Dagur - 18.01.1995, Page 5
Söngtónleikar í
Glerárkirkju
Miklir söngtónleikar voru
haldnir í Glerárkirkju á
Akureyri laugardaginn
14. janúar. Tilefni tónleikanna er
söfnun til styrktar séra Pétri Þór-
arinssyni í Laufási og fjölskyldu
hans, en það góða fólk hefur átt í
miklu og átakanlegu stríði við
sjúkdóma undanfarin ár.
Tónleikatilefni af þessu tagi cr
eftirtektarvert og lofsamlegt. Það
kemur óneitanlega við hjarta-
strengi og sýnir, að í þeim harða
heimi, sem við byggjum, þar sem
efnhagslegar kringumstæður ger-
ast erfiðar mjög mörgum og flestir
hafa nóg með sig og sína afkomu,
finna menn til með þeirn, sem erf-
itt eiga og leggja fúslega á sig
verk og útlát til þess að styrkja og
styðja meðbræður sína og systur.
Einsöngvarar á tónleikunum
voru Óskar Pétursson, Baldvin Kr.
Baldvinsson, Örn Viðar Birgisson,
Björg Þórhallsdóttir og Michael
Jón Clarke. I dúettum með ein-
söngvurunum komu fram Jón
Helgi Þórarinsson og Atli Guð-
laugsson cn cinnig mynduðu ein-
söngvararnir nokkra dúetta. Söng-
flokkar voru Tjarnarkvartettinn,
X-tríóið og Leikhússkvartettinn.
Bræðurnir frá Alftagerði í Skaga-
firði sungu saman í dúettum og
kvartett. Loks komu fram kirkju-
kórar í sóknum séra Péturs Þórar-
inssonar undir stjórn Bjargar Sig-
urbjörnsdóttur og Hjartar Stein-
bergssonar, Kór Akureyrarkirkju
undir stjórn Björns Stcinars Sól-
bergssonar og Kór Glerárkirkju
undir stjórn Jóhanns Baldvinsson-
ar. Undirleikarar á píanó á þessum
miklu söngtónleikum voru Guó-
rún A. Kristinsdóttir, Helga Bryn-
dís Magnúsdóttir, Richard Simm
og Stefán R. Gíslason.
TÓNLIST
HAUKUR ÁGÚSTSSON
SKRIFAR
Svo sem sjá má á þessari miklu
upptalningu var hér saman komið
mikið lið góðra tónlistarllytjenda
og ekki einungis af Akureyri,
heldur sem næst af Norðprlandi
öllu. Vitað er þó, að fleiri ekki
síðri hefði mátt til tína jal'nt af því
svæði, sem þctta góða listalolk
kom af, sem utan þess. Hér var
því tækifæri til þcss að hlýða á
nokkurn þverskurð þess, scm
fjóróungurinn hefur upp á að
bjóða á sviði söngs. Það þarf ekki
að orðlengja umsögn um fiutning-
inn. Hann var góður og víða
glæsilegur og sýndi ljóslega, að
söngmennt stendur mjög hátt á
Norðurlandi.
Skipuleggjendur tónleikanna
voru þeir Gísli Sigurgeirsson,
fréttamaður, og Óskar Pétursson,
söngvari. Gísli hafði orð fyrir
þeim og flutti ávarp. I því ræddi
hann um tilefni tónlcikanna en
auk þess þá hugmynd, að efna til
styrktartónleika af þessu tagi ár-
lega og fá til þeirra listamenn af
Norðurlandi eins og nú var gert.
Þessi hugmynd er allrar athygli
verð. Komist hún í framkvæmd
mundi tónleikahald af þessum
toga bæöi verða stuðningur við
margt gott málefnið og ekki síður
afar kærkomið tækifæri til þess að
ná saman því besta, sem Norð-
lendingafjórðungur hefur fram að
færa á sviði sungins tónlistarfiutn-
ings. Vonandi verður af fram-
kvæmdum í þessu efni.
í lok tónleikanna komu allir
flytjcndur saman undir stjórn Jó-
hanns Baldvinssonar og fiuttu
ásamt tónlcikagestum lagið I
bljúgri bæn, sem er erlent lag en
ljóðið viö það eftir séra Pétur Þór-
arinsson. Flutningur þessa ein-
falda cn innilega bænarvers var
afar áhrifamikill og citt það sterk-
asta ákall, sem undirritaður hefur
orðið vitni af. Það var mjög við-
eigandi lokatriði á þessum glæsi-
legu tónleikum, þar sem hugur og
framlag allra, jafnt fiytjenda sem
áheyrenda, beindist af óeigingirni
að einu og sama marki: Að láta af
hendi rakna fé og verk í þágu
systkina í Guði, sern um sárt eiga
að binda og stuðnings þarfnast.
Miðvikudagur 18. janúar 1995 - DAGUR - í
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
DBBBHHBHBHBBQQBBBBBUDBHBQyQQUHHBBBBBHQSBBBBHHBB
Hörgdælingar fyrr og nú!
Okkar árlega
þorrablót
verður haldið á Melum 28. janúar 1995
og hefst kl. 21.00.
Miðapantanir í síma 26792 (Marta)
og 26799 (Ella) í síðasta lagi 25. janúar.
Nefndln.
u
a
o
□
D
D
D
D
D
D
tt
D
D
D
tt
D
D
tt
D
D
D
D
D
D
D
D
D
Q
tt
Q
tt
Fluguhnýtinga-
klúbburinn
BAKKA-BRÆÐUR
verður endurvakinn að Lundi við Skógarlund
fimmtudaginn 19. janúar kl. 20.00.
★ Nýir félagar velkomnir.
Fluguhnýtinga-
námskeib
hefst fimmtudaginn 19. janúar kl. 20.00 að Lundi.
Upplýsingar í Veibisport hf. í síma 22275.
100 ár liðin firá fæðingu
Jónasar Krístjánssonar
í dag, miðvikudaginn 18. janúar,
eru 100 ár liðin frá fæðingu Jónas-
ar Kristjánssonar, fyrrverandi
samlagsstjóra Mjólkursamlags
KEA á Akureyri.
Jónas fæddist 18. janúar 1895
að Víðigerói í
Hrafnagils-
hreppi. Hann
lést 27. janúar
1975. Foreldrar
Jónasar voru
þau Kristján
Hannesson
bóndi og Hólm-
l'ríður Kristjáns-
dóttir. Eigin-
kona hans var
Sigríður Guð-
mundsdóttir,
fædd 20. desem-
ber, dáin 8.
febrúar 1958.
Börn þeirra eru
Hreinn f. 7. júlí
1934 og Sólveig
f. 15. mars
1937.
Jónas lauk
búfræöingsprófi frá Hvanneyri ár-
ið 1914 og prófi frá Landbrugs-
og Mejeriskolen Ladelund í Dan-
mörku árið 1927. Árið eftir tók
hann við starfi samlagsstjóra
Mjólkursamlags KEA og gegndi
því þar til hann varð sjötugur.
Jónas Kristjánsson var fram-
sýnn maður. Til marks um það var
hann hvatamaður aö því að Ey-
firðingar keyptu jarðýtur strax í
stríóslok og urðu þannig á undan
öðrum héruðum með ræktun. Þá
var hann hvatamaður að stofnun
Sambands nautgripafélaga í Eyja-
firði (S.N.E.), Sæðingastöðvar og
Afkvæmarannsóknastöðvar á
Lundi og var formaður S.N.E. til
1966. Þá er þess að geta að Jónas
var aðal driffjööurin í stofnun og
síðar starfi Bændaklúbbsins.
I stjórn Búnaðarsambands
Eyjafjarðar sat
Jónas frá 1929
og stjórn Minja-
safnsins á Akur-
eyri frá 1953. Þá
var hann í stjórn
Ræktunarfélags
Norðurlands til
1958.
Um Jónas
Kristjánsson
sagði Erlingur
Davíðsson,
fyrrv. ritstjóri
Dags, í minning-
arorðum sem
birtust í Degi 5.
fcbrúar 1975:
„En Jónas
Kristjánsson var
ekki aðeins
stjórnandi
mjólkurstöðvar
héraðsins, því hann var einnig
óþreytandi ráðunautur og leiðtogi
í ræktunarmálum jarðar og búpen-
ings, og eru eldheitar hvatningar-
ræður hans á óteljandi l'undum
bændasamtakanna öllum Eyfirð-
ingum í fersku minni. Hygg ég að
hann eigi mciri þátt í örunt fram-
förum í eyfirskum landbúnaði en
llesta grunar. Jafnframt var hann
náttúruunnandi, og gæddur ríku
fegurðarskyni. Hann helgaði
bændastéttinni hina óvenjulegu
miklu starfsorku sína alla ævi og
hlaut að launurn almenna viður-
kenningu og virðingu.“ óþh