Dagur - 11.10.1994, Page 11
SKAK
Þriðjudagur 11. október 1994 - DAGUR - 11
Deildakeppní Skáksambands íslands 1994-1995
Keppnin l'ór fram í Reykjavík 7.
til 9. október en einn riðill var í 4.
deild á Akureyri. Skákfélag Akur-
eyrar var mcð 5 sveitir í keppn-
inni. Um helgina tetldu um 30
manns fyrir félagið. Allar sveitirn-
ar stóðu sig vel og í 1., 2. og 3.
deild eru sveitir S.A. í toppbarátt-
unni eftir 4 fyrstu umferóirnar.
I 1. dcild er A-sveit Skákfélags
Akureyrar í 2. sæti en röð sveit-
anna er þessi þegar þrjár umferðir
eru eftir:
Vinn.
1. Taflfélag Reykjavíkur A-sveit 23
2. Skákfélag Akureyrar A-sveit 19,5
3. Skákfélag Hafnarfjarðar A-sveit 17
4.-5. Taflfélagið Hellir A-sveit 15,5
4.-5. Taflfélag Garðabæjar A-sveit 15,5
6. Skáksamband Vestfjarða A-sveit 14
7. Taflfélag Kópavogs A-sveit 13,5
8. Taflfélag Reykjavíkur B-sveit 12,5
Ef litið er á úrslit sveitar S.A.
þá gerði hún jafntefli við sveit
Kópavogs 4:4, vann B-sveit Tafl-
félags Reykjavíkur með 6,5 vinn.
gegn 1,5., í 3. umferð tapaði sveit-
in fyrir A-sveit Hellis með 3,5
vinn. gegn 4,5 en í 4. umferð
vannst góður sigur á Skáksam-
bandi Vestfjarða 5,5 gegn 2,5.
Bestum árangri hjá A-sveitinni
náði Margeir Pétursson, stórmeist-
ari, en hann fékk 3,5 vinn. af 4, að
sjálfsögðu á 1. borði. Margeir
Austur-Evrópa frá
Máli og menningu
Mál og menning hefur scnt frá sér
bókina Austur-Evrópa cftir Kaj
Hildingson. Árið 1989 olli
straumhvörfum í Austur-Evrópu;
fólk um allan hcim sat agndofa
við sjónvarpstækin og fylgdist
með því hvernig Bcrlínarbúar
brytjuðu niður múrinn og hvernig
járntjaldið liðaðist sundur. í Aust-
ur-Evrópu féll hver kommúnista-
stjórnin á fætur annarri og Sovét-
ríkin splundruðust.
Þessi gífurlegu umskipti verða
ekki skýrð í stuttu máli, en í bók-
inni Austur-Evrópa er litið yfir
vettvanginn og reynt að svara
áleitnum spurningum. Hverju
landi er lýst fyrir sig í ljósi sögu,
stjórnmála og efnahags, m.a. með
hjálp tölfræðilegra upplýsinga.
Bókin er ætluð til kennslu í
framhaldsskólum, en ætti einnig
að gcta nýst hverjum þeim sem
vill fá innsýn í þennan heimshluta
scm cr nánast daglega í fréttum.
Austur-Evrópa er annað verkið
í ritröðinni Grundvöllur og
grandskoóun. Brynja Dís Vals-
dóttir og Guðmundur Viðar Karls-
son þýddu bókina úr sænsku.
Austur-Evrópa er 132 bls. Vcrð
kr. 1999.
VINNINGSTOLUR
LAUGARDAGINN
08.10.1994
VINNINGAR
1.5 al 5
2. F
3. 4af 5
4.:
FJOLDI
VINNINGSHAFA
84
2.677
UPPHÆÐ Á HVERN
VINNINGSHAFA
1.937.384
336.322
6.906
505
Heildarvlnningsupphæð:
4.205.695
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
vann m.a. Helga Ólafsson stór-
meistara í 1. umferð. Margeir hef-
ur teflt með Skákfélagi Akureyrar
frá hausti 1991 og hefur hann náð
frábærum árangri fyrir félagið í
deildakeppninni. Hann hefur ekki
tapað skák, unnió flestar skákirnar
en samió örfá jafntefli.
Gylfi Þórhallsson tefldi á 2.
boröi og stóð sig mjög vel, fékk 3
vinn. af 4.
B-sveit Skákfélags Akureyrar
telldi í 2. deild. Þar eru 6 manna
sveitir en í 1. deild eru 8 manna
sveitir. Eftir fyrstu 4 umferðirnar
er sveitin í 3. sæti af 8 sveitum og
á möguleika að vinna sér sæti í 1.
deild. D-sveit Tallfélags Reykja-
víkur er í efsta sæti og Taflfélag
Vestmannaeyja í 2. sæti. Sveitir
UMSE og USAH hafa byrjað illa
og eru í 7. og 8. sæti.
Bestum árangri í B-sveitinni
náðu Þór Valtýsson og Bjarni Ein-
arsson og fengu 3 vinninga af 4.
C-sveit Skákfélags Akureyrar
tefldi í 3. deild og er nú í 3. sæti al'
8 sveitum og á góða möguleika að
komast upp í 2. deild. Efstar eru
A-sveit Taflfélags Keflavíkur og
B-sveit Taflfélags Kópavogs.
Bestum árangri sveitarmanna
náðu yngstu keppendumir ( 15 og
17 ára), þeir Halldór Ingi Kárason
og Helgi Pétur Gunnarsson, 3
vinn. af 4.
Á Akureyri fór fram C-riðill í
4. deild cn keppt var í A og B riðli
í Reykjavík. Vegna forfalla var
Skákfélag Akureyrar með 2 sveitir
í þessum riðli.
Urslit: 1. Skáksamband Austur-
lands 15 vinn., 2. Skákfélag Akur-
eyrar D-sveit 13 vinn., 3. Taflfé-
lag Húsavíkur 4,5 vinn. og E-sveit
S.A. fékk 3,5 vinn.
Sveit Skáksambands Austur-
lands keppir um sæti í 3. deild í
Reykjavík í mars.
Bestum árangri í D-sveitinni
náðu Pétur Grétarsson 2 vinn. af 2
, Magnús Dagur Ásbjörnsson 2,5
af 3, Haraldur Ólafsson 1,5 v. af 2
og Haki Jóhannesson 1 v.. af 1.
I E-sveitinni fékk Davíð Stef-
ánsson 2 vinn. af 3 og Halldór
Brynjar Halldórsson 1 vinn. af 2.
Skákstjóri á Akureyri var Albert
Sigurósson.
Ert þú að
tapa réttindum ?
Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðfélögnm yfirlit um
iðgjaldagreiðslur á árinu 1994:
Almennur lífeyrissj. iðnaða'nnanna
Lífeyrissjóður Austurlands
Lífeyrissjóður bókagerðarmanna
Lífeyrissjóður Bolunga'rvíkur
Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar
Lífeyrissjóður framreiðslumanna
Lífeyrissjóðurinn Hlíf
Lífeyrissjóður Hlífar og Framtíðarinnar
Lífeyrissjóður matreiðslumanna
Lífeyrissjóður Norðurlands
Lífeyrissjóður rafiðnaðarmamia
Lífeyrissjóður sjómanna
Lífeyrissjóður Sóknar
Lífeyrissj. starfsfólks í veitingahúsum
Lífeyrissjóður Suðurnesja
Lífeyrissj. verkafólks í Grindavík
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi
Lífeyrissjóður verksmiðjufólks
Lífeyrissjóður verkstjóra
Lífeyrissjóður Vestfirðinga
Lífeyrissjóður Vestmannaeyinga
Lífeyrissjóður Vesturlands
FAIR ÞU EKKIYFIRLIT
en dregið liefur verið af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóðum, eða ef
launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið
allra fyrsta og eigi síðar en 1. nóvember nk.
Við vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta á að dýrmæt réttindi tapist. Þar á meðal má nefna:
ELLILÍFEYRI • MAKALÍFEYRII • BARNALÍFEYRII • ÖRORKULÍFEYRI
Gættu réttar þíns
/ lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars:
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota, skulu launþegar
innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr skugga uin skil vimiuveitenda til viðkomandi lífeyr-
issjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka leggja lífeyrissjóði til afrit
launaseðla fyrir það tímabil, sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega er við-
komandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki
sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.