýja
stefnu þar sem sífellt
meira er nú unnið í
neytendapakkningar. “
bréfakaup bæjarins því kr.
250.538.622,-
Ekki má heldur gleyma því að
bærinn hefur gengist í ábyrgð lyrir
fyrirtæki sem átt hafa í erfiðleik-
um í þeirri von að takast mætti að
halda í þau störf sem þau sköp-
uðu. Því miður hafa slíkar skuld-
bindingar fallið á bæinn. Þannig
féllu á hann kr. 41.938.221.- á ár-
unum 1991-1993 vegna fyrirtækja
eins og Istess, Alafoss, Striksins,
K. Jónssonar og Co og Hótels
Norðurlands. En hvað er framund-
an?
Eins og kunnugt er nú unnió að
kaupum á flotkví fyrir skipaiónað-
Kynningarverð!
í tilefni þess að stúlknaviko verður í fyrsta sinn í sumar bjóðum við 6-12 áro
'kum vikudvöl við Ástjörn dagana 18.-24. júni á sérstöku kynningarverði,
eða aðeins kr. 9.500,- að viðbættu staðfestingargjoldi.
6-12 ÁRA STÚLKUR 0G DRENGIR
Dagana 25. júní-15. júli dvelja bæði stúlkur og drengir við Ástjörn.
6-12 ÁRA DRENGIR
Dagana 16. júlí-12. ágúst dvelja drengir við Ástjörn.
13-17 ÁRAUNGLINGAR
Vikuna 13.-19. ágúst dvelja unglingar við Ástjörn.
Dvalartimi er allt trá 1 viku og upp í 7 vikur. Nánari upplýsingar i sima 96-23238 (Bogi
Pétursson, forstöðumaður), 96-21585 (Mognús og Árni) og 96-21509 (Þarsteinn Pétursson).
Sumarheimilii Asljörn er i þjóð-
garöin um í Asbyrgi og er krislilegl
sumarheimili lyrir drengi og slúlk-
ar. Tjörnin og skágurinn umhverlis
veilir ólæmandi möguleika lilleikja
og úlivera lyrir böra og unglinga.
Viö Astjörn eru fjölmargir bálar al
ýmsum geröum, knallspyrn u- og
körluboilavöllur, og Irjálsar iþróllir,
kvöldvökur, löndur, biblíulímar
a.m.ll. er á dagskránni. Heslaleiga
er i næsla nágrenni.
Verð pr. viku 11.500,- kr. Staðfestingargjald bætist við (1.000 - 2.000 kr.).
10% systkinaafsláttur og 5% staðgreiðsluafsláttur. VISA, EURO og Somkort.
inn í bænum. Ætla má að til þess
verkefnis þurfi að verja allt að 200
milljónum króna. Verió er að
kanna grundvöll að stórri mat-
vælaverksmiðju sem skapað gæti
á annað hundrað störf þegar allt er
talið.
Frarn eru komnar hugmyndir
um nýtt hlutverk fyrir Hekluhúsið.
Þær hugmyndir sýnast geta skap-
að 60-80 störf ef allt gengur upp.
Verkun sjávarafla er augljóslega
aö taka nýja stefnu þar sem sífellt
meira er nú unnið í neytenda-
pakkningar. Þessi þróun hefur
þegar leitt af sér fjölgun starfa og
á vafalítið eftir að gera það til
muna á næstu misserum.
Hér hefur einungis verið stikl-
að á stóru hvað varðar iðnað. Sí-
fellt stærri þáttur í atvinnulífi okk-
ar hér á Akureyri er þjónusta af
ýmsu tagi, ferðaþjónusta, heil-
brigðisþjónusta, þjónusta vió börn
og aldraða, rannsóknir og þjónusta
menntastofnana og svo mætti
lengi telja.
Við skulum því ekki örvænta.
Með þróttmikilli bæjarstjórn á
að takast að vinna í samvinnu við
einstaklinga, fyrirtæki og opinbera
aöila aö sókn í atvinnulífi okkar.
Það tryggja Akureyringar best
með því að kjósa Alþýðubanda-
lagið til aukinna áhrifa í bæjar-
stjórn. X-G.
Heimir Ingimarsson.
Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 2. sæti á
iista Alþýðubandalagsins fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar á Akureyri.
Ingigcrður Einarsdóttir.
Sjötugur
listasmiður
Ingigerður Einarsdóttir heitir
þessi kona og hefur undanfarn-
ar vikur notfært sér þá aðstöðu
sem fólki býðst í Tómstunda-
heimilinu Punktinum á Gler-
áreyrum á Akureyri. I>ótt hún
sé orðin sjötug lætur hún aldur-
inn ekki aftra sér frá því að
sinna áhugamáli sínu, það er
smíðum.
Þegar Punkturinn opnaði fór
hún að kynna sér aðstöðuna þar
og hvort hún gæti notfært sér hana
til að láta gamla drauma rætast.
Og vissulega hefur það tekist því
á undanförnum vikum hefur Ingi-
gerður smíðað hilluna sem hún
stendur hjá og einnig brettið sem
hún heldur á, sem hvort tveggja er
sannkölluð Iistasmíði. Hún hefur
unnið þessa hluti algerlega sjálf;
teiknað þá, rennt, sett saman og
síðast en ekki síst skorið út munst-
ur í hilluna. Ingigerður er sunn-
lenskrar ættar, bjó um tíma á
Tálknafirði en hefur búið á Akur-
eyri mörg undanfarin ár. Hún
kvaðst lengi hafa haft áhuga á
smíðum en tími og tækifæri til
þess verið minni í gegnum tíðina
en hún hafi kosið. Aðstaóan á
Punktinum opni fólki hinsvegar
margvíslega möguleika og kvaðst
hún vilja hvetja fólk til að nýta sér
þá. ÞI