Dagur - 28.06.1994, Síða 9

Dagur - 28.06.1994, Síða 9
IÞROTTIR Þriðjudagur 28. júní 1994 - DAGUR - 9 HALLDÓR ARINBJARNARSON Fjör í Leikja- og sportskólanum Scnn styttist í að fyrstu námskciðin í Leikjaskóla og Sportskóla KA vcrði búin. Næstu námskcið hcfjast um mánað- armótin. Þcgar blaðamaður lcit við í síðustu viku var citingalcikur í fullum gangi og svo sannarlcga hainagangur í öskjunni. Mynd: Halldór. Norðurlandamót í kvennaknattspyrnu U-16 ára: Stelpurnar okkar enn án sigurs Sem kunnugt er fer Norður- landamót í kvennaknattspyrnu fyrir 16 ára og yngri nú fram á Ákureyri. Þrjár umferðir eru búnar en leikið er á 5 stöðum norðanlands. Auk íslands eru lið frá Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Danmörku og Hollandi ineðal þátttakenda. Finnar standa best að vígi eftir þrjár umferðir með fullt hús stiga. Fyrsta uml’erðin fór fram á 01- afsfirði sl. föstudag. Þá lck Island við Finna og tapaði 3:4 eftir að hafa verió 4:0 undir í leikhléi. Ás- laug R. Ákadóttir, Brynja Péturs- dóttir og Guðrún Sigurstcinsdóttir skoruðu mörk Islands. Holland og Noregur gerðu markalaust jafn- tefii í þessari fyrstu umferð og Svíar unnu Dani 4:1. Næst var leikið á Sauðárkróki á laugardaginn. Þá máttu okkar stelpur þola 1:5 tap fyrir Hollend- ingurn og skoraði Áslaug Áka- dóttir mark Islands. Finnar unnu Dani 1:0 og Noregur lagði Sví- þjóð 2:0. Á sunnudaginn var leikið á Húsavík. Þá tapaði ísland 0:1 fyrir Svíum, Danir unnu Norómenn 1:0 og Finnar Hollendinga 1:0. Fjóróa umferð mótsins fer l'ram á Dalvík í dag. Þá leika saman Holland-Svíþjóð, Finnland-Nor- egur og Island- Danmörk. Mótinu lýkur síðan á Akureyri á miðviku- daginn. ESSO mót KA fyrir 5. flokk sett á morgun: Ómissandi þáttur í bæjarlífi Akureyringa Þá er komið að hinu árlega ESSO móti KA. Mótið er sem kunnugt er knattspyrnumót fyr- ir 5. aldursflokk og hefur notið mikilla vinsælda á undanförn- um árum. Biðröð er eftir að komast að en fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 20 félög. Keppt er í flokki A, B, C og D- liða. ESSO mót KA hefur áunn- ið sér ákveðin sess í hugum Ak- ureyringa og er í raun orðinn ómissandi þáttur í bæjarlífinu um mánaðarmótin júní-júlí, ekkert síður en Andrésar Andar leikarnir á skíðum á vorin. Olíu- félagið ESSO styrkir mótið með myndarlegum hætti og á þakkir skyldar fyrir. Keppendur eru um 800 talsins. Dagskrá mótsins er í grófum dráttum meó þeim hætti að móts- setning verður í KA-húsinu kl. 20.30 á morgun. Öll liðin mæta við Lundaskóla 15 mín. fyrr og þaðan fer skrúðganga að KÁ-hús- inu. Er það jafnan tilkomumikil sjón að sjá allan skarann, hvert lið í búningum síns félags, þar sem hann fyllir götur bæjarins. For- eldrar barna á Akureyri eru ein- dregiö hvattir til aó mæta meó krökkunum og taka þátt í skrúógöngunni. Keppni hefst síðan á fimmtu- dagsmorgun kl. 9.00 og stcndur stanslaust til kl. 18.50. Kvöldmat- ur verður snæddur í íþróttahöll- inni og um kvöldið kl. 20.30 fer fram þrautakeppni í KA-húsinu. Á föstudaginn og laugardaginn stendur keppni einnig yfir miíli kl. 9.00 og 18.50 og mótsslit og verð- launaafhending verða í KA- hús- inu kl. 21.00 á laugardagskvöld. Liðunum er skipt í 4 riðla. I A- riðli eru UBK, Stjarnan, Valur, KA og Huginn. í B-riðli IBK, ÍR, Þór Ak„ Týr og Þróttur. í C-riðli Afturelding, Fylkir, FH, KR og Þór Vestm. I D-riðli eru Fram, Víkingur, ÍA, Haukar og Völsung- ur. Öll félög nema Huginn senda lið til keppni í fiokki A-, B- og C- liða. Huginn er með A-lið en Iþróttadeild Samherja í Eyjafirói sendir lió í flokki B- og C-liða. Einnig senda mörg stærri félögin D-lið til keppni. Skrifstofa mótanefndar ESSO er í KA-heintilinu og síminn þar er 96-26615. Formaóur nefndar- innar er Gunnar Níelsson. Torfæra á Egilsstöðum: Norðanmenn góðir Ein besta torfærukeppni sum- arsins til þessa fór fram á Eg- ilsstöðum um helgina, haldin af AIK Start og Bflabúð Benna. Keppni var afar hörð í útbúna flokknum og þar sigr- aði Haraldur Pétursson á Handverkinu með 1600 stig. Norðdekk-Dreki Einars Gunnlaugssonar frá Akureyri skilaði eigenda sínum 2. sæti mótsins mcð 1440 stig og hann cr cnn í efsta sæú í keppninni uni íslandsmeistaratitilinn. I 3. sæti varö annar Eyfirðingur, Helgi Schiöth á Frissa fríska og því óhætta að segja aó uppskera Norðlendi íga hafi vcrið góó að þessu s ni. í götubílaflokki sigraði R. ;nar Skúlason og hef- ur hann u nió öll þrjú mót ársins en alls eri þau 6 talsins. KA-þjálfarar í Þýskalandi: Afar gagnleg ferð - segir Jóhannes Bjarnason Eins og greint var frá í Degi fyr- ir skömmu, héldu þrír þjálfarar hjá KA á námskeið fyrir hand- boltaþjálfara í Þýskalandi. Þetta voru þeir Alfreð Gíslason, Árni Stefánsson og Jóhannes Bjarna- son. Að auki fór Atli Hilmarsson þjálfari Fram með þeim. Að sögn Jóhannesar var ferðin afar gagnleg í alla staði nauðsynlegt að sjá hvað þjálfarar annarra landa eru að aðhafast. Námskeiðið sem stóð í 3 daga fór fram í Mindan í Þýskalandi og Styttist í Akureyrarmaraþon Nú er mjög farið að styttast í Akureyrarmaraþon sem fram fer þann 23. júlí nk. en forskrán- ingu lýkur þann 18. júlí. Ung- mennafélag Akureyrar heldur hlaupið sem orðinn er árlegur viðburður. Jakob Björnsson bæj- arstjóri mun ræsa keppendur kl. 12.00 við íþróttavöllinn. Þrjár vegalengdir eru í boöi og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Þetta eru hálfmaraþon, 10 km hlaup og 4 km skemmti- skokk. I tveinrur styttri vegalengd- um er skipt í 6 aldursflokka; 12 ára o.y., 13-15 ára, 16-39 ára, 40- 49 ára, 50-59 ára og 60 ára o.e. Sama aldursskipting er í hálfmara- þoni nema þar er ekki keppt í tveimur yngstu flokkunum. Þátttökugjald fyrir þá sem hlaupa hálfmaraþon er 1.100 kr, 1.000 kr. fyrir 10 krn og 800 fyrir skemmtiskokkið. 12 ára o.y. borga 600 kr. Innifalið í skráningargjaldi er frí pastaveisla frá Greifanum fyrir þá sem skrá sig í forskrán- ingu en henni lýkur sent fyrr segir 18. júlí. Þátttökunúmerið gildir einnig sem happdrættismiði og frímiði í Sundlaug Akureyrar á keppnisdag. Allir sem ljúka hlaupinu fá viö- urkenningu en aó auki fær fyrsti maður í mark í hálfmaraþoni 10.000 kr peningaverðlaun, Punra íþróttaskó frá Sportveri, nráltíð á Greifanum, bikar til eignar og veglegan farandbikar. I tveimur lengri vegalengdunum fá fyrstu aðilar hjá báðum kynjum í öllum flokkum bikara til eignar og veró- launapening. Hér að neðan er skráningarblað fyrir Akureyrar- maraþon 1994. Akureyrarmaraþon 23. júlí 1994 „Skráningarblað“ Nafn Kennitala Vegalengd Heimili Sími Gjald Skráningarblað sendist til UFA í pósthólf 385, 602 Akureyri, eða fax 96-25513. voru sumir af þekktustu þjálfurum heims með fyrirlestur. „Við vor- um mjög ánægðir aö sjá hversu vel við i rauninni stöndum varó- andi unglingastarfið. Hins vegar er alveg nauösynlegt að sjá hvað menn eru að gera annars staðar og námskeiðió var afar lærdómsríkt. Ekki síst var fróólegt að sjá hversu mikill áherslumunur getur verið á þjálfun milli hinna ýmsu landa,'1 sagði Jóhanncs. Seinna í sumar hyggur hann á ferð til Dan- merkur í svipuóum erindagjöróum ásamt Andrési Magnússyni, þjálf- ara hjá KA og e.t.v. einhverjum fleiri. □□ '“□ *□■ □□ ny a° ifEir*" □ □ □ ★ Leíkfimi ★ Nuddpottur ★ Cufubað ★ Ljösabekkir Hamar, félagsheimili Þórs við Skarðshlíð. Sími12080.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.