Dagur - 25.01.1995, Qupperneq 11
Leikþátturinn Ruslaskrímslið hefur
fengið iofsamlega dóma cn um 10
þúsund börn á Stór-Reykavíkur-
svæðinu hafa þegar séð verkið. í því
er fjaiiað um umgengni, flokkun
sorps og samvinnu á heimilinu og er
auk þess skemmtun og fræðsla um
umhverfismál.
Ruslaskrímslið verður sýnt í
grunnskólum Akureyrar nk. föstu-
dag. Hér er um aó ræða leikþátt
fyrir böm á aldrinum 6-8 ára, um
umgengni, flokkun sorps og sam-
vinnu á heimilinu og er auk þess
skemmtun og fræðsla um um-
hverfismál. Höfundur verksins er
Dagný Emma Magnúsdóttir.
Ruslaskrímslið var frumsýnt í
Reykavík uin miðjan september
sl. Síðan þá hafa um 10 þúsund
böm á Stór-Reykjavíkursvæðinu
séð leikþáttinn og hefur hann
fengió lofsamlega dóma. Alls
koma sex leikarar við sögu í verk-
inu en leikstjóri er Jónína Olafs-
dóttir.
Dagný Emma, höfundur verks-
ins, segir m.a. í leikskrá, að meg-
Ruslaskrímslið sýnt á Akureyri:
Skemmtun og fræðsla
fyrir böm um umhverfísmál
- „Við eigum bara eitt Island“
inmarkmiðið með verkefninu sé
að gera börn á grunnskólastigi
meðvitaðri um umhverfi sitt,
kenna þeim að bera virðingu fyrir
náttúrunni og að þau temji sér
hirðusemi í umgengni. Eins og
púkinn á fjósbitanum stækkar
þegar menn bölva, þá stækkar
Ruslaskrímslið við slæma um-
gengni manna.
Ossur Skarphéðinsson, um-
hverfisráðherra, skrifar einnig í
leikskrána og segir þar: „Við eig-
um bara eitt ísland. í dag er það
hreinasta land í heimi og við vilj-
um hafa það þannig. Við viljum
ekki óhreinka það með því að
kasta rusli á götumar eða út í nátt-
úruna. Þá stækkar Ruslaskrímslió
og verður að lokum jafn stórt og
hvalur. Ef við dettum og meiðum
okkur, þá dugar stundum aó setja
plástur á sárið eða fara til læknis.
En við getum sjálf meitt landið, ef
við göngum ekki nógu vel um það
og þá dugar enginn plástur og
enginn læknir. Þess vegna verðum
við, alla ævi, að passa Island eins
og okkur sjálf. Látum ekki
„Ruslaskrímslið“ fitna. Sendum
það heldur í megrun og hættum að
henda rusli. Annars fer umhverfis-
ráðherrann í algjört rusl!“
Dagný Emma segir að íslands-
banki hafi sýnt mikinn skilning á
umhverfismálum og hægt sé að
segja að Georg sé andstæða
Ruslaskrímslisins. - Og án stuðn-
ings bankans hefði ekki reynst
mögulegt koma með verkið til
Akureyrar. Einnig sýndu Flugleió-
ir góðan hug. KK
Skákfélag Akureyrar:
Urslít í hraðskákmótum
Félagsstarfið hjá Skákfélagi Akur-
eyrar er komið á fullan skrið á
nýju ári. Haldin hafa verið þrjú
hraðskákmót og annað kvöld
verður hraöskákmót fyrir 45 ára
og eldri.
Þann 12. janúar var 10 mín-
útnamót þar sem Jón Björgvins-
son bar sigur út býtum, fékk 8
vinninga af 9 mögulegum. í öðru
sæti varð Hjörleifur Halldórsson
með 7 vinninga af 9 mögulegum. í
þriðja sæti varö svo Guðmundur
Hansson meó 6 vinninga.
I síðustu viku var svo haldið 15
mínútna mót þar sem úrslit urðu
eftirfarandi:
1. Rúnar Berg 8 vinningar af 9
2. Jón Björgvinsson 7 -
3. Smári Ólafsson 6,5 -
Um helgina hélt Skákfélag Ak-
ureyrar síðan Janúarhraðskákmót
sitt. Þar sigraói Rúnar Sigurpáls-
son með hálfs vinnings forskoti á
næstu tvo menn. Úrslit í mótinu
urðu þannig:
1. Rúnar Sigurpálsson 13 vinn. af 18
2. Haki Jóhannesson 12,5- (+2)
3. Þór Valtýsson 12,5 - ( +0)
4. Jón Björgvinsson 12 -
5. Smári Ólafsson 11,5-
Eins og áóur segir veróur næsta
mót annað kvöld í félagsheimili
SA við Þingvallastræti. Þetta er
hraðskákmót fyrir 45 ára og eldri
og hefst taflmennskan kl. 20. JÓH
Miðvikudagur 25. janúar 1995 - DAGUR - 11
I
I
Laugardagskvöldið 28. janúar
Herramenn
leika fyrir dansi
|
I
I
I
Karl Olgeirsson leikur
fyrir matargesti
❖
.a. á matáE^ti:
' tt
„^Jvænt ánæcjja
3 xítta „íU’ijixLíe. m£.nu
matízðitt ísm ízsmux í/zEmmtífsga á óuaxt
Q/srd £x. 3.200,-
hjá veitingastjóra í síma 22200
1
'é
%
%
1
P Eigum lausa sali fyrir árshátíðir í febrúar.
Fullt allar helgar í mars.
I ♦ I
Allar nánari upplýsingar og borðapantanir
I
I
%
........ . ....................... - &
■ I Opið hús
M fyrir aldraða
f Safnaðarheimili Akureyrarkirkju fimmtudag-
inn 26. janúar kl. 15-17.
Dagskrá hefst kl. 15.30.
1. Einsöngur: Margrét Friðriksdóttir og Magnús Frið-
riksson, nemendur í Tónlistarskóla Akureyrar.
2. Upplestur og spjall: Þráinn Karlsson, leikari.
3. Fjöldasöngur.
Veitingar á vægu verði.
Verið velkomin.
Undirbúningsnefndin.
Verð miðað við staðgreiðslu
er 1300* krónur
fyrsta birting
| og hver endurtekning
400 krónur