Dagur - 15.10.1994, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 15. október 1994
„List er sjálfsímynd
þjóðar, endurspeglar
þjóðarsál og tíðar-
anda. Góð málverk
túlka tíðarandann al-
veg eins og hausttísk-
an í París, ef hún er
góð. Góðir almenn-
ingsgarðar hafa ekki
síður túlkað ríkjandi
tíðaranda gegnum
aldirnar. Konungar
og keisarar höfðu í
hirð sinni myndlistar-
menn og skáld en
líka garðyrkjumenn
og arkitekta."
Sigurður Árni hóf
námsferil sinn í
Myndlistaskólanum
á Akureyri. Hann
lauk námi árið 1990
í París.
Sigurður Árni hef-
ur haldið einkasýn-
ingar víða í Evrópu á
síðustu árum, til
dæmis hér á landi, í
Frakklandi, Sviss og
Þýskalandi. Auk
þess hefur hann tek-
ið þátt í fjölda sam-
sýninga og framund-
an eru einkasýningar
bæði í Lyon og París.
HU GMYND HUGMYND UUGMYND
Sigurður Árni Sigurðsson myndlistarmaður
opnaði í byrjun mánaðarins sýningu í Listasafninu á Akureyri. Sigurður er fæddur og uppalinn á Akureyri en
hefur verið búsettur erlendis um nokkurra ára skeið, lengst af í París. Sigurður er um þessar mundir gesta-
kennari í málaradeild Myndlistaskólans á Akureyri og dvelur á æskuslóðum en þegar veturinn sest að fyrir
alvöru hér norðanlands heldur hann á suðlægari slóðir, aftur til Parísar.
Garðurinn
er óður
til sólarinnar
„Það væri hægt að útbúa
garð sem tæki mið af sólar-
gangi og til dæmis þegar
sólargangurinn er lengstur
og sólin hæst á lofti, einu
sinni á ári, þá fullkomnað-
ist garðurinn í nokkrar
mínútur, náttúran mundi
smella í eitt allsherjar
samræmi.
Á þeirri stundu yrði
garðurinn opinn og þú
fengir tækifæri til að standa
í fyrirfram ákveðnum spor-
um á rétta andartakinu og
verða vitni að fullkomnun,
- ef það yrði ekki
skýjað."
„Fullkomim garður" olía á tré og polyester 220x145x19 cm 1993
Sigurður Árni sýndi verk sín nú í
lok sumars á Kjarvalsstöðum og
segist sýna hér í Listasafninu meira
og minna sömu verkin. Þó eru þau
aóeins færri hér en þar og sett í
annað samhengi enda segir Sigurð-
ur hverja sýningu mótast af því
rými sem hún er sett í. Auk þess
sýnir Sigurður nú eitt nýtt verk,
módel af garði sem hann vann hér
á Akureyri í sumar.
Sýningunni er í grófum dráttum
skipt í tvennt. Annars vegar er
fengist vió þá hugmynd sem liggur
að baki málverkinu og grundvallar-
hugmyndir um málverk. Hinn hlut-
inn snýst um almenningsgarða, en
um leið málverk, sett í visst sam-
hengi við módel og ákveðnu sjón-'
arhorni stillt upp við skoðun mál-
verksins.
„Þetta eru jú allt málverk en
þetta snýst um út frá hvaða sjónar-
horni á að horfa á málverk?“
- Snýst vinna myndlistarmanns-
ins um það að setja upp sýningar?
„Nei, hún á ekki að snúast um
það. Sýning er mikilvæg en hún
má aldrei verða að aóalatriði eða
drifkrafti þess aö vinna eða hugsa
um það sem við köllum myndlist.
Mér finnst gaman að sýna það
sem ég er aó fást við og ég öðlast
ákveðió sjónarhorn á sjálfan mig
og verk mín þegar þau eru komin
út úr vinnustofunni og í sýningar-
salinn. Sýning myndlistarmanns er
Hitaveituffamkvæmdir á hálendinu
Það er fallegt í Laugafelli, jafnt sumar sem vetur. Vinstra mcgin er hús Ferðafélagsins, reist á árunum 1948-1950 en
Hjörvarsskáli, sem er í eigu vélsleðamanna úr Eyjafirði, er fjær. Myndir: Halidór.
Laugafelí er sannkölluð vin í eyðitnörkinni norðaustur
af Hofsjökli. Eins og nafnið ber með sér eru }?ar heitar
íaugar og staðurinn íengi verið vinscell hjá fjallafórum.
Ferðafélag Akureyrar reisti par ítús á árunum 1948-50
sem síðan hefur hýst margan preyttan, blautan og
kaldan ferðalanginn. Er húsið hitað upp með heitu
laugarvatninu, sem skýrir vinsceldir þess. Ferðafélag
Akureyrar hefur haldið uypi gceslu í Laugafelli yfir
mesta ferðamannatímann eitda staðurinn fjölfarinn.
Húsum hefir fjölgað í Lauga-
felli á undaförnum árum, en hópur
vélsleðamanna reisti sér þar hús ár-
ið 1989. Heitir það Hjörvarsskáli,
eftir Angantý Hjörvari Hjálmars-
syni, kennara í Eyjafjarðarsveit og
kunnum ferðafrömuði. Það hús er
einnig hitað upp með heitu vatni
og hefur FA getað nýtt það sem
auka gistipláss á sumrin. I haust
var flutt í Laugafell hús sem í
framtíðinni verður snyrtiaóstaða
með sturtum og vatnssalernum.
Nýtist þaó bæði þeim sem gista í
skálunum og einnig gestum sem
leið eiga um hálendið og vilja nota
sundlaugina í Laugafelli, en fáir
fara þar um án þess aö bregóa sér í
bað.
Ný heitavatnslögn
Á dögunum stóðu yfir miklar
framkvæmdir í Laugafelli en þá
var endurnýjuð heitavatnslögnin í
Hjörvarsskála og lagt aö hinu nýja
T3l