Dagur - 04.06.1994, Blaðsíða 4

Dagur - 04.06.1994, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Laugardagur 4. júní 1994 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639 ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1400 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,(lþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavlk vs. 96-41585, fax 96-42285), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON. LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. Sjómannadagurínn Sjómannadagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur allar götur síðan 1938. Það ár var dagurinn einungis haldinn hátíðlegur í Reykjavík og ísafirði en nú til dags er sjó- mannadagurinn hátíðisdagur um allt land og í mörgum sjávarplássum er þessi merkisdagur mesta hátíð ársins á eftir jólum. Markmið sjómannadagsins er að efla samhug sjó- manna, kynna þjóðinni starf þeirra og minnast þeirra sem ægikraftur Ægis hefur fangað. Sjómannadagurinn er einn af ellefu opinberum fánadögum og það segir sitt um sess þessa dags meðal þjóðarinnar. Sjómannadagurinn vekur fólk til umhugsunar um þau mikilvægu störf sem sjómannastéttin vinnur fyrir þjóðfé- lagið. Störf sjómanna eru oft ekki metin sem skyldi, en þeir gagnrýna mest sem ekki hafa skilning á sjómennsku og sjávarútvegi. Ráðhúsin og Perlurnar verða ekki til nema undirstaðan sé til staðar. Verðmætin byggjast á frumvinnslunni og sjávarútvegurinn vegur þar þyngst. Sjávarútvegurinn er og verður okkar undirstaða og það kemur ekki til með að breytast á næstunni. Óþarft er að hafa um það mörg orð að sjávarútvegur- inn og sjómannastéttin býr við erfið skilyrði nú um stundir og sjómenn eins og aðrir landsmenn hafa þurft að taka á sig gífurlega kjaraskerðingu vegna kvótasam- dráttar. En það er staðreynd að bróðurpartur sjómanna hefur fullan skilning á því að ábyrgðarlaust er að ganga of nálægt fiskistofnunum. Þeir hrynja ef of harkalega er að þeim gengið. Þetta vita sjómenn allra manna best. Sjómannadagurinn þjappar sjómannastéttinni saman, treystir böndin. Þetta er dagur til þess að gleðjast og ólmast í reiptogi, kappróðri og stakkasundi. Um leið og Dagur óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn er ekki úr vegi að rifja upp hið þekkta ljóð Arnar Arnarssonar „Hrafnistumenn", sem fékk fyrstu verðlaun í samkeppni sem sjómanna- dagsráð efndi til árið 1939. Þetta hrífandi ljóð við lag Em- ils Thoroddsen hefur síðan verið einkennissöngur sjó- mannadagsins: íslands Hrafnistumenn lifðu tímamót tvenn þó að töf yrði á framsóknarleið. Eftir súðbyrðings för kom hinn seglprúði knörr eftir seglskipið vélknúin skeið. En þótt tækjum sé breytt þá er eðlið samt eitt - eins og ætlunarverkið er sjómannsins beið. í UPPÁHALDI Ásta Sigurðardóttir. sta Sigurðar- Adóttir œtti að vera Akureyr- ingum góð- kunn þar sem hún skipaði 5. sœti á lista framsóknar- manna fyrir nýafstaðnar bœjarstýórnarkosningar á Akureyri. Eftir kosningarn- ar var Ijóst að Ásta yrði ein af þremur nýjum bœjarfull- trúum Akureyringa og þar af eina konan. Ásta tók vel í það að svara spurningum okkar í þessum þœtti, sem eru af talsvert öðrum toga en þœr sem hún hefur átt að venjast undanfarnar vik- ur. Ásta er sjúkraliði að mennt og starfar við Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri auk þess að hafa árum sam- an tekið virkan þátt í margskonar félagsstarfi. Eiginmaður Ástu var Ingi- mar Eydal, tónlistarmaður, sem látinn er fyrir nokkru og eignuðust þau fjögur börn. Uppáhaldsdrykkur? Sterkur grænn Bragi með skvettu af nýmjólk. Ertu hamhleypa til allra verka á heimilinu? Já, þegar ég kem mér aó því - ég gef ekki upp hversu oft það cr. Er heilsusamlegt líjemi ofarlega á baugi hjá þér? Já, miklu frekar en hitt. Hvaðgerírðu helst í frístundum? Skemmtilegast þykir inér að vera úti í náttúrunni og þá helst meó bamabömunum. Hvaða matur er í mestu uppálialdi hjá þér? Fiskur og allt sem unnið er úr fiski. Hvaða blöð og tímarit kaupir þú? Dag, Morgunblaóið um heigar og tímaritió Heilbrigðismál. Hvaða bók erá náttborðinu hjá þér? Námsbækur vegna framhalds- náms á sjúkralióabraut VMA, Saga Leikfélags Akureyrar, The Joy Luck Club eftir Ami Than og sakamálasaga. Hvaða hljómsveitltónlistarmaður er í mestu uppáhaldi Itjá þér? Chopin er sá höfundur sem oftast lendir á spilaranum. Uppálialdsíþróttamaður? Hinn almenni borgari, seni stundar íþróttir sér til heilsubótar og skemmtunar. Ef ég á að nefna citt nafn, þá er það Bragi Berg- mann knattspyrnudómari og kosningastjóri B-listans. Hvað horftr þú mest á í sjónvarpi? Ég horfi á nánast hvaó sem cr fyrir utan cnsku knattspymuna og skákskýringar. Áhvaða stjórnmálamanni hefurðu mest álit? Halldóri Ásgrímssyni. Hvar á landinu vildirðu helst búa ef þú þyrftir að flytja búferlum nú? Ég vildi ekki flytja lengra en fram í Eyjafjarðarsveit. Hvaða hlut eða fasteign langar þig mest til að eignast um þessar mund- ir? Sjónvarpstækið er orðið lélcgt og vildi ég því helst fá nýtt og stærra sjónvarp. Hvernig œtlarþú að verja sumar- leyfinu? Heimsækja dóttur mína og hennar fjölskyldu í Gautaborg í 2-3 vikur. Hvað œtlarðu að gera um helgina? Vinna upp vanrækslu undan- farinna daga gagnvart fjölskyldu og heimili. Gerast jafnvel ham- hleypa til allra verka á heimilinu. ÞÞ VÍSNAÞATTUR Vel er við hæfi aó hefja þennan þátt með vísum tveim eftir Hreióar Karlsson fyrrum kaupfélagsstjóra á Húsavík. Vísumar sendi Hreiðar með svofelldum texta: „Kosninga- baráttan í Reykjavík harðnar í sí- fellu og stórfé er varið til hennar. Svo mikið lof er borið á Árna Sig- fússon, að jafnvel virðist Kristur farinn að falla í skuggann. Og enn glymja auglýsingarnar í augum og eyrum: Nú er lítils vert um himnavist, vilja Jlestir hérna megin tóra. Því ekki þurfa þeir að trúa á Krist, sem þekkja svona góðan borgarstjóra. Og síðan: Króna fœr aðfjúka mörg fyrir listann bláa. Meðan Arni og Ingibjörg elda siljrið gráa. En víkjum nú að vísum frá göml- um tíma. Sigríður Friðriksdóttir sem bjó í Holtakoti í Ljósavatnshreppi orti til Marteins Halldórssonar: Kuldinn sœkir kné hansfast, klofið erfullt af raka. Ur afturenda ofi er hvasst undan rófuhaka. Árið 1930 eða þar um kring, var byggð rafstöð að Ingjaldsstöðum í Reykjadal, og þótti mikil nýlunda, aó keypt var eldavél sem rnátti baka í brauð við rafmagn. Næstu vísu orti Jenný K. Björnsdóttir á Ljósavatni þegar rafstöðin var gangsett: Vcrmir brauðið vélin rauð vatns með krafti hröðum. Þetta besta baukabrauð bakað á Ingjaldsstöðum. Eins og marga rekur minni til, þá var um tíma starfrækt sokkabuxna- verksmiðja á Sauðárkróki og nefnd- ist „Gleym mér ei.“ Egill Jónasson á Húsavík heyrði er stúlka ein ónefnd lýsti fyrir Fríðu konu sinni miklum ágætum sokkabuxna frá téðri verk- smiðju. Taldi stúlkan buxurnar falla sérlega vel, og halda vel um maga og rass. Egill var, eins og sagan greinir við lestur blaóa, en hafði þó pata af tali þeirra tveggja: Gleymméreian gefur arð, góð er þessi sokkabrók. En viljirðufara „Vonarskarð" verðurðu að taka á þig krók. Þann 18. mars 1990 varð Gísli Pálsson á Hofi í Vatnsdal sjötugur. Af því tilefni bárust honum mörg heillaskeyti. Þar gefur að líta næstu þrjár vísur, eftir jafn marga höf- unda: Frá Erlendi Hansen á Sauðár- króki fékk Gísli þetta skeyti: Arin líða eins og fyr, óður ískýja rofi. Gengur frjáls um gleði dyr Gísli bóndi á Hofi. Og frá Jóni Sveinssyni á Lárósi: Lifðu nú heill og hljóttu ci ijón hetju þinn endist kraftur. Lukku óskar þér laxbróðir Jón í lífinu fram og afiur. Jón og Aóalbjörn Benediktssynir sendu saman þessa kveðju: Löngum ert kenndur við djörfúng og dug drjúgur af ráðum slyngum. Megi þinn húmor og hugmyndaflug haldast með Vatnsdcelingum. Jakob Ó. Pétursson hafði mikið vald á bragarháttum. í ljóðabókinni Hnökrar, sem hann sendi frá sér, er flokkur vísna ortur undir breytileg- um háttum. Hér gefur að líta sýnis- hom þessara vísna: Ferskeytla (ferhenda): Þótt mann skorti skerpu og vit, skal ei neittfrá reika, nú er aðeins innt um lit, ekki um hatfileika. Hringhenda: Þótt afkreppu og gjaldagnótt, gjörvall hreppur skœli, að skal keppa að eignast fljótt eitthvert seppaheeli. Langhenda: Ekki er vert að vera aðfást um vonir skertar, harm og böl, þvífaðmlag hvcrt ífrjálsum ástum fœr oss hert gegn nýrri kvöl. Nýhenda: Hjá þér fala ýmsir egg, aldrei sala þeirra dvíni. Hanar gala á hallarvegg: Hitler, Stalín, Mussolini. Fráhenda: Þér er best, efgóðan gest að garði kynni að bera, að opna hús þitt hress og fiús og honum veislu gera. Samhenda: Drósin frétti um dansleikinn, dufti sletti um brá og kinn, klœddi netta kroppinn sinn í kalda, létta búninginn. Stikluvik: Fyrir ástir askunnar ýmsir þjást og líða. Einir bjástra í útlegð þar, aðrir kljást við freistingar. Dverghenda: Þekkir ekkert yndi betra ungur sveinn, en að vera átján vetra alveg hreinn. Afhending: Sá boðskapur er bœndum landsins býsna hollur: að gefa kúnum gamlar rollur. Braghenda: Eitt er það, sem víkja mœtti úr voru landi: Þessi gamli aldarandi að eira í vondu hjónabandi. Aloddhenda: Breytti um slóð og batt sérfljóð scm bónda góðum scemdi, niður óðar ómegð hlóð, alla sjóði tœmdi. Skammhenda: Grána hár á efiri árum, aukastfárin brátt. Feigðarljárinn fjölgar sárum, falla tár um nátt. Og að lokum kemur ein valstýfa: Stefna hátt þú aldrei átt, ef orkar smátt, en hrcesna þrátt og hlcegja dátt, —og hyggjaflátt.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.