Dagur - 29.12.1994, Síða 8

Dagur - 29.12.1994, Síða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 29. desember 1994 „Samkeppnisaðilamir njóta góðs af úreldingaraðferð okkar“ - segir Bjarni Kr. Grímsson, fiskimálastjóri Bjami Kr. Grímsson tók við starfí fiskimálastjóra fyrir réttum tveim- ur árum síöan, eða um áramótin 1992/1993. Áður starfaði hann sem bæjarstjóri í Olafsfirði og þar áður sem kaupfélagsstjóri á Þing- eyri, en kaupfélagió þar rekur um- fangsmikla útgerð og fiskvinnslu á staðnum. Hræringar eru miklar í íslenskum sjávarútvegi um þessar mundir, erfið staða margra fyrir- tækja og afleiðing af hæpnum rekstrargrunni þeirra að koma í ljós. Sú staðreynd að það er frum- skilyrði að ganga vel um auólindir hafsins og nýta þær skynsamlega er að verða stöðugt fleirum ljós. Fiskistofnar eru í uppbyggingu en jafnhliða eru ekki gerðar ráóstaf- anir til nýta þá á sem hagkvæm- astan hátt, m.a. situr markaðssetn- ing manneldisafurða og gæðaaf- urða mjög á hakanum. Fiskimála- stjóri var fyrst inntur eftir því hvort starfið væri öðru vísi eða tekið aóra stefnu en hann hefói átt von á í upphafi. „Nei varla, enda þekkti ég svo- lítið til hér áður en ég kom til starfa, var nokkuð kunnugur sjáv- arútvegi áður en ég fór norður í Olafsfjörð. Auk þess hafði ég ver- ið fulltrúi á Fiskiþingi í fjögur ár fyrir Vestfirðinga, var formaóur Utvegsmannafélags Vestfjarða og í stjóm LIU auk þess sem ég starfaði áður hjá Fiskveiðasjóói. Það hefur staóið yfir ákveðið breytingaskeió hjá Fiskifélaginu sem lá ljóst fyrir er ég réöi mig til Fiskifélagsins, en menn sjá ekki alltaf fyrir hvert breytingar leiða menn, ekki síst hjá svona gamal- grónu félagi,“ sagði Bjarni Kr. Grímsson. Árið 1994 metár í útflutningsverðmætum sjávarafurða - Hvernig verður næsta ár í sjáv- arútvegi? „Eg er alls ekki svartsýnn varð- andi sjávarútveginn, en hann hefur sýnt þaó gegnum síðustu áratugi að hann hefur alveg ótrúlega aö- lögunarhæfileika og ég vil benda á aó það er ekki svo langt síóan að- allega var treyst á síldina. Síðan hvarf síldin og það tók örfá ár að jafna sig á því áfalli en þá fóru menn að beina sjónum sínum og sókninni í aóra fiskstofna; togara- flotinn var efldur og bátamir fóru að stunda loðnuveiðar. Þorskurinn hefur verið okkar helsta afurð gegnum aldimar, en frá lýðveldis- stofnun hefur ekki verió minni þorskafli á Islandsmiðum og sam- kvæmt áætlun Fiskifélagsins er gert ráð fyrir 170 þúsund tonna þorskafla í ár en hann var 251 þúsund tonn árið 1993. Til mótvægis því höfum við aukið karfaveióarnar og ekki síst rækjuveiðar, en þetta ár verður al- gjört metár, eða um 71 þúsund tonn á móti 53 þúsund tonnum ár- ið 1993. Rækjustofninn var mjög vannýttur, aðallega var rækjan veidd á innfjöróum og það er ekki fyrr en að frumkvæði Snorra Snorrasonar á Dalvík fyrir um tveimur áratugum að sókn í út- hafsrækju fer aó aukast aö einhverju marki. Á árinu 1994 veróur útflutn- ingsverðmæti sjávarafuróa rúmir 86 milljarðar króna, og það hefur aldrei verið meira, var 76 millj- arðar króna árið 1993 og hefur því aukist um 13,8% milli ára. Sjávar- Bjarni Kr. Grímsson, flskimála- stjóri. útvegurinn mun því aðlaga sig að ákveðnum breytingum, byrjað er að flyja inn hráefni til vinnslu og því mun útgerð og fiskvinna vinna sig út úr þessum þrengingum.“ Kjarasamningar sjómanna snúast um verð- lagningu aflans - Kjarasamningar sjómanna og viðsemjenda þeirra voru felldir nú í árslok. Hefurðu trú á því að til verkfalls komi á fiskiskipaflotan- um? „Kjaramálin eru mjög við- kvæm og snúast fyrst og fremst um verðlagningu aflans. Ég sé ekki að tekist verði á um hefó- bundin kjaramál, heldur fyrst og fremst um verðlagningu aflans, þ.e. svokallað frjálst fiskverð, og einnig hvernig sjómönnum verði tryggt ákveðið lágmarksverð í al- mennum samningum. Það kæmi Jólajazz Jazzinn dunaði enn fímmtudaginn 22. desember í Deiglunni á Akur- eyri, þar sem Karl Olgeirsson á píanó, Jón Rafnsson á bassa og Karl Petersen á trommur tóku sveifluna saman í efnisskrá, sem bar talsverðan keim jólahátíðar- innar. Fyrst á efnisskrá var jólalagið Það á að gefa bömum brauð. Þetta lag birti þegar ýmsa þá þætti, sem prýddu tónlistarmennina á þessum tónleikum. Karl Olgeirsson lék á hljómborðin af festu og ákveðni, Jón Rafnssn sýndi gjörla, að hann er í sókn á hljóðfæri sitt jafnt í tækni sem túlkun, og Karl Peter- sen hélt uppi öruggum takti, sem fór vel við fjölbreyttan leik hinna tveggja. Tríóið lék sama lag aftur í tónleikalok og þá sem aukalag. Það var kærkomið. Endurflutning- urinn var frjálslegri, tjáningarrík- ari - í einu orði - jazzaðri en hinn fyrri. Hér var gott dæmi um það, hverju skiptir að hiti leiksins sé í túlkuninni; aó spenna, sem óhjá- kvæmilega fylgir upphafi, sé horf- in; að samhæfingin sé virk sem krafturinn að baki túlkuninni. Það var einmitt samhæfmgin, sem ekki hvað síst gladdi í eyrum á tónleikunum í Deiglunni fimmtudaginn 22. desember. Fé- lagamir þrír virtust ná sérlega vel saman. í kynningum laganna ríkti glettni, sem smitaði fram til áheyrenda, og í flutningi virtust tónlistarmennirnir efla hver annan til átaka jafnt í túlkun sem tækni. Jón Rafnsson var víða í essinu sínu einkum á kontrabassann. Raf- bassaleikur hans var hins vegar tíðum heldur hávær og óþægilega grófur. Jón Rafnsson sýndi iðu- lega mikla tæknilega getu í hröð- um leik af ýmsum toga og ekki síður verulega skemmtilegar hlið- TÓNUST HAUKUR Á6ÚSTSSON SKRIFAR ar í túlkun og spuna og hefur sjaldan verið betri og gjöfulli. Nefna má t.d. leik hans í lögunum Tólf taktar fyrir heilagan Þorlák eftir Karl Olgeirsson, Kontraster eftir hann sjálfan, Leiðin til Betle- hem eftir Karl Olgeirsson og lag eftir Karl Petersen, sem hann hef- ur tileinkað dóttur sinni. I þessum lögum og mörgum öórum lék Jón Rafnsson af festu og dirfsku og meó jazzískri sveiflu, sem sannar- Iega gladdi eyrun. Karl Olgeirsson gerði ekki síð- ur vel. Hann lék á rafmögnuð hljómboró og beitti ýmsum tón- blæ á tæki sín. Einnig brá hann fyrir sig melódíku í nokkrum lög- um. Skemmtilegra hefði verið að heyra Karl Olgeirsson á ekta pí- anó, þar sem sá blær var nýttur, en vel gerði hann afar víða í tjáning- arríkum og hugmyndaríkum leik. Þar má nefna glæsitök hans í Það á að gefa börnum brauð, einkum í seinni flutningi og lögin Hátíð fer að höndum ein, Leiðin til Betle- hem, Heim í heiðadalinn eftir Karl Petersen og Killer Joe, sem ásamt íleirum fórust Karli Olgeirssyni vel úr hendi. Karl Petersen hélt leik félaga sinna við jörðina með öruggum takti sínum á slagverkið. Hann átti líka nokkur falleg sóló og trommubreik, svo sem í Tólf takt- ar fyrir heilgan Þorlák, Kontraster og Dóminikana eftir Karl Olgeirs- son. Lög þeirra félaga eru mörg skemmtileg áheyrnar og sum hreinlega falleg og söngvin. Ein- hver góður maður ætti aó setja saman texta við nokkur þeirra, svo sem Leiðina til Betlehem eftir Karl Olgeirsson og lag Karls Pet- ersens, sem hann tileinkar dóttur sinni. Bæði mundu bera söng mjög skemmtilega. Þrátt fyrir annir flestra við und- irbúning jólanna, voru tónleikarnir í Deiglunni vel sóttir. Enn einu sinni sást, hvern hljómgrunn jazz- kvöld Kaffihússins Karólínu og Gilfélagsins eiga á meóal jazzunn- enda á Akureyri. Þau eru gott framtak og veröa vonandi til fram- tíóar fastur þáttur í menningarlífi bæjarins, eins og þau hafa verið á þessu ári. Aðstandendur þeirra eiga lof skiliö og ekki síður þakkir fyrir margar ánægjulegar stundir á árinu, sem senn kveður. mér ekki á óvart að það yrðu ein- hver átök um það mál, en ég held að þau átök verði ekki mjög lang- vinn heldur setjist menn niður og leysi þau. Kjarasamningar sjó- manna koma ekki til með að taka neinum stórkostlegum breyting- um, munu ekki snúast fyrst og fremst um breytingu á skiptapró- sentu. Þetta mun snúast um það hvernig fiskverð ræðst, annars vegar á markaói og hins vegar í samningum milli aðila og hvernig hlutur sjómanna til skipta verður tryggður úr því.“ ✓ Urelding Þróunarsjóðs niðurgreiðsluleið til samkeppnisaðila - Úreldingarstyrkur Þróunarsjóðs sjávarútvegsins hefur sætt tölu- verðri- gagnrýni. Stuóla reglur sjóðsins að endurnýjun á besta og nýjast hluta fiskiílotans og því verulega rangar? „Ég held að reglugerðin um Þróunarsjóðinn og úreldingu fiski- skipa sé hugsuð á allt öðrum nót- um en hugmyndir almennings um úreldingu ganga út á. Þarna er stefnt aó fækkun útgerðaraðila og skipa en ekki verið að hugsa um að taka elstu og óhagkvæmustu skipin úr umferð. Því er þetta svo- lítið öfugsnúió, því ef við eigum að takmarka &ókn flotans í fiski- stofnana og vildum gera það með einhvers konar úreldingu, þá ber að huga að því hver sóknargeta viðkomandi skips er í fiskistofn- inn, burtséð frá aldri þess, því 30 ára gamall bátur getur fiskað jafn mikió og tveggja ára gamall bátur. Því þarf fyrst að horfa á rúmlesta- tölu skipsins, síðan vélarafl, til að ákveða upphæð úreldingarstyrks. Það þýddi aftur að nýrri skipin væru óhagkvæm í úreldingu, en eldri skipin hagkvæm. í dag er hins vegar horft á tryggingarverð- mæti og það opnar leið út úr út- gerð sem er með nýtt og verómik- ið skip, mikið skuldsett. Þetta er hins vegar ákveðin nið- urgreiðsluleið á mjög góðum, nýj- um skipum til samkeppnisaðila okkar í sjávarútvegi, því með úr- eldingu þarf að selja þau úr landi. Þannig njóta Irar, Danir, Norð- menn og fleiri þjóðir góðs af þess- ari úreldingaraðferð hér.“ Eldisfískur tryggir stöðugleika - Framboð eldisfisks hefur aukist verulega í heiminum á þessu ári. Heldur þú að neysla eldisfisks muni aukast á kostnað „náttúru- legs“ fisk á árinu 1995? „Þetta snýst einfaldlega um kostnað viö framleiðslu. Að und- anförnu hefur það kostað minna aó ala eldisrækju og slátra en að senda skip á rækjumiðin og því býðst slík rækja ódýrari á almenn- um markaði. M.a. má benda á aó útflutningstekjur Norðmanna af laxeldi eru orðnar hærri en sjávar- útvegstekjur íslendinga, og því verður að fylgjast grannt með þró- un fiskeldismála í heiminum. Markaðurinn vill fá ákveðið og stöðugt magn af fiski á dag og það er ekki hægt aó tryggja með al- mennum veiðum, því hlýtur eldis- fiskurinn að koma inn í það dæmi og tryggja stöðugleikann, þ.e. jafna sveiflurnar á markaónum. Hvort eldisfiskurinn verði í fram- tíðinni svo ódýr að hann ógni veiðunum, er erfitt aó sjá fyrir á þessari stundu. Það mál verður hins vegar í umræðunni um sjáv- arútveg á komandi ári,“ sagði Bjarni Kr. Grímsson, fiskimála- stjóri. GG „Verðlaunagetraun sem matur er í : Fimm Norðlendingar fengu verðlaun Föstudaginn 16. desember sl. var dregið í verðlaunagetraun- inni „Verðlaunagetraun sem matur er í“. Mjög góó þátttaka var í get- rauninni og bárust nokkur þúsund svör. Lausnir 50 heppinna einstak- linga voru dregin úr þeim lausnum sem bárust og geta þeir vitjaö vinninga sinna hjá Sláturfélagi Suðurlands að Fosshálsi 1 hjá Gunnari Randver í afgreiósludeild frá kl. 8 til 16 alla virka daga. Vinningshafar eru beðnir að sýna persónuskilríki þegar þeir vitja vinninga. Vinningshafar af lands- byggðinni ntunu fá vinninga senda heim. Vinningshafar hljóta körfu með úrbeinuðu hangilæri, hamborgarhrygg, „roastbeef‘, fol- aldalundum eða filé og kjúkling. Fimm vinningshafar eru af Norð- urlandi. Þeir eru: Sigríður Guð- jónsdóttir, Melavegi 2 Hvamms- tanga, Jón Grétar Leví Jónsson, Garðavegi 20 Hvammstanga, Svanhildur Björgvinsdóttir, Grundarstíg 4 Sauóárkróki, Lilja Jóelsdóttir, Hávegi 58 Siglufirði og María Sigurlaug Ásgrímsdóttir, Hamragerði 29 Akureyri. Meófylgjandi rnynd var tekin þar sem verið var að draga úr rétt- um lausnum.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.