Dagur - 18.01.1995, Side 7
Miðvikudagur 18. janúar 1995 - DAGUR - 7
100 ár frá fæðingu Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi:
Tímamótanna minnst með ýmsum hætti
- margt um að vera á sjálfan afmælisdaginn nk. laugardag
HOTEL KEA
Laugardagskvöldið 21. janúar
Hin frábæra hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar
Húsið opnað fyrir aðra en matargesti kl. 23.00
Sími22200
Opið frá kl. 8-20
Þorraveislan
hefst á föstudaginn (bóndadag)
raunar allt áriö, verður síðan ým-
islegt gert til þess aó minnast
skáldsins. Sýningar halda áfram á
„A svörtum fjöðrum," Gilfélagið
verður með dagskrá tengda Davíð
urn mánaðamótin janúar-febrúar,
sinfóníutónleikar verða í Akureyr-
arkirkju 18. febrúar, Davíshátíð í
Iþróttaskemmunni í apríl, mynd-
listarsýning Grétu Borg í Þingi,
þar sem hún sýnir myndskreyting-
ar við ljóð Davíðs o.fl., o.fl.
Fjölmiðlar munu einnig minn-
ast skáldsins með ýmsum hætti og
í því sambandi má nefna að næsta
helgarblað Dags verður aó tölu-
verðum hluta helgað Davíð Stef-
ánssyni. HA
Gildran er spennt
ef ökumaður
rennir einum snafsi
inn fyrir varir sinar
Eftir einn
ei aki nemn!
UMFERÐAR
RÁÐ
Viðar Eggertsson lesa upp úr ljóó-
um Daviðs. Þennan dag verður
einnig sektarlaus dagur í Amts-
bókasafninu og tekió verður á
móti öllum vanskilabókum meö
bros á vör. Þá verður Amtsbóka-
safnið og Héraðsskjalasafnið
einnig öllum opin til skoðunar og
kynningar, einnig vinnusvæði og
geymslur. Þess má geta að Amts-
bókasafnið hefur gefið út lítið
kver með nokkrum ljóðum Dav-
íós, sem dreift veróur til allra
skólanemenda á Akureyri.
Að kvöldi afmælisdagsins
verður síðan frumsýning Leikfé-
lags Akureyrar á leikverkinu „Á
svörtum fjöðrum - úr Ijóðurn
Davíðs Stefánssonar", eftir Erling
Sigurðarson. Verður verkið sýnt
þrívegis þessa helgi og síðan
áfram meó venjubundnum hætti.
Sunnudaginn 22. janúar kl.
15.30 mun Arnar Jónsson leikari
verða með sérdagskrá í Davíðs-
húsi um skáldið og verk hans.
Arnar býr nú í gestaíbúðinni í
Davíðshúsi. Væntanlega verður
dagskrá Arnars endurtekin síðar.
Þess má til gamans geta að Arnar
er fæddur sama dag og Davíð
Stefánsson.
Þaö sem eftir lifir vetrar og Þann 21. janúar nk. verða liðin 100 ár frá fæðingu Davíðs Stefánssonar.
Opið bréf til Rafveitu Akureyrar
Þann 21. janúar, eða nk. laugar-
dag, verða liðin 100 ár frá fæð-
ingu hins ástsæla skálds, Davíðs
Stefánssonar frá Fagraskógi.
Vegna þessara tímamóta skipaði
menningarmálanefnd Akureyr-
arbæjar starfshóp til að undir-
búa og samræma hátíðarhöld.
Bæði mun Akureyrarbær beita
sér fyrir ýmsum uppákomum og
einnig margir aðrir aðilar.
Á sjálfan afmælisdaginn verður
margt um að vera. Kl. 11 um
morguninn veróur stutt samkoma í
Davíshúsi, þar sem bæjarstjórn og
ættingjar Davíðs munu minnast
dagsins. Kl. 14.00 verður sam-
koma í Möðruvallakirkju á vegum
Arnarneshrepps og er hún öllum
opin. Þar veröur kynnig á verkum
Davíðs, kvartett syngur, listamenn
lesa úr verkum hans og sagt verö-
ur frá skáldinu. Samkomunni lýk-
ur meó því að blómsveigur verður
lagður að leiði Davíðs.
Kl. 16.00 verður opnuð sýning
á verkum Davíós í Amtsbókasafn-
inu, en Davíð starfaði einmitt
lengi sem amtsbókavöröur á Ak-
ureyri. Auk opnunar sýningarinn-
ar mun leikhúskvartettinn flytja
lög úr sýningu Leikfélagsins og
Þegar undirritaður flutti í nýja
íbúð í Snægili 5 ríkti mikil gleði
og ánægja sem tók öllu fram, aó
vera loksins kominn í sitt eigið
húsnæói. Óhætt er að segja að hlý-
ir straumar hafi yljaó mér um
hjartaræturnar. En þessir straumar
kólnuðu fljótlega. Eg og fjöl-
skylda mín vorum búin að koma
okkur ansi notalega fyrir og ætl-
uðum að fara að leggjast til hvílu
þegar lángt var liðið kvölds. Ég
gerði eins og flest fólk gerir áður
en þaó fer að sofa, gekk einn
hring um íbúðina og slökkti öll
ljós, en viti menn, þrátt fyrir að ég
taldi mig hafa slökkt öll ljós í
íbúðinni var ennþá birta þvílík að
hvaða íþróttavöllur sem er hefði
verið stoltur af. Ég prufaði að
ganga annan hring til að fullvissa
mig um að öll ljós hjá mér væru
slökkt og var það svo. Við nánari
eftirgrennslan kom í ljós að birtan
kom utan frá og ekki frá
einhverjum stríðnum strákormum
heldur frá ljósastaurum með há-
þrýstum natríumperum, sem í
minni sveit voru eingöngu notaðar
við lýsingu á aðalakbrautum. En í
þessu tilfelli eru staurarnir stað-
settir við veröandi göngustíg sem
á að liggja á milli húsa.
Þegar ég komst að þessu fór ég
að hugsa hverju þetta sætti, hvort
að um væri að ræða hreinar per-
sónuofsóknir eða bara skipulags-
slys og að lokinni stuttri umhugs-
un hallaðist ég frekar á að þetta
væri það síðarnefnda. Nú eins og
gengur og gerist gaf ég mig á tal
við Rafveitu Akureyrar til að
reyna að flnna út hvað væri í
gangi. Þegar þangað kom var mér
bent á að tala við skipulagsstjóra
rafveitunnar þar sem ég fékk þau
svör aó þetta væri ný stefna hjá
þeim, að hafa þcssa gerö staura
(þ.e. með appelsínugulri og sterkri
birtu) eingöngu. Ég var nú hálf
hneykslaður og reyndi að malda í
móinn en það hafði lítið að segja
þar sem þetta er víst nokkrum
hundraðköllunum ódýrara en
staurar með hvítri mildri birtu.
Því þætti mér nú, kæru vinir,
afskaplega gaman að vita hvað
bærist um í heilahvelum þessara
...þegar ég er bú-
inn að hátta mig á
kvöldin og stend á
gólfínu á brókinni
einni fata líður
mér eins og glímu-
manni sem stendur
í flóðlýsingu og
bíður eftir að
heyra þjóðsönginn
sinn spilaðan.
manna sem skipuleggja svona lag-
að. Ég þykist nær viss um að þess-
ir háu herrar sem kallast skipu-
lagsstjórar myndu ekki vilja hafa
ljósastaur af þessari gerð í 10 m
fjarlægð frá svefnherbergisglugg-
anum sínum. Þaó má kannski vera
að þessir virðulegu menn búi við
Hafnarstrætið þar sem nýbúið er
að setja litla huggulega ljósastaura
með daufri birtu og er það þó um-
ferðargata en ekki göngustígur
eins og hér um ræöir.
Eðlilega reyndi ég að girða mig
og fjölskyldu mína af frá þessum
ósköpum og keypti alveg hreint
ágætis rimlagardínur og setti fyrir
gluggann en allt kom fyrir ekki,
það dugar einfaldlega ekki til og
þegar ég er búinn aö hátta mig á
kvöldin og stend á gólfinu á
brókinni einni fata líður mér eins
og glímumanni sem stendur í flóð-
lýsingu og bíður eftir að heyra
þjóðsönginn sinn spilaðan.
Mig langar til að fara fram á
úrbætur hió fyrsta því þetta ástand
er vægast sagt óþolandi og ef
þetta er stefna sem taka á upp í
lramtíðinni þá verður Rafveita
Akureyrar ekki vinsælasta fyrir-
tækið í bænum hjá þeim bæjarbú-
um sem þurfa að búa við þessa
óhræsis ljósastaura.
Birgir Eiríksson,
Snægili 5, Akureyri.
Ágæti
félagsmaður!
Fyrirhugaö er aö halda námskeiö fyrir félagsmenn
í meðferð skattframtala.
Slík námskeið voru haldin á síðasta vetri og gáfust þau
mjög vel. Leiðbeinendur verða frá Skattstofunni á
Akureyri.
Áætlað er að námskeiðin hefjist í lok mánaðarins og
taki eina kvöldstund. Takmarkaður fjöldi er á hvert
námskeið og verða haldin fleiri en eitt námskeið ef
mikil þátttaka veröur.
Námskeiðin verða haldin í öllum deildum félagsins ef
næg þátttaka verður, en lágmarksfjöldi á hvert
námskeió er 10 manns og eru þau félagsmönnum að
kostnaóarlausu.
Þátttaka tilkynnist á skrifstofu félagsins á Akureyri í
síma 23503, í síðasta lagi föstudaginn 20. janúar nk.
RAUTT LjÓSk^RAUTT LJÓS!'
" ' || UMFERÐAR V