Dagur - 04.06.1994, Blaðsíða 19

Dagur - 04.06.1994, Blaðsíða 19
Laugardagur 4. júní 1994 - DAGUR - 19 Sjómannskonan Mitt skip er lítið, og lögurinn stór og leynir þúsundum skerja. En granda skal hvorki sker né sjór því skipi er Jesú má verja. Á morgun cr sjómannadagur- inn og við sjómenn vil ég segja: Til hamingju! En hvaó er á bak við alla þá sjómcnn sem eru á hafi úti bróður- partinn úr ári? Jú, fjölskyldur; eig- inkonur og börn. Og hvernig hlut- skipti er það að vera eiginkona sjómanns? Fljótt á litið er það ekki öfundsvert, eða hvað? Ég gerðist forvitin og bað tvær sjómannskonur aó varpa Ijósi á hlutskipti sjómannskonunnar. Hvcrnig er sú tilfinning cf upp kenrur sjúkleiki á heimilinu, allir uppteknir í vinnu og eiginmaður- inn fyrst væntanlegur í land eftir 16 daga? Hvað gera sjómannskon- urnar þá? Þær gerast sjálfstæðar, ilytja fjölskylduna út af heimilinu til vina og vandamanna. Tíminn er vel skipulagður og það þýðir ekk- ert að gefast upp. Ég vildi líka ía að vita hvort það væri ekki mikil ábyrgð að vera cin og ala upp börnin, vera í raun bæði móðir og faðir. Svarið sem ég fékk var að auövitað væri það ekki auðvelt, en það þýddi ekkert að vcra ráðalaus. Onnur þeina tveggja sjómannskvenna sem ég ræddi við, bcnti mér á undratæki sem er vídeóupptöku- vél. Með aðstoð þess gæti stoltur pabbinn að minnsta kosti séð íýrstu skrefin senr barnið tæki eóa fyrstu tönnina. Síminn væri líka mikið notaður og í gegnurn hann gætu allir hcyrt í pabba. Hin konan sagðist reyna að vera virk, hún tæki þátt í fótbolt- anunr, skíðunum og svo reyndi pabbinn aó bæta þeim upp hans fjarveru þegar hann væri í landi. En hvað cr það sem skiptir rnestu máli í því aó halda góðu sambandi milli hjóna, þegar mis- jafnlcga langur tími líður á milli funda þeirra? „Traust“, sögðu þær báðar, „eitt hundrað prósent traust, og aó rækta sambandið þegar langþráóu fríi er náó." Kon- urnar sögðu að oft væri erfitt týrir tjölskylduna að aðlaga sig breytt- um aðstæðum og miklar vænting- ar væru á báða bóga. Miklu máli skipti að hlutirnir væru ræddir, óheppilegt væri að geyma ein- staka mál þangað til í næstu eða þar næstu inniveru skipsins. Of mikil spenna bjóði heim þeirri hættu að þær fáu klukkustundir sem sjómanninum og sjómanns- konunni eru skammtaóar, verði eyðilagöar. Af hverju finnst nrér fylgja þessu lífi ákveðin rómantík? Það hlýtur aó vera skemmtilegur tími fyrir sjónrannskonuna aó undirbúa komu eiginmannsins; þurrka af, skúra, taka utan af rúminu, jafnvel bara biðin hlýtur að vera sæt. „Að sjálfsögóu er þetta gam- an,“ sögóu þær mér. Önnur þeirra sagðist ekki hafa mikla viðhöfn heima fyrir. „Hann bara kernur inn á okkar heimili eins og það er." Hin sagðist vinna þessi verk til þess aó flýta fyrir sér. Þá væri þetta frá og þau gætu átt meiri tíma saman. „Þetta gera flest allar sjómannskonur sem ég þekki," sagði hún einnig. Hvernig er svo till'inningin aö keyra þá að skipshlið? Eg get ímyndað mér að það hljóti aó vera sárt? „Það cr eins og hjartað sé aö leggja upp í langt'eró og einmana- leikinn unrlykur rnann," sögðu þær. Þær bættu því við að sjó- mannskonur ættu þaó margar sameiginlegt aó þær gætu ekki fariö heinr fyrsta klukkutínrann á eftir. Frekar væri kíkt í heimsókn til vina og kunningja. Bara ekki heinr. „Okkur finnst eins og heinr- iliö sé tómt." Á nrorgun er dagurinn þcirra, dagur sjónrannsfjölskyldna um allt land. Eru sjómannskonurnar ánægðar nreð sjónrannadaginn, er gert nógu mikið fyrir börnin? „Það nrætti leggja meira upp úr dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Þetta hcfur sanrt lagast eftir aó við konurnar fórum að taka þátt í róðrinum," sagði önnur konan. „Ég held að börnununr, í það nrinnsta þeinr yngstu, finnist þetta ekki nrjög spennandi." „Mér finnst þetta yndislegur dagur," sagði hin, „allir svo glaðir og fín- ir. Svo hittir nraður fjölda fólks senr nraður sér næstunr aldrei." Að mér hvíslaði lítill fugl: Að vera gift sjónranni er eins og að vera átján ára og alltaf jafn ást- fanginn. Kannski að þaó sé bara satt? Við ykkur sjónrannskonur unr allt land vil ég segja: Til hanringju nreð sjómannadaginn. Njótið hans! Takk l'yrir hjálpina konur! Sundlaugin á Syðra-Laugalandi, Eyjafjarðarsveit, verður opin í júní sem hér segir: Mánudaga- föstudaga frá kl.14-19, laugardaga og sunnudaga frá kl.10-17. Sundlaugarvörður. MESSÍAS í Akureyrarkirkju sunnudagskvöld kl. 20.00. Athugið að tónleikarnir hefjast kl. 20.00. PASSÍUKÓRINN. Sumarstarf Starfskraft vantar til aðstoðar í ferðaþjónustu frá 15. júní til loka ágúst. Þarf aö hafa þægilegt viðhorf og gott vald á a.m.k. ensku. Gæti hentað tveimur sem hlutastarf. Umsóknir sendist inn á afgreióslu Dags fyrir 8. júní, merkt „Sumarstarf“. Deildarsérfræðingur Tímabundin ráðning Verkefni: Námskrár- og námsefnisgerð, eftirlit með ökunámi (að nokkru leyti kvöldvinna), gerð prófa, próf- dæming, önnur verkefni á starfssviði Umhverfisráðs. Skilyrði: Menntun í uppeldis- og kennslufræðum eða sálfræði, reynsla af gerð námskrár, námsefnis eða prófa, ökukennararéttindi, þekking á tölfræðilegri úr- vinnslu og tölvum. Reynsla af fjölmiðlum eða útgáfu- starfsemi æskileg. Nánari upplýsingar veitir Ingólfur Á. Jóhannesson deildarstjóri í síma 91-622000 eða 91-676603 (heima). Skriflegar umsóknir berist fyrir hádegi 20. júní nk. á eyðublöðum sem hér fást. UÉUMFERÐAR Vráð Borgartúni 33,150 Reykjavík. W Hnjúkabyggð 33, Blönduósi Endurbætur utanhúss Framkvæmdasýslan f.h. dómsmálaráðuneytis- ins og Héraðsnefndar Austur-Húnvetninga ósk- ar eftir tilboðum í endurbætur utanhúss á hús- eigninni Hnjúkabyggð 33, Blönduósi. Helstu verkþættir eru: Múr og sprunguviðgerðir veggja, endurnýjun á gleri, viðgerðir og breytingar á gluggum og málun glugga. Útboðsgögn verða seld á kr. 6.225,- frá og með mið- vikudeginum 1. júní 1994 kl. 13.00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7, 150 Reykjavík. Tilboðum verða opnuð á skrifstofu Ríkiskaupa, Borg- artúni 7, 150 Reykjavík, mánudaginn 20. júní 1994 kl. 14.00 aö viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. BORCARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 91-26844, BRÉFASÍMI 91-626739 RÍKISKAUP

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.