Dagur - 03.12.1994, Blaðsíða 2
1 - DAGUR - Laugardagur 3. desember 1994
INN/I
mHLIillilJ
IVIfiklllll V
10 lítrar
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 23565
FRETTIR
■ gardínum
Stœrðir:
40x150-180x150
40x210-180x210
Sníðum eftir máli
verður spiluð í
Hamri sunnudag-
ínn 4. desember kl.
20.00. Veglegir
vlnningar.
Allir
velkomnir
Sendið vinum
og vandamönnum
erlendis
gómsœta
% KEA hangikjötið
um jólin
5 Sendingaþjónusta
<s>
i®
®
<9
Byggðavegi
sími 30377
Aðalfundir íshafs og Höfða í næstu viku:
Stjórnarmaður vill framkvæmdastjóraskipti
tillaga lögð fram um sameiningu félaganna
Aðalfundir íshafs hf. og Höfða
hf., útgerðarfélaga togaranna á
Húsavík, verða haldnir í næstu
viku, á þriðjudag og fímmtudag.
Fyrir fundunum liggja tillögur
um að stjórn verði heimilað að
vinna að undirbúningi að samein-
ingu félaganna Ishafs og Höfða,
með það aó markmiði að samein-
ingin taki gildi 1. september 1995.
Sameining fyrirtækjanna var
ákveóin í samningi Alþýðubanda-
lags og Framsóknar við myndun
meirihluta í bæjarstjóm sl. vor.
Þar var einnig kveðið á um sam-
einingu útgerðarfyrirtækjanna og
Fiskiðjusamlags Húsavíkur.
Meó fundarboði fylgir ekki til-
laga Sigurjóns Benediktssonar
l Frábœrt (
l verð á i
l plastrimla- l
Akureyri, Húsavík, Sauðárkrókur:
Unnið að stofnun rekstrarfélaga
um endurvarp á gervihnattaefni
- slíkt rekstrarfélag þegar verið stofnað í Vestmannaeyjum
i
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 23565
Fyrirtækið Elnet sf. sótti í haust
um leyfi til útsendinga á fjölrása
sjónvarpi með örbylgju í sjö bæj-
arfélögum og á fundi útvarps-
réttarnefndar í október var fyrir-
tækinu veitt útvarpsleyfi fyrir
samtals átta rásir á Akureyri,
Húsavík, Egilsstöðum, Vest-
mannaeyjum, Sauðárkróki, ísa-
firði og Selfossi.
Viðræður hafa farið fram á
flestum þessum stöðum undan-
fama mánuði með það í huga að
stofna á hverjum stað rekstrarfé-
lag um endurvarp á gervihnatta-
efni og útsendingar á innanbæjar-
rás með upplýsingum, auk beinna
útsendinga frá t.d. bæjarstjómar-
fundum, íþróttaleikjum, skólum,
eða öðrum þáttum mannlífsins á
hverjum stað.
Nú hefur verió stofnað slíkt
rekstrarfélag í Vestmannaeyjum
en að félaginu standa 25 aðilar,
bæði fyrirtæki og einstaklingar.
Allir eiga þeir það sameiginlegt að
hafa áhuga á þessari nýju tækni og
gera sér grein fyrir möguleikum
hennar í nánustu framtíó, segir í
fréttatilkynningu frá Elnet.
Strax verður hafist handa við
undirbúning og uppsetningu
tækjabúnaðar í Vestmannaeyjum
og áætlað er að útsendingar hefjist
15. mars nk. Fariö verður af staó
með fimm erlendar gervihnatta-
rásir auk einnar innanbæjarrásar,
sem samtímis verður upplýsinga-
rás. Búast má við að rásum fjölgi
fljótlega. Samningar liggja nú
þegar fyrir við 10-12 gervihnatta-
sjónvarpsrásir og er verið aó vinna
í að ná fleiri samningum.
Til að væntanlegir notendur
kerfisins geti komist af með að-
eins eitt loftnet til sjónvarpsmót-
töku eru fyrirhugaðar viðræóur
við Islenska útvarpsfélagió hf. og
Ríkissjónvarpið um að þeirra rásir
verði einnig inni í kerfinu. Aó-
gangur að kerfinu verður seldur í
16 Islendingar
sæmdir Fálkaorðunni
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, sæmdi í fyrradag 16
íslendinga heiðursmerkjum
hinnar íslensku Fálkaorðu, sam-
kvæmt tillögu orðunefndar.
Böðvar Jónsson, bóndi á Gaut-
HM-95:
Suður-Kórea
í riðli með
íslendingum
Tækninefnd Alþjóðahandknatt-
leikssambandsins (IHF) hefur
ákveðið niðurröðun þeirra Asíu-
þjóða sem taka þátt í HM-95 á
Islandi að vori. Kuwait lenti í D-
riðli sem leikinn verður á Akur-
eyri en Suður-Kórea í A-riðli
með íslendingum, Sviss, Ung-
verjalandi, Túnis og Bandaríkj-
unum.
Á Akureyri ntunu því leika
Evrópumeistarar Svía, Spánn,
Egyptaland, Hvíta-Rússland,
Brasilía og Kuwait. Japan og Suð-
ur-Arabía og Rúmenía og Ástralía
hins vegar leika í þessum mánuði
um laus sæti í C-riðli, en sá riðill
verður í Kópavogi en önnur lió í
riðlinum eru Frakkland, Þýska-
land, Danmörk og Alsír. I B-riðli í
Hafnarfirói leika Rússland, Tékk-
land, Króatía, Kúba, Slóvenía og
Marokkó. GG
löndum í Mývatnssveit, var
sæmdur riddarakrossi fyrir
landsgræðslustörf og Haukur
Halldórsson, formaður Stéttar-
sambands bænda, var sæmdur
riddarakrossi fyrir störf í þágu
bænda.
Aórir sem voru sæmdir ridd-
arakrossi eru; Björn Th. Bjöms-
son, listfræðingur, Reykjavík, fyr-
ir fræði- og ritstörf, Björn Er-
lendsson, fv. bóndi, Selfossi, fyrir
ræktunar- og uppbyggingarstörf í
Skálholti, Bríet Héóinsdóttir, leik-
ari, Reykjavík, fyrir leiklistarstörf,
Guðmundur Pétursson, hæstarétt-
arlögmaöur, Reykjavík, fyrir lög-
fræðistörf, Guóbcrgur Bergsson,
rithöfundur, Reykjavík, fyrir rit-
störf, Halldór Finnsson, hrepp-
stjóri, Grundarfirói, fyrir störf að
félagsmálum, Herdís Egilsdóttir,
kennari, Reykjavík, fyrir fræðslu-
og ritstörf, Hulda Jakobsdóttir, fv.
bæjarstjóri, Kópavogi, fyrir sveit-
arstjórnarstörf, Jón Stefánsson,
kórstjóri, Reykjavík, fyrir tónlist-
arstörf, Olafur Jensson, prófessor,
Reykjavík, fyrir vísindastörf, Ol-
afur Tómasson, póst- og síma-
málastjóri, Kópavogi, fyrir upp-
byggingu fjarskiptaþjónustu, Osk-
ar Vigfússon, fv. formaður Sjó-
mannasambandsins, Hafnarfirði,
fyrir störf í þágu sjómanna, Sig-
urður Sigurðsson, vígslubiskup,
Skálholti, fyrir störf í þágu þjóð-
kirkjunnar og Sverrir Kristinsson,
útgefandi, Reykjavík, fyrir störf
að menningarmálum. KK
áskrift og innheimta fer fram í
gegnum afruglarakerfi. Áætlaö er
að áskriftargjald verði á bilinu kr.
1.200-1.500 á mánuði. KK
stjómarmanns, sem hann segir
lagða fram svo sem samþykktir
geri ráð fyrir og hefur afhent Degi
til birtingar. Tillagan er til aðal-
funda Ishafs og Höfða og kveður
á um að aóalfundirnir feli stjóm
aó auglýsa nú þegar og ráða í starf
framkvæmdastjóra sem fari meö
framkvæmdastjórn fyrirtækjanna.
I tillögunni segir: „Nýjum sameig-
inlegum framkvæmdastjóra fyrir-
tækjanna verði falið að koma í
kring sameiningu fyrirtækjanna
auk þess aó taka við heföbundnum
stjórnunarstörfum í þágu fyrir-
tækjanna. Stjórnum fyrirtækjanna
er jafnframt falið að ganga frá
samningum við núverandi fram-
kvæmdastjóra um starfslok eöa
önnur störf innan fyrirtækjanna.
Þessum breytingum í stjórnun fyr-
irtækjanna skal vera lokið innan
þriggja mánaða. Skilyrði er að til-
lagan verói samþykkt á aðalfund-
um allra félaganna.“ IM
Aurskríða í Innbænum
Snemma í gærmorgun féll aurskriöa í Innbænum á Akureyri, syðst í Aðal-
stræti. Engar skcmmdir urðu á öðru en gróðrinum í brekkunni og um há-
degi höfðu starfsmcnn bæjarins ásamt íbúum við götuna nær lokið við að
hreinsa til. HA/Mynd: Robyn.
Útgerðarfélag Akureyringa hf.:
Þrír togarar lönduðu
hátt í 300 tonnum
Hrímbakur EA-306 landaði 85
tonnum af blönduðum afla á
Akureyri á fimmtudag. Aflinn
var mest ýsa, einnig nokkuð af
þorski. Árbakur EA-308 landaði
sl. mánudag 125 tonnum, og var
uppistaða aflans ýsa. Á þriðju-
dag landaði Frosti ÞH-229 71
tonni á Akureyri, sem fór til
vinnslu hjá UA.
Næsti togari í löndun hjá UA er
Kaldbakur EA-301, en ekki er von
á honum fyrr en á miðvikudag.
Frystihúsió hefur nú nægjanlegt
hráefni til vinnslu og verður unnið
alla virka daga fram að jólum og
síðan milli jóla og nýjárs eftir því
sem þurfa þykir til að vinna úr því
hráefni sem þá liggur fyrir. Erfitt
hefur reynst að fá fisk keyptan á
mörkuðum, framboð lítið og eftir-
spurn vaxandi, og því hefur ekkert
borist af gámafiski að undanförnu
til vinnslu hjá UA. Vinnsla hefst
aftur í frystihúsinu á nýju ári
kringum 12. janúar þegar fyrsti
togarinn kemur aftur til löndunar.
GG
Vinnuslys á
Akureyri
í fyrrakvöld varð vinnuslys í
prentsal Límmiða Norðurlands
og Dags á Akureyri. Maður sem
var að vinna við prentvél
klemmdist milli valsa í vélinni.
Starfsmenn Límmiða Norður-
lands voru að undirbúa prentun og
stilla prentvélina þegar slysið
varð. Maðurinn klemmdist á vísi-
fingri hægri handar. Hann fór þeg-
ar í aógerð á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri. Líðan hans var
eftir atvikum góð í gær. KLJ