Dagur - 24.09.1994, Side 19
Laugardagur 24. september 1994 - DAGUR - 19
Hvernig sem úrslit verða í 1.
deildinni í knattspyrnu í dag,
laugardag, koma Norðlendingar
til með að eiga a.m.k. eitt 1.
deildar lið næsta sumar. Það er
að sjálfsögðu Leiftur frá Ólafs-
firði, sem vann sér þar þátttöku-
rétt um síðustu helgi. Formaður
knattspyrnudeildar Leifturs er
Þorsteinn Þorvaldsson, sjpari-
sjóðsstjóri í Sparisjóði Ólafs-
fjarðar. í annað skipti á skömm-
um tíma hefur Leiftur komist í
hóp þeirra bestu. Heppni hafa
kannski sumir sagt árið 1988 en
sú kenning hefur nú rækilega
verið afsönnuð.
Þorsteinn tók við sem formaóur
knattspymudeildar áriö 1985 og
hefur verió það síðan að einu ári
undanskyldu. Ariö 1986 varð
Sverrir Sverrisson gekk til liðs við Leiftur sl. vetur og var drjúgur fyrir liðið
í sumar.
Hvernig á að koma knattspyrnuliði upp í 1. deild:
Allir verða að leggjast á eitt
- segir Þorsteinn Þorvaldsson,
formaður knattspyrnudeildar Leifturs
Leiftur 3. deildar meistarari, fór
upp í 2. deild 1987 og 1. deild
1988. Það var ekki hægt að kom-
ast hraðar. Síðan lá leiðin niður á
við að nýju en óðar upp aftur. Síð-
ustu þrjú keppnistímabil hefur lið-
ið verið í 2. deild, vantaði aðeins
eitt stig til að fara upp í fyrra en
fór alla leið núna. Leiftur er því í
annað skipti komið upp í 1. deild
undir stjóm sama þjálfara, Óskars
Ingimundarsonar.
- Hvað þarf aó gera til að lcoma
liði frá ekki stærri staö en Ólafs-
firði upp í 1. deild?
„Veistu aö það er svo margt. Ég
vil reyndar byrja á að taka fram að
ég stend ekki í þessu einn. Ég hef
afar góða og samhenta stjórn á bak
við mig sem vinnur vel saman.
Það má kannski segja að í kring-
um 1980 höfóum við virkilega
góðan kjama leikmanna, sem skil-
aöi sér upp í I. deild 1988. A þess-
um tíma höfðum vió bara 2 eða 3
aðkomumenn. En til að þetta
gangi upp þarf margt aó spila sam-
an. Menn þurfa góðan mannskap,
góöan þjálfara og stuðning bæjar-
búa á bak við sig.“
- Er ekki áhugi Ólafsfirðinga á
fótbolta óvenju mikill?
„Jú, við fáum mikinn stuóning
miöað við ekki stærra bæjarfélag,
en áhorfendafjöldi og annað fer
auðvitað allt eftir genginu. Undan-
farin tvö ár hefur okkur gengiö
mjög vel í 2. deildinni og það skil-
ar sér í meiri stuðningi.“
- Var þá ekki mikil spenna í
mönnum í sumar eftir að hafa ver-
ið hársbreidd frá takmarkinu sl.
haust?
„Stefnan í sumar var auóvitað
sett á að fara upp og pressan var
því talsverð. Það er hins vegar at-
hyglisvert aó liðió stóð sig best á
móti efri liðunum en klikkar á
móti þeim neðri. Þetta segir okkur
að hugarfarið í þeim leikjum hefur
ekki verið alveg 100%.“
- Ertu farinn að spá í næsta
sumar, mannabreytingar og ann-
að?
„Vió gerum okkur fyllilega
grein fyrir því að þetta verður
mjög strembið. Við sjáum bara
hvernig liðunum vegnaði sem
komu upp í fyrra þrátt fyrir að þau
hafi styrkt sig verulega. Við ætlum
okkur auðvitaó að hanga uppi,
hvort þaó tekst er annað mál.
„í fótboltanum hcfur maður annars
konar áhyggjur en í vinnunni,“ seg-
ir Þorstcinn, sem hér er á skrifstofu
sinni í Sparisjóði Ólafsfjarðar.
- Þarf aó styrkja lióið?
Okkar hugmyndir eru að halda
öllum mannskap og bæta kannski
tveimur góöum viö. Síóan á eftir
að koma í Ijós þegar gengið verður
á mannskapinn hvort allir skila
sér.“
- Nú hefur'þú sjálfsagt heyrt
þær raddir aö mikið sé af aðkomu-
mönnum í liðinu. Hverju viltu
svara því?
„Auðvitaó er það alveg rétt.
Hins vegar er spurning hvenær
menn eru aðkomumenn og hvenær
heimamenn. í fyrra koma tveir ný-
ir inn, þrír af þessum strákum eru
búnir að vera í 3 ár og þeir eru
með lögheimili hérna og þá hlýtur
að rnega telja þá heimamenn. Fyrir
þetta tímabil urðu litlar breytingar.
Út fara Gústaf Ómarsson og Pétur
Hafliói Marteinsson og inn koma
Slobondan Milosic og Sverrir
Sverrisson og reyndar Baldur
Bragason í restina.“
- Nú hefur Óskar Ingimundar-
son komiö ykkur í annaó skipti
upp í I. deild. Á ekki að halda í
hann?
„Jú, það er stefnan. Hins vegar
er ekkert frágengið í þeim málum.
Vonandi gengur það þó upp og ég
myndi telja talsverðar líkur á því.
Þetta er spuming með að sam-
ræma þjálfunina og hans atvinnu."
- Hvað fær menn til að gefa sig
út í formennsku í knaftspyrnu-
Knattspyrnudeild KA:
Lokahóf yngri flokka
Knattspyrnudeild KA verður
með lokahóf fyrir yngri flokka
félagsins á morgun, sunnudag,
kl. 14.00 í KA-heimilinu.
Þar veróa veitt verólaun fyrir
árangur í einstökum flokkum, frá
7. og upp í 2. flokk. Boðið veróur
upp á veitingar og eru félags-
menn, jafnt ungir sem gamlir,
hvattir til þess að mæta.
deild? Er þetta ekki tómt vesen og
vandræði?
„Sjálfsagt er nokkuð til í því og
örugglega er maður búinn aó vera
of lengi að vasast í þessu og orð-
inn lúinn. Hins vegar er þetta líka
rosalega gaman. Mikill félags-
skapur og spenna. Þetta er líka
öðruvísu áhyggjur en ég glími við
í mínu starfi og ágætis tilbreyt-
ing.“
- Ætlarðu þá að vera áfram?
„Ég hef ekkert gefiö út í þeim
efnum. Það kemur að því að mað-
ur fer að hvíla sig.“
- Fer ekki allur þinn frítími í
þetta stúss?
„Jú, hann gerir það. Þetta tekur
mikinn toll af fjölskyldunni, en
þetta er líka áhugamál hjá henni,
annars væri það ekki hægt. Maður
fer á alla leiki sumarsins þannig að
helgarnar eru uppteknar. Síðan
reynir maður að fylgja strákunum
sínum í þeirra leiki og þar með er
allt sumarið undir lagt.“
- Gengur rekstur deildarinnar
skaplega?
„Svona alveg þokklega miðað
viö það sem maóur er að heyra í
kringum sig. Hins vegar er alltaf
að veróa erfióara og erfiðara að fá
fyrirtækin til að styrkja. Við þurf-
um hins’vegar ekki að kvarta.
Menn hafa verið mjög duglegir
hér og stuðningsmannafélögin
mjög öflug.“
- Hvernig leggst 1. deildin svo
íþig?
„Bara vel. Ef það fer svo að Þór
fellur hljótum viö að fá fleiri áhorf-
endur af svæöinu til að sjá þessi
stóru lið. Eins eiga Reykjavíkurfé-
lögin stuóningsmenn hér fyrir
norðan sem væntanlega koma til
að sjá sína menn spila á Ólafsfirði.
Vió gerum okkur hins vegar fulla
grein fyrir því að þetta veróur erfitt
þannig að menn fara ekki í neinn
einasta leik með vanmat. Þetta
verður gríðarleg barátta þar sem
allir veróa að leggjast á eitt.“ HA
VIKING
, STÍOVÉL
I SLABBIÐ
VERÐ FRÁ KR. 1767
jmm
HEILSUQÆSLUSTÖÐIN A AKUREYRI
Síðdegismóttaka
Við Heilsugæslustöðina á Akureyri er nú opin sí-
degismóttaka frá kl. 17.00 til 18.30 aila virka
daga.
Móttakan er á 3. hæð stöðvarinnar.
Viótöl við lækni eru ekki pöntuð fyrirfram, en mót-
takan er fyrst og fremst hugsuð fyrir bráðatilvik.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 22311.
Heilsugæslustöðin á Akureyri.
Sundlaug
Dalvíkur
auglýsir
[ austurenda efri hæðar sundlaugarbyggingarinnar er
65 fermetra salur sem tengist herbergi sem er 20 fer-
metrar.
Eru einhverjir sem vilja taka húsnæðið á leigu, einstak-
lingar, fyrirtæki eða félög? Til hvers? Einhvers konar
reksturs, æfinga, fyrir uppákomur eða annað. Æskilegt
er að þarna fari fram starfsemi sem tengist íþrótta- og
eða æskulýðsstarfi.
Lítið inn, skoðið aðstöðuna og efáhugi er fyrir
hendi sendið þá hugmyndir ykkar til íþrótta-
og æskulýðsráðs Dalvíkur, Ráðhúsinu, 620
Dalvík, fyrir 1. október.
Frekari upplýsingar gefa Bjarni Gunnarsson íþrótta- og
æskulýðsfulltrúi í síma 63133 (he. 61060) og Skarp-
héðinn Pétursson forstöðumaður sundlaugar í síma
63233 (hs. 61502).
íþrótta- og æskulýðsráð Dalvíkur.
HORNBREKKA, Ólafsfirði, sími 96-62480
Hjúkrunarfræðingar -
Sjúkraliðar
Sjúkra- og dvalarheimilið Hornbrekka Ólafsfirði
oskar eftir hjúkrunarfræðingi í 100% stöðu. Einnig
vantar sjúkraliða í 75-100% stöður.
Nánari upplýsingar veita forstöðumaður Hornbrekku
og hjúkrunarforstjóri í síma 96-62480.
Skriflegar umsóknir þurfa að berast fyrir 28. sept-
ember 1994.
Dalbi
heimili aldraðra
Hjúkrunarfræðingar -
sjúkraliðar
Dalbær, heimili aldraðra á Dalvík óskar eftir hjúkrunar-
fræðingi í stöðu aðstoðardeildarstjóra. Um er að ræða
60-100% stöðu ásamt bakvöktum.
Einnig óskum við eftir sjúkralióum til afleysinga í vetr-
arleyfum.
Á Dalbæ eru íbúar 44, þar af 20 á hjúkrunardeild. / tengslum
við heimilið er einnig rekin dagvistum fyrir aldraða.
Starfshlutfall og ráðningartími samkvæmt samkomulagi.
Húsnæði á staðnum.
Umsóknarfrestur er til 15. október 1994.
Nánari upplýsingar veita forstöðumaður og hjúkrunar-
forstjóri í símum 61379 og 61378.