Dagur - 10.09.1994, Side 5
Laugardagur 10. september 1994 - DAGUR - 5
Tíarnar-
kvartettinn
- geisladiskur væntalegur í haust
Tjarnarkvartettinn úr Svarfað-
ardal skipa tvenn hjón, Kristj-
ana Arngrímsdóttir og Kristján
Eldjárn sem búa á Tjörn og
Hjörleifur Hjartarson og Rósa
Kristín Baldursdóttir sem búa í
Laugarhlíð.
Aðspurð sagði Kristjana að nú
væru félagamir í kvartettinum ný-
komnir heim í Svarfaðardalinn að
lokinn strangri en vel heppnaðri
ferð til Reykjavíkur. í ferðinni var
tekinn upp geisladiskur með söng
Tjarnarkvartettsins og er hann
væntanlegur í verslanir um mán-
aóamótin október-nóvember.
Upptökurnar fóru fram í Fella-
og Hólakirkju en þar er, að sögn
Kristjönu, mjög góður hljómburó-
ur. Upptökumar annaðist Hreinn
Valdimarsson. Kristjana vildi
koma því á framfæri aó Friórik
Friðriksson á Dalvík hefði hvatt
hjónin í kvartettinum til að gefa
þennan geisladisk út og hann
stæði dyggilega á bak við Tjamar-
kvartettinn vegna útgáfunnar.
Kristjana sagði að á geisladisk-
inum væri mjög fjölbreytt lagaval,
allt frá gömlum madrígölum og
jassi upp í íslensk þjóðlög.
I Reykjavík hélt Tjamarkvart-
ettinn tónleika á Sólon Islandus en
einnig hélt kvartettinn konsert í
Deiglunni á Akureyri nú í ágúst.
Kristjana sagðist reikna með því
að geisladiskinum yrði fylgt eftir
með tónleikum þegar þar að
kæmi. KLJ
Tjarnarkvartettinn skipa (frá vinstri) Hjörlcifur Hjartarson, Kristjana Arn-
grímsdóttir, Rósa Kristín Baldursdóttir og Kristján Eldjárn Hjartarson.
Mynd: Robyn.
Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður:
á Norðurlandi vestra
Vilhjálmur Egilsson, alþingis-
maður Sjálfstæðisflokksins í
Norðurlandskjördæmi vestra,
segir að af hans hálfu standi
ekki annað tii en að vera í
framboði áfram í kjördæminu
við næstu kosningar.
í nýlegri umfjöllun blaðsins
um framboösmál í kjördæminu
var sagt að Vilhjálmur haft lengi
vel haft áhuga á að færa sig í
annað kjördæmi en Vilhjálniur
segir sjálfur að þær vangaveltur
séu frá öðmni komnar en honum
sjálfum.
„Ég tók skýrt fram þegar um-
fjöllun um haustkosningar var í
hámarki að ég ætlaði fram í
kjördæminu og það hefur ekki
breyst," sagði Vilhjálmur. JÓH
Leigum út
vinnupalla,
stiga - tröppur
Aukið úrval
rafmagns- og loftverk-
færa.
Kvöld- og
helgarþjónusta.
Véla- og áhaldaleigan,
Hvannavöllum 4, sími 23115.
LATUM VELARNAR
VINNA VERKIN
Stéttarsamband bænda:
Stofauð verði heildarsölu-
Bridgefélag
Akureyrar
Startmót
Sjóvá-Almennra hefst þriðjudaginn 13. septem-
ber kl. 19.30.
Spilað verður að Hamri tvö þriðjudagskvöld, 13. og
20. sept.
Öllu spilafólki heimil þátttaka.
Vinsamlega skráið þátttöku fyrir kl. 21.00 mánudaginn
12. sept. í síma 21695 (Páll) og 23154 (Sverrir).
Bridgefélag Akureyrar. SJÓVÁuiluALMENNAR
Aðalfundur Stéttarsambands
bænda lagði til að stofnuð verði
heildarsölusamtök allra kjöt-
framleiðenda, er annist vöruþró-
un, dreifíngu og sölu á heildsöl-
ustigi á öllu kjöti innanlands og
sjái einnig um viðskipti með af-
urðalán. Þá gerði fundurinn til-
lögu um að slík heildarsamtök
annist skráningu, umsjón og eft-
irlit með verðlagningu afurða til
að koma í veg fyrir undirboð og
að auðvelda útflutningsaðilum
að útvega viðeigandi kjötteg-
undir.
Milar umræður urðu um mark-
aðs- og afurðasölumál á aðalfund-
inum. Umræðumar snérust eink-
um um þær breytingar sem orðið
hafa á ytra umhverfi landbúnaðar-
ins og tengsl hans við markaðinn.
I staö fastákveðins verðlags land-
búnaðarafurða stjómar markaður-
inn verðlaginu í auknum mæli.
Þannig hefur kjötmarkaðurinn ein-
kennst af mikilli verðsamkeppni,
bæði á milli búgreina og einnig
innan þeirra þannig aó bændur
telja sig hafa orðið fyrir verulegu
tjóni. í ályktum frá fundinum seg-
ir að bændur telji sig í sumum til-
vikum hafa misst verðþróun af-
urðanna úr böndum og tapað veru-
legum fjármunum.
Fjölmargir bændur hafi farið að
selja kjöt á eigin vegum og þannig
undirboðið framleiðsluna hver
fyrir öðrum. Þá hafi afurðastöðvar
lækkaó afurðaverð og lengt
greiðslufresti. Á fundinum kom
fram aö nú sætu ákveðnar afurða-
stöðvar uppi með verulegar birgó-
ir og sagði Sigurður Þórólfsson,
bóndi í Innri-Fagradal, að slátur-
húsið í Búðardal sæti uppi með
um 25% afurða frá fyrra ári óseld-
ar.
Staða afurðsölufyrirtækja
er slæm
Einnig kom fram í umræðum á
aðalfundinum að staöa margra af-
urðastöðva væri slæm og komst
Haukur Halldórsson, formaður
Stéttarsambandsins, að orði á
þann veg að sumum afurðastöðv-
um væri ekki treystandi fyrir af-
urðum bænda vegna þess hversu
fjárhagsleg staóa þeirra væri erfið.
Sigurður Þórólfsson, bóndi í Innri-
Fagradal, sagði að einstök afurða-
sölufyrirtæki gætu ekki tekið á
móti sláturfé í haust vegna slæmr-
ar fjárhagsstöðu og Þórólfur
Sveinsson á Ferjubakka, taldi að
úr þessu yrði aðeins bætt með
stofnun einna heildarsölusamtaka.
Afurðalán aðeins 66% af
heildsöluverði
Á fundinum komu fram vanga-
veltur um hvort lögbundið stað-
greiðslukerfi sauðfjárafurða væri
úrelt fyrirkomulag er ekki falli að
markaóshugsun nútímans. Með
staðgreióslukerfinu er afuróa-
stöðvum gert að greiða bændum
tiltekió hlutfall og síðar fullt af-
urðaverð fyrir ákveðinn tíma án
tengingar við sölu afuróanna. í
ályktun fundarins kemur fram að
færa megi rök fyrir þessum sjón-
armiðum en til að þau geti gengið
verói að tryggja bændum ákveðið
skilaverð. Samstarf afurðastöðva
með eðlilegu afurðalánakerfi sé
grundvöllur þess aó umsýslufyrir-
komulag verói alfarið tekið upp
varðandi sölu á kindakjöti.
Þá voru viðskiptabankamir
gagnrýndir fyrir að á síðasta ári
hafi aðeins fengist afurðalán fyrir
66% af heildsöluverði kindakjöts-
framleiðslunnar en að mati bænda
verði þetta lánshlutfall að vera allt
að 80%. Einnig þurfi að greiða af-
urðalán síðasta árs upp í nóvem-
ber næstkomandi burtséð frá því
hvort afurðimar séu seldar og
vörpuðu fundarmenn þeim spum-
ingum fram á hvem hátt afurða-
stöðvar eigi aó fjármagna stað-
greiðslur til bænda fyrir innlegg á
komandi hausti mióað við þær að-
stæður.
Fáir smásöluaðilar en
sundraðir framleiðendur
I ályktun aðalfundar Stéttarsam-
bands bænda kemur fram að smá-
söluverslun hafi safnast á sífellt
færri hendur á undanfömum áruni
og fákeppni því orðin veruleg. Á
sama tíma hafi framleiðendur og
afurðastöðvar verið að sundrast og
séu nú í verulegri inbyróis baráttu.
Slíkt sé kjörin staða fyrir smásölu-
verslunina sem nýti sér sundrungu
og ósamlyndi innan landbúnaðar-
ins til hins ítrasta.
Einnig kemur fram aó varðandi
afurðasölumálin beri íslenskir
bændur sig saman við bændur á
Norðurlöndum og Nýja-Sjálandi
er búi við sterk sölusamtök, ýmist
í eigu samvinnufélaga bænda eða
framleiðendasamtök um slátrun
og afsetningu framleiósluafurða. í
ályktun stéttarsambandsfundar er
bent á aó á þann hátt verði ís-
lenskur landbúnaðaur að starfa
eigi aö vera unnt að halda verði
afurðanna uppi. Af þeim ástæðum
er nú lagt til að stofna heildarsam-
tök kjötframleiðenda. ÞI
Athugasemd
í blaðinu í gær var sagt frá 16
ára unglingi sem gripinn var á
stolnum bíl.
Starfsmenn Securitas vildu
koma á framfæri að upphaf máls-
ins hafi verið það að starfsmaður
Securitas sá bíl kirfilega merktan
fyrirtæki á Akureyri á ofsahraða á
leið norður úr bænum. Starfsmað-
urinn fór í umrætt fyrirtæki og
þannig uppgötvaðist þjófnaðurinn.
HA
Til sölu er þessi Toyota Carina E GLi árgerö 93
Ekin 14 þúsund km, er beinskiptur með 2.1 vél og beina innspýtingu.
Álfelgur og low profile dekk.
Verð er 1.780.000,00. Bein sala eða skipti á ódýrari.
Upplýsingar í síma 96-25743 eftir kl. 19.00
á kvöldin virka daga og um helgar.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
ÚTBOÐ
Landsbanki íslands býður út eftirfarandi:
Útboð 4/94:
Prentun á 1.500.000x2 eintök af útborgunarmiðum.
Skilafrestur tilboða er kl. 11.00 15.09 94.
Útboð 5/94:
Prentun á 1.500.000x2 eintökum af innborgunarmiðum.
Skilafrestur tilboða er kl. 11.00 15.09. 94.
Útboð 6/94:
Áprentuó umslög 7 gerðir alls 1.970.000 stk.
Skilafrestur tilboða er kl. 13.30. 21.09. 94.
Útboðsgögn fást afhent í Birgðastöð Landsbanka ís-
lands, Höfðatúni 6, 155 Reykjavík, gegn 500 kr.
greiðslu fyrir hvert útboð.
Landsbanki ísiands, Birgðastöð,
Höfðatúni 6,155 Reykjavík.
Símar 91-606270, 91-606275, Fax 91-623819.