Dagur - 24.01.1995, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 24. janúar 1995 - DAGUR - 11
í minningu þjóðskáldsins
Laugardaginn 21. janúar voru
liðin eitt hundraó ár frá því
að fæddist í heiminn sá
maður, sem ef til vill má kallast
síðasta skáldið í flokki orósins
snillinga á vora tungu, sem meó
réttu geti borið heitió þjóöskáld.
Þessi maður var Davíð Stefánsson
frá Fagraskógi viö Eyjafjörð. I til-
efni þessa var ýmislegt gert til
þess að minnast skáldsins. Sam-
koma var í Davíðshúsi á Akureyri
og önnur í kirkjunni á Möóruvöll-
um í Hörgárdal, þar sem Davíð
var jarðsettur árið 1964. Að
kvöldi minningardags skáldsins
frumsýndi svo Leikfélag Akureyr-
ar uppsetninguna sína á verkinu A
svörtum fjöðrum, sem Erlingur
Sigurðarson hefur unnið upp úr
ljóðum Davíðs Stefánssonar.
Leikstjóri uppsetningarinnar er
Þráinn Karlsson og hannaði hann
einnig sviðsmynd. Lýsing hennar
er unnin af Ingvari Bjömssyni.
Tónlistarstjóri er Atli Guðlaugs-
son, en búningahönnun verk Olaf-
ar Kristínar Sigurðardóttur.
Höfundur leikverksins A svört-
um fjöörum, Erlingur Sigurðar-
son, er íslenskufræóingur og
kennari vió Menntaskólann á Ak-
ureyri og Háskólann á Akureyri.
Verkið er lipurlega saman sett og
af verulegri kúnst. Það hefur ljóð
Davíðs að jafnt uppistöóu sem
ívafi. Erlingur notar vísur og
hendingar og einnig ljóð í heild
sinni. Beina framsögn og sunginn
flutning brýtur hann upp með
leikinni túlkun ljóða, sem kemur
vel út. Ur veróur sýning, sem er á
flestan veg grípandi og áhrifarík.
Ekki er um eiginlegan sögu-
þráó að ræða. Erlingi hefur hins
vegar tekist að byggja upp feril,
sem liggur frá leit og upphafi, þar
sem skáldið þreifar fyrir sér í list
sinni og veröldinni, rís í róman-
tískan hápunkt, þar sem ástin er
lofuð og sköpunarþróttur skálds-
ins er sem gjöful og tær lind, og
liggur til þcss tíma, er skáidið tek-
ur að efast um erindi sitt, því
finnst flugið tekið að förlast og
hugurinn leitar á heimaslóðir svo
sem í sókn eftir rökum tilverunn-
ar. Þetta ferli þjónar vel því mark-
miði að bera fram list skáldsins
frá Fagraskógi og láta hana njóta
sín sem samfellu, þar sem unnt er
að nema hana í ríkum fjölbreyti-
leika sínum sem lifandi streymi
vaxandi þroska og dýptar.
Það er Aðalsteinn Bergdal, sem
fer meó hlutverk Davíðs Stefáns-
sonar. Hann hverfur aldrei af svið-
inu og cr burðarásinn í verkinu,
svo sem vænta má. Aðalsteinn
gerir vel og iðulega meira er svo.
Hlutverkið gel'ur ekki tilefni til
mikilla leikrænna tilþrifa í hreyf-
ingum eða fasi, en framsögn Að-
alsteins er fjölbreytt og innlifuó
og honum tekst prýðilega aö halda
áhorfendum föngnum með radd-
túlkun einni og hóflegum tilburð-
um, sem falla vel aó því, sem flutt
er hverju sinni. í söng beitir Aðal-
steinn mikilli rödd sinni hóflega
og nær góðum hrifum.
Rósa Guðný Þórsdóttir fer með
hlutverk Konunnar. Rósa flytur
texta sinn, ljóð Davíðs, af næmri
tilfinningu og förlast helst ekki.
Með hóflegu fasi og innlifaóri
framsögn nær hún anda verkanna
á áhrifaríkan en látlausan hátt.
Sigurþór Albert Heimisson fer
með hlutverk Mannsins. Hann á
marga ágæta spretti ekki síst í
leikfluttum atriðum. Framsögn
hans fellur víðast vel að efninu, en
fyrir kemur, að hún er heldur yfir-
drifin og vcrður á stundum allt að
því hranaleg, þar sem slíkt á ekki
meira en svo við.
Dofri Hermannsson fer með
hlutverk Æskumannsins. Hann
gerir tíðast vel og nær almennt
góðri dýpt í túlkun sína. Fyrir
kemur, að fas hans er heldur yfir-
drifió og klisjukennt, einkum í
seinni hluta sýningarinar, en í
heild er greinilegt af frammistöðu
Dofra í þessari uppsetningu, að
hann er í framför í list sinni.
Bergljót Amalds gerir einnig
vel í hlutverki Dísarinnar. A
stundum hefði innlifun hennar og
tilfinning mátt vera heldur meiri,
en hún átti mjög góða spretti. Fas
Bergljótar er á stundum nokkuð
staðlað, en henni tekst talsvert vel
að brjótast út úr klisjum í leiknum
flutningi, sem fer henni í heild vel
úr hendi.
Þórey Aðalsteinsdóttir kom
fram sem fulltrúi nútímans. Hlut-
verkið er smátt, en Þórey skilaði
Á styrktartónleikum sr. Péturs
Þórarinssonar í Laufási sem
haldnir voru á Grenivík, í Sval-
baróskirkju og Hlíðarbæ söfnuó-
ust kr. 305.500, þar meö talin gjöf
sem barst frá Lionsklúbbi Húsa-
víkur kr. 30 þúsund.
Á aðalfundi kjördæmisráðs Al-
þýðubandalagsins á Norðurlandi
eystra sl. sunnudag var eftirfar-
andi ályktun um atvinnumál sam-
þykkt:
„Kjördæmisráó Alþýðubanda-
lagsins á Norðurlandi eystra lýsir
þungum áhyggjum yfir ástandi at-
vinnumála á Norðurlandi eystra
og um land allt. Enn á ný er at-
vinnuleysi í landinu öllu mest á
Akureyri og Norðurlandi eystra,
eins og verió hefur um árabil.
Þrátt fyrir þetta hefur ríkt algert
tómlæti og aðgerðaleysi af hálfu
stjómvalda gagnvart þessum
landshluta. Kjördæmisþing Al-
þýðubandalagsins mótmælir að-
gerðaleysi ríkisstjómar Davíðs
Oddssonar í atvinnumálum og
því snyrtilega.
í hlutverkum Innri radda voru
Þráinn Valdimarsson og Viðar
Eggertsson og í hlutverki
LEIKLIST
HAUKUR ÁCÚSTSSON
SKRIFAR
Karlakór Akureyrar-Geysi,
Mánakómum, Passíukómum,
stjómendum þeirra, einsöngvurum
og hljóðfæraleikurum eru sendar
hjartanlegar þakkir. Svo og öllum
öðrum sem stuðluðu að því á einn
eða annan hátt að gera þessa tón-
hvetur til þess að stórfellt átak í
þeim efnum verði forgangsverk-
efni nýrrar ríkistjómar. Markmið-
Laugardaginn 28. janúar kl. 13.30
halda Margrét Kristinsdóttir og
Þórunn Kolbeinsdóttir námskeið á
vegum matreiðsluklúbbs Vöku-
Helgafells, Nýrra eftirlætisrétta, í
gerbakstri þar sem þær kenna
grunnaðferðir í bakstri á mat- og
sætabrauði úr pressugeri. Nám-
skeið þeirra Margrétar og Þórunn-
Draumakonunnar var Sunna Borg.
Þessi hlutverk eru smá en voru
natnislega unnin.
Söngflokkur í sýningunni er
skipaður Atla Guðlaugssyni, Jó-
hannesi Gíslasyni, Jónasínu Am-
bjömsdóttur og Þuríði Baldurs-
dóttur. Undirleik annaöist Birgir
Helgason og var hann smekklega
unninn. Hins vegar var söngflokk-
urinn sjálfur hinn veiki hlekkur
uppsetningarinnar. Hann náði
sæmilega saman á „vókalíser-
ingu“. Á sungnum texta féllu
raddimar hins vegar engan veginn
nógu vel saman saman og mynd-
uðu fyrir vikið ekki viðhlítandi
heild. Söngur var þó hljómhreinn
og greinilega vel æfður hvað snerti
innkomur, takt og hraða. Hvað
bestur var sólóflutningur Þuríðar
Baldursdóttur í nokkmm lögum.
Þráinn Karlsson, leikstjóri og
sviðsmyndarhönnuður, hefur unn-
ið verk sitt vel. Sviðhreyfingar eru
góóar og markvissar. Leikin túlk-
un ljóða er víða skemmtilega
myndræn og gengur vel upp. Þessi
atriði nýttust vel til þess ap auka
fjölbreytni sýningarinnar. Á sama
hátt er sviðsmynd Þráins vel unn-
in. Hún er einföld en afar full-
nægjandi og nýtur sín vel í lýs-
ingu Ingvars Bjömssonar.
Það er vel, aö minnst sé þjóð-
skáldsins Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi með veglegum hætti.
Ljóð hans hafa farið óþarflega lágt
undanfarin ár og er það að óverð-
ugu. I list sinni náði hann á sinni
tíð til þjóðarinnar sem næst allrar.
Hún kunni fjölda kvæóa hans og
tónskáld kepptust um aó semja
lög við mörg þeirra. Á seinni ár-
um hafa nálega einungis hin lag;
settu ljóð verið á vörum manna. I
því aó vekja athygli á verkum
skáldsins frá Fagraskógi hafa
Erlingur Sigurðarson og Leikfélag
Akureyrar unnið gott verk. Von-
andi verður það að einhverju til
þess að ljóð hans skipi þann sess
með þjóðinni, sem þeim er verð-
ugur.
leika framkvæmanlega, að
ógleymdum tónleikagestum og
þeim sem sendu peningagjafir.
Hafið öll þökk fyrir framlag
ykkar og ómetanlegan stuðning.
Fyrir hönd framkvæmdanefndar.
Gígja Kjartansdóttir.
ið verði aö útrýma því atvinnu-
leysi sem komið hefur til sögunn-
ar á þessu kjörtímabili.
ar eru eftirsótt og skemmst að
minnast grillnámskeióa þeirra á
liðnu sumri þar sem færri komust
að en vildu.
Kennt er í Aðalstræti 82 og fer
skráning fram þar í síma 96-
13060. Almennt verð er 3000
krónur en klúbbfélagar greiða
2400 krónur. (Fréttatilkynning)
Þakkarorð vegna
styrktartónleika
Alþýðubandalagið á Norðurlandi eystra:
Alyktun um atvínnumál
Námskeið í gerbakstri
á Akureyri
Sýslumaðurinn á Akureyrl
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri,
slmi 96-26900
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu emb-
ættisins að Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri, föstudaginn 27. Janúar 1995
kl. 10.00, á eftirfarandi eignum:
Böggvisbraut 10, Dalvík, þingl. eig.
Guðmundur Jónsson og María
Jónsdóttir, gerðarbeiðandi (slands-
banki hf.
Eyrarlandsvegur 12, efri hæð, Ak-
ureyri, þingl. eig. Karl Sigurðsson,
gerðarbeiðandi Búnaðarbanki ís-
lands.
Gránugata 14, hesthús og hlaða,
Akureyri, talinn eig. Halldór I.
Tryggvason, gerðarbeiðandi Sýslu-
maðurinn Sauðárkróki.
Hafnarstræti 17, Akureyri, þingl.
eig. Hólmsteinn Aðalgeirsson,
gerðarbeiðendur Akureyrarbær,
Lífeyrissjóður Norðurlands og Líf-
eyrissjóður múrara.
Höfn II. Svalbarðsströnd, þingl. eig.
Soffía Friðriksdóttir, gerðarbeið-
endur Byggingarsjóður ríkisins,
Landsbanki fslands, Sýslumaður-
inn á Akureyri, Vátryggingafélag ís-
lands hf. og íslandsbanki hf.
Karlsbraut 7, Dalvík, þingl. eig. Sig-
urjón Kristjánsson, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins.
Kaupangur v/Mýrarveg A-hluti, Ak-
ureyri, þingl. eig. Soffía Friðriks-
dóttir, gerðarbeiðendur Akureyrar-
bær, Húsfélagið Kaupangi og P.
Samúelsson hf.
Keilusíða 12H, íb. 204, Akureyri,
þingl. eig. Guðrún Petra Eiríksdótt-
ir, gerðarbeiðendur Akureyrarbær,
Byggingarsjóður verkamanna og
Vátryggingafélag íslands hf.
Melasíða 1b, íb. 102, Akureyri,
þingl. eig. Gísley Hauksdóttir, gerð-
arbeiðandi Byggingarsjóður verka-
manna.
Melasíða 6b, íb. 102, Akureyri,
þingl. eig. Ingvar Kristjánsson,
gerðarbeiðendur Vátryggingafélag
Islands hf. og íslandsbanki hf.
Móasíða 9a, Akureyri, þingl. eig.
Stefán Haukur Jakobsson, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður verka-
manna.
Skarðshlíð 38c, Akureyri, þingl. eig.
Jóhanna Þorkelsdóttir, gerðarbeið-
endur Landsbanki (slands og ís-
landsbanki hf.
Sólheimar I, Akureyri, þingl. eig.
Haukur Jóhannsson, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður ríkisins.
Sunnuhlíð 12, V-hl., Akureyri, þingl.
eig. Pálína sf., gerðarbeiðendur Is-
landsbanki hf. og Lífeyrissjóður
verslunarmanna.
Sýslumaðurinn á Akureyri
23. janúar 1995.
Mörg börn leika sér á svokölluðum hjóla-
brettum.
Þáð er I góðu lagi, séu þau ekki á þeim í
umferðinni.
Einnig er ástæða til aö mæla með notkun
hlífðarbúnaðar, sérstaklega hjálma.