Dagur - 24.01.1995, Blaðsíða 10

Dagur - 24.01.1995, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 24. janúar 1995 ENSKA KNATTSPYRNAN SÆVAR HREIÐARSSON Nýliðinn bjargaði Arsenal óð í færum Leiðindaveður setti mark sitt á ensku knattspyrnuna um helg- ina. Fjölmörgum leikjum var frestað í öllum deildum vegna mikils vatnsveðurs sem gekk yf- ir landið og höfuðborgin, Lond- on, var gjörsamlega á floti. Það voru því aðeins leiknir fimm leikir í úrvalsdeildinni á laugar- daginn og úrslitin komu ekki mikið á óvart. Everton kom sér upp úr fallsæti með góðum sigri á Crystal Palace og Aston Villa virðist vera búið að ná sér á strik. Arsenal hefur átt í erfið- leikum að undanförnu en heilla- dísirnar voru með liðinu gegn Coventry. COVENTRY-ARSENAL 0:1 Mark frá nýliðanum John Hartson tryggði Arsenal sigur á útivelli gegn Coventry. Segja má að Ar- senal hafi stolið stigunum frá Highfield Road að þessu sinni en heppnin hefur ekki fylgt Arsenal- liðinu að undanfömu og lióið féll úr leik í báðum ensku bikarkeppn- unum á síðustu vikum. Coventry virtist ávallt líklegra til að skora í fyrri hálfleik og var óheppið þegar að skalli frá Dion Dublin fór í of- anveróa þverslána. Roy Wegerle var einnig ágengur en David Sea- man varói skot hans og eina hætt- an sem skapaðist vió mark Coven- try kom frá John Hartson, sem Ar- senal keypti frá Luton fyrir 2,5 milljónir punda fyrir skömmu. Þaó stefndi allt í markalaust jafn- tefli þegar aö Hartson skoraöi eina mark leiksins tólf mínútum fyrir leikslok. Skot hans af löngu færi breytti um stefnu af David Rennie, vamarmanni Coventry, og sigldi í netió hjá Steve Ogr- izovic. EVERTON-C. PALACE 3:1 Everton vann mjög mikilvægan sigur á lánlausu liói Palace í botn- baráttunni. Iain Dowie kom inn í lið Palace í fyrsta sinn en var lítið áberandi. Sá sem stal senunni í þessum leik var skoski framherj- inn Duncan Ferguson hjá Everton, sem um síöustu helgi var rekinn af velli gegn Arsenal. Hann veitti Everton fullkomna byrj- un á leiknum þegar hann skallaði í netið eftir fyrirgjöf Andy Cole lék fyrsta leik sinn með Man- chester United gegn Blackburn á sunnu- daginn og fékk guilið tækifæri til að skora með sinni fyrstu snertingu en brást bogalistin. Hann var í strangri gæslu allan leikinn og fékk aldrei frið til að at- hafna sig. Hann slapp þó eitt augna- blik á síðustu mínút- unni og var þá ná- lægt því að skora en skaut yfir eftir að varnarmenn Blackburn höfðu þrcngt að hon- um. United ið fékk einstaka skyndisóknir sem Shearer náði ekki aó nýta. United hafði þó enn mikla yfirburði og sóknarþunginn bar loks árangur á 80. mínútu. Ryan Giggs vann boltann úti á vinstri kanti og gaf glæsilega sendingu fyrir markið þar sem Eric Cantona skallaði í netið úr þröngu færi. Við þetta lifnaði yfir liði gestanna og þeir fóru að sækja. Tim Sherwood náði að skalla boltann í netið hjá United á 89. mínútu eftir að Shearer hafði skallaó fyrir markið en markió var dæmt af þar sem Shearer hafói ýtt á bakió á Roy Keane. Kenny Dalglish var fokill- ur eftir leikinn og sagði dómarann enn einu sinni hafa bjargað Unit- ed. Andy Cole var síðan nálægt því að skora í sínum fyrsta leik þegar hann fékk óvænt boltann í teignum á síðustu mínútunni en aðþrengdur skaut hann rétt yfir. Paul Ince og Ryan Giggs voru bestu menn United í leiknum en Colin Hendry var yfirburðarmaður hjá Blackburn. frá Andy Hinchcliffe á 2. mínútu. Furguson skallaði aftur í netió fyr- ir leikhlé en markið var dæmt af þar sem hann þótti koma of ná- lægt Nigel Martyn, markverði Pal- ace. I seinni hálfleik sótti Palace meira en Neville Southall varði oft vel. Paul Rideout bætti öðru marki við fyrir Everton á 54. mín- útu eftir að Martyn hafói hætt sér út úr vítateignum til að hreinsa frá en skaut beint í Rideout sem átti auóvelt með aó klára dæmið. Varnarmaðurinn Chris Coleman gaf gestunum von þegar hann minnkaði muninn á 73. mínútu með skalla eftir homspymu en Ferguson sá um aó gulltryggja sigurinn á síðustu mínútunni. skoraöi Dean Saunders sigurmark- ið fyrir Villa meó skalla eftir fyr- irgjöf ífá Steve Staunton. Villa hefur nú leikið sjö leiki í röó, bik- arleikir meðtaldir, án þess að tapa. SHEFF. WED.- NEWCASTLE 0:0 Sjónvarpsleikurinn vakti ekki mikla lukku aö þessu sinni. Bleyta og mikill vindur hafði áhrif á leik- Sheffíeld Wednesday og og þrátt fyrir að báðum tækist að skapa sér ágæt færi tókst þeim ekki að skora. Chris Woods kom aftur inn í lið Wednesday eftir langa fjarveru og hann varði vel frá Robert Lee og Barry Venison í fyrri hálfleik. Guy Whittingham var marksækn- astur heimamanna og átti skot í utanverða stöngina auk þess sem hann vippaði hárfínt yfir fyrir hlé. Unglingurinn Keith Gillespie kom inná eftir hlé og hleypti meira lífi í lið Newcastle en þaó var Wednes- day sem fékk bestu færin. Sérstak- lega var Svíinn Klas Ingeson klaufskur upp við markið og Pavel Smicek varði vel frá honum í dauðafæri. FRESTAÐ Fimm leikjum var frestað í úrvals- deildinni á laugardaginn og það voru eftirtaldir leikir: Leicester- Leeds, QPR-Norwich, Southamp- ton-West Ham, Tottenham-Man. City, Wimbledon-Liverpool. 1. DEILD Middlesbrough hélt toppsætinu með því að gera 1:1 jafntefli við Grimsby. Neil Woods kom Grismby yfir á 69. mínútu og óvæntur sigur virtist í höfn þegar að Robbie Mustoe jafnaði á 88. mínútu. Notts County stendur sig vel undir stjóm Howard Kendall og sigraði Sunderlandi á útivelli, 2:1. Gary Lund skoraði sigurmark liðsins á 79. mínútu. Vamarjaxl- inn Brian Gayle skoraöi tvisvar í 1:2 tapi Sheffield United gegn Bristol City en annað markið var sjálfsmark. Ulfarnir gátu ekki nýtt sér að Middlesbrough gerói jafn- tefli þar sem leik liðsins við Luton var frestað. Oórum leikjum sem var frestað voru: Millwall- Swind- on, Southend-Port Vale, Stoke- Bamsley, WBA-Watford. Á sunnudaginn var stærsti leikur tímabilsins til þessa þegar tvö efstu liðin, Manchester United og Blackburn, mættust á Old Trafford. Þessa leiks var beðið með mikilli eftirvæntingu þar sem United gafst kostur á að saxa á for- skot Blackburn auk þess sem dýrasti leikmaður Bretlands- eyja, Ándy Cole, lék fyrsta leik sinn með United. Leikurinn byrjaði mjög fjörlega og ekki voru liónar tvær mínútur þegar fyrsta dauðafærið leit dags- ins ljós og þaö fékk Andy Cole. Hann komst óvænt einn gegn markverði en boltinn skoppaði of hátt og skotið frá Cole fór fram- hjá. United hélt áfram að sækja og Brian McClair og Ryan Giggs komust báðir einir gegn Tim Flo- wers en brást báóum bogalistin. McClair vippaði yfir en Flowers varði frá Giggs. Það sem eftir lifói fyrri hálfleiks sótti United en leik- menn liðsins virtust ragir vió að skjóta og þegar skotin komu voru þau máttlítil. Bestu færin komu á síðustu mínútu hálfleiksins þegar Roy Keane og Paul Ince voru báð- ir nálægt því aó skora. Blackbum kom greinilega til aó verjast og Alan Shearer var einn frammi á meðan Chris Sutton bakkaði aftur á miðjuna. Eftir hlé var vörn Blackbum þéttari og lið- Alan Shearer var óvenju slakur á sunnudaginn. IPSWICH-CHELSEA 2:2 Ipswich hafði unnið tvo deildar- leiki í röó þegar liðið mætti Chels- ea og nýi framherjinn þeirra, Lee Chapman, varð að gera sér að góðu sæti á varamannabekknum. Eina markverða færið framan af kom á 8. mínútu þegar að Adrian Paz skallaði rétt yfir þverslána hjá Chelsea. Fjörið byrjaði síðan fyrir alvöru þegar 25 mínútur voru til leiksloka. Chelsea hefur aðeins náð tveimur sigrum í síóustu 14 leikjum og taldi að lukkan hefði gengió þeim í lið þegar að Mark Stein skoraði fyrsta markið á 67. mínútu, gegn gangi leiksins. Lee Chapman kom inná á 72. mínútu og tveimur mínútum síðar lagði hann upp jöfnunarmarkið fyrir Stuart Slater. Á 79. mínútu komst heimaliðið síðan yfir þegar að Nigel Spackman felldi Slater inn- an vítateigs og gamla kempan John Wark skoraði úr vítaspym- unni. George Burley, nýja fram- kvæmdastjóranum hjá Ipswich, var ekki rótt þegar frændi hans, Craig Burley, kom inná sem vara- maóur hjá Chelsea og sex mínútur voru enn til leiksloka. Burley yngri var fljótur að setja mark sitt á leikinn og kom boltanum í netið eftir aðeins tvær mínútur en mark- ið var dæmt þar sem Paul Furlong hafði brotið af sér skömmu áóur. Furlong náði þó ekki að koma í veg fyrir að Burley næði að skora jöfnunarmarkið þeg- ar tvær mínútur voru til leiksloka. Það gerði hann meó fallegu skoti Duncan Ferguson skoraði tvö fyrir Everton gegn Palace. af vítateigslínu og eyðilagði þar með sigurgöngu frænda síns. N. FOREST- ASTON VILLA 1:2 Aston Villa nældi í sinn fyrsta úti- sigur undir stjóm nýja fram- kvæmdastjórans, Brian Little. Villa pressaði vel á heimamenn strax í byrjun og tók verðskuldaða fomstu á 33. mínútu þegar að John Fashanu potaði inn af stuttu færi eftir góða fyrirgjöf frá Steve Staunton. Dean Saunders var ná- lægt því að bæta við í tvígang snemma í seinni hálfleik og síðara skotið hafnaði í samskeytunum en skoppaði út á völlinn. Forest spil- aði hratt upp völlinn og sóknin endaði hjá Bryan Roy sem féll í vítateig Villa eftir samstuð við Ugo Ehiogu. Dómarinn dæmdi vítaspymu og þótti það nokkuð harður dómur. Markahrókurinn Stan Collymore tók vítið og skor- aöi af öryggi 12. mark sitt á tíma- bilinu. Rúmum tíu mínútum síðar Úrslit Úrvalsdeild: miuiu v“/'Vi ðviwi vf.ji Everton-C. Palace 3:1 Ipswich-Chelsea 2:2 N. Forest-Aston Villa 1:2 Sheff. Wed.-Newcastle 0:0 Man. Utd.-Blackburn 1:0 1. deild: Bolton-Charlton 5:1 Bristol City-Sheff. Utd. 2:1 duhiicj'*ivcí Middleshroi Sunderland Derby-Ports Tranmere-C Staðan: Úrvalsdeild. Blaekburn Man. Utd. lUlllg x,u jgh-Grímsby 1:1 NottsCounty 1:2 mouth 3:0 lldhain 3:1 2417 4 3 5219 55 25 16 5 4 46 20 53 jLiverpooi Newcastle N. Forest i«j o zu 2411 9 4 4125 42 2512 6 7372842 Tottenham VVimbledon Leeds Z4 11 6 / 51 55 iy 24 10 5 9303835 23 9 7 7292734 'iC O O Q11 11 '11 ÖHul. VV vU« Norwich •3 ö / u 31 *I1 24 9 6 9 22 24 33 Arsenal 25 8 8 9282732 Chelsea Man. City 24 8 7 9323331 24 8 7 9333831 vc í ia oinciö /Vsluil V llUt Southamptc QPR 0 1U V ji 55 Zð n 24 6 10 8 34 39 28 23 7 610354027 Áa 'ÍC < G 11 1ö 'ÍC 'iK crysiai raia Everton lCc Z5 u ð 11 lð Z5 4« 24 6 8 10253326 'iC <01101 A1 0< coventry Wcst Ham Z5 0 o 11 l\ 41 ZO 24 7 4 13223025 Ipswich 25 5 515284920 Lcicester 24 3 61522 4315 1. deild: Middlesbro jgh 2714 7 6312549 Wolves 27 14 5 8 49 34 47 Bolton 28 13 8 7 44 30 47 Tranmere 28 13 7 8 4331 46 Reading 2812 8 8332744 Sheff. Utd. 28 11 9 8 44 3142 Barnsley 26 12 5 9323141 Derby 27 10 9 83327 39 Grimsby 27 911 7 4037 38 Oldham 2810 810383638 Watford 27 911 728 28 38 Luton 27 10 71036 34 37 Millwall 26 9 9 8333136 Stokc 26 9 8 9283135 Southcnd 27 10 5 12 2846 35 WBA 27 9 7 11253334 Charlton 27 8 9 10414533 Sunderland 27 613 8272731 Portsinouth 28 7 912284130 Swindon 26 7 811 34 42 29 PortVale 25 7 711303428 Burnley 25 6 9 10 27 36 27 Bristol City 28 7 615223727 Nolts Counl y 27 6 615273724

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.