Dagur - 03.12.1994, Síða 13

Dagur - 03.12.1994, Síða 13
UTAN LANPSTEI NANNA Laugardagur 3. desember 1994 - DAGUR - 13 mMH' öur var Tom Arnold þekktur sem eiginmaður hinnar skapstóru sjónvarpshlussu Roseanne en nú hefur hann ,getið sér gott orð sem leikari. Hann vakti verðskuldaóa athygli sem aðstoóarmaður Arnie Schwarzenegger í myndinni True Lies og hefur nú úr nógu aö velja. Stormasömu hjóna- bandi hans og Roseanne lauk fyrr á þessu ári og ganga ásakan- ir á víxl um andlegt og líkamlegt ofbeldi. Tom var fyrir skömmu staddur á veitingastað ásamt breska leikaranum Hugh Grant og lét þar gamminn geysa um fyrrverandi eiginkonu sína og vandaði henni ekki kveðjurnar. Hjón á næsta borði komust ekki hjá því að heyra allt sem á milli þeirra fór og voru svo Tom Arnold ber fyrrvcr- hePPin að hafa lítið segulband við ◄ andi eiginkonu hendina. Þau hafa síóan gengió á sinni ekki vel sög- milli æsifréttablaða og boðið þeim una. snælduna til sölu fyrir morófjár. fvyfU!* títtiAf ollywood er ekki sá dýrðarstaður sem flestir telja. Christian Slater segir að Hollywood sé ekki eins aðlaðandi og áóur og að þar þríf- ist glæpagengi vel. Nýjasta mynd hans, Jimmy Hollywood, var tekin að miklu leyti að næturlagi í Hollywood og þar hafi hann kynnst skuggahlið staðarins. „Vió vorum um- kringdir lífvöróum, byssuskotum og lögreglu- bílum og fengum smjörþefmn af þeirri hættu sem fólk býr við í Hollywood,“ seg- ir Slater. „Hollywood hefur breyst mikið á undanförnum árum. Aður fyrr var þetta staður þar sem stjörnurnar bjuggu og unnu. Nú eru bara dauðar kvikmynda- stjörnur og steinsteypa í Hollywood. Þetta er fátæktarhverfi og mikió um glæpi. Ekki fögur sjón. Allar stjörnurnar hafa flutt til Beverly Hills, Hollywood Hills, Malibu eða eitthvað annað. Oll helstu kvikmyndaverin eru flutt líka. Allt sem er eftir eru nokkur frábær kvikmyndahús, ferða- mannabúllur og skít- ur,“ segir þessi skemmtilegi leikari. að getur oft verið erfitt að fá tvær stórstjörnur til að vinna saman í kvikmynd. Ef allir eiga að vera ánægðir má ekki gera upp á milli aðalleikendanna og framleiöendur hafa oft rekið sig á hætt- ur þess að mismuna helstu leikendum. Julia Roberts var stödd í Eng- landi í sumar aó leika í myndinni Mary Reilly ásamt John Malkovich og yfirmenn breska kvikmyndaversins tóku engar áhættur. Þeir höfðu hjól- hýsi þeirra á tökustað nákvæmlega jafn stór og þeim var lagt nákvæm- lega jafnlangt frá inngangi kvikmyndaversins. Myndin er endurgerð myndarinnar um Dr. Jekyll og Mr. Hyde og Julia og John fengu ná- kvæmlega jafnhá laun, 7,5 milljón dollara. Þau fengu einnig nákvæm- lega jafnmarga flugmiða til Bandaríkjanna til að skreppa heim á milli at- riða en það dugði þó ekki til að halda stjörnunum ánægðum. Julia var með miklar sérþarfir og þurfti t.d. að vera á sérfæði og heimtaði einka- bílstjóra á meóan á tökum stóð. Malkovich vildi ekki eyðileggja fyrir framleiðendunum og þagði yfir óréttlætinu á meðan að myndin var tekin en um leið og lokió var síðustu töku lét hann álit sitt í ljós. Fyrir framan tökulið og leikara myndarinnar öskraði hann á leikkonuna: „Þú ert ofdekraður óþekktarormur," auk þess sem hann sór þess eið að vinna aldrei með henni framar. Julia Roberts fcr gjarnan í taugarn- ar á mótleikurum ◄ Barabara Streisand hefur ekki verið talin í hópi feg- urstu kvenna í Hollywood fram að þessu en ætlar að nota nýj- ustu tölvutækni til að breyta því. £eikkonan nefstóra Barbara Streisand er loksins að fara í nefaðgerö. Gagnger lýtaað- gerð er næsta kænskubragð Bar- böru í væntanlegri mynd, The Mirror Has Two Faces, þar sem hún mun leika aðalhutverk jafn- framt því sem hún er framleiðandi og leikstýra myndarinnar. Myndin fjallar um heldur ófríða konu sem er gift manni sem hefur ógeð á út- liti hennar en Jeff Bridges er tal- inn líklegur til aö leika það hlut verk. Hennar persóna er þreytt á litlu sjálfsáliti og fer í lýtaaðgerð til að bæta útlitið. Leikkonan fer þó ekki sjálf í aðgerð (þótt mörgum finnist tími til kom- inn) en hún neitaði að taka þátt í myndinin ef lýtaað- gerðin væri ekki trúanleg. Þess vegna hefur sérhæft tölvufyrirtæki verið ráðið til að fríkka hana eftir aö aðgerðin fer fram en fyrirtæki þetta náði mjög góðum árangri í myndinni Forrest Gurnp, þar sem fráfallnir forset- ar voru vaktir til lífsins með undra- verðum hætti. Pamela Ander- son hcfur heillað margan mann- inn upp úr skón- um. furgellan Pamela Ander- son sem leikur lögulegan strandvöró í sjónvarps- þáttunum Baywatch segist kunna því vel að vera álitin heimsk ljóska. „Mér finnst þægilegt að uppfylla ímynd hinnar heimsku ljósku. Þá get ég ekki annað en komið fólki á óvart með hæfileik- um mínum,“ segir Anderson. Fyr- ir skömmu var hún að skokka á ströndinni í áhrifamiklu atriði í sjónvarpsþáttunum þegar að losn- aði um bikini hennar og öll dýróin blasti vió samstarfsfólki, upptöku- liði og myndavélinni, sem tók allt saman upp á spólu. Myndir þessar áttu ekki aó koma til birtingar en einhverjum óprúttnum náunga tókst aö stela spólunni og óttast Pamela nú að myndir þessar kom- ist í dreifingu og verói seldar á svörtum markaði.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.