Dagur - 25.01.1995, Síða 4
— LEIÐARI-----------------------
Htríngur á olíusölumarkaði
'jl - DAGUR - Miðvikudagur 25. janúar 1995
f
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓUFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285),
KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON (Iþróttir).
LJÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Óhætt er að segja að Irwing-feðgar hafi hrært svo um
munar upp í stöðnuðu kerfi olíuverslunar á íslandi. For-
svarsmenn Skeljungs, Olíufélagsins og Olís skjálfa á
beinunum og vita ekki sitt rjúkandi ráð. Þeir eru hrædd-
ir, þeir óttast samkeppnina og keppast nú allt í einu við
að lækka verð á oliu og bensíni.
Því hefur löngum verið haldið fram og það með réttu
að á íslenskum olíumarkaði hafi ekki ríkt samkeppni. Þar
hefur fákeppni og samráð um verðlagningu verið aOs-
ráðandi. Verðlagið hefur fyrst og fremst verið við það
miðað að olíufélögin högnuðust sem mest þannig að
unnt yrði að byggja fleiri dýrar bensinstöðvar. Olíufé-
lagsmenn komust loks að því hér á dögunum að þeir
gætu lækkað verð á bensíni með hagræðingu í rekstri og
auðvitað komust forsvarsmenn hinna félaganna að
sömu niðurstöðu. Og síðasta útspilið í olíustríðinu er
stofnun nýs olíusölufélags með þátttöku Skeljungs, Bón-
uss og Hagkaups sem hefur það á stefnuskránni að
bjóða neytendum á höfuðborgarsvæðinu lægra bensin
en hin félögin. Skeljungur ætlar sem sagt að selja hinu
nýja oliusölufélagi olíu og bensín á heOdsöluverði en sel-
ur hins vegar olíuvörur á sínum eigin útsölustöðum á
gamla verðinu. Og hver skyldi skýringin vera á verðmun
á væntanlegum bensínstöðvum Bónuss og Hagkaups og
öðrum bensínstöðvum? Jú, rekstrarkostnaðurinn við
bensínstöðvar oOufélaganna um aOt land er sagður svo
mikiO að ekki reynist unnt að lækka verðið!
AOt þetta mál varpar rækilega ljósi á það óhagkvæma
og löngu úrelta kerfi sem hér á landi hefur ríkt um árabil
í sölu á oUuvörum. Landsmenn hafa horft agndofa á for-
svarsmenn olíufélaganna koma fram í fjölmiðlum síð-
ustu daga til að gefa hinar furðulegustu skýringar á því
að þeir hafi loksins fengið guOið tækifæri til að lækka
verð á olíu og bensíni. Opinberlega hafa þeir að sjálf-
sögðu ekki viljað viðurkenna þá staðreynd að titringur
þeirra stendur í beinu sambandi við fyrirætlanir kanad-
íska félagsins Irwing-oil um að hefja rekstur hér á landi.
Loksins er að renna upp fyrir íslenskum oOufurstum að
fákeppnin er brátt úr sögunni og framundan er hörð
samkeppni á þessum markaði. Neytendur hafa lengi
beðið eftir þeirri stundu að oOufélögin kepptust við að
ná tO viðskiptavinanna með þvi vopni sem aOur heO-
brigður rekstur beitir, verðlaginu. Loksins er sú stund að
renna upp - þökk sé kanadískum Irwing-feðgum.
LESENÞAHORNIÐ
„Hvað boðar nýárs óborna tíð?“
Blaðinu hafa borist eftirfarandi tvö Ijóó frá Jóhanni
Þorvaldssyni á Siglufirði:
Við áramót, 1. janúar 1995
Hvað boðar nýárs óborna tíð?
Boðar hún frið, eða endalaust stríð?
Því rœður mest hvar maðurinn stendur,
með mannelsku sína, á báðar hendur.
Víst er að maðurinn rœður miklu,
með hjálp, að ofan, afhöndinni styrku.
Þá færir nýárið gjafir hins góða,
gleði ogfrið til allra þjóða.
Þá rœtast óskir góðra granna,
sem góðvild og gjafir líka sanna.
Það œtti ráðendur að láta meta,
leiðrétta ójöfnuð eins og þeir geta.
Eftirfarandi mælir æska Islands, er lék sér í fjöru eða
við fjall fyrstu áratugi tuttugustu aldar. Öldinni er
geymir spor og verk okkar í meira en sjö eóa átta ára-
tugi. Gjaman vildi ég, ef Guð lofar, fylgja henni á
leiðarenda. Sjá hin góðu verk unnin. Græða, rækta og
klæða Iandið. Sjá alfrjálsa þjóð og ísland í litríkum
lifandi jarðarskrúða. Þaó er okkar framtíðarsýn og
óskadraumur.
Verk að vinna. Framtíðarsýn
Grœðum landið, grœðum fólkið,
græðum allt sem lífið ól.
Klæðum sandinn, klæðum hraunið,
klæðum allt sem vantar skjól.
Greiðum skuld og græðum sárin,
gerum landið vistarvænt.
Þá fer saman, um ókomin árin,
alfrjáls þjóð og landið grænt.
Þá rætist íslands óskadraumur,
um ásýnd lands og farsæld manns.
Þá rætist fólksins frjálsi draumur,
um fegurð lífs og óskir manns.
Er litum yfir liðna daga,
Ijómar sólskinsbros um vanga.
Það verður Islands ástarsaga,
því æskan feðraslóð mun ganga.
Enn um „neðanmittis-
húmor“ Heimismanna
Vandið
moksturinn
Reiður íbúi í Lækjargötu
hringdi og vildi kvarta undan
snjómokstri í götunni. Þannig væri
staóið aö málum að á hverjum
degi þegar hann kæmi heim úr
vinnunni þyrfti hann að byrja á að
moka sér leió inn í íbúóina í gegn-
um snjóruðning sem væri fyrir
dyrunum inn í húsiö. Sömuleiðis
væri rutt fyrir innkeyrslu á bíla-
plani ofar við götuna þannig að
fólksbílar ættu litla möguleika á
að komast þar um áfallalaust.
Saga af jóladiski
Anna Scheving hringdi: „Ég
fékk aó gjöf jóladisk sem var
keyptur í gjafavörubúð í Hafnar-
firöi. A milli jóla og nýárs fór ég í
Kristalbúðina á Akureyri og
spuróist fyrir um hvort ég gæti
ekki fengið að skipta diskinum þar
sem ég hafði áóur keypt alveg
eins disk í þeirri búð. Afgreiðslu-
stúlka í Kristalbúðinni neitaði að
taka við diskinum á þeim forsend-
um að hann væri ekki keyptur þar
og forsvarsmenn Tékkkristals í
Reykjavík hafi lagt bann við aó
slíkar vörur væru teknar til baka.
Ég hringdi í Tékkkristal og fékk
þar þær upplýsingar að þetta væri
alrangt.
Þessi framkoma þykir mér vera
til marks um óliðlegheit í hæsta
máta, ekki síst vegna þess að ég
hafði sjálf keypt slíkan jóladisk í
Kristalbúðinni. Ég hefði því alveg
eins getað skipt honum, en hins
vegar sagói ég við afgreiðslustúlk-
una að þessi umræddi diskur hafí
verið keyptur í Hafnarfirði.
Því má svo bæta vió að ég fór
með diskinn inn í Blómabúóina
Laufás og þar var ekkert mál aó fá
honum skipt.“
Snjóflóðin í Súðavík:
Það þarf að ræða
um þennan atburð
í skólanum
Kristján Stefánsson frá Gilhaga skrifar:
Að gefnu tilefni og vegna mikillar umræðu um
okkur Heimismenn. Þrátt fyrir umtalað myndefni í
sjónvarpi í byrjun ársins, þótti Heimis-mönnum að
ekki væri þar nema hálf sagan sögð. Því var þaó að
æfingarkvöld eitt nýverið var Miðgarði breytt í
myndver, þá kom glögglega í ljós misþroski meðlim-
anna, sér í lagi hinn líkamlegi. En eftir þrotlausar
samanburóaruppstillingar allt kvöldið, þótti loks hin
rétta ásýnd kórsins fundin, og blossamir leiftruðu.
I skagfirska húmorinn stundum sé stutt
er staðhœft á förnum vegi,
og skilningsrík takmörk hjá Sigríði Shiöth
við sjáum á prenti í Degi.
Hún gleymdi því blessuð, við bráðræði sitt
- er barnið hún lífið hlaut þiggja,
að karlmaður hefði til komið, og „hitt“.
En kyrrt má þó satt stundum liggja.
Víst er það ljótt, efvið lifum í synd
það lífinu skorður jú setur,
en núna er karlremban komin á mynd
sem kynnir vort sakleysi betur.
Við það að sjálfsögðu vonir ég bind
- því vel ég mitt heimafólk þekki
að Þorvaldur sendi nú Sigríði mynd
svo að hún gleymi’ okkur ekki.
Er það til bóta? efeinhver nú spur
- það efalaust dœmt sérhver getur -
þá minni ég á það að myndin er kjur,
því má hana stúdera betur.
Leitar pennavina á íslandi
Tuttugu og fjögurra ára gömul
þýsk kona óskar að komast í bréfa-
samband við hresst og skemmtilegt
fólk frá Islandi. Hún hefur mikinn
áhuga á landinu og ekki síst ís-
lenskum hestum. Auk þess hefur
hún áhuga á ferðalögum, íþróttum,
siglingum, tónlist og þúsund öðr-
um hlutum, eins og hún orðar það í
bréfi til ritstjómar Dags.
Þeir sem á annað borð hafa
áhuga á að komast í bréfasamband
við þessa stúlku geta sent henni
bréf í eftirfarandi heimilisfang:
Verna Patz
Hauptpostlagernd
D-52060 Aachen
Germany
Kona í Þorpinu hafði samband
við Dag og sagðist vera yfír sig
hissa á því aö ekki skyldi vera
umræða á milli kennara og nem-
enda í Síðuskóla á Akureyri, um
þann hörmulega atburð sem átti
sér stað á Súðavík. Hún sagðist
hafa kynnt sér hvort einhver um-
ræða hefði farið fram í skólanum
en komist að því að svo væri ekki.
„Unglingar og böm þurfa líka
að tjá sig um þessa hluti og það er
í raun nauðsynlegt fyrir þau. Þessi
umræða fer fram á öllum heimil-
um og þeir fullorðnu halda um-
ræðunni áfram á sínum vinnustað
og því er ekkert óeðlilegt við aó
böm og unglingar haldi umræð-
unni líka áfram á sínum vinnu-
stað, þ.e. í skólanum. Ég hef rætt
þetta við fleiri og þeir eru sam-
mála mér.“
Þakkir til starfs-
fólks Sjúkrahúss
Skagfirðinga
Jón Helgi Arnljótsson, Ytri-
Mæiifellsá, Lýtingsstaðahreppi,
sendi blaðinu bréf og baó fyrir eft-
irfarandi kveðju í bundnu máli til
starfsfólks Sjúkrahúss Skagfiró-
inga:
Alúðarþakkir,fyrir ykkar störf,
seni án hefði ei getað verið.
Meðan gjörða ykkar gerist þörf,
þið gœfuna ávallt berið.