Dagur - 25.01.1995, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 25. janúar 1995 - DAGUR - 7
áfangastað á Akureyri eykst ekki
strax við það að taka upp viðkom-
ur millilandaskipa á Akureyri, en
ljóst er að þaó gerist til lengri tíma
litið, Hinsvegar skapar þetta sér-
staka möguleika á að auka við-
haldsþjónustu og viðgerðir á gám-
um á Akureyri. Allir gámar sem
koma til Islands eru nú losaðir í
Reykjavík. Þar fara þeir í
forskoðun og ef gámamir eru bil-
aóir eóa skemmdir á einhvem hátt,
er gert við þá í Reykjavík. Ef milli-
landaskipin hafa viðkomur á Akur-
eyri minnkar hagkvæmnin við það
að gera við gámana í Reykjavík og
eðlilegt að þessi forskoðun færist í
auknum mæli til Akureyrar. Það er
mat EIMSKIPS að bæta þyrfti við
4 starfsmönnum á Akureyri til að
sinna þessum verkefnum.
b) Akureyri sem
útflutningshöfn Norðurlands
Ljóst er að beinar viðkomur milli-
landaskipa EIMSKIPS á Akureyri
munu skapa Akureyri töluverða
sérstöðu á Norðurlandi. Þróunin í
flutningum hefur verið sú að viö-
skiptavinurinn krefst ætíö sem
styst flutningstíma og því er lík-
legt aö hagkvæmt geti orðið að
flytja vöru af Norðurlandi í aukn-
um mæli um Akureyri.
Útflutningur EIMSKIPS frá
Norðurlandi nam 68 þúsund tonn-
um árió 1994 og þar af voru flutn-
ingar frá Akureyri 18 þúsund
tonn. Af heildarútflutningi frá
Norðurlandi var kísilgúr 24 þús-
und tonn en frystivara fyrir SH 19
þúsund tonn.
Til meginlands Evrópu fóru
31.300 tonn, til Bretlands 17.700
tonn, til Noróurlandanna 10.200
tonn, til Austurlanda íjær fóru
6.800 tonn og 2.000 til Bandaríkj-
anna.
Til greina kemur aó safna þess-
ari vöru aó talsveróu leyti til Ak-
ureyrar. Nærtækast er að skoóa
fyrst að flytja vöruna frá Siglu-
firði, Ólafsfirði og Dalvík til Ak-
ureyrar í veg fyrir millilandaskip-
ið. Þaó yrói annað hvort gert með
strandflutningsskipi eða með bíl-
um eftir því hvort er hagkvæmara.
Líklegast yrði vara frá Ólafsfirði
og Dalvík flutt með bílum en vara
frá Siglufirði yrði ýmist flutt með
bílum eða strandflutningsskipi. Til
greina kæmi einnig að flytja aðra
vöru en kísilgúr frá Húsavík og
Raufarhöfn til Akureyrar. Við
þetta mun útílutningsmagn frá
Akureyri um það bil tvöfaldast.
Þar sem Jöklar hf. hafa um
langt skeið stundað beina flutn-
inga milli Akureyrar og Banda-
ríkjanna og Kanada bjóða Jöklar
hf. og Eimskip þar með beina
flutninga til allra helstu útflum-
ingsmarkaða.
Aukning þessi mun kalla á auk-
in umsvif í starfsemi EIMSKIPS á
Akureyri. Koma þyrfti upp frysti-
geymsluaðstöðu í tengslum við
vöruafgreiðslu félagsins til að
tryggja rétta meðhöndlun frystivör-
unnar og einnig myndi akstur og
önnur þjónusta á svæðinu aukast.
Þaó er mat EIMSKIPS að fé-
lagið þyrfti að bæta við 5-6 starfs-
mönnum á Akureyri vegna þessa.
Þaó er ljóst að 10 ný störf hjá
Eimskip er aðeins lítill hluti þess
hags, sem fæst af auknum umsvif-
um í innflutningi og útflutningi á
Akureyri. Helmingsstytting þess
tíma sem tekur að koma vöru á
markað er mjög þýðingarmikið
hagsmunamál fyrir alla atvinnu-
starfsemi á Norðurlandi. Marg-
feldisáhrif þess að Akureyri verði
miðstöð slíkra flutninga eru einnig
mjög mikil.
4. Háskólinn á Akureyri
a) Bæjaryfirvöldum á Akureyri er
mikið áhugaefni að auka veg og
viróingu Háskólans á Akureyri.
SH vill stuðla að því aö háskólinn
styrki stöðu sína og fái alþjóðlega
viðurkenningu, einkum á sviði
sjávarútvegsfræði og skyldra
greina. Til að það markmið náist
þarf háskólinn aó hafa á að skipa
fjölda hæfra kennara með marg-
víslega sérfræðiþekkingu auk
góórar aðstöðu til þcirra rann-
sókna, sem nauðsynleg er til að
skólinn komist í fremstu röð.
Sjávarútvegsdeild Háskólans á
Akureyri hefur þegar vakið at-
hygli og SH lýsir yfir vilja sínum
til að stuóla að því að ofangreint
markmið náist. SH leggur til, að
það verði gert með þeim hætti, að
stofnaður verði nú þegar formleg-
ur samstarfsvettvangur milli SH
og HA um það, hvernig SH geti
styrkt kennslu og eflt rannsóknir í
greinum eins og t.d. gæðastjórnun,
markaðsfræði og vinnslutækni. Á
öllum þessum svióum hefur SH á
að skipa hæfu fólki með mikla
reynslu og viðeigandi háskóla-
menntun.
I þessu sambandi býður SH
Háskólanum á Akureyri að setja á
stofn og kosta eina prófessors-
stöðu (eða lektorsstöóu) t.d. í
markaðsfræðum sjávarafurða eða
taka þátt í samráóningum sérfræö-
inga á svipaðan hátt og HA hefur
tíðkað við rannsóknastofnanir at-
vinnuveganna.
Þá vill SH kanna við HA, hvort
áhugi væri á að verðlauna góðan
námsárangur m.a. með tækifæri til
að kynnast starfsemi á markaðs-
svæði SH.
b) Til að kanna, með hvaða
hætti HA geti náö því að öðlast
viðurkenningu sem alþjóðlegur
sjávarútvegsháskóli, er Iagt til að
SH og Akureyrarbær standi fyrir
og kosti forkönnun á því, hvers
þurfi meö. Verði niðurstaðan já-
kvæð, má búast við að frumkvæðið
gæti leitt til alþjóðlegs skóla á veg-
urn HA. Stuðningur SH við slíkan
skóla fælist m.a. í kennslu á þeim
sérsviðum, sem að ofan eru nefnd.
I því sambandi á að freista þess
að ná samstarfi við Háskóla SÞ
líkt og gerist með jarðhitadeild
Háskóla SÞ hérlendis og skapað
hefur meiri sambönd vítt og breitt
um heiminn en nokkurn óraói fyr-
ir í byrjun.
Sambönd af því tagi myndu
reynast mjög mikilvæg til frekari
alþjóðavæðingar íslensks sjávarút-
vegs og yrðu HA mikil lyftistöng.
Þau yrðu einnig, ef vel tækist til,
einn af megin burðarásum í endur-
reisn atvinnulífsins á Akureyri í
framtíðinni. Stuðningur stærsta út-
flutningsfyrirtækis landsins, sem
rekur öfluga starfsemi víða um
heim, gæti skipt sköpun, þegar tal-
að er fyrir þessari hugmynd hjá al-
þjóölegum stofnunum.
c) SH er kunnug um undirbún-
ing HA að því aö koma á fót mat-
vælamiðstöð í tengslum við há-
skólann. SH lýsir yfir vilja sínum
til aö taka upp viðræður við HA
um á hvem hátt SH gæti stutt við
starfsemi af því tagi, sem gert er
ráð fyrir að þar fari fram. í því
sambandi hefur SH sérstaklega
áhuga á að stuöla að aukinni verk-
menntun í matvælaframleiðslu úr
sjávarfangi meðal annars með
samstarfi fyrirtækja og skóla og
auknu samstarfi á ýmsum sviðum
innan matvælaiðnaöarins.
Samantekt
Hér aó framan hefur verið rakið,
hvernig SH vill mæta óskum bæj-
aryfirvalda á Akureyri í að styrkja
atvinnulíf bæjarbúa.
SH telur, aó sú lausn, sem felst í
framangreindum tillögum sé mjög
raunhæf og einnig til þess fallin að
byggja upp varanlegan atvinnu-
rekstur í iðnaði, flutningum, út-
flutningsverslun og ýmissi tengdri
þjónustu auk þess að stutt yrði við
starfsemi Háskólans á Akureyri.
SH hefur lagt allt kapp á, að
þær tillögur, sem hér eru fram
settar, byggi á traustum grunni og
að ekki verði tjaldað til einnar
nætur, enda má af þeim sjá, að SH
gerir ráó fyrir því, að taka virkan
þátt í atvinnustarfsemi Akureyrar
á mörgum sviöum.
Hins vegar má það öllum vera
ljóst, að þær tillögur, sem hér eru
fram settar, byggi á þeirri fórsendu,
að SH og ÚÁ fái áfram að starfa
saman að útflutnings- og markaðs-
starfsemi ÚA, sem reynst hefur
báðum félögunum vel í áratugi.
SH er öflugt félag með víðtækt
sölunet erlendis, sem stendur á
mjög traustum grunni. Félagið
hefur margsannað bæði fyrr og
síðar, að það býr yfir miklum
hæfileika að bregðast hratt vió
breyttum aðstæðum og hefur um
áratugaskeið veriö leiðandi í sölu-
og markaðsmálum Islendinga.
Tölur um stóraukin umsvif bæði
hérlendis og erlendis eru besti vitn-
isburður þar um auk þess sem fjöl-
margir viðskiptavinir og keppi-
nautar SH erlendis eru til vitnis um
það, hver staða félagsins er.
SH leyfir sér aó fullyrða að
hagsmunir ÚA séu best tryggðir,
bæði í bráó og lengd, með
áframhaldandi samstarfi við SH.
Af ofangreindum tillögum má
jafnframt vera Ijóst, að SH tekur
beiðni bæjaryfirvalda mjög alvar-
lega og þær lausnir, sem hér er
boðið upp á munu þýða mjög
veigamikla og varanlega breyt-
ingu á atvinnulífi í bænum.
Sá fjöldi starfa, sem SH tryggir
á Akureyri með þessum hætti er
samkvæmt tillögunum hér að
framan:
Með stofnun SH Akureyri 31 starf
Með stofnun fyrirtækis um umbúðavinnslu 38 störf
Með flutningamióstöó Eimskips 10 störf
Með prófessorsembætti við HA 1 starf
Samtals: 80 störf
Þá er ennfremur unnið að athugun á
því að bjóða upp á fleiri störf á Ak-
ureyri og má nefna hér eftirfarandi:
Jöklar hf.
SH á og rekur skipafélagið Jökla
hf. Jöklar hf. eru aó kanna hve
fýsilegur kostur þaó væri að flytja
starfsemi sína til Akureyrar að
einhverju eða öllu leyti. Hjá Jökl-
um hf. vinna að jafnaði um 27
manns, þar af 21 til 23 farmenn.
Vinnsla ígulkera
SH hefur um nokkurra ára skeið
stundað útflutning á ígulkerum,
aðallega í samstarfi við íslensk
ígulker hf. í Njaróvíkum. SH hef-
ur nú beitt sér fyrir, að samstarf
takist á milli Islenskra ígulkera hf.
og Hafsólar á Svalbarðseyri, að
auka vinnslu við Eyjafjörð.
Reynslan hefur sýnt, að ekki virð-
ist vera grundvöllur fyrir vinnslu á
mörgum stöðum, eins og talið var
í upphafí og virðist því ljóst, aó til
þurfi að koma samstarf á milli að-
ila þar að lútandi. Stefnt er aö
samhæfðri söfnun af Norðurlandi
til Svalbarðseyrar eóa Akureyrar.
Sala hlutabréfa í ÚA
SH treystir því, aö framangreint
tilboð um eflingu atvinnulífs á
Akureyri nægi til þess að bæjar-
stjóm Akureyrar tryggi að sala af-
uróa fyrir ÚA verði áfram á veg-
um SH og verði það gert með
óyggjandi hætti.
Ákveði Akureyrarbær að selja
hlutabréf sín í ÚA að hluta eða pllu
leyti óskar SH eftir að fá tækifæri
til jafns við aðra að bjóóa í þau.
Lagt fram á l'undi með við-
ræðunefnd bæjarstjórnar Akureyr-
ar á Akureyri 23. janúar 1995.
Virðingarfyllst,
SÖLUMIÐSTÖÐ
HRAÐFRYSTIHÚSANNA
Jón Ingvarsson,
stjórnarformaður.
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélags
Akureyrar
verður haldinn í Kaupangi v/Mýrarveg fimmtudaginn
26. janúar 1995 kl. 20.00.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Samaöngu- og landbúnaðarráðherra Halldór Blöndal
mætir á fundinn.
Stjórnin.
AÖalfundur
fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
félaganna á Akureyri
verður haldinn í Kaupangi v/Mýrarveg fimmtudaginn
26. janúar 1995 kl. 21.00.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Samgöngu- og landbúnaðarráðherra Halldór Blöndal
mætir á fundinn.
Stjórnin.