Dagur - 03.12.1994, Blaðsíða 9

Dagur - 03.12.1994, Blaðsíða 9
Laugardagur 3. desember 1994 - DAGUR - 9 Eins og fram hefur komið í Degi vann landslið fs- lands í matreiðslu til gull- og bronsverðlauna á alþjóðlegu matreiðslumóti í Lúxemborg fyrir skemmstu. Landsliðið er skipað fimm manna keppnissveit og fimm að- stoðarmönnum, matreiðslu- meisturum sem valdir hafa verið í liðið. Þetta mót er liður í undir- búningi landsliðsins fyrir Ólympíuleika matreiðslumeist- ara, sem verða haldnir í Berlín að tveimur árum liðnum. Einn Norðlendingur hefur náð þeim árangri að vera valinn í landslið íslenskra matreiðslu- meistara, það er Snæbjörn Kristjánsson, matreiðslumeistari á Fiðlaranum á Akureyri. Snæ- björn er frá Grýtubakka í Grýtubakkahreppi en nam mat- reiðslu hjá Sigmundi Einarssyni. Hann hefur starfað á ýmsum veitingstöðum á Akureyri og í Kaupmannahöfn en vorið 1989 tók hann ásamt fleirum veit- ingastaðinn Fiðlarann á þakinu á leigu. Nú reka Snæbjörn og Héðinn Beck þjónn Fiðlarann. En hvernig fór Fiðlarakokk- urinn frá Grýtubakka að því að komast í landslið íslenskra mat- reiðslumeistara? Köldu rcttirnir á borði íslenska liðsins. Það cr líkan af Hcklu scm cr miðpunktur borðsins og hún „gaus“ mcð tilhcyrandi drunum og dynkjum á meðan á sýningu kalda borðins stóð. Á innfclldu myndinni cr einn rétt- anna sjötíu, sannarlcga matargerðarlist! matinn sem þió fenguð gullverö- laun og þú ert sjálfur í þessu fimm manna liði. Hver er galdurinn? „Það er margt sem hjálpast að. Hópurinn er mjög samhentur og hráefnið okkar, sem var allt ís- lenskt nema grænmetió, er gott og sérstætt og það á tvímælalaust þátt í velgengninni.“ - Hvað hafði íslenska sveitin í matinn? „I forrétt var hurnar, hörpuskel. bleikja og rauðspretta á fennel- rísottó með laxahrognum og sam- buccasósu. I aðalrétt var léttsteikt lambafillét, að sjálfsögðu lífrænt ræktað eins og íslensku fjalla- lömbin eru, með grænmeti, inn- bökuðum kartöfium og blóðbergs- sósu. I eftirrétt var bláberjaskyr- frauð með rabbarbarasósu.'4 - Nýtist þér þátttakan í keppn- inni í daglegu starfi hér á veitinga- staðnum þínum, Fiölaranum? „Já, það er ekki spurning. I fyrsta lagi skilar samstarfið með hinum íslensku matrciöslumeist- urunum og æfingarnar ótal hug- myndum. I öðru lagi eru mót og þátttaka í þeim uppspretta hug- mynda og skóli út af fyrir sig að kynnast matagerðarlist allra hinna landsliöanna." - Eru Ólympíuleikarnir næsta keppni? Snæbjöm á Fiðlaranum nær frábærum árangri i „í fyrsta lagi gekk ég í klúbb íslenskra matreiðslumeistara og skráði mig þar á lista yfir þá sem gáfu kost á sér í landsliðið. í fram- haldi af því var keppt um það hverjir skyldu skipa landslió Is- lands og síðan hverjir yrðu í keppnishópnum, sem sér um að elda heita matinn á mótum. Mér tókst að komast í þennan fimm manna keppnishóp og þetta var fyrsta keppnin mín með landslið- inu á erlendri grund.“ - Er skemmtilegt aó taka þátt í svona keppni? „Það er alveg meiriháttar en það er ofboðsleg vinna og auk þess mjög dýrt, sérstaklega fyrir mig sem þarf að fljúga suður á æf- ingar. Þau landslið sem við keppt- um viö í Lúxemborg hafa flest ef ekki öll geyslilegt fjármagn á bak við sig en við Islendingamir erum algjörir áhugamenn. Það kostar umtalsvert fyrir okkur persónu- lega að vera í landsliðinu og Landsliðsmaðurinn frá Grýtubakka Snæbjörn að störfum í kcppninni í Lúxemborg en kcppniscldhúsið er um- í fullum skrúða og til í allt. kringt glerveggjum þannig að ckkcrt fer framhjá dómurum kcppninnar. Snæbjorn á hcimavclli cn hann rekur vcitingastaðinn Fiðlarann á þakinu ásamt Héðni Beck þjóni. keppa á erlendri grund, aðstöðu- munurinn er því mikill.“ - Hvernig fer svona keppni fram? „Þaó er keppt bæði í gerð heitra rétta og kaldra. Köldu rétt- irnir sem eru 60-70 talsins eru unnir utan keppnisstaóar og svo er þeim stillt upp á keppnisstað. All- ur hópurinn hjálpast að við aö út- búa köldu réttina en það er geysi- leg vinna og mikið kapphlaup við tímann i það minnsta í þessari keppni og næturhvíldin var svona tveir til þrír tímar á sólarhring. Hinsvegar þegar keppt er í heitu réttunum elda fimm kokkar þríréttaða máltíð fyrir 150 manns og fá til þess llmm klukkustundir. Allt er dæmt, skipulag, vinnu- brögð, bragðgæöi og útlit." - Það var einmitt fyrir heita „Það eru Ólympíuleikarnir sem við erum að stefna að og þessi hópur mun skipa landslið Islands fram yfir næstu Ólympíuleika. Þessi keppni í Lúxemborg er ein- hver stærsta keppni matreiðslu- meistara í heimi fyrir utan Ólymp- íuleikana. I febrúar ætlum vió í landslið- inu að fara til Noregs til að taka þátt í keppni þar og um leið að gefa út matreiðslubók á 46 klukkustundum og komast þar með í heimsmetabók Guinnes. Vió stefnum líka að því að taka þátt í stórri keppni í Cicago í maí á næsta ári en hún verður liður í undirbúningi liósins fyrir Ólymp- íuleikana. Við crum rétt að byrja, það eru mörg spennandi verkefni framundan," sagói Snæbjörn. KLJ Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar: í aðfangadeild eru lausar 2 stöður deildarstjóra: Staða deildarstjóra sem hefur umsjón með skylduskilum og sinnir uppbyggingu og umbúnaði íslensks ritakosts. Staóa deildarstjóra, sem hefur umsjón með almennu tíma- ritahaldi. í skráningardeild er laus staða deildarstjóra: Staða deildarstjóra, sem hefur umsjón með þróun skráning- arsniðs (marksniðs) og skráningu erlendra rita. í upplýsingadeild eru lausar 2 stöður deildarstjóra: Staða deildarstjóra, sem hefur umsjón með tón- og mynd- deild og notendaþjónustu á 4. hæð. Staða deildarstjóra, sem sinnir m.a. uppbyggingu handbóka- kosts og hefur umsjón með upplýsingaborði á aðalhæð safnsins. í útlánadeild eru lausar 2 stöður deildarstjóra: Staða deildarstjóra, sem hefur umsjón með námsbókasafni og notendaþjónustu á 3. hæð. Staða deildarstjóra, sem hefur umsjón með millisafnalánum. Stöðurnar krefjast menntunar í bókasafnsfræði eða annarrar háskólamenntunar. Umsækjendur eru beðnir að láta þess getið, ef þeir óska eftir að koma til álita við ráðningu í aðrar af ofangreindum stöðum en þá, sem þeir sækja um sérstaklega. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, skulu sendar Landsbókasafni íslands - Háskólabókasafni, merkt landsbókavörður, Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík, fyrir 21. desember 1994. Landsbókasafn íslands - Háskólasafn, 30. nóvember 1994.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.