Dagur - 04.06.1994, Blaðsíða 14

Dagur - 04.06.1994, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Laugardagur 4. júní 1994 SÆVAR HREIÐARSSON HM I BANDARIKJUNUM '94 Hvað gerir Maradona í sumar? Við höldum nú áfram þar sem frá var horfið í síðustu viku með kynningu á liðunum sem taka þátt í lokakeppni HM í Bandaríkjunum í sumar. í dag er það D-riðill sem er í sviðs- Ijósinu en í honum leika Argentína, Búlgaría, Nígería og Grikkland. Argentína með Diego Maradona í broddi fylkingar er sennilega örugg áfram í næstu umferð enda sennilega í létt- asta riðlinum. Liðið þykir hafa leikið meiri sóknarbolta að undanförnu en í síðustu keppni og vonandi að framhald verði á því. Búlgarir hafa sterka framlínu en óvíst er hvort það dugar þeim til að komast áfram þar sem að vörn liðsins er heldur slöpp. Nígería er sennilega með besta lið Afríku um þessar mundir þar sem leikmenn liðsins eru mjög leiknir með boltann en þá hefur ávallt vantað meiri baráttu til að ná langt. Grikkir sigruðu okkur íslendinga í undankeppn- inni en hætt er við að þeim reynist aðeins erfiðara að kom- ast áfram í lokakeppninni. Argentína Búlgaría Þjálfari Argentínu er Alfio Basile sem tók við af Carlos Bilardo eftir lokakeppnina 1990. Liöió hefur verið sigursælt undir hans stjóm og vonandi aö hann leggi ekki eins mikla áhcrslu á vamarleikinn eins og fyrrverandi þjálfarar Argentínu. I markinu er vítabaninn mikli Sergio Goycochea sem sló í gegn á Ítalíu 1990 eftir að hafa byrjaó kcppnina sem varamaður. Fern- ando Redondo er snjall leikstjórn- andi sem nýverió var seldur til Re- al Madrid frá Tenerife. Hann hefur vakiö rnikla athygli fyrir aö vera bæói snjall með boltann og gefa aldrei eftir í baráttunni. Hann hefur átt misjöfnu gengi aö fagna í lands- liðinu og er svarinn óvinur Diego Maradona. Diego Simeone hefur lengi verið talinn arftaki Maradona en þeir léku einmitt saman hjá Se- villa í fyrra. Hann er snjall meö boltann og hefur staöið sig mjög vel með landsliðinu undanfarið ár. Diego Maradona er nú oróinn 33 ára og ekki eins léttur á sér og þeg- ar hann var upp á sitt besta. Hann var rckinn frá Newells Old Boys í febrúar og er ekki búinn að spila mikið síóan. Hann er þó enn með landslióinu þó aó hlutverk hans sé öllu minna en áður fyrr. Hann sendir enn fallegar sendingar en tekur sjaldan á sprett og því ekki eins hættulegur. Gabriel Batistuta er skæðasti framherji liðsins. Hann virðist geta skorað úr hvaða færi sem er og ef hann skilar sínu í sumar þá er liðið í góðum málum. Meó honum í framlínunni verður annað hvort Abei Balbo eða Claudio Caniggia sem báðir lcika mcð Róma á Italíu. Balbo er lík- amlega sterkur og ákveðinn í teignum en Caniggia byggir mikió á hraóa sínum. Caniggia hefur nú tekið út 13 mánaða keppnisbann vegna kóka-ínneyslu og veróur spennandi aó sjá hvort hann verður enn eins sprækur og á Italíu 1990. Líklegt byrjunarlið (4-4-2): Goycochea - Diaz, Chamot, Bor- clli, Ruggeri - Perez, Redondo, Simeone, Maradona - Batistuta, Balbo. Búlgaría komst í lokakeppnina með ótrúlegum sigri á Frökkum í París. Lióið leikur undir stjórn Dimitar Penev sem hefur verið með lióió síðan 1991. Hann hefur mikla reynslu sem leikmaóur og var fyrirliði landsliðsins í loka- keppnum HM 1966, 1970og 1974. Helsti styrkleiki liðs hans er sterk framlína en varnarleikurinn er öllu slakari. I markinu stendur hinn gamalreyndi Borislav Mihailov sem margir muna eftir frá því í Mexíkó 1986. Þá var hann sköllótt- ur en nú er hann með snyrtilegan há.’topp og lítur út fyrir að hafa yngst um mörg ár. Petar Hub- chev er mjög fastur fyrir í öftustu vöm og stóö hann sig mjög vel í undankeppninni. A miójunni ræður Krasimir Balakov ríkjum en hann leikur með Sporting Lisabon í Portúgal. Hann er mjög sókndjarf- ur og skorar mikið af mörkum, ekki síst meó langskotum. Hristo Stoichkov sem hefur gert þaó gott með Barcelona er aðalmaðurinn í sóknarleiknum og spilar aðeins fyrir aftan fremstu menn. Hann er í hópi bestu leikmanna heims og fær nú tækifæri til að sanna það. Ekki er óalgengt að hann lendi í útistöð- um við dómarana enda skapmikill mjög. Með honum í framlínunni verður Emil Kostadinov sem leik- ur með Porto í Portúgal. Hann var hetja liósins þegar hann skoraði á síðustu mínútunni og tryggði liðinu sigur á Frökkum og þar með sæti í lokakeppninni. Hann er eldsnöggur og hættulegur upp við markió. Vanalega leikur hinn hávaxni Lu- boslav Penev með honum í fremstu víglínu enda náskyldur þjálfaranum. En hann varð fyrir því óhappi aö fá knött í kynfærin á æfrngu með Valencia í vetur og hefur ekkert getað Ieikió síðan. Ovíst er hvort hann veróur búinn að ná sér fyrir lokakeppnina. Líklegt byrjunarlið (4-3-3): Mikhailov - Kremenliev, Ivanov, Hubchev, Tzvetanov - Letchkov, Yankov, Balakov - Kostadinov, Penev, Stoichkov. Leikir í ] D-r iðl li 21. Júní Argentína - Grikkland Boston 16:30 RÚV 21. Júní Nígería - Búlgaría Dallas 23:30 RÚV 25. Júní Argentína - Nígería Iíoston 20:00 26. Júní Búlgaría - Grikkland Chicago 6:30 RÚV 30. Júní Grikkiand - Nígería Boston 23:30 30. Júní Argentína - Búlgaría Dallas 23:30 RÚV Rushidi Yekini er stór og sterkur framherji sem sér um að skora mörk Nígeríu. Dicgo Maradona cr öllu þyngri nú en áður en hæfílcikarnir eru cnn til staðar. Emil Kostadinov tryggði Búlgörum sæti í lokakeppninni með tvcimur mörkum gegn Frökkum. HM-punktar Þó ekki sé alltaf gaman að horfa á Argentínumenn spila þá er yfirleitt spennandi að fylgjast meó hvort leik- menn liðsins standist lyfjapróf eftir leiki. Bæði Diego Maradona og Claudio Caniggia hafa misst úr marga mánuði eftir að hafa fallið á slíku prófi og Carlos Bilardo, fyrrum landsliðs- þjálfari, sagði eitt sinn að annar hver leikmaður í Argentínu neytti kókaíns. Lyfjapróf á leikmönnum var fyrst tek- ið upp í lokakeppni HM í Þýskalandi 1974. Þá féll einn leikmaður á prófi, Ernst Jean-Joseph frá Haiti. Hann hafði tekið inn meðal sem var á bann- lista FIFA og var umsvifalaust sendur heim. Skotinn Wiilic Johnston féll á lyfjaprófi í Argentínu 1978 en síðan hcfur cnginn náðst. Búlgarski framherjinn Luboslav Pencv sem leikur með Valencia á Spáni þurfti að gangast undir 43 mín- útna uppskurð á vinstra eista eftir að hafa fengið boltann á versta stað á æf- ingu með liði sínu. En þar með var raunum lians ekki lokið því mcðan á uppskurðinum stóð kom í ljós að hann var með Ílikynja æxli og þurfti hann að gangast undir annan uppskuró. Læknar sögðu að hann yrði frá í 5 mánuði en Penev vill ekki missa af lokakeppninni og scgist vcra tilbúinn í slaginn. 1 lokakeppninni á Ítalíu fyrir fjómm ánim lyftu dómarar sextán sinnum rauða spjaldinu og 169 sinnum því gula. Argcntínumenn náðu bcstum ár- angri áþessu sviói og fengu þrjú rauó og tuttugu og tvö gul spjöld. Argentínumaðurinn Pcdro Monzon var fyrstur manna til að vera rekinn af velli í úrslitaleik HM. Hann vann það afrek á 64. mínútu gegn Þjóðverjum fyrir fjóruni árum. Félagi hans, Gusta- vo Dezotti, vildi ekki vera eftirbátur hans og var rekinn útaf á 87. mínútu. Alketas Panagulias er farsælasti þjálfari Grikklands frá upphafi. Nígería Nígería, sem tekur nú þátt í loka- keppninni í fyrsta sinn, er án efa meó besta knattspyrnulið Afríku. Liðið hefur úr mörgum efnilegum leikmönnum að spila og flestir eru þeir atvinnumenn með lióum í Evr- ópu. Þjálfarinn er Hollendingurinn HM-punktar Aóeins tveir af þeim ellefu sem voru valdir í besta lið keppninnar á Ítalíu fyr- ir fjórum ámm em ckki þátttakcndur í ár. Þaó em Italamir Giuscppc Bergomi og Salvatore Schillaci. Liðið var þann- ig skipað: Taffarcl - Jorginho, Bcrgomi, Baresi, Buchwald - Brehme, Donadoni, Matthaus, Scifo - Sehillaci, Klinsmann. í lokakeppninni á Italíu fyrir fjórum ár- um vom skorðu 115 mörk í 52 leikjum, eða 2,21 mark aó meðaltali í lcik. Mest var skorað í keppninni 1954 í Sviss, eða 5,3 rnörk að meðaltali í leik. Ítalía og Brasilía em einu löndin sem hafa orðið heimsmeistarar tvisvar í röð. ítalir 1934 og 1938 en Brasilía 1958 og 1962. Vestur Þýskaland cr eina þjóðin sem hefur leikió til úrslita þrivar í röð. Þeir töóuðu úrslitaleiknum á Spáni 1982 og í Mexíkó 1986 en náðu loks að sigra á Ítalíu 1990. Fimm sinnum hefur heimaliðió náð að sigra HM. Fyrst Urnguay 1930, Ítalía 1934, England 1966, V-Þýskaland 1974 og að lokum Argentína 1978. Sex þjóðir hafa skipst á aó sigra HM. Ítalía, V-Þýskaland og Brasilía hafa öll sigrað þrisvar sinurn í keppninni, Um- guay og Argentína tvisvar og England einu sinni. Vestur Þýskaland hefur oftast tekió þátt í úrslitalcik HM cða scx sinnum. I>cir hafa unnið þrisvar og þrisvar beðið lægri hlut. Clemence Westerhoff og hefur hann stýrt liðinu frá því 1989. Lió hans leikur svæóisvöm, pressar fram á völlinn og áhersla er lögó á sóknarleik. Miðveróir liðsins, þeir Uche Okechukwu og Sunday 01- iseh, eru báóir stórir, sterkir og erf- iðir viðureignar. Okechukwu lék í nokkur ár með Bröndby í Dan- mörku en er nú hjá Fenerbahce í Tyrklandi. Oliseh er aöeins 19 ára og tekur hann virkan þátt í upp- byggingu sókna liðsins. Hann leik- ur meó Liege í Belgíu en er senni- lega á förum til liðs á Ítalíu eftir lokakeppnina. A miðri miðjunni leikur Augustin „Jay Jay“ Oko- cha sem leikur meó Eintracht Frankfurt í Þýskalandi. Hann er snillingur með knöttinn og virðist stundum illa viö að nota samherj- ana. Vinstra megin á miðjunni leikur Emanuel Amunike, tvítug- ur leikmaður með Zamalek í Eg- yptalandi sem hcfur mikla yfirferð og hjálpar vel til í vörninni. Hægra megin leikur George Finidi, sem hefur leikið mjög vel meó Ajax í Hollandi í vetur. Framherjinn Ras- hidi Yekini er þrítugur og lcikur meó Vitoria Setubal í Portúgal. Hann er stór og gríðarlega sterkur en vantar dálítið upp á í knatttækni. Daniel Amokacbi er 21 árs fram- herji frá Club Brugge í Belgíu sem sló í gegn á síðustu leiktíð. Hann er mikill markaskorari cn í landslið- inu þarf hann að taka meiri þátt í varnarleiknum og dregur sig oft aftur á miójuna. Viktor Ikpeba er tvítugur framherji hjá Mónakó þar sem hann hefur átt mjög góða sam- vinnu við Júrgen Klinsmann í vet- ur. Að lokum ber aó nefna Efan Ekoku framherja frá Norwich sem er fæddur í Englandi en á ættir að rekja til Nígeríu. Líklegt byrjunarlið (5-3-2): Rufai - Eguavocn, Iroha, Okec- hukwu, Okafor, Olisch - Finidi, Okocha, Amunike - Amokachi, Yekini. Grikkland Þjálfari Grikkja er Alketas Pana- gulias, menntaður stjómmálafræð- ingur og fyrrum landsliðsþjálfari Bandaríkjanna. Hann reynir að hafa góóa blöndu af ungum og efnilegum leikmönnum og göml- um jöxlum. Stjórnandi varnarinnar og aftasti maður er Stylianos Manolas sem leikur með AEK í Aþenu. Hann er af mörgum talinn vera besti varnarmaður Grikklands frá upphafi og er stórhættulegur þegar hann bregóur sér í sóknina. Vamartengiliðúmn Panagiotis Tsaluchidis frá Olympiakos er mjög agaóur leikmaöur og fómar sér fyrir liðsheildina. Hann skapar einnig mikla hættu þegar hann bregður sér í sóknina og er góður skallamaður. A vinstri kanti leikur Nikolaos Tsiantakis frá Olympia- kos sem er mjög leikinn og tckur oft upp á því að einleika upp kant- inn og gefa fyrir. Helsta stjama liðsins er framherjinn Nikolaos Macblas sem leikur meö OFI Crete. Hann er 21 árs og þykir mesta efni sem komið hefur fram í Grikklandi í niörg ár og niörg af stærri félögum Evrópu munu fylgjast meö honum í suntar. Meö honurn í lramlínunni verður senni- lega gamla brýnið Dimitris Sara- vakos frá Panathinaikos sem hefur verið lykilmaður í liðinu undanfar- in áratug. Líklegt byrjunarlið (4-4-2): Minu - Apostolakis, Kalitzakis, Manolas, Kolitsidakis - Tsaluchid- is, Mitropulos, Nioblias, Tsiantakis - Machlas, Saravakos.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.