Dagur


Dagur - 10.09.1994, Qupperneq 20

Dagur - 10.09.1994, Qupperneq 20
Nóg að gera hjá Foldu hf. þessa dagana lagi Japan. Þessa dagana er ein- mitt verið að afgreiða stórar pant- anir til japanskra viðskiptavina. I vélasal er unnið á vöktum all- an sólarhringinn en um 90 manns starfa nú hjá fyrirtækinu. HA Mettúr hjá Harðbaki EA Harðbakur EA kom til hafnar á Akureyri á þriðjudag með fullfermi af þorski úr Smugunni, eftir 17 daga túr. Aflinn var 270 tonn og er aflaverðmætið 18 milljónir króna. Þetta er jafn- framt mesta aflaverðmæti sem ísfisktogari hjá ÚA hefur fengið. Þorleifur Ananíasson, hjá ÚA, segir að alltaf sé erfitt að bera saman aflaverðmæti togara milli einhverra ára en þetta sé engu að síður mesta fjárhæó sem ísfisktog- ari ÚA hefur fengið fyrir farm sinn. Harðbakur hélt áleiöis í Smuguna á ný í fyrrakvöld. Gamli Svalbakur EA er á heirn- leió úr Smugunni með fullfermi, um 250 tonn, og er aflaverðmætið 16-17 milljónir króna. Togarinn sem kernur til hafnar í dag, er að koma úr sínum öðrum túr úr Smugunni og hefur fengið þar samtals 500 tonn af þorski. Frystitogarinn Sólbakur EA kemur til hafnar aðfaranótt sunnu- dags. Togarinn hefur einnig verið í Smugunni og er aflaverðmætið í þessunt túr rúntar 40 milljónir króna. KK Þessa dagana er nóg að gera hjá ullarvinnslufyrirtækinu Foldu hf. á Akureyri. Að sögn Baldvins Valdimarssonar fram- kvæmdastjóra er það mjög eðli- legt þar sem starfsemin sveiflast mjög árstíðabundið, lítið er að jafnaði að gera fyrri hluta ársins en aftur mjög mikið síðari hlut- ann. „Seinni hluti ársins er okkar uppskerutími og þá er venjulega mjög mikið aó gera. Þannig er einmitt ástatt nú og verður fram yfir áramót. Síðan eru fyrstu mán- uðir ársins oftast mjög erfiðir," sagói Baldvin. Af þessum sökunt kemur fyrst í ljós i lok ársins hvemig árið hefur gengið. „Þetta er mjög spennandi tí ni núna því hann ræður hver afkoma fyrirtæk- isins verður." Að sögn Baldvins má skipta markaðssvæði fyrirtækisins í femt. I fyrsta lagi innanlands- markaður, í öóru lagi Norðurlönd, aðallega Noregur og Svíþjóð, í þriðja lagi Þýskaland og í fjóróa Ofríðleg Ijósavél Um klukkan níu í gærkvöld lagði mikinn reyk frá loðnuskipinu Súlunni sem lá við festar á Akureyri. Slökkviiið og lögregla fór á staðinn en ekki reyndist um neinn eld að ræða heidur stafaði reykurinn af bilun í ljósavél. Bjarni Bjarnason, skipstjóri Súlunnar, sagði að bilunin væri smávægileg og mundi ekki tefja skipið frá veiðum, „en ljósa- vélin hefði látið ófriðlega“. Hann sagði að á þessari stundu væri ekki ákveðið hvenær Súlan færi á miðin enda væri loðnan „hundleiðinleg þessa dagana“. Þó gerði Bjarni ráð fyrir því að halda úr höfn á næstu dögum. KLJ/Mynd: Robin ígull hf. á Hvammstanga: Tilraunaveiðum á Bitrufirði i sam- starfi við Hafrannsóknastofnun lokið Fyrirtækið ígull hf. á Hvammstanga hefur í sumar stundað tilraunaveiði á ígulker- um í Bitrufírði á sunnanverðum Ströndum í samstarfí við Haf- rannsóknastofnum og stunduðu tveir bátar frá Hvammstanga veiðarnar. Veiðarnar á Bitrufirði gengu vel og héldu uppi atvinnu í ígulkeraverksmiðjunni. Veiðar eru nú hafnar skammt frá Hvammstanga en nýtt kvótaár hófst 1. september sl. ígulkerin eru tekin með plóg, og er leitað að bestu veiðisvæðunum þar sem besta hrognafyllingin og lit- urinn fæst. Harpa Vilbertsdóttir, framkvæmdastjóri íguls hf., seg- ir hrognafyllinguna allgóða, hún sé annars misgóð milli veiði- svæða, en vaxtarskeið ígulker- anna er mjög misjafnt eftir veiðisvæðum og er ekki árstíða- bundið við Húnaflóa. Aðalfundur Eyþings á Raufarhöfn: Einar áfram formaður - ráðstefna um ferðamál í gær Igær lauk aðalfundi Eyþings, sambands sveitarfélaga í Eyja- ljarðarsýslu og Þingeyjarsýslum, sem eins og kunnugt er varð til þegar Fjórðungssambandi Norð- lendinga var skipt í tvennt fyrir tveimur árum. Einar Njálsson var endurkjörin formaður stjórn- ar. í gær var aðalefni þingsins umræður um ferðaþjónustu á Norðurlandi eystra og markaðs- setningu svæðisins sem heildar. Stjórn Eyþings var kjörin í gær til tvegga ára. Hana skipa nú: Sig- Spáð er kólnandi veðri norð- anlands, norðaustanátt, all- hvassri á laugardag og súld eða rigningu. Á sunnudag verður áfram norðaustanátt, kaldi eða stinningskaldi og rigning. Hiti 4-12 stig. Það er því ekki ólíklegt að gráni í fjöll og vissara fyrir gangna- menn, sem víóa verða við smölum um helgina, að hafa föðurlandið næst sér. fríóur Þorsteinsdóttir, Jóhannes Sigfússon, Kristján Ólafsson, Pét- ur Þór Jónasson og Einar Njáls- son, sem verður formaður stjórn- ar. Tveir starfshópar unnu í gær- morgun aö tillögugerð. Annars vegar er unnió að ályktun um virkjun Jökulsár á Fjöllum og Jök- ulsár á Brú og hinn hópurinn vinnur að ályktun um umhverfis- og ferðamál. Ályktanir hópanna voru lagðar fram síðdegis í gær. I gærmorgun hélt Páll Þór Jónsson, hótelstjóri á Hótel Húsa- vík, framsöguerindi um feröaþjón- ustu á svæðinu. Hann ræddi um nauðsyn þess að koma á fót stöðu ferðamálafulltrúa í Þingeyjarsýsl- um. Einar Njálsson svaraði og sagðist vera sammála Páli um þetta atriði. Hann upplýsti aó stjóm svokallaðs Kísilgúrsjóðs, sem stofnaður var þegar náma- leyfi var síðast gefíð út í Mývatni, hafi ákveðið sl. vor að veita 500 þús. kr. á ári í 3 ár til Atvinnuþró- unarfélags Þingeyinga. Þar yrði byrjaó á aó fjármagna ráðningu ferðamálafulltrúa og sveitarfélög- in leggðu til fjármagn á móti. Einnig kom fram sú skoðun að verð á bílaleigubílum hérlendis væri flöskuháls í þróun ferða- mannaiðnaðar og spurt var hvort ekki væri hægt aó lækka aðflutn- ingsgjöld á þessum bílum svo bílaleigur gætu lækkað leigugjald. Þinginu lauk í gær. IM Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsa- vík, var cndurkjörinn formaður Ey- þings. ígull hf. á Hvammstanga full- vinnur hrognin til útflutnings, en þau eru seld gegnum umboðs- skrifstofu í Reykjavík, sem selur framleiðslu fleiri vinnsluaðila. M.a. mun umboðsskrifstofan sjá um sölu á hrognaframleiðslu KEA þegar hún fer í gang, en hún er staðsett í fiskhúsi KEA við smá- bátahöfnina í Sandgerðisbót. Þrettán manns starfar nú við ígulkeravinnsluna á Hvamms- tanga, en heföu þurft aó vera nær helmingi fleiri, eða 23. Sláturtíðin sem er að hefjast þessa dagana tekur til sín töluvert af starfsfólki svo ekki eru líkur á að þeim fjölgi fyrr en í lok sláturtíðar urn miójan októbermánuð. Skortur á starfs- fólki hefur verið viðloðandi vandamál hjá sjávarútvegsfyrir- tækjum á Islandi árum saman meöan á sláturtíð stendur. GG Frystikistur Verð frá kr. 28.830 Qkaupland hf. Kaupangi v/Mýrarveg, sfmi 23565 Vilt þú fylgjast með því nýjasta sem er að gerast í hestamennskunni? Gerist áskrifendur! Nýtt áskriftartímabil er hafið. TÍMARIT HESTAMANNA Sími 91-685316

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.