Dagur - 29.11.1994, Side 9

Dagur - 29.11.1994, Side 9
Þriðjudagur 29. nóvember - DAGUR - 9 ENSKA KNATTSPYRNAN SÆVAR HREIÐARSSON Stormsveitin a toppinn - Shearer og1 Sutton halda áfram að hrella varnarmenn Blackburn skaust á topp ensku úrvalsdeildarinnar á Iaugardag- inn með glæsilegum sigri á QPR. Að venju var það „SS-sveitin“ - Alan Shearer og Chris Sutton - sem sáu um að skora mörk liðs- ins. Vængbrotið lið Manchester United má þakkað fyrir að sleppa með annað stigið frá Highbury og Newcastle kastaði frá sér öðru sætinu á síðustu mínútunni gegn Ipswich. Everton vann annan leikinn sinn í röð undir stjórn Joe Royle og virðist sem liðið sé kom- ið á réttan kjöl. Úrslit Úrvalsdeild: Arsenal-Man. Utd. 0:0 Blaekburn-QPR 4:0 Chelsea-Everfon 0:1 C. Palacc-Southainpton 0:0 Lccds-N. Forcst 1:0 Livcrpool-Tottenham 1:1 Neweastle-Ipswich 1:1 Norwieh-Lciccstcr 2:1 VVcst Ham-Coventry 0:1 Aston Villa-ShctT. VVed. 1:1 1 SIOILS Everíon-Livcrpool tu viku: 2:0 Leiccster-Arsenal 2:1 Tottenham-CheLsea 0:0 l.dcild: Barnsley-Bolton 3:0 Charlton-Middlesbrough 0:2 Grimsby-Burnley 2:2 NotLs County-WBA 2:0 Oldham-Bristol City 2:0 Port Valc-Millwall 2:1 Portsmouth-Sunderland 1:4 Reading-Tranmcre 1:3 Sheft Utd.-Southend 2:0 Swindon-I.uton 1:2 Watford-Stoke 0:0 Wolvcs-Dcrby 0:2 í síAustu viku: Swindon-Burnley 1:1 Wolves-Bolton 3:1 Staðan: Úrvalsdeild: Blackburn 16113 235:11 36 Man. Utd. 16112 331:1035 Newcastle 16 104 2 34:17 34 Liverpool 16 93 433:17 30 N. Forest 16 8 4 4 25:16 28 Leeds 16 83 524:1927 Man. Cily 16 7 4 527:2925 Chelsca 16 7 3 6 25:20 24 Norwich 16 6 6 4 15:14 24 Covcntry 16 64 619:26 22 Southampton 16 56 523:26 21 Arsenal 16 5 5 6 18:16 20 C. Palace 16 5 5 6 15:1820 Tottenham* 16 54 7 25:31 19 Shctf. Wcd. 16 4 6 6 17:23 18 Wimhledon 16 53 8 17:2818 West Ham 16 52 9 9:1717 QPR 16 44 823:31 16 Aston Villa 16 3 5 8 20:28 14 Everton 16 3 5 8 12:24 14 Leiccstcr 16 331017:2912 lpswich 16 32 11 15:31 11 * Sex stig verða dregin af Tottenham í lok tímabilsins. l.deild: Middlesbrough 1811 3 426:1636 Wolvcs 19104 536:2234 Tranmere 18 9 5 431:2132 Bolton 18 8 5 5 30:2129 Luton 19 8 5 6 28:23 29 Barnslcy 18 8 5 519:18 29 Griinsby 19 7 7 527:23 28 Reading 18 84 621:1828 Watford 19 7 7 521:2228 Sheff.Utd. 19 7 5 7 25:2026 Dcrby 19 7 5 7 22:19 26 Southend 19 7 4 819:3125 Sunderland 18 59 4 22:17 24 Stokc 18 6 6 6 22:24 24 Burnley 19 5 9 5 21:23 24 Charlton 19 5 8 6 29:3013 Oldham 19 6 5 8 24:25 13 Port Vale 18 6 5 7 22:23 23 Swindon 19 64 9 26:31 22 Millwall 19 4 7 8 24:28 19 Portsmouth 18 4 7 7 20:27 19 Bristol City 18 5 4 9 15:25 19 WBA 19 4 6 9 17:27 18 Notts County 18 351020:3014 BLACKBURN-QPR 4:0 Blackburn er á mikilli siglingu þessa dagana og fátt sem virðist geta stöðvað framherja liósins, Al- an Shearer og Chris Sutton. Fyrsta mark leiksins skoraði Sutton á 9. mínútu eftir góðan undirbúning frá Shearer og Tim Sherwood og var þetta 13. markið hjá Sutton á tímabilinu. Eftir hlé var komið að Shearer að sýna snilli sína meó glæsilegri þrennu. Fyrsta mark hans kom á 56. mínútu eftir aö Sutton skallaði til hans og tíu mín- útum síðar bætti hann við marki úr vítaspyrnu. Hún var dæmd eftir að Karl Ready felldi Stuart Ripley í teignum. Shearer fullkonmaði síðan þrennuna með einu falleg- asta marki tímabilsins. Hann fékk boltann um 30 metra frá marki og þrumuskot hans small í þverslánni og þaðan í markið. LIVERPOOL- TOTTENHAM 1:1 Heimamenn sóttu án afláts í fyrri. hálfleik og John Scales, John Barnes og Rob Jones voru allir nálægt því að skora en Ian Walker átti stórleik í marki gestanna og varði allt sem á markið kom. Ian Rush skoraði að vísu gott skalla- mark en það var dæmt af vegna rangstöðu. Við hitt markió var þaö aðeins Teddy Sheringham sem náði að ógna í tvígang en David James sá við honum. Liverpool tók sanngjarna forustu á 39. mín- útu úr vítaspyrnu, sem reyndar var mjög umdeild. Steve McMana- man féll í teignum eftir samstuó við Sol Campbell, sem gat lítió gert til aó forðast áreksturinn, og Robbie Fowler skoraði úr vítinu. I síðari hálfleik átti Júrgen Klins- mann að margra mati réttmætt til- kall til vítaspyrnu eftir að Neil Ruddock keyrði hann niður í teignum en þá dæmdi dómarinn ekkert. Afram héldu heimamenn aó sækja að marki Tottenham og Walker varöi vel langskot frá Stig Inge Björnebye, Michael Thomas og Rob Jones áður en jöfnunar- mark Totten- ham konr. Það þótti heldur kaldhæðn- islegt að það var sjálfs- Ian Walker varði sem berserkur í , marki Spurs. mark frá Neil Ruddock, fyrrver- andi leikmanni Tottenham, á 77. mínútu sem tryggói gestunum annað stigið. Sol Campbell gaf fyrir frá vinstri, Ruddoek hitti boltann illa og James átti enga möguleika á að verja. ARSENAL-MAN. UTD. 0:0 Tilþrifalítill leikur þar sem ung- lingarnir hjá United áttu í mesta basli með gamlingjana í vörn Ar- senal. Ian Wright fékk besta færið í leiknum Gary Pallister bjargaði á ‘i! V Alan Shearer skoraði þrcnnu gegn QPR. línu. Mikil harka var á Highbury og margar grófar tæklingar. Mark Hughes missti stjóm á sér um stundarsakir og var refsað með rauðu spjaldi þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Leikurinn féll í skuggann af yfirlýsingum Paul Merson, framherja Arsenal, um kókaínfíkn sína og óhætt að segja að flestir leikmenn vallarins hafí leikið eins og undir áhrifum lyfja. NEWCASTLE-IPSWICH 1:1 Newcastle endurheimti Andy Cole eftir fímm leikja fjarveru og var talið að slakasta vörnin í enska boltanum, vörn Ipswich, yrði ekki mikil hindrun fyrir liðió. Annað kom þó daginn og þrátt fyrir mikla pressu stóðst hún álagið al- veg fram á 86. mínútu þegar að Cole skoraði glæsilegt mark. Hann snéri laglega af sér tvo varn- armenn áður en hann skoraði af öryggi hjá Craig Forrest. Ipswich var þó ekki á því að gefast upp og á síðustu mínútunni lék Daninn Claus Thomsen sama leikinn hin- um megin. Hann lék á tvo New- castle-menn áður en hann setti boltann snyrtilega í netið. CHELSEA-EVERTON 0:1 Everton hefur tekið mikinn fjör- kipp eftir að Joe Royle tók við lið- inu og í síðustu viku lagói liðiö nágranna sína í Liverpool örugg- lega að velli. Fyrir leikinn gegn Chelsea var nígerski framherjinn Daniel Amokachi tekinn úr liðinu og framlínan virtist mun öflugri með Duncan Ferguson og Paul Ri- deout saman inná. Ferguson var nálægt því að skora í tvígang í upphafi leiks en eftir það komst Chelsea í takt við leikinn. Neville Southall varði glæsielga frá Eddie Newton og hinn smávaxni Dennis Wise átti glæsilega hjólhesta- spyrnu sem hafnaði í stönginni. E'n það var Rideout sem skoraði eina mark leiksins þegar hann fékk glæsilega sendingu frá And- ers Limpar og skallaði af öryggi í markið á 38. mínútu. I síðari hálf- leik hélt sókn Everton áfram og Duncan Ferguson átti góðan skalla í stöng og Joe Parkinson skallaói í þverslá Chelsea-marks- ins. C. PALACE- SOUTHAMPTON 0:0 Þaö nrátti vart á milli sjá hjá þess- um liðum og jafntefíi sanngjörn úrslit. Palace sótti meira Iengst af en á síðustu tólf mínútum leiksins átti Southampton þrisvar skot sem smullu í marksúlunum hjá heima- liöinu. Fyrst var það Neil Heaney senr átti glæsilegt langskot sem small í stönginni og stuttu síðar skaut Matthew Le Tissier í þver- slá. Hann átti síðan skalla í stöng- ina á síðustu mínútunni en inn vildi boltinn ekki. NORWICH-LEICESTER 2:1 Leicester er ekki enn búið að ráða framkvæmdastjóra eftir að Brian Little stakk af til Aston Villa í síó- ustu viku. Leikmenn liðsins börð- ust þó hetjulega gegn Norwich og voru óheppnir aö sjá á eftir stigun- um á síðustu mínútunni. Mark Draper konr Leicester yfír á 21. mínútu með skoti af stuttu færi eftir undirbúning frá David Lowe. Norwich komst aftur inn í leikinn á 57. mínútu þegar að Jon New- some skallaði að marki eftir horn- spyrnu. Boltinn stefndi beint í lúk- urnar á Kevin Poole í markinu en hann missti boltann klaufalega yf- ir sig og í netið. Sigurmarkiö kom síðan eftir að venjulegum leiktíma var lokið og það skoraði Daryl Sutch en boltinn hafði viðkomu í einunr varnarmanni. WEST HAM-COVENTRY 0:1 Lið Coventry mætti 45 nrínútum seinna en áætlaó var á Upton Park þar senr rúta félagsins lenti í um- ferðarhnút á leiöinni. Leikmcnn liðsins fengu því lítinn tíma til undirbúnings fyrir leikinn en það hafði lítil áhrif. Varnarmaðurinn David Busst skoraði eina mark leiksins á 58. mínútu og var þaó mjög glæsilegt. Dion Dublin og Cobi Jones áttu fallegan samleik áður en Jones sendi beint á kollinn á Busst og boltinn söng í netinu. Peter Ndlovu var nálægt því að bæta öðru marki við tíu mínútum síðar eftir að hafa einleikið frá eigin vallarhelmingi en hann var orðinn máttlítill þegar hann kom að markinu og skotió fór framhjá. MAN. CITY-WIMBLEDON 2:0 Manchester City hefur ekki tapað á heimavelli í vetur og liðið sýndi oft snilldartilþrif gegn Wimble- don. Garry Flitcroft skoraði fyrsta markið á 7. mínútu eftir undirbún- ing frá Paul Walsh. Dean Holds- worth kom aftur inn í lið Wimble- don eftir meiðsl og var nálægt því að jafna en skot hans hafnaði í. þverslánni. Eins og vant er þegar Wimbledon er annars vegar þá var þó nokkur harka í leiknum og David Reeves, miðverði liðsins, var vísað útaf á 71. mínútu eftir samstuð við Walsh. Framherjinn knái heimtaði vítaspyrnu hjá dóm- aranum og því kunni Reeves illa og enduðu viðskipti þeirra með því að Reeves löðrungaði Walsh. Undir lok leiksins bætti Þjóðverj- inn Uwe Rösler við marki fyrir City eftir slæm varnarmistök hjá Wimbledon. Noel Whelan skorar enn fyrir Leeds. LEEDS-N. FOREST 1:0 Fyrri hálfleikur var tíðindalítill ef undan er skilió gott færi sem Stan Collymore fékk. Hann vippaði yf- ir John Lukic, markvöró Leeds, en David Wetherall var mættur á marklínuna til að hreinsa frá. Eina rnark leiksins kom á 61. nrínútu og það gerói framherjnn efnilegi Noel Whelan og var það hans 7. mark á tímabilinu. Eftir fallegt spil skallaði hann í netió af mikl- unr krafti eftir fyrirgjöf frá Brian Deane. Sigurinn var sanngjarn þar sem heimaliðið var ávallt líklegra til að skora í leiknunr. 1. DEILD Middlesbrough endurheimti sæti sitt á toppnum með sigri á Charl- ton á útivelli á laugardaginn. John Hendrie skoraði fyrra markið og Jamie Pollock það seinna. Wolves fékk tækifæri til að komast aftur í efsta sætið á sunnudag en tapaði þá óvænt á heimavelli fyrir Derby. Tommy Johnson skoraði fyrst og Mark Stallard innsiglaði sigurinn á 62. mínútu með fyrsta marki sínu í deildinni. Ulfamir voru slakir í leiknum en áttu réttmæta heimtingu á vítaspyrnu í seinni hálfleik. Þorvaldur Örlygsson og félagar í Stoke gerðu markalaust jafntefli vió Watford á útivelli. Aó sögn Þorvaldar var þetta mikill barningsleikur og Stoke heppið aó sleppa með jafnteflið. Aston Villa-Sheffield Wednesday 1:1 Glæsilegt jöfnunarmark Aston Villa og Sheffíeld Wed- nesday mættust á sunnudag í fjörugum leik. Villa var undir stjórn Brian Little í fysta sinn og það virtist hafa góð áhrif á liðið strax í upphafí leiks því sókn þess var áköf. Dean Saunders fékk tvö góð færi sem honum tókst ekki að nýta áður en fyrsta markið kom á 15. mínútu. Saunders átti þá skalla að marki sem Kevin Pressman varði en Dalian Atkinson fylgdi vel á eftir og skoraði af stuttu færi. Fyrir hlé átti Graham Fenton einnig ágæta tilraun en tókst ekki að auka muninn fyrir heimaliðið. í síðari hállleik var þaö Wed- nesday sem réöi gangi leiksins og Dan Perescu og Chris Bart- Williams fengu góó færi en tókst ekki að koma boltanum í nctið. Jöfnunarmak liðsins kom þó á 60. mínútu og var það cink- ar glæsilegt. Mark Bosnich, markverði Villa, mistókst aó hreinsa almennilega frá markinu og vamarmaðurinn Peter Ather- ton nýtti sér það og skoraði mcó fallegu skoti af löngu færi, efst upp í markhornið.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.