Dagur - 28.06.1994, Síða 5

Dagur - 28.06.1994, Síða 5
Þriðjudagur 28. júní 1994 - DAGUR - 5 Molar úr sögu flugs á Akureyri Karl Magnússon við Grunian 9 á Melgerðismclum. Tigcr Mouth TF-KAD og Pipcr Cub TF-KAH vélar I'lugskóla Akureyrar á Melgcrð- ismelum. Ljósmynd: Gísli Ólafsson. Undirritaðir samningar um „Nord“ flugvclina scm aldrci var kcypt. F.fri röð frá vinstri: Svcrrir Vilhjálmsson, Jóhannes I'ossdal, flugmaður, Frcyr Ofcigsson, Magn- ús Jónsson, framkvæmdastjóri Þórshamars, og óþckktur. Ncðri röð frá vinstri: Tryggvi Hclgason, flugmaður, Kristján Jónsson, fyrrv. framkvæmdastjóri Niður- suðuvcrksmiðju K. Jónssonar, óþekktur, óþckktur. Síóast var horfið frá er nýr flugvöllur hafði verió tekinn í notkun á Akur- eyri í desember árið 1954. Margt er enn ótalið en ekki er hægt að ljúka þessum molurn nema minnast á Svif- flugfélag Akureyrar, sem ól upp margan atvinnufíugmanninn, fyrstu flugkennsluna hér um slóðir og Norðurfiug. Þetta eru merkir þættir í akureyskri flugsögu, þó hver með sínum hætti. Svifflugfélag Akureyrar Þaó var snemma árs 1937 aó stofnað var svifflugfélag á Akureyri, nánar tiltekið þann 9. apríl það ár. Ahuginn var tilkominn vcgna frétta af því sern var aó gerast í svifflugmálum í Reykjavík. Akureyringarnir voru til- búnir að leggja á sig ómælda vinnu og jafnvel fjárútlát, af litlum efnum, til þess aó sjá draum sinn rætast. Fyrsta árið fór mest í undirbúning og fjáröflun, cn Agnar Kofoed-Han- sen gekk í aó útvega félaginu efni í renniflugu af gcróinni Grunau 9 frá Þýzkalandi. Einnig fylgdi með mikil og voldug teygja, sem notuó var til þess aö skjóta renniflugunni á loft. Vorið 1938 hófst smíði á renniflug- unni á húsgagnasmíðaverkstæói Kristjáns Aóalsteinssonar í Hafnar- stræti 96 (París). Kristján var félög- um svifflugfélagsins vænn, svo ekki sé mcira sagt. Einnig kom hingað þýzkur maður, vanur svifflugusmiður og ilugmaður. í júlíbyrjun sumarió 1938 var rennitlugan tilbúin og félag- ar svifflugfélagsins fluttu hana upp á tún Jakobs Karlssonar við býli hans Lund ofan Akureyrar. Nú var teygj- unni krækt í ncf flugunnar og þýzki flugmaðurinn settist við stýri, teygjan var strekkt, hcnni sleppt og flugan þaut af stað. Allt gekk vel og félagar svifflugfélagsins flugu nú hver á eftir öðrum. Flugin sem kölluó voru „rúss“, stóöu í nokkrar sekúndur og voru 200-400 mctra löng, cn flug samt. Hér hófst upphaf mikils ævintýris sem enn stendur. Svifllugfélag Akur- eyrar varð skóli fyrir marga flug- menn, sem mikiö komu við sögu Flugfélags Islands og Loftleiða. Nægir hér aó nefna nöfn Jóhannesar R. Snorrasonar, Aðalbjörns Krist- bjarnarsonar, Viktors Aðalsteinsson- ar og Magnúsar Guömundssonar. Ekki gengu Uugæfingar allar eftir áætlun eóa áfallalaust, en óbilandi kjarkur og áhugi IJcytti félögum Svif- flugfélags Akureyrar yfir alla erfið- leika. Ekki veróur saga þessa merka fé- lags rituð nema aó minnast Karls Magnússonar, vélsmiðs, sem árum saman var aðaldriffjöörin í starfi svif- flugfclagsins. Karl var dvergur hagur til munns og handa og áorkaði mörgu og smíóaði fyrir félagiö, m.a. spil til þess að draga svifflugur á loft. Arngrímur Jóhannsson, forstjóri Atlanta flugfélagsins, sem er gamall lclagi í Svifflugfélagi Akureyrar, hef- ur minnst Karls á verðugan hátt. Ein þota Atlanta félagsins ber nafnið Karl Magnússon og mcrki Svifflugfélags Akureyrar er málað neðan undir. Svifflugmenn reyndu víóa fyrir sér hvar bezt væri aó fljúga í Eyja- firði og fljótlega uróu Melgerðismel- ar aóalæfingastaður félagsins, sem þcir eru enn í dag. Þar hefur svifflug- félagið komió sér einstaklcga vel fyr- ir og er mikið flogið þar þegar færi gefst. Einnig hafa þeir scm fjarstýróum flugmódelum fljúga slcgist í hópinn með llugvelli fyrir sig. Fyrsta flugsýningin hér norðan heióa var haldin á Melgeróismeluni þann 20. ágúst áriö 1939. Mikið til- stand var í kringum flugdaginn, m.a. var varpað niður auglýsinguni úr flugvél yfir bæinn og sætaferðir fam- ar frá B.S.O. Talið var aó allt að 1000 manns hefðu sótt flugdaginn, sem þótti takast allvel þrátt fyrir frek- ar slæm veðurskilyrói. Ymislegt annaö gerði Svifflugfé- lag Akureyrar til þess að vekja áhuga Akureyringa á flugi og flugmálum. Félagió hélt m.a. skemmti- og fræðslusamkomu í Nýja-Bíói í maí árið 1938. Samkoman var fjölsótt og þótti takast vel. Flugskóli Akureyrar Árið 1945 var merkt í flugsögu M- ureyrar, en það ár stofnuðu þeir Árni Bjamarson, bókaútgefandi, Gísli 01- afsson, lögregluþjónn og Steindór Hjaltalín, útgerðarmaður, flugskóla á Melgerðismelum. Allir voru þessir menn miklir áhugamenn um flug og framgang þess og því viidu þeir gefa 4. grein Sigurður Eggert Davíðsson. ungu fólki tækifæri til flugnáms hcr heima. Árni Bjarnarson hafði snemma hrifist af fluglistinni og árið 1931 skrifaði Árni Dr. Alcxander Jóhann- essyni bréf, en í því ræðir Árni möguleika þess að hefja útgáfu blaðs um flug og mál því tcngdu. I svari Dr. Alexanders kemur fram aó hann er ekki bjartsýnn á útgáfu flugtíma- rits hér á landi. Ekki lét Árni dcigan síga, heldur reyndi hann að vekja áhuga fólks á flugi með grcinaskrif- um í blöð. Hann var lengi ásarnt Gísia Olafssyni í stjórn Svifflugfé- lags Akureyrar. Merkilegasta framlag Árna Bjarn- arsonar í útgáfumálum cr flug varóa cr bókin Lærðu að fljúga, sem út kom nálægt áramótum 1944-45. Bók- in var eftir Frank A. Swoffer, cn þýð- andi var Helgi Valtýsson, kennari. Agnar Kofoed-Hansen skrifaói for- mála og lofar framtak Árna mjög m.a. nýyrðasmíði þýöandans varð- andi flug. Stcindór Hjaltalín var mikill áhugamaður um flug og gcta má þess að dóttir hans Erna lauk fyrst ís- lenzkra kvenna flugprófi. Steindór keypti um 1950 stóra flugvél af Lockheed Hudson gerð, sem hann ætlaði að nota til síldarleitar og ein- kaflugs, jafnvel landa á milli. Stutt varð í notkun flugvélarinnar þar sem hún skemmdist á Mclgerðismelum og var ckki notuð eftir það. Flugskóli Akureyrar festi þegar kaup á tveimur kennsluflugvélum af Tiger Moth gerð og uppi voru áfom um að kaupa fleiri flugvélar til kennslu. Flugskólinn starfaði í nokk- ur ár við vinsældir. Stofnendur flug- skólans gerðu sér grein fyrir að ekki yrði um fjárhagslegan ábata að ræða og framtak þeirra því lofsverðara fyr- ir vikið. Norðurflug Aó kvöldi 1. nóvember árið 1959 lenti í fyrsta sinn á Akureyrarflug- velli, sjúkraflugvélin svokallaða, TF- JMH, tveggja hreyfla flugvél af geró- inni Piper Apache, vel búin að þeirrar tíóar hætti. Tryggvi Helgason, tlug- maður, hafði fest kaup á vélinni ásamt Slysavamadeild kvenna á Ak- ureyri og Rauðakrossdeildinni hér í bæ. Þeir Tryggvi og Aðalbjörn Krist- bjamarson, þá flugstjóri hjá Flugfé- lagi Islands, flugu vélinni heim frá Ameríku. Svo var til ætlast aö þessi flugvél sinnti sjúkraflugi ásarnt öörum tilfallandi verkefnum og varð Norð- urflug til kringum þá starfssemi ásamt flugkennslu, scm Tryggvi hóf fljótlega. Fljótlega kom í ljós að vcrkefni voru meiri hér noróanlands, en hin nýja flugvcl annaði, svo brátt var far- ið að huga að stækkun llugflotans. Eftir allítarlega athugan var ákveðið að kaupa flugvélar af gerðinni Beechcraft C-45H sem tóku 9 far- þega. Tryggvi komst í samband við of- fursta í Bandaríska llughemum, Lorr- cn L. Perdue frá Alabama. Hann sá um útvegun flugvélanna og ferjaði þær heim ásamt amerískum flug- mönnum og Birni Sveinssyni flug- virkja. Hingað til Akureyrar komu flugvélamar 2. júlí árið 1964 eftir ágætt flug frá Alabama í Bandaríkj- unum. Önnur flugvélin sem bar cinkenn- isstafina TF-JMD hóf fljótlcga flug á vegum Noróurllugs, sem nú var farið að halda uppi flugi um noróaustur- horn landsins og til Grímseyjar. Hin flugvélin, TF-JME var mikið endur- bætt hér í bæ áður cn hún hóf llug á vegum Norðurflugs. M.a. var væng- endum breytt, sett á vöruhurð, út- blásturskerfi bætt og stclhjól hækkað. Allt bætti þetta flugeiginleika flug- vélarinnar og jók hraða hennar. Báó- ar þessar flugvélar reyndust framúr- skarandi vel og voru í notkun alla tíð meðan Norðurllug starfaói. Merkasti þátturinn í sögu Norður- flugs er án cfa áform félagsins um kaup á stórri flugvél af geröinni NORD 262 A20 og umsókn félagsins um leyfi til áætlunarllugs á leiðinni Akureyri-Rcykjavík. Þcssi hugmynd var opinbcrlega kynnt í desember ár- ió 1966. I mars næsta ár var Norður- flugi breytt í hlutafélag, sem yfirtók allar eigur Norðurflugs, nema sjúkra- flugvélina, eignarhald á henni var óbreytt. Ástæður þcss aö Noróurflugi var breytt í hlutafélag voru hin áformuðu flugvélakaup, mciri uppbygging á Akureyrarflugvclli ásamt almennu rekstraröryggi. Heldur þótti ríkis- valdið svifaseint í samskiptum sínum við félagið. í fyrstu stjórn Norðurflugs h.f. voru m.a. Kristján Jónsson, forstjóri Nióursuóunnar (mágur Tryggva Helgasonar), Magnús Jónsson, sölu- stjóri (á Þórshamri) og Sverrir heitinn Vilhjálmsson, flugumferðarstjóri. Framkvæmdastjóri varð Tryggvi Helgason. Snemma í júní árið 1967 voru við hátíólcga athöfn undirritaðir formleg- ir samningar um kaup á NORD 262 A20 skrúfuþotu, sem átti að afhenda ásamt varahlutum vorið 1968. Veró ásamt þjálfun flugmanna var um 30 milljónir króna á þávirói. Samning- anna undirrituðu fulltrúar Nord Avi- ation frá Frakklandi ásamt Kristjáni Jónssyni og Tryggva Helgasyni fyrir hönd Norðurflugs h.f. Hlutafjáröflun gekk vel og bjartsýni var ríkjandi. Eins og alkunna er varð aldrei af því að NORD flugvélin kæmi til Ak- ureyrar og má nær örugglega kenna um hagsmunum sem rákust á og inn- byggóri tregóu kerfisins. Einhverjir sáu ástæóu til þess að koma af stað gróusögum um óáreió- anleika NORD flugvélanna sem mjög spillti fyrir og dugði þá ekkert að benda mönnum á að mjög góð reynsla var þá þegar af notkun NORD-262 í Bandaríkjunum. Þessir atburðir uróu Noróurflugi h.f. mikið áfall, cn Tryggvi Helgason gafst ckki upp og hclt flugrekstri sín- um áfram. Eg held að ekki sé ofmælt aó farsæld hafi einkennt reksturinn, bæði flugiö sjálft og ráðningu starfs- manna. Enn sem fyrr var kerl'ió tregt í skiptum sínum vió Norðurllug. . Þann 3. maí árió 1972 lcnti Tryggvi Helgason ásamt eiginkonu sinni Petru Konráðsdóttur á Akureyr- arflugvelli eftir rúmlega níu klst. Ilug frá Goose Bay á Labrador. Farkostur- inn var nýlcg flugvél af gerðinni Pi- pcr Aztec sem Tryggvi hafói fest kaup á í Bandaríkjunum. Einkum var þessi flug\ hugsuð til þess að leysa gömlu sjú' aflugvélina af hólmi og til nota í igrckstri félagsins. Þessi flugvél bc inkennisstafina TF-JMA og er enn : otkun. Um þc i leyti barst Noröurflugi beiöni um að fljúga til Station Nord á norðurstriuid Grænlands mcð vara- hluti og llugvirkja til viðgeróar á Beechcraft E-18S (sem er endurbætt gerð C-45H) í eigu Landflugs í Reykjavík. Skemmst er frá því að segja að þar sem aukaeldsneytis- geymar voru enn í TF-JMA flugu þeir Tryggvi og Jón E. Karlsson yfir- flugvirki Norðurflugs norður og gerðu viö llugvélina. Þetta \ ar upphaf á miklu leigu- llugi til Grænlands sem enn stendur. Skömmu eftir þctta kcypti Norður- llug E-18S flugvélina af Landflugi og hlaut hin einkennisstafina TF- JMB. RcynJist þessi llugvél ágæt- lega en var seinna scld. Rckstur fé- lagsins gckk allvel næstu árin og verkefni voru næg. Þegar kemur fram á árió 1974 er ljóst að ckki verður skotió á frest aó hefja endurnýjun á flugflota félags- ins. Það var bæði dýr og flókin aó- geró, svo Tryggvi Helgason ákvaó aó hætta rekstri Norðurflugs haustió 1974. Þá ákvcða starfsmcnn Norður- flugs aó kaupa félagið af Tryggva Helgasyni og halda flugrekstrinum áfram. Upp úr því verður Fluglélag Norðurlands til, sem starfað hefur síðan undir stjórn Sigurðar Aóal- steinssonar á flugrekstrarsviói og Jóns E. Karlssonar á viðhalds- og tæknisviði. F.N. hóf cndurnýjun flug- flotans af stórhug, sem enn stcndur. Einstök farsæld hefur hvílt yfir starfscmi þessara tveggja fluglélaga, þrátt fyrir smá óhöpp, og einlæg ósk mín er sú að svo vcrði áfram og tæki- færi gefist til ritunar á sögu F.N. síð- ar. Að lokum vil ég sérstalega þakka Herói Geirssyni á Minjasafninu á Akurcyri fyrir frábæran dugnað og áhuga vió útvegun mynda í þessa flugsögumola. Sig. Eggcrt Davíðsson.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.