Dagur - 24.01.1995, Blaðsíða 15

Dagur - 24.01.1995, Blaðsíða 15
DAGDVELJA Þriðjudagur 24. janúar 1995 - DAGUR -15 Stjörnuspá eftir Athenu Lee Þrlbjudagur 24. janúar f Vatnsberi (30. jan.-18. feb.) J I dag upplýsast leyndarmál e5a ráðgátur sem skilja eftir sig sár. Nú er rétti tíminn til ab ræða fjöl- skyldumálin niöur í kjölinn. <5 Fiskar (19. feb.-20. mars) ) Feröalög og vinátta eru nátengd í dag og hvers konar athafnir þessu tengdu eru af hinu góöa. Leitaöu samstarfs hjá vinnufélögum í dag. Hrútur (21. mars-19. apríl) Ef þú gerir ekki of miklar vænting- ar mun þessi dagur veröa einkar ánægjulegur. Láttu metnaðarfull- ar hugmyndir þínar bíða um stund. (W Naut (20. apríl-20. maí) D Þú dregst inn í málefni annarra um stundarsakir sem leiðbein- andi. Ef þú blandar þér dýpra í málið verður það sjálfum þér í hag. (M Tvíburar (21. maí-20. júm') 1 Þú ert of örlátur og bíður fram hjálp þína án þess að hugsa um afleiðingar þess. Fundur um miðj- an dag mun skila ríkulegum ár- angri. Œ. Krabbi (21. júní-22. júlí) 3 Vertu viðbúinn mótlæti í einkalíf- inu. Ef þú gengur of langt í að ná þínu fram máttu búast við and- stöðu við hugmyndum þínum. (<mépijón 'N yfV>TV (23. júli-22. ágúst) J Þú verður feginn þegar líður á vik- una að hafa ætlað þér rúman tíma til að gera það sem gera þarf. Leitaðu félagsskapar hjá bjartsýnum vinum. (K Meyja (23. ágúst-22. sept, D Þér sárnar í morgunsárið en þegar málin skýrast máttu búast við að allt snúist þér i hag. Kvöldið verð- ur einkar rómantískt. \jir ~Ur (25- sept.-22. okt.) J í dag mun þér reynast auðveldast að framkvæma verkin á eigin spýtur. Aðrir sem ekki eru eins ákafir munu bara draga út þér kjarkinn. CXÆLL SporödrekiD rmU (83. okt.-21. nóv.) J Þetta er ekki rétti tíminn til að vera með tilraunastarfsemi svo haltu þig með fjölskyldunni í dag ef þú getur. Kvöldið færir þér auk- ið sjálfstraust. (Bogmaður D X (22. nóv.-21. des.) J Kringumstæður gera að verkum að þér virðist allt ganga á aftur- fótunum. Þetta kemur berlega í Ijós seinni hluta dagsins. Þú færð góðar fréttir af fjölskyldunni. Steingeit D (22. des-I9. jan.) J Þú ert upptekinn af hversdagsverk- unum sem er ágætt því þér veitir ekki af auknum tíma næstu daga. Skrifaðu hjá þér þaö sem þú þarft að gera til að gleyma því ekki. Ahrifin á sjónvarpsáhorfendur eru vitaskuld fyrirsjáanleg! Sko, NÆSTUM því fyrirsjáanleg!... Þeir eru æði elskan! Ég er hætturaðsvitna... er orðin niu sentimetrum hærri og ég tala eins og Hemmi Gunn! Ég myndi segja það. Hvaða sjónmiðill sem er hefur þann eiginleika að hjálpa til við vits- munaþróun... Á léttu nótunum Hrossatabsskothríb Presti varð einu sinni í miðri ræðu litið upp á kirkjuloftið. Honum brá held- ur en ekki í brún, þegar hann sá að yngsti sonur hans hafði komið sér þar fyrir með stóreflis hlaða af hrossataði og lét skothríðina dynja á söfnuðin- um niðri í kirkjunni. Áður en prestur kom nokkru orði upp í undrun sinni og skelfingu, hóf stráksi upp raust sína: „Haltu bara áfram með ræðuna, pabbi. Ég skal halda þeim vakandi á meðan." Afmælisbarn dagsins Orbtakib E-ð brennur e-m á baki Merkir að eitthvað verður einhverjum til ills, bölvunar. Orð- takið er kunnugt frá 18. öld. Sennilega er líkingin runnin frá einhverri refsingu. Tækifærin sem bjóðast þér á komandi ári munu berlega sýna að þú hefur hingað til ekki nýtt hæfileika þína til fulls. Þessi upp- götvun mun gera þig metnaðar- gjarnari og leiða mjög gott af sér. Ástarmálin eru laus í reipunum. Þetta þarftu ab vita! Framlag trjánna Trén leggja mikið af mörkum til aö viðhalda jafnvægi andrúms- loftsins með því að auka loftrak- ann. Þannig gufa 40-95 lítrar vatns upp af einu eikartré á hverjum sólarhring. Spakmælib Samviska Samviskan er áttaviti sem alltaf þarf að vera í lagi. (H.Redwood) &/ STORT I Heitt í kolunum Feyklr fjallar um þá um- ræðu sem spannst í kringum til- lögu Önnu Kristínar Gunnarsdótt- ur, bæjarfull- trúa, á fundi bæjarstjórnar Sauðárkróks nýlega. Þar er gert ráö fyrir því að færa vinnu við endurskoðun bæj- arreikninganna, frá Reykjavík til Sauðárkróks. í umræðunni ýjaði Anna Krlstín að því aö þeir Björn Sigurbjörnsson, formaður bæjarráðs, og Snorri Björn Sigurðsson, bæj- arstjóri, létu persónuleg vina- tengsl ráða þeirri ákvörðun að vlðhalda þelm samningl sem er í gangi. • Margir abilar í viöskiptum Tillagan náðl ekki fram að ganga og rök meirihlutans voru m.a. þau ab ekki væri gáfulegt ab skipta um endur- skoðendur bara til þess að skipta. Einnlg kom fram ab Endurskoðun hf. á Sauöár- króki væri meb marga abila í viöskiptum, bæbi stór fyrir- tækl á Saubárkróki og víbar og því þætti ekki heppilegt að Sauðárkróksbær bættist þar vib, þab gætl valdið rugl- ingi. Hilmir Jóhannesson á K- lista beitti aðallega þessum rökum en hann sagbi jafn- framt að sjálfsagt væri hægt að færa fyrir því gild rök að þetta þyrftl ekkl ab valda ruglingi. Anna Kristín sagði ab Endurskoðunarskrifstofa Sveins og Hauks í Reykavík væri trúlega einnig með fjöl- marga viðskiptavini og því væri svona röksemdarfærsla einungis til þess fallin ab kasta rýrö á starfsmenn End- urskoðunar hf. • Saman í lax Anna Kristín fór þá að tala um ab sér væri kunnugt um ab Sveinn Jónsson end- urskoðandi í Reykjavík, Bjöm for- maður bæjárráðs og Snorri Björn bæjarstjóri, færu saman í laxveiðitúra og væru allir frí- múrar. Bæði Björn og Snorri Björn reiddust þessum ab- dróttunum og bæjarstjóri sagbi það langsótt ab rekja vlnatengsl sín við Sveln til laxvelbitúra, því það væru líklega oröln 5 ár síban þeir fóru sfðast saman í lax. Snorri Björn sagðist vera frímúrari og það væri Björn líka en sér værl ekkl kunnugt um ab Syelnn væri ( reglunni og skoraði hann á Önnu Kristínu að sanna það. Hún vitnaöl í bókina Bræðrabönd og þar stæbl ab Sveinn væri frímúr- arl. Björn sagbl að Anna Kristín ætti að skammast sín og ab gjörsamlega væri for- kastanlegt ab sitja undir slík- um dylgjum, enda málflutn- ingurinn hreint og beint sví- viröilegur. Umsjón: Kristján Kristjánsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.