Dagur - 22.10.1994, Blaðsíða 13
POPP
Laugardagur 22. október 1994 - DAGUR - 13
MAÓNÚS CEIR CUÐMUNDSSON
GRÆMR OG GÓDIK
Að undanförnu hefur nokkuð
verið fjallað um nýja pönköldu
sem skollið hefur á, sérstaklega
í Bandaríkjunum en líka í Bret-
landi. í fæðingarlandi pönksins
hefur það verió hljómsveitin
SMASH, sem helst er litið til, en
í Bandaríkjunum er um hreina
sprengingu að ræða, sem bæói
beint og óbeint má tengja við
Seattlerokkið. Margar sveitir
sem þaðan hafa komið og náó
frama, t.d. Nirvana, Sonic
youth, Mudhoney o.fl. hafa allar
meira og minna haft pönkáhrif í
farteskinu, sem síðan hefur gert
það að verkum að hreinrækt-
aðri nýpönksveitir hafa komiö
fram og slegið rækilega í gegn.
Hefur áóur verið minnst hér á
Offspring, sem setið hefur á
topp tíu með plötuna sína
Smash, en aðrar sveitir sem
þykja nú vel „heitar" eru t.d.
Bad religion, NOFX og Rancid.
Síðast en ekki síst er það svo
tríó frá Berkeley í Kaliforníu,
sem líkt og Offspring hefur
slegið rækilega í gegn. Þeir fé-
lagar Billie Joe, söngvari, gítar-
leikari og lagasmiður, Mike
Léttgeggjaðir gaurar fétagarnir í Green day.
Dirnt bassaleikari og Tré Coll
trommuleikari (engin prentvilla
hér) taka sig ekki hátíólega en
hafa náð þrátt fyrir þaó þessum
líka góða árangri með fyrstu
plötunni sinni Dookie. Hefur
hún á annan mánuð verió inn á
topp tíu og selst í á aóra milljón
eintaka. Er tónninn hjá þeim
pönk í anda Ramones og fleiri
slíkra af eldri kynslóðinni, t.d.
líka hinna írsku Stiff little fingers
á stöku stað. En í bland eru svo
léttleikandi popplaglínur sem
gera þá öllu mildari en t.d. Bad
religion. Heppnast þessi blanda
pönks og popps hreint bráövel
og er ekkert skrýtið þó hún hafi
hitt í mark. Einfalt grípandi og
gott segir allt sem segja þarf
um þennan frumburð „græna-
dagsdrengjanna". Af mörgum
bráðskemmtilegum lögum
plötunnar, en samtals eru lögin
14, má nefna sérstaklega,
Longview, She, Chump, When I
come around, In the end og
Basket case. Það síðastnefnda
hefur notið töluverðra vinsælda
og m.a. verið spilað nokkuð í
útvarpi hérlendis.
NEIT iMIMMlK
Eins og fólk hefur væntanlega
oróið vart við, hefur gengi ís-
lenskra popp og rokksveita
verió upp og ofan í sumar og
þá aðallega ofan. Einstaka
sveitum eins og SSSól og Páli
Óskari og Milljönamæringunum
hefur gengió þolanlega en mik-
ió meira er það nú ekki. Þaó
virðist þó ekki aftra nýjum
hljómsveitum eóa einstakling-
um frá því að koma verkum
sínum á framfæri, en talsvert
hefur verið um það í sumar og
haust. Eru fjölmörg dansdúó
og tríó dæmi um það, en áhug-
inn á því tónlistarfyrirbæri í sín-
um margnefndu myndum, er
nú í algleymingi hér á landi
eins og víðar. Nýlióar hafa líka
komið fram úr allt annarri átt og
fyrirferðarminni. Er hljómsveitin
Kol dæmi um þaó, en hún
sendi frá sér sína fyrstu plötu
nú síósumars. Kol er fimm
manna, nú skipuó þeim Hlyni
Guðjónssyni gítarleikara,
Sváfni Sigurðarsyni söngvara
og kassagítarleikara, Benedikt
Siguróssyni gítarleikara, Guð-
mundi Gunnlaugssyni tromm-
ara og Arnari Halldórssyni
bassaleikara, en annar bassa-
leikari, Hallgrímur Guðsteins-
son, hefur einnig verið viðloð-
andi sveitina lengst af. Sendi
Kol frá sér sína fyrstu plötu í
byrjun september, Klæðskeri
keisarans, og skipta bassaleik-
ararnir þar lögunum, sem eru
13, á milli sín. Er platan af-
rakstur tæplega tveggja ára
starfsemi og hafa þrír fyrst
töldu meðlimirnir verió með frá
upphafi. Fulloróinspopprokk í
víðum skilningi og af snotrara
taginu lýsir tónlist Kol ágæt-
lega. Minna t.d. lagasmíðar á
borð vió Kraftaverkasalinn og
Enginn að hlusta á hluti sem
Plata Kol, Klæðskeri keisarans, hefur ýmislegt gott að geyma.
Dire Straits og JJ Cale hafa
gert og er þar ekki leiðum aó
líkjast. Allur hljóófæraleikur
virkar ágætlega vandaður og
allt verkió raunar hió nettasta
áheyrnar. Hljóðstyrkurinn á
plötunni hefói e.t.v. mátt vera
meiri, en að öðru leyti er upp-
tökustjórn Tómasar Tómasson-
ar góð aó venju. Flesta texta
plötunnar, sem margir eru at-
hyglisveróir samanber Krafta-
verkasalinn, semur Guðjón
Björgvinsson, en lögin semja
þeir Sváfnir og Hlynur. Önnur
lög á þessari hinni þokkaleg-
ustu smíð auk áóurtaldra, eru
t.d. Dæmisaga, Drekkt í blíðu
og Örlagadansinn.
MEGAS ENDUR'
sriiw
Til viðbótar Skífuskífum frá því í síðasta Poppi, er rétt
að minna á eina endurútgáfu, af einni mestu tíma-
mótaplötunni í íslensku poppi, fyrstu samnefndu plötu
Megasar. Þykir mörgum víst löngu hafa verið kominn
tími til aö þessi merka plata kæmi út á geislaformi. Kom
platan fyrst út áriö 1971 og vakti þá mikla athygli og
spunnust miklar deilur í kjölfarið um ágæti Megasar.
Markar þessi útgáfa nú upphafið af endurútgáfu á öllum
plötum Megasar og mun Millilending fylgja í kjölfarið um
miðjan næsta mánuð. Er óhætt að fullyrða að þetta sé
mikill og góður fengur fyrir íslenska tónlistarunnendur.
Fyrr í sumar kom frá Meistaranum ásamt Ný dönsk tón-
leikaplatan Drög að upprisu, sem tekin var upp í
Menntaskólanum í Hamrahlíð og var það líka góður
happafengur.
Eitthvað forvitnilegt fyrir krakkana
frá Herði Torfa.
QOIUHJK (iIiFST
Flilíl IJPP
Þrátt fyrir góða og í alla staði
vandaða trúbadorsplötu, tókst
Herði Torfasyni ekki sem best
að selja Gull, sem kom út fyrir
síðustu áramót. Tapaði hann
vlst drjúgum skildingi á henni,
sem er mikil synd meö svo
góða plötu. En hann gafst svo
sannarlega ekki upp eins og
fram hefur komið. Kom frá hon-
urn fyrr í sumar safnið Þel og
nú fyrir stuttu hefur hann svo
snarað fram snældu fyrir börn-
in, Barnagaman. Inniheldur
snældan níu lög sem Hörður
hefur samið i leikhúsi og sung-
in hafa verið af börnum og
unglingum þar. Er hvert lag
raunar í tveimur útgáfum,
sungið á A hlið, en einungis
spilað á B hliö. Fylgja textar
snældunni og geta því krakkar
spreytt sig á að syngja með
spiluðu útgáfunum. Ef þetta
skyldi ekki vera nóg, þá er
Hörður svo í ofanálag meó
nýja plötu í útgáfu innan
skamms, sem bera mun titilinn
Áhrif. Greinilega athafnasamur
maður Hörður Torfason.
TOM PETTY sem hefur ásamt
hljómsveitinni sinni The heart-
breakers um árabil verið í
framvarðarsveit bandarískra
fullorðins/gallabuxnarokkara og
sent frá sér gæóaplötur á borð
við Let me up (l’ve had eno-
ugh), Into the great wide open
og Full moon fever, er nú um
þessar mundir aö senda frá sér
nýja plötu. Ber hún heitið Wild
flower og er við miklu búist af
henni líkt og fyrri plötum
Pettys. Síðast kom með hon-
um út safnplatan Greatest hits
í fyrra sem seldist mjög vel.
(JIJIVS K' ROSES hafa fundið
annan, eða öllu heldur hefur
Axl Rose söngvari, fundið ann-
an gítarleikara í stað Gilby
Clark, sem hann rak fyrir
nokkru. Heitir sá nýji Paul
Huge og er gamall vinur Rose
frá þvi að hann bjó í Indiana.
Slash, hinn gítarleikarinn, hefur
svo tilkynnt hver muni syngja á
einherjaplötunni hans. Heitir
hann Eric Dover og er litt
þekktur. Annars var Slash um
daginn boðið að spila með BB
King í afmælisfagnaði blús-
meistarans og þáði rokkarinn
það boð með þökkum. Segist
hann vart hafa upplifaö annað
eins.