Dagur - 22.10.1994, Side 8
8 - DAGUR - Laugardagur 22. október 1994
MANNLÍ F
Jón I>orsteinsson, tenór, hlær dátt. Til vinstri er Rögnvaldur
Skíði Friðbjörnsson, bæjarstjóri á Dalvík, og til hægri Helga
Pálína Brynjóifsdóttir, kennari í Hrafnagilsskóia.
Þriggja manna „band“ lék nokkur létt lög fyrir viðstadda. Frá
vinstri: Eiríkur Stephcnscn, Hjörleifur Hjartarson og Vaiva
Gísladóttir. Auk þeirra þrcmcnninga þandi Hafliði Ólafsson á
Urðum í Svarfaðardal nikkuna.
Bræður Kristjönu Arngrímsdóttur í Tjarnarkvartcttinum
ásamt eiginkonum. Frá vinstri: Einar Arngrímsson, Lovísa
María Sigurgeirsdóttir, Örn Arngrímsson og Kristín Júlíus-
dóttir.
Björn Sigmundsson, tæknimaður á Útvarpi Norðurlands,
Sverrir Páll Erlcndsson, menntaskólakennari, og Kristján Sig-
urjónsson, útvarpsmaður.
Tjarnarkvartettinn
kominn á geísladisk
- efnt til útgáfuhátíðar í Deiglunni á Akureyri sl. fimmtudagskvöld
Tjarnarkvartettinn, Hjörleifur Hjartarson, Kristján Hjartarson, Kristjana
Arngrímsdóttir og Rósa Kristín Baldursdóttir ásamt útgefandanum, Frið-
riki Friðrikssyni. Myndir: Óskar Þór Halldórsson.
Fjölmenni var í Deiglunni á fimmtudagskvöldið.
Náttúrulækningafélag Akureyrar:
Fræðsluerindi
á afmælisári
Náttúrulækningafélag Akureyrar
boðar sem fyrr til fræðsluerinda,
nú á fimmtugasta starfsári sínu, en
félagið var stofnað 27. ágúst 1944.
Fræðsluerindin munu flest að
einhverju leyti tengjast jákvæðum
áhrifum hreyfingar á heilsufar og
Hðan fólks, ásamt hollustu í mat-
aræði.
Fræósluerindin verða í húsi fé-
lagsins í Kjarnalundi og gefst
tækifæri um leið að skoða þetta
glæsilega hús. Stefnt er að stuttum
gönguferóum á upplýstum göngu-
brautum í Kjamaskógi í lok
fræóslufundanna fyrir þá sem
vilja. Kynningar veróa á ýmsum
hollustuvörum á fundunum.
Fyrsta erindið er „Breytingar-
aldurinn - hvað er til ráða?“ Fyrir-
lesari er Jónas Franklín, læknir, og
verður það haldið 27. október kl.
20. Annað erindió er „Hreyfing og
heilsa - er ástæöa til aó hreyfa
sig?“ Fyrirlesari er Friórik Vagn
Guójónsson, læknir, og verður það
haldið 17. nóvember kl. 20. Fram-
hald verður á fræðsluerindum eftir
áramót. Þátttökugjald er 400 krón-
ur fyrir hvern fræðslufund. Allir
em hjartanlega velkomnir á þessi
erindi. (Prcllalilkynning)
Stígamót:
Xengill starfandi
á Akureyri
Stígamót, samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis, vilja koma því
á framfæri að starfandi er tengill á
vegum Stígamóta á Akureyri.
Tengiliður okkar er tilbúinn til að
taka viðtöl og koma af stað sjálfs-
hjálparhópi fyrir þolendur kyn-
feróislegs ofbeldis. Til að komast
í samband við tengiliðinn verður
að hafa samband vió Stígamót í
síma 91-626868 eða 91-626878.
Geisladiskur með söng Tjamarkvartetts-
ins í Svarfaóardal kom út sl. fimmtudag
og af því tilcfni var efnt til veglegrar út-
gáfuhátíðar á fimmtudagskvöldió í
Deiglunni á Akureyri. Mikill fjöldi
fólks, vinir og velgjöróarmenn „Tjam-
arkrakkanna", samfagnaói listafólkinu
og útgefandanum, Frióriki Friðrikssyni,
sparisjóðsstjóra á Dalvík.
Þetta cr fyrsti geisladiskur Tjamar-
kvartettsins, en ekki sá síðasti, ef marka
má oró Friðriks útgefanda Friðrikssonar.
Friðrik sagói frá tiluró disksins og
kom fram aó söngvurunum hafi þótt
hugmynd um þessa útgáfu fjarri öllu
lagi þegar hann hafi fyrst sett hana
fram. En mál æxluóust samt svo að
kvartettinn ákvað að slá til og síðla
sumars vom 22 lög fest á band og em
þau öll án undirleiks. Upptökumar fóm
fram í Fella- og Hólakirkju í Reykjavík
og stjórnaði Hreinn Valdimarsson upp-
tökum.
Lagaval á geisladiskinum er fjöl-
breytt, allt frá gömlum evrópskum mad-
rígölum til íslenskra dægurlaga sem
mörg em útsett sérstaklega fyrir kvart-
ettinn. Undanfarið ár hefur kvartettinn
notið liðsinnis og þjálfunar Gerrit
Schuil, píanóleikara.
Tjamarkvartettinn hcfur starfað í
fimm ár, en hann skipa tvenn hjón, ann-
ars vegar Kristján Hjartarson og Kristj-
ana Amgrímsdóttir, Tjöm í Svarfaðar-
dal, og Rósa Kristín Baldursdóttir og
Hjörleifur Hjartarson, Laugahlíð í
Svarfaóardal. Þeir Kristján og Hjörleif-
ur cm bræóur, synir hjónanna Hjartar E.
Þórarinssonar og Sigríðar Hafstað á
Tjöm.
Friðrik Friðriksson, útgefandi
geisladisksins, endurútgaf á sl. ári
gamla og ófáanlega plötu meó söng
Karlakórs Dalvíkur og hann segist ekki
hafa í hyggju að feta sig frekar út á út-
gáfubrautina. Friðrik lét þess getið í
Deiglunni sl. fimmtudagskvöld að disk-
urinn (og hljóósnælda) yrði á boðstólum
í hljómplötuverslunum um allt land eftir
helgina og nyti hann aóstoðar Skífunnar
í Reykjavík við dreifinguna. Þá sagói
Friðrik að diskurinn yrói á boóstólum í
sparisjóðunum. „Sparisjóóurinn sér jú
um sína,“ sagði Friðrik og brosti.
Eins og venja er á útgáfuhátíó tók
Tjamarkvartettinn nokkur lög af diskin-
um og þarf ekki aó fara um þaó mörg-
um oróum að honum var frábærlega vel
fagnaó. Söngur kvartettsins er afar fág-
aður en jafnframt svífur léttleikinn yfir
vötnum. Ohikað má segja að þessi disk-
ur sé mikill fengur fyrir tónlistarunn-
endur. I þaó minnsta gáfu tóndæmi í
Deiglunni sl. fimmtudagskvöld þaó til
kynna.
A næstunni veróur Tjarnarkvartett-
inn á faraldsfæti og kynnir diskinn. Eftir
því sem næst veróur komist mun hann
koma fram í þætti Hemma Gunn., A
tali, mióvikudagskvöldið 9. nóvember
og í þeirri viku veróa væntanlega út-
gáfutónleikar í Islensku ópemnni. óþh
Lögin á diskinum
1. Pavanc - gamalt franskt þjóðlag.
2. Come Again - John Dowland.
3. Can’t Buy Me Love
- LcnnonAlcCarlney.
4. Einu sinni á ágústkvöldi
- Jónas og Jón Múli.
5. Afmælisdiktur
- Atli Heimir/Þórbergur Þórðarson.
6. Hún móðir mín - Jón Hlöðver
Askelsson/Böðvar Guðmundssoa
7. Hjá lygnri móðu
- Jón Asgeirsson/Haildór Laxness.
8. Vorvísa
- Jón Ásgeirsson/Halldór Laxness.
9. Sofðu unga ástin mín
- Þjóðlag/Jóhann Sigurjónsson.
10. Enn syngur vornóttin - Schröd-
er/Tómas Guðmundsson.
11. Vor í Vaglaskógi - Jónas
Jónasson/Kristján frá Djúpalæk.
12. Gömul vLsa um vorið - Gunnsteinn
Olafsson/Steinn Stcinarr.
13. Ini crt
- Þórarinn Guðmundsson/Gestur.
14. Katarína
- Jón frá Hvanná/Davíð Stefánsson.
15. Daisy - Spilverk þjóðanna.
16. Muse/Plant No Trees
- Spilvcrk þjóðanna.
17. Ástarsæla - Gunnar I>órðarson
A>orsteinn Eggertsson.
18. Svantes lykkelige dag
- Bcnny Anderson.
19. Næturljóð - Evert Taubc.
20. Úti í mó - sænskt þjóðlag.
21. Moon Rivcr - Henry Mancini.
22. Some Of These Days - Mills bræður.
Anna Sigga syngur með Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands
Eins og kom frani í Degi í gær
heldur Sinfóníuhljómsveit Norð-
urlands tónleika um helgina á
Húsavík og Akureyri. Tónleikam-
ir á Húsavík verða í kvöld kl.
20.30 á sal Tónlistarskólans og á
morgun kl. 17 í Akureyrarkirkju.
A tónleikunum kcmur fram
með hljómsveitinni Anna Sigríöur
Helgadóttir, betur þekkt sem Anna
Sigga úr sönghópnum „Emil og
Anna Sigga“.
Anna Sigga hóf söngnám hjá
John Speight og nam síðan við
Söngskólann í Reykjavík en nú
síðast hefur hún dvalist í þrjú ár á
Ítalíu og numið hjá Rinu Maltrasi.
Anna Sigga er nú starfandi söng-
kennari á Sauóárkróki.
Stjórnandi Sinfóníuhljómsveit-
ar Noróurlands á tónleikunum um
helgina er Guðmundur Oli Gunn
arsson. óþh
Anna Sigríður Helgadóttir syngur
með hljómsveitinni.
Guðmundur Óli Gunnarsson stjórn-
ar Sinfóníuhljómsvcitinni á tónleik-
unum á Húsavík og Akureyri.