Dagur


Dagur - 22.10.1994, Qupperneq 2

Dagur - 22.10.1994, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 22. október 1994 FRETTIR Jafnréttisnefnd Akureyrar OPIÐ HUS 24. október 1994 Kynningarfundur um jafnréttisverk- efni og jafnréttisstefnu í skólum á Akureyri Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14, 4. hæð mánudag kl. 20.00-23.00. Kynning á Jafnréttisáætlun Akureyrarbæjar og styrkjum jafnréttisnefndar. ♦ Kynning á jafnréttisverkefnum á skóiasviði: Leikskóladeild Akureyrarbæjar - „Börn eru bæði stelpur og strákar." Skóladagheimilið Brekkukot - „Stelpur, strákar - framtíðin." Gagnfræðaskóli Akureyrar - „Kynjaskiptar deildir í 8. bekk." Menntaskólinn á Akureyri - „Stelpur- égget...“ Menntaskólinn á Akureyri - „Glöggt er gests augað." Kennaradeild Háskólans á Akureyri - „Jafngildi og jafnrétti kynja ískólum, sem hluti af kennaramenntun." Kaffi og almennar umræður í hópum. ♦ Pallborðsumræður. Jafnréttisfulltrúi. Gislaved sœnsk gœbavara Látið^fsjá um hjólbarðaskipti fyrir veturinn Endurneglum gömlu hjólbaröana Yfirförum rafgeyminn Veríb velkomin! Debet Réttarhvammi 603 Akureyri Sími 96 12600 Fax 96-12196 Hæstiréttur vísar heim í hérað ákæru í meintu kynferðisafbrotamáli: Engra sérfræðilegra gagna aflað - um líkamlegt og andlegt atgervi kærenda Hæstiréttur hefur vísað heim í hérað máli ákæruvaldsins gegn Norðlendingi, sem sakaður var um kynferðisafbrot gegn tveim- ur stjúpdætrum sínum fyrir um átta árum síðan. Dæmt var í málinu í Héraðsdómi Norður- lands eystra sl. vor. Ákæran var byggð á kæruskýrslum tveggja stjúpdætra ákærða um átta ár- um eftir meint brot ákærða gagnvart þeim og fjórum árum eftir að móðir kærenda varð að nokkru kunnugt um tilefni ann- arrar kærunnar. I dómi Hæstaréttar segir m.a. að engra sérfræðilegra gagna hafi verið aflað um líkamlegt og and- legt ástand kærenda, vióhorf þeirra til ákæröa og ákæruefnisins og áhrifa hinna meintu brota ákærða á þær. Ennfremur segir að viótalsskýrslur iæknis vió þær hafi ekki fundist og ekkert gert til að kveðja lækninn fyrir dóm til skýrslugjafar. Ekki lágu fyrir nein gögn um ákærða sjálfan né við- horf hans. Hæstiréttur telur að skortur á gögnum sé svo þýðing- armikill við mat á sönnunargildi munnlegs framburóar ákærða og kærenda aó héraósdómari hefði ekki átt að leggja dóm á málió án þeirra. Því er málinu vísaö aftur heim í hérað til frekari meóferðar og dómsálagningar að nýju. GG Bæjarráð Blönduóss fjallar um greiðslur til Atvinnuleysistryggingasjóðs: Samningsbrot sem skapar tortryggni í nýútkomnu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyr- ir að á árinu 1995 verði sveitarfé- lögum á landinu gert að greiða samtals 600 miiljónir kr. til At- vinnuleysistryggingasjóðs. Þetta telja sveitarstjómarmenn vera brot á samningi ríkis og sveitar- félaga frá 10. desember 1993, þar sem fram kemur að ekki verði framhald á greiðslum sveitarfé- iaga til sjóðsins á árinu 1995. Bæjarráð Blönduóss hefur fjallað um málið og álítur aö sam- skipti ríkis og sveitarfélaga hafi þróast í þá átt á undanfömum ár- um að gætt hafi vaxandi skilnings á þörfum og ábyrgö hvors aðila um sig. Því ber að harma að samn- ingsbrot þetta skuli verða til þess að skapa tortryggni og efasemdir í hugum sveitarstjómarmanna gagn- vart ríkisvaldinu. Bent er á að framundan eru vióræður um flutn- ing grunnskóla frá ríki til sveitar- félaga og því brýnt að samskipti séu á þann veg að fullt traust ríki þar á milli. I ljósi þess sem hér hefur verið sagt vill bæjarráð Blönduóss skora á ráðherra, alþingismenn og sam- tök sveitarfélaga, að beita sér fyrir því að fallió veröi frá áformum þessum. HA Aflinn í Barentshafi 25 þúsund tonn: Norðlenskir togarar hafa aflað 55% þess magns Afli íslenskra togara í Barents- haf! var 25.046 tonn í ágúst- og septembermánuði sl. samkvæmt samantekt Fiskistofu. Hlutur norðlenskra togara er þar 55%, eða 13.798 tonn. Af þeim afla hefur Baldvin Þorsteinsson EA- 10 aflað mest, 1.159 tonn, sem er 8,4% af hlut Norðlendinga. Mest hafa akureyrskir togarar aflað, eða 5.057 tonn, sem er 20,2% af heildarafla, síðan kemur Ólafsfjörður með 2.732 tonn, eða 10,9% og þar á eftir Skagaströnd nteð 1.474 tonn (5,9%), Sauðár- krókur með 1.358 tonn (5,5%) og Siglufjörður með 1.318 tonn (5,3%). Meóalafli hjá 24 norð- lenskum togurum var 575 tonn. Afli togaranna, raðaó eftir magni, birtist hér að neðan. Á list- anum eru ekki togarar skráóir undir hentifána en í eigu norð- lenskra útgeröa. GG Baldvin Þorsteinsson EA-10 1.159 Örvar HU-21 1.104 Mánaberg ÓF-42 954 Víóir EA-910 883 Akureyrin EA-110 829 Sigifiróingur SI-150 745 Sólberg OF-12 708 Bliki EA-12 702 Svalbakur EA-302 618 Hegranes Sk-2 603 Sigurbjörg ÓF-1 584 Sólbakur EA-307 544 Stakfell ÞH-360 535 Margrét EA-710 530 Harðbakur EA-303 494 Múlaberg ÓF-32 486 Skagfirðingur SK-4 385 Rauðinúpur ÞH-160 383 Drangey SK-1 380 Helga II RE-373 377 Arnar II HU-101 370 Stálvík SI-1 196 Björgúlfur EA-312 141 Frosti ÞH-229 88 Margrét EA hefur veitt rúm 500 tonn í Barcntshafi. Mynd: KP

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.