Dagur - 07.03.1995, Side 4

Dagur - 07.03.1995, Side 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 7. mars 1995 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), KRISTÍN LINDA JÓNSDÓHIR, SÆVAR HREIÐARSSON (Iþróttir). LJÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Að undanfömu hefur skapast mikil umræða um fjár- hagsvanda heimilanna í landinu og þessa viku stend- ur yfir sérstakt kynningar- og fræðsluátak sem ber yfirskriftina „Gerum hreint í fjármálum fjölskyldunn- ar“. Að átakinu standa félagsmálaráðuneytið, Hús- næðisstofnun, viðskiptabankar og sparisjóðir, samtök lífeyrissjóöa, ASÍ, BSRB, Neytendasamtök og samtök sveitarfélaga. Það er ekki að ástæðulausu sem 1 slíkt átak er ráð- ist. Skuldir heimilanna hafa aukist gífurlega á síöustu misserum og mönnum þykir nú orðið nóg um. Heimil- in ráða ekki við fjárskuldbindingamar, þau lenda í vitahring vanskila með öllum þeim skuggahliðum sem honum fylgja. Niðurstöður könnunar sem Félagsvísindastofnun hefur gert fyrir félagsmálaráðuneytið á skuldastöðu heimilanna segja sína sögu. Þar kemur fram að á und- anfömum árum hefur þriðjungur fólks á aldrinum 18 til 40 ára lent í vanskálum. Láglaunafólkið, með tekjur undir 70 þúsund krónum á mánuði, ver hvorki meira né mixma en tæpum helmingi latma sinna í afborganir af húsnæðislánum. Fram kemur í könnuninni að þeir sem hafa fest kaup á húsnæði á síðustu fimm árum greiða að meðaltali 37 þúsund á mánuði í afborganir, vexti og verðbætur af húsnæðiskaupalánum. Þessi upphæð er einfaldlega allt of há og það em því ekki síst húsnæðiskaupin sem eru að sliga fjárhag fjölmargra heimila á landinu. Fólk er upp til hópa, þótt sem betur fer séu á því undantekningar, að kaupa allt of dýrt húsnæði. Og það gerist í framhaldi af því að greiðslubyrði íbúðarkaupendanna hefur ver- ið metin allt of há. Fólki getur ekki verið gerður greiði með því að ausa í það lánsfé og telja því um leið trú um að það geti staðið í skilum, sem síðar kemur á daginn að er fjarri öllu lagi. Þarna er augljóslega pott- ur brotinn. En það eru ekki bara húsnæðislánin sem eru að fara með fjárhag heimilanna. Kostnaðarliður eins og rekstur bifreiðarinnar er óeölilega hár og hann er nú farinn að vega þyngra í útgjöldum fjölskyldunnar en matur. Það er út af fyrir sig athyglisverður hlutur og ekki er annað hægt en að velta fyrir sér hvort trygg- ingafélögin, með allan sinn mikla rekstrarhagnað ár eftir ár, geti ekki komið til móts við fólkið í landinu með lækkun bifreiðatrygginga. Það væri umtalsverð kjarabót fyrir margar fjölskyldur. Innlegg í rækjuumræðu Hinn 28. febrúar sl. birtist á for- síóu Dags grein þar sem fjallað var um tímabundinn hráefnisskort rækjuverksmiöja við Eyjafjörð og ástæður hans raktar. I greininni er fullyrt að ástæðan fyrir hráefn- isskorti verksmiðjanna sé m.a. sú aö allmikið af rækju hafi verió selt til annarra landshluta. Ekki er gerð grein fyrir því hverjir hafi staðið að þessari sölu né um hve mikió magn hafi verió aó ræða. Þar sem fyrirtæki okkar, Bliki hf., seldi í febrúar sl. rúm hundraó tonn af svokallaðri iðnaðarrækju annars vegar til Olafsvíkur og hins vegar til Súðavíkur, vil ég upplýsa blaðamann Dags og verkafólk í rækjuiðnaði við Eyjafjörð um eft- irfarandi: Bliki hf. hefur ætíö Ieitast við að fá sem hæst verð fyrir þær af- urðir sem skip okkar kemur með aó landi. Við lítum svo á aó okkur standi nær að gæta hagsmuna okk- ar fyrirtækis og þeirra sjómanna sem hjá okkur starfa heldur en rækjuverksmiðja við Eyjafjörð. Rækjan var boðin öllum rækju- verksmiðjunum til kaups í opnu útboði og lenti þar sem hæst verð var greitt fyrir hana. I greininni er einnig sagt frá því að bátar hafi hætt viðskiptum við verksmiðjurnar hér vegna yfir- boða annarra verksmiðja. Það er vissulega áhyggjuefni ef rækju- verksmiðjur við Eyjafjörö telja sig ekki geta keppt við aðrar verk- smiðjur um viðskipti við rækju- báta, þrátt fyrir að þær hafi úr tals- verðum kvóta að moða. En nú á miðju kvótaári er svo komið fyrir norðlenska bátaflotanum, að hann er í flestum tilfellum búinn og jafnvel löngu búinn með þann kvóta sem honum var úthlutaður fyrir yfirstandandi kvótaár. Þetta þýðir það, að útgerðarmenn þess- ara báta eru upp á verksmiðjumar komnir hvaó varóar kvóta sem aft- ur þýðir að þær geta nánast ákveð- ió einhliða það verð sem þær eru tilbúnar að greiða fyrir rækjuna. Þessar útgerðir eru meö öörum orðum í eins konar ánauð hjá þessum handhöfum kvótans. Ein- hver bitamunur mun þó vera milli boða verksmiðjanna sem skýrir brotthvarf þessara báta úr við- skiptum við verksmiðjumar hér við fjörðinn. Fróðlegt væri í þessu samhengi að rifja lítillega upp hvemig staðið var að fyrstu úthlutun kvóta á út- hafsrækju árið 1988. Við þessa fyrstu úthlutun var gengið út frá veiðireynslu áranna 1985, 1986 og 1987. A þessum árum voru það fyrst og fremst bátar 50 til 250 brl. gerðir úr frá norðlenskum og vest- firskum verstöðvum sem stunduðu úthafsrækjuveiðar. Orfáir loðnu- bátar og nánast engir togarar aðrir en Dalborg EA-317 undir stjóm Snorra Snorrasonar höfðu stundað þessar veiðar viðmióunarárin eða fyrr. Við úthlutunina gerist það svo, að veiðireynsla þessara aðila er skert verulega, fyrst hlutfalls- lega og síðan með flötu þaki. Akveðið var að reikna aflamarkið út frá 90% af meóaltali tveggja bestu áranna, jafnframt var sett þak á aflahlutdeild einstakra skipa. Annars vegar var mióað við 200 tonn og hins vegar vió 250 Ottó Jakobsson. tonn, eftir stæró viðkomandi skipa. Á sama tíma og þetta var gert, er loðnuflotanum og rað- smíðaskipunum sem þá eru að koma inn, fært varanlega á silfur- fati 40-50% af rækjukvótanum, sem var kvótaárið 1988 36.000 tonn. Sem dæmi um þá skerðingu sem bátar urðu fyrir getum við tekió okkar skip, Blika EA-12. 90% af meðaltali tveggja bestu ár- Við lítum svo á að okkur standi nær að gæta hagsmuna okkar fyrirtækis og þeirra sjómanna sem hjá okkur starfa heldur en rækjuverksmiðja við Eyjafjörð. anna, á árabilinu 1985-7, voru 498 tonn, en við útreikning á aflahlut- deildinni var miðað við 200 tonna þakið. Ekki hafa ráðamenn fisk- veiðistjómunar séð ástæðu til að leiðrétta þessa skerðingu okkar eða annarra er fyrir henni urðu og það þrátt fyrir síauknar veióiheim- ildir á úthafsrækju. Þarf því engan að undra sem les þetta og skilur að okkur er mikil nauðsyn á að fá hæsta mögulega verð fyrir þær fáu rækjur sem við fáum að veiða. Ottó Jakobsson. Höfundur er útgerðarmaður á Dalvík. Verkefni fyrir Háskólann á Akureyri: Framtíðarþróun ferðaþjónustunnar Allir eru sammála um að í ferða- þjónustu eru miklir framtíðar- möguleikar. Þaö eru hins vegar færri sem hugleiöa þá staðreynd að samkeppni veróur mjög hörð í þessari atvinnugrein í framtíðinni. Við þurfum að undirbúa okkur undir þá höróu samkeppni. Við þurfum að sjá fram í tímann og marka henni stefnu. Það gerum við með því að búa feróaþjónust- unni sambærilega þróunaraðstöðu og öðrum greinum. Þá aðstööu hefur atvinnugreinin ekki. Ferðaþjónustan, rannsóknir og þróunarstarf I þau þrjú ár sem ég sat í Rann- sóknaráði ríkisins, lagði ég mikla áherslu á málefni ferðaþjónust- unnar. Eg benti á þá staðreynd að ferðaþjónustan styddist ekki vió neinar rannsóknastofnanir á sínu sérsviði, þótt greinin væri orðin næst stærsta atvinnugreinin sem aflaói íslendingum gjaldeyris. Iðnaðurinn styóst við Iðntækni- stofnun og Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. Sjávarútveg- ur og fiskvinnsla styðjast við starf Hafrannsóknastofnunar, Rann- sóknastofnunar fiskiðnaðarins og Háskólann á Akureyri. Landbún- aðurinn nýtur góðs af starfsemi Rannsóknastofnunar landbúnaðar- ins og fleiri rannsóknastofnana. Orkuiðnaöurinn styðst við Orku- stofnun. Ferðaþjónustan hefur hins veg- ar ekkert sérmerkt bakland í rann- sóknum og þróunarstarfi. Háskóli Islands hefur ekki sinnt þeim miklu rannsóknaverkefnum, sem ferðaþjónustan þarfnast til að laga sig að breyttum kröfum og harðn- andi samkeppni. Rannsóknaráð ríkisins veitti styrki til hagnýtra rannsóknaverk- efna í atvinnulífinu. Eg benti á að ráðið hefði ekki veitt styrki til verkefna á sviði ferðamála enda hefói lítið verið sótt um slíka styrki. Taldi ég brýnt að ráðið ýtti undir starfsemi á þessu sviði. Það væri nauðsynlegt til að styrkja for- sendur stefnumörkunar, markaós- starfs og fjárfestingar í ferðaþjón- ustunni. Breytt viðhorf Rannsóknaráð ríkisins ákvað í kjölfar þessa að taka ferðamálin sérstaklega inn í stefnumótun ráðsins og fela sérstökum starfs- hópi að gera úttekt á atvinnugrein- inni og meta þörf hennar fyrir rannsóknastarfsemi. Sá starfshóp- ur hefur nú starfað í rúmt ár undir minni forystu og er nú að ljúka við skýrslu til hins nýja Rann- sóknaráðs íslands. Ríkisstjóm Davíðs Oddsonar hefur lagt áherslu á að auka verulega svig- rúm ráðsins til styrkveitinga og hefur rannsóknafé verið tvöfaldað á tveimur árum. Möguleikar okkar Ferðamálaráð hefur aó tilhlutan Halldórs Blöndal samgönguráð- herra flutt þá starfsemi sína til Ak- ureyrar, sem lýtur að þróun ferða- Tómas Ingi Olrich. mála innanlands. Þar verður því miðstöð ráðgjafar um uppbygg- ingu ferðaþjónustunnar í framtíó- inni. Átaksverkefnið „Island, sækjum það heint“ kom á mikilli upplýsingaöflun um íslenska ferðaþjónustu í heild. Nú hefur verið ákveðið að fínna þessari upplýsingastarfsemi farveg inn í daglegt starf Ferðamálaráós á Ak- ureyri. Hér skapast einstakt tæki- færi fyrir Háskólann á Akureyri að taka á fræðslu- og rannsókna- þætti ferðaþjónustunnar og efna til samstarfs við Akureyrarsetur Ferðamálaráðs um rannsóknir og þróunarstarf í ferðaþjónustu. Nú stendur fyrir dyrum að ráð- ast í að byggja yfir Háskólann á Akureyri á framtíðarsvæði, og Nú stendur íyrir dyr- um að ráðast í að byggja yfir Háskólann á Akureyri á framtíð- arsvæði, og reisa í samstarfi skólans og matvælaiðnaðarins matvælarannsókna- og þróunarstofnun. Td viðbótar þessum miklu verkefnum, er það heillandi framtíðarsýn íyrir háskólann að taka á því brýna verk- efni að bæta mennta-, rannsókna- og þróun- araðstöðu íslenskrar ferðaþjónustu. reisa í samstarfi skólans og mat- vælaiónaðarins matvælarann- sókna- og þróunarstofnun. Til við- bótar þessum miklu verkefnum, er það heillandi framtíðarsýn fyrir háskólann að taka á því brýna verkefni að bæta mennta-, rann- sókna- og þróunaraðstöðu ís- lenskrar ferðaþjónustu. Tómas Ingi Olrich. Höfundur er alþingismaóur Sjálfstæðisflokks- ins á Noróurlandi eystra og skipar annaó sætió á lista flokksins fyrir komandi alþingiskosning- ar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.