Dagur - 10.09.1994, Side 18

Dagur - 10.09.1994, Side 18
18 - DAGUR - Laugardagur 10. september 1994 POPP MAúNÚS ÚEIR dUÐMUNDSSON Aðskilnaðir aðalsprauta - algengir í poppsögunni Brotthvarf gítarleikarans Bernards Butler úr bresku uppgangspopphljómsveitinni Suede á dögunum, annarrar aðalsprautu hennar, en hin er söngvarinn Brett Anderson, hefur að vonum vak- ið mikla athygli og orðið mönnum tilefni til að rifja upp álíka árekstra og uppistand í frægum poppsveitum. Hætti Butler eins og fram hefur komið í kjölfar deilna sem hann átti í við félaga sína og þá aðallega Anderson um gerð nýrrar plötu hljómsveitarinnar. Slíkir og þvílíkir atburðir hafa alltaf annað slagið komið upp í gegnum tíð- ina og virðast ásamt fleiru miður góðu vera óhjá- kvæmilegir fylgifiskar frægðarinnar. Dæmi Fyrsta dæmið sem hægt er að nefna og raunar það frægasta ef að líkum lætur, um árekstra og viðskilnað af svipuðu tagi og hjá Suede, er af Bítl- unum sjálfum. John Lennon og Paul McCartney voru að sögn strax árið 1965, hættir að geta unn- ið eitthvað og samið saman af viti. Þeir voru, eins og allir vita, allt í öllu í hljómsveitinni, sömdu nær öll lög hennar saman í orði kveðnu. Rígurinn milli Suede lifir af áfallið. þeirra, sem óx með árunum, leiddi beint og óbeint til endaloka sveitarinnar árið 1969. Annað dæmi um tvíeyki í geysiáhrifamikilli hljómsveit í breskri poppsögu, nær í tíma, eru Johnny Marr og Morrissey í Smiths. Upp úr samstarfi þeirra slitn- aði árið 1987 og hætti hljómsveitin í kjölfarið. Mörg önnur dæmi væri hægt að nefna, en þessi nægja að sinni. Engin endalok hjá Suede Suede virðast á hinn bóginn ætla að lifa af sinn „tvíeykisaðskilnað", eins og t.d. Pink Floyd gerði þegar Rogers Waters fékk nóg af Dave Gilmour og hætti eftir gerð The wall árið 1979. Stendur yfir leit að arftaka Butlers og hafa þúsundir svarað auglýs- ingu um starfið. Mun það væntanlega skýrast inn- an skamms hver hreppir hnossið. Er áætlað að nýja platan, sem gengið hefur undir nafninu Mis- ery, (sem þýða má sem hörmung og þykir segja eitthvað um brotthvarf Butlers) komi út eins og ekkert hafi í skorist 10. október. Mun lagið We are the pigs koma út á smáskífu nú eftir helgina, en það er eitt af tólf lögum sem prýða munu plötuna. .. ^_______* 1 til Asamt kvikmyndatónlistarplötum, þar sem allra handa flytjendur koma við sögu og virðingarvottsplötum, Tribute to" plötum, sem einnig innihalda oftar en ekki fjölbreytta flóru tónlistarmanna að túlka verk viðkomandi hetja, eru safnplötur með helstu afreksverkum hinna ýmsu tónlistarmanna/-hljómsveita ...og það gera Joe Perry og Steven Tyler í Aerosmith líka. Bon jovi sendir frá sér safn margra sinna vinsælustu laga í október... október. Hjá Aerosmith er útgáfu- dagurinn ekki frekar en nafnið al- veg á hreinu, en búast má við plötu þeirra á svipuðum tíma og hjá Bon Jovi. Með tilliti til mikillar vel- gengni þessara hljómsveita með sín verk og þá sérstaklega þau sem seinna hafa komið, er beðið með nokkrum spenningi eftir þessum plötum vegna þess að á báðum verða tvö glæný aukalög. Nefnast nýsmíðar Steven Tyler, Joe Perry og félaga í Aerosmith Blind man og Walking on water, en Always og Someday l’ll be saturday night eru heitin á nýju lögunum hjá Jon Bon Jovi og hans kumpánum. Mun Al- ways koma út á lítilli plötu til að fylgja Cross road.. úr hlaði og Walking on water að öllum líkind- um einnig í sama tilgangi. Er lík- lega óhætt að spá öðru þeirra ef ekki báðum vinsældum. Þess ber svo að geta að lokum, að fyrir ekki margt löngu kom reyndar út annað safn með eldri lögum Aerosmith, á vegum fyrrum útgáfu hljómsveitar- innar, Columbia. Af henni hefur lagið sígilda Sweet emotion verið endurútgefið á smáskífu fyrir nokkru, en það kom fyrst út á plötunni góðu Toys in the attic árið 1975. Kann þessi útgáfa e.t.v. að setja strik í reikninginn varðandi nýju safnplötuna, en um það mun tíminn væntanlega skera úr. nú áberandi sem aldrei fyrr á sölu- listum. Því til staðfestingar eru nú tvær mest seldu plöturnar í Banda- ríkjunum kvikmyndatónlistarplötur, Lion king og Forrest gump og í Bretlandi hafa tvær „bestu- verkaplötur”, Greatest hits með Whitesnake og The very best of með Eagles og ein tileinkunarplata, The glory of Gershwin, til heiðurs Larry Adler, verið með þeim sölu- hæstu á undanförnum vikum. Rokkrisasöfn á ieiðinni Vinsældir kvikmynda- og virðingar- vottsplatnanna hafa að mestu kom- ið til á síðustu misserum, en hvað hinar þriðju varðar, þá eru þær fyrir löngu orðnar sígildar og virðast sívinsælar. Lengst af hafa þessar bestu/vinsælustulagaplötur staðið undir nafni, þ.e. einungis innihaldið samsafn bestu eða vinsælustu laga viðkomandi frá liðinni tíð. En á síðustu árum hefur hins vegar sú breyting orðið að oftast eru ný lög, eitt, tvö, eða fleiri, látin fljóta með í kaupbæti til að gera plöturnar enn þá meira spennandi og þ.a.l. sölu- vænlegri. í næsta mánuði er einmitt von á tveimur slíkum plötum, sem áreiðanlega munu vekja mikla athygli. Er þar um að ræða safn- plötur með tveimur af stærstu rokkrisum samtímans, báðum vel að merkja frá Bandaríkjunum. Aerosmith frá Boston og Bon Jovi frá New Jersey. Spennandi nýsmíðar Nafnið á safnplötu Aerosmith hefur ekki ennþá endanlega verið stað- fest, en allar líkur eru á að hún muni kallast Big ones - The best of Aerosmith. Hjá Bon jovi er nafnið hins vegar alveg á hreinu. Cross road - The best of Bon jovi á þeirra safnplata að heita og hefur útgáfu- dagur hennar verið ákveðinn 14. Ýmsar (réttir, góðar jatnt sem siæmar, hafa að undanförnu komið í miklu magni um hagi sumra Seattlestór- sveita. Þær slæmu eru í fyrsta lagi þær að Chris Cornell, söngvari Sound- garden, hefur orðlð að leggja sönginn til hliðar f bili vegna einhverrar slæmsku í röddinni. Varð Soundgard- en, þessi afbragðs rokksveit, m.a. að gefa þátttöku sfna f Readinghátfðlnni upp á bátinn vegna þessa. ( öðru lagi hefur trommari Pearl Jam, Dave Abruzzese, verið iátinn taka pokann sinn. Er ástæðan fyrir þvf ekki iullljós, en það fylgir sögunni að fjölskyldumál kappans kunni eitthvað að hafa spilað þar innf. Góðu fréttirnar eru hlns vegar þær, að vondu tfðindln af Allce in chalns hafa ekki reynst jafn alvarleg og talið var í fyrstu. Söngvarinn Layne Staley hefur vissulega reynst vera tæpur vegna vímuefnaneyslu, en mun nú að nýju vera á batavegi. Steig hann á svið fyrir nokkru f Seattle, með heimasveit að nafni Second Commlng. Gftarleikarinn Jerry Cantrell hefur líka látið sjá sig á sviði, m.a. með Metall- ica, en með þeirrl stórsvelt þunga- rokksins var Alice In chalns um það bil að halda i tónleikaferðalag þegar ógæfan dundi yflr. Þelr tveir em sem sagt ásamt félögum sinum í Alice in chains, ekki ennþá búnir að gefast upp. Ef þeim tekst endanlega að ytir- vinna erfiðleikana, mun vinna að nýrri plötu væntanlega hefjast fyrir áramót. Rokkunnendur vona áreiðanlega að sú verði raunin. Layne Staley er að jafna sig Brot af því besta... Seattletíðindi

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.