Dagur - 10.09.1994, Page 10

Dagur - 10.09.1994, Page 10
10 - DAGUR - Laugardagur 10. september 1994 Gengið yfir brúna á Gilsá, gangnamannakofi, hesthús og fararskjótar nútímans í baksýn. Villisveppasúpan smakkaðist vel á rekarviðardrumbunum. Látraströnd í senn ögrandi og fögur. Þrátt fyrir að ísland sé fjalla- eyja sem er umkringd sjó á alla vegu eiga ekki allir þess kost að kynnast hafinu, heiðunum, fjöll- um og eyðibyggðum. Einfald- lega vegna þess að til þess þarf sérhæfðan og dýran búnað. í það minnsta er erfitt að fjara á sjó án bátkænu af einhverri stærð og aka fjallvegi á „mal- biksfólksbiT‘. Nú hafa þrír eyfirskir feróa- þjónustuaðilar sameinast um aö bjóða ferða- og heimamönnum að fara í ævintýraferð um Fjörður og Eyjafjörð. Þaó eru Sportferðir, sem meðal annars reka sæsleða- leigu á Akureyrarpolli og fara í snjósleðaferðir á Vindheimajökul, Feróaþjónustan Ytri-Vík og veit- ingastaðurinn Pizza 67 sem standa að fyrirtækinu. Marinó Sveinsson frá Kálfs- skinni sagði að ætiunin væri að fara í nokkrar ævintýraferðir í Fjörður og um Eyjafjörð í haust og jafnvcl í vetur. Einkum yrði farið meó hópa en næsta sumar yrói hugsanlega um vikulegar áætlunarferóir að ræóa. Hver ferð tekur röskar átta klukkustundir og unnt er aó taka á móti allt aó 40 manns í einu. Fjárfest hefur verið í tveimur jeppum til að aka á í Fjörður og bátur Sjóferóa á Dalvík sér um aó flytja ferðamennina sjó- leiðina. „Hættum að troða niður skóinn hver af öðrum“ Sveinn Jónsson húsasmíðameist- ari, bóndi og ferðamálafrömuður er einn þeirra aðila sem að þessum feróum standa. Hann hefur ákveðnar skoðanir á ferðamanna- þjónustu og hefur meðal annars sagt aó það sé ljóst að ferðamenn komi ekki hingaó til að sofa, það sé miklu ódýra fyrir þá að sofa heima hjá sér. Ferðamenn vilji hafa eitthvað við að vera, þeir vilji nýta tímann sem allra best til að sjá sem mest og takast á við fjöl- breytt verkefni. „Eg vildi sjá alla aðila, sem eru í ferðaþjónustu hér á Eyjafjarðar- svæóinu, hjálpast að við aó vinna verkið og gera sem mest. Þá finna ferðalangarnir sem til okkar koma að þeir eru velkomnir og að marg- ir aðilar eru tilbúnir að greióa götu þeirra. Eg held aö það sé árang- ursríkasta leióin. Mér er líka ljóst að maður gerir ekki allt sjálfur. Þess vegna finnst mér að ferða- þjónustuaðilar ættu síður að troða niður skóinn hver af öðrum. Það er árangursríkara að vinna saman aó því að styrkja svæðið og tengja saman það sem hægt er að bjóða fram á láði og legi, þá vilja feróa- mennirnir stansa hjá okkur,“ sagói Sveinn. Yfir Illagil. Við förum í ævintýraferð út í Fjörður Árla morguns við Torfunefs- bryggju hverfa ferðamennirnir einn af öórum ýmist um borð í Hóffí, bát Sjóferða á Dalvík, eða inn í þægilega jeppa. Svo er lagt í hann og vió fylgjum jeppalestinni út Svalbarðsströnd. I Gamla bæn- um í Laufási er þegið kaffi, þess- um reisulega burstabæ sem eitt sinn var höfuðból og heimili 20- 30 manna. Eitt heimili sem sann- arlega var á við raóhús nútímans hvað íbúafjöida snerti. Næst ligg- ur leióin um Höfðahverfi, til Grenivíkur og eftir jeppavegi hringinn í kringum Höfðann. Af þeirri leið opnast nýtt sjónarhorn inn Eyjafjörð og komið er að jöró- inni Höfða, sem var landnámsjörð Þengils mjöksiglandi. Nú leggjum við á brattann út Leirdalsheiði, sem skartar sínu fegursta einmitt í haustlitunum, og hefur hlotið nafn sitt af Iíparíti sem litar austurfjöllin leirljós. Næsti viðkomustaður okkar er Gil en þangað er 18 km akstur úr Höfðahverfi. Þar er gangna- mannakofi Höfðhverfinga og hest- hús, göngubrú á Gilsá og gömlu bæjairústirnar á Gili skammt und- an. Á Gili þóttu landkostir góðir en vetrarríki með fádæmum. Gil fór í eyói árið 1898 en þar bjó Theodór Friðriksson síðar rithöf- undur. Frá Gili liggur leiðin yfir Illagil um glæfralegan skorning yfir brú á Fjarðará. Hér bjuggu bændur, húsfreyjur og hjú Fjörður eru kyrrlát og fögur cyði- byggð sem geymist í huga þess sem þangað leggur leið sína. Tveir eyóidalir sem ganga norðan í landið upp frá samnefndum smá- fjöróum, Hvalvatnsfirði austar'en Þorgeirsfirði vestar. Síðustu býlin í Fjörðum fóru í eyði árið 1944 en hér voru 12 bæir. Vegarslóðinn liggur út Hvalvatnsfjörð og öku- ferðin okkar endar á sjávarkamb- inum við tóftir sauðahúsa Björns Líndals. Hann var stórhuga lög- maður sem bjó á Svalbarði á Sval- barðsströnd og rak fjárbú á Kaó- alsstöðum í Hvalvatnsfirói. Árið 1919 féll snjóflóð úr Bjarnarfjalli á húsin og drapst mest allt féö. Eina svar Björns þegar honum voru flutt tíðindin var, „þcir vcrða aö missa sem eiga.“ Rétt í þann mund sem við stíg- um út úr þægilegum bílunum í fjöruborðinu staónæmist bátur Sjóferða skammt undan landi og farþegarnir eru dregnir í land á gúmmíbát við mikin fögnuó við- staddra. Síðan er öllum hópnum boðið til hádegisverðar og matar- lystin lætur svo sannarlega ekki á sér standa, enda umhverfið ein- stakt og rekaviðardrumbamir þjóna prýðilega hlutverki sínu sem sæti. Á boðstólnum er íslensk villisveppasúpa, brauð, ávextir, súkkulaði og kaffi. Það er létt yfir hópnum og einn leiðsögumann- anna skemmtir okkur með spaug- sögum, nýjum og gömlum, og sögusviðió teygir sig allt frá strætisvögnum í London til fornra sagna af stolnum ástarfundum í Fjörðum. Svo skipta ferðamennirnir um farkost, bátsverjar fara í jeppana og jeppagarparnir eru dregnir um borð í Hóffi, sem bíður skammt undan landi. Ögrandi strönd og líf í hafi Við siglum út fyrir Þorgeirshöfó- ann framhjá Þönglabakka, sem var kirkjustaður og höfuðból í Þor- geirsfirði og fór síóastur jarða í eyði. Háhyrningar og hnísur leika listir sínar skammt frá bátnum og vekja óskipta eftirtekt. Áfram höldum við framhjá Keflavík í Keflavíkurdal, sem þótti eitt af- skekktasta býli í Vestur-Evrópu og vitanum á Gjögurtá.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.