Dagur - 07.03.1995, Qupperneq 9
EN5KA KNATTSPYRNAN
Þriójudagur 7. mars 1995 - DAGUR - 9
SÆVAR HREIÐARSSON
Meistarar United í banastuði
Colin Hendry er sem klettur í vörn
Blackburn og skorar mikilvæg
mörk þegar hann bregður sér í
sóknina.
Lið Manchester United var
liö dagsins í Englandi
ardaginn þegar það lagði
Ipswich að velli með níu
mörkum gegn engu. Þetta
er stærsti sigur liðsins í
deildarkeppni í yfir eina öld
og stærsti sigur liðs frá
stofnun úrvalsdeildarinnar.
Sjö milljón punda framherj-
inn Andy Cole skoraói fímm
marka meistaranna og ef liðið
verður í þessum ham næstu vik-
umar fær ekkert stöðvað það.
Blackbum gefur þó ekkert eftir
toppbaráttunni og heldur toppsæt-
inu eftir sigur á Aston Villa. Li-
verpool er einnig farið að velgja
toppliðunum og hefur leikið
tveimur leikjum færra. A botnin-
um virðast línur aðeins að skýrast
en þar getur enn allt gerst.
MAN. UTD.-IPSWICH 9:0
Manchester United var í banastuði
gegn Ipswich og greinilegt var
strax á fyrstu mínútu í hvaó
stefndi. Heimamenn áttu hverja
leiftursóknina af annarri að marki
Ipswich en þurftu að bíða fram á
16. mínútu eftir fyrsta markinu.
Það skoraði Roy Keane með skoti
af vítateigslínu í stöng og inn.
Andy Cole bætti öðm marki við af
stuttu færi fjórum mínútum síðar
og hann gerði einnig þriðja markið
á 37. mínútu. Mark Hughes skaut
með hjólhestaspymu í þverslána
en boltinn féll fyrir fætur Cole sem
potaði inn. Stuttu síðar átti Brian
McClair álíka bakfallsspymu sem
fór naumlega yfir markið. í síðari
hálfleik héldu heimamenn áfram
að hrella vamarmenn Ipswich. A
53. mínútu skallaði Andy Cole í
netið og Mark Hughes bætti
fimmta markinu við með glæsi-
legu skoti í þverslána og inn úr
þröngu færi á sömu mínútu. Sex
mínútum síðar hafði Hughes skall-
að inn sjötta markið af stuttu færi.
Cole bætti við fjórða marki sínu á
65. mínútu og þremur mínútum
síðar kom umdeildasta mark leiks-
ins. Craig Forrest, markvöróur Ips-
wich, varðist meö höndum utan
vítateigs og á meðan hann var enn
að skokka til baka tóku leikmenn
United aukaspymuna og Paul Ince
skoraði í autt markið. Það var síð-
an Andy Cole sem tryggði United
9:0 sigur á 87. mínútu þegar hann
snéri laglega í markteignum og
skoraði. Sigur United var síst of
stór miðað við færin sem liðið
fékk en með þessum sigri breyttist
markahlutfall liðsins mjög til batn-
aðar. Fyrir leiki helgarinnar var
liðið verra sett en Blackbum en nú
hefur dæmið snúist við svo um
munar.
A. VILLA-BLACKBURN 0:1
Sjónvarpsáhorfendur fengu aó sjá
heldur dapran leik á Villa Park þar
sem sigurmarkið kom á 12. mínútu
og það skoraði vamarjaxlinn Colin
Hendry með skalla eftir hom-
spymu en hann var skilinn eftir
óvaldaður við fjærstöng. Black-
bum sótti mun meira í leiknum og
Chris Sutton og Stuart Ripley
Vinny Samways missti stjórn á
skapi sínu og var rckinn útaf.
sem hafnaði efst í markhominu.
Yfirburðir Everton voru greinilegir
og á síðustu mínútu fyrri hálfleiks
bætti Vinny Samways öðru marki
við af stuttu færi eftir undirbúning
frá Limpar og Andy Hinchcliffe.
En leikmenn Everton geta sjálfum
sér um kennt að hafa misst sigur-
inn úr höndum sér. Síðari hálfleik-
ur var ekki langt kominn þegar
stundarbrjálæði greip Samways og
hann sparkaði niður leikmann
Leicester íyrir framan dómarann
án þess að boltinn væri nálægur.
Samways fékk rauða spjaldið og
Mark Draper minnkaði muninn
fyrir Leicester á 60. mínútu með
skoti af vítapunkti. Stuttu síðar var
Duncan Ferguson látinn fara sömu
leið og Samways fyrir að beita
olnboganum í skallaeinvígi og níu
menn Everton áttu í vök að verjast.
A 82. mínútu kom loks jöfnunar-
markiö og það gerði hinn há-
® vaxni Iwan Roberts með
skalla af stuttu færi.
LIVERPOOL-
NEWCASTLE 2:0
Heimamenn voru í miklu stuði
á Anfield og Robbie Fowler
hefði hæglega getað skorað
fimm eða sex mörk í leiknum.
Mark Walters, Jamie Red-
knapp og Ian Rush fengu
einnig góð færi en engum
þeirra tókst að koma boltanum
framhjá Pavel Smicek, mark-
verði Newcastle, fyrre en á 57.
mínútu. Þá var Fowler fyrstur að
átta sig eftir að skot frá Red-
knapp hafnaði í stönginni. Það var
svo gamla kempan Ian Rush sem
innsiglaði sigurinn sex mínútum
síðar eftir vamarmistök hjá Darren
Peacock. Kevin Keegan, stjóri
Newcastle, vár mjög ósáttur viö
frammistöðu sinna manna eftir
leikinn og hótaði að kaupa nýja
leikmenn sem tilbúnir væru að
leggja sig fram fyrir félagið.
NORWICH-MAN. CITY 1:1
Daufur leikur sem lifnaði ekki við
fyrr en átta mínútur voru til leiks-
loka. Þá skoraði hinn 19 ára Jamie
Cureton fyrir Norwich en hann
kom óvænt inn í byrjunarliðið fyrir
leikinn. Það var síðan Fitzroy
Simpson, sem kom óvænt inn í lið
Manchester City, sem jafnaði fjór-
um mínútum síðar með glæsilegu
skoti af vítateigslínu.
N.FOREST-
TOTTENHAM 2:2
Leikurinn var markalaus alveg þar
til ellefu mínútur vom til leiksloka
að Teddy Sheringham skoraði
gegn sínu gamla félagi af stuttu
færi eftir undirbúning frá Jurgen
Klinsmann. Norómaðurinn Lars
Bohinen jafnaði fyrir Forest á 84.
mínútu með ótrúlegu langskoti
sem þandi út netið og aðeins mín-
útu síðar bætti varamaðurinn Jason
Lee öðru marki við fyrir Forest af
miklu harðfylgi eftir að hafa verið
á undan Ian Walker í boltann. For-
usta Forest stóð þó ekki lengi og
tveimur mínútum síðar jafnaði
Colin Calderwood af stuttu færi
eftir homspyrnu og jafnteflið sann-
gjöm úrslit en bæði lið óánægð
meó aðeins eitt stig í baráttunni
um Evrópusætið.
SOUTHAMPTON-
COVENTRY 0:0
Ron Atkinson hefur enn ekki tapað
leik sem stjóri Coventry og hann
geröi tvær breytingar á liði sínu
fyrir leikinn gegn Southampton.
Jonathan Gould kom í markið í
fyrsta sinn í vetur og David
Burrows tók stöðu bakvarðar en
hann var keyptur frá Everton fyrir
helgi. Gould var í aðalhlutverki í
leiknum og varði tvisvar meistara-
lega en tvisvar tókst leikmönnum
Southampton að koma boltanum
fram hjá honum. í annað skiptið
bjargaði Paul Cook á línu og í síð-
ara skiptið var dæmd rangstæða á
Neil Shipperley eftir að hann skor-
aði. Eina hættulega færi gestanna
kom þegar Bruce Grobbelaar hitti
ekki boltann fyrir framan mark sitt
en knötturinn rúllaði framhjá
markinu.
WIMBLEDON-QPR 1:3
Dean Holdsworth kom heima-
mönnum yfir á 13. mínútu með
fyrsta marki sínu í langan tíma en
Les Ferdinand jafnaði fyrir QPR
með hörkuskoti eftir vel útfærða
aukaspymu á 24. mínútu. A þriðju
mínútu síðari hálfleiks lagði hann
boltann fyrir Ian Holloway sem
skoraði fyrsta mark sitt á tímabil-
inu og það var síðan Ferdinand
sem gerði út um leikinn fyrir QPR
fengu báðir upplögð færi til að
bæta vió mörkum. Villa pressaði
undir lokin og Ian Taylor ógnaði
marki Blackbum í tvígang en án
árangurs. A síðustu rnínútunum
áttu heimamenn síóan réttmætt til-
kall til vítaspymu þegar að besti
maður vallarins, Colin Hendry,
varði skot frá Paul McGrath með
hendi en dómarinn sá ekkert at-
hugavert. Kenny Dalglish, stjóri
Blackbum, hélt upp á 44. afmælis-
dag sinn á laugardag og sigurinn
var enn sætari fyrir vikið.
LEICESTER-EVERTON 2:2
Everton byrjaði leikinn af feiknar-
krafti og Andres Limpar skoraði
strax á 6. mínútu glæsilegt mark
með skoti af um 25. metra færi
með glæsilegu einstaklingsfram-
taki á 58. mínútu. Hann óð fram-
hjá hverjum vamarmanninum af
öðmm áður en þrumuskot þandi út
netið.
LEEDS-SHEFF. WED. 0:1
Það var galdramaðurinn Chris
Waddle sem gerði út um leikinn
með glæsilegu marki strax á 10.
mínútu. Hann var kominn í mjög
þröngt færi eftir einleik en lét
skotið ríða af með endalínunni og
boltinn rataði í netið hjá John Luk-
ic. Anthony Yeboah vildi meina
að hann hefði jafnað leikinn í síð-
ari hálfleik þegar skot hans fór í
þverslána og niður í jörðina en
dómarinn sagði boltann ekki hafa
farið innfyrir línuna. Hinum megin
tókst Mark Bright aö skalla í netió
hjá Lukic en línuvörður flaggaði
rangstööu á þaö sem virtist full-
komlega löglegt mark. Undir lokin
munaði minnstu að Rod Wallace
næði að jafna en skot hans hafnaði
í þverslánni. Þetta var fyrsti sigur
Wednesday á Elland Road í 12 ár
og fögnuðu gestimir sigrinum
innilega.
Chris Waddle skoraði stórglæsilegt
mark gegn Lccds.
ARSENAL-WEST HAM 0:1
Slakur nágrannaslagur í London á
sunnudaginn þar sem að Arsenal
hvarf aftur í gamla horfið eftir að
hafa náð sér á strik í undanfömum
leikjum. West Ham hafði yfir-
höndina í líflausum fyrri hálfleik
og tók forustuna á 20. mínútu þeg-
ar að Don Hutchinson potaði inn
við fjærstöng eftir fyrirgjöf frá
John Moncur. West Ham klúðraði
fjölda færa og Arsenal lifnaði ekki
við fyrr en á lokamínútunum. Þá
varði Ludek Miklosko glæsilega
frá bæði John Jensen og Chris
Kiwomya og West Ham fékk dýr-
mæt stig í botnbaráttunni.
CHELSEA-C. PALACE 0:0
Annar frekar lélegur nágrannaslag-
ur í London á sunnudaginn. Palace
lék án framherjans Chris Arm-
strong sem féll á lyfjaprófi í síð-
ustu viku og var í stúkunni gegn
Chelsea. Bæði lið vildu ólm næla í
3 stig úr leiknum og því ósátt við
úrslitin en jafnteflið var sann-
gjamt. Chelsea var betri aðilinn en
Palace komst næst því að skora
þegar að Andy Preece átti þrumu-
skot í stöng. Hinum megin var það
Mark Stein sem klúðrarði besta
færi Chelsea en sterkar vamir vom
allsráðandi.
l.DEILD:
Tranmere komst á toppinn á
sunnudaginn með 1:0 sigri á Sund-
erland, sem brenndi af vítaspymu í
fyrri hálfleik. Þjóðverjinn Uwe
Fuchs skoraði öll mörkin í 3:0
sigri Middlesbrough á Bristol City
en hann er í láni ffá Kaiserslaut-
em. Ulfamir em enn í toppbarátt-
unni eftir sigur á Portsmouth á
sunnudag þar sem Steve Bull skor-
aði sigurmarkið. Þorvaldur Or-
lygsson fór útaf meiddur þegar að
Stoke og Derby gerðu markalaust
jafntefli og þurfti að sauma 12
spor til að loka skurði fyrir ofan
augabrún eftir harkalegt samstuð.
Úrvalsdeild
Aston Villa-Blackburn 0:1
Leeds-Sheff. Wed. 0:1
Leicester-Everton 2:2
Liverpool-Newcastle 2:0
Man. Ltd.-Ipswich 9:0
Norwich-Man. City 1:1
N. Forest-Tottenham 2:2
Southampton-Coventry 0:0
Wimbledon-QPR 1:3
Arsenal-West Ham 0:1
Chelsea-C. Palace 0:0
1. deild
Bolton-Southend 3:0
Burnley-WBA 1:1
Charlton-Notts County 1:0
Griutsby-Swindon 1:1
Luton-Millwall 1:1
Middlesbrough-Bristol C. 3:0
Reading-Watford 4:1
Sheff. Utd.-Port Vale 1:1
Stoke-Derby 0:0
Sunderland-Tranmere 0:1
Wolves-Portsmouth 1:0
Staðan
Úrvalsdeild
Blackburn 3121 6 464:2669
Man. Utd. 3120 6 562:2266
Newcastle 31 16 9 6 52:33 57
Liverpool 29 15 9 5 50:2354
N.Forest 3113 9 9 44:35 48
Tottenham 2912 8 9 48:4244
Leeds 29 11 10 835:2943
Sheff. Wed. 31 11 91140:4042
Arsenal 3110 101135:33 40
Wimbledon 3011 613 36:53 39
Aston Villa 32 911 1246:46 38
Coventry 31 9111133:47 38
Chelsea 29 9 101037:39 37
Norwich 30 9 101128:34 37
Man. City 30 9 101138:45 37
QPR 28 9 81143:47 35
Everton 31 811 12 32:41 35
Southampton 29 6 14 9 40:46 32
WestHam 30 9 5 16 28:39 32
C. Palace 30 7101321:3131
Ipswich 31 6 5 20 31:6923
Leicester 30 4 9 17 33:56 21
1. deild
Tranmere 34 18 8 8 55:36 62
Middlesbr. 3217 8 7 47:2659
Bolton 33 16 9 8 56:35 57
Wolves 32 17 5 1057:43 56
Reading 34 16 8 1041:30 56
Sheíf. Utd. 34 14 12 8 57:39 54
Grimsby 34 12 13 9 51:43 49
Watford 32 1211 9 36:33 47
Barnsley 3113 71141:39 46
Luton 33 12 9 12 46:46 45
Millwali 3211 12 9 41:3845
Oldham 3211 101145:43 43
Derby 3211 101137:33 43
Charlton 3211 9 12 44:47 42
Stoke 31 1011 1032:35 41
Portsmouth 3310101337:47 40
PortVale 31 10 9 12 38:41 39
Sunderland 33 8 15 10 32:32 39
WBA 34 10 8 16 30:43 38
Southend 34 10 6 18 32:63 36
Bristol C. 34 9 8 17 32:48 35
Swindon 32 8101438:5334
NottsC. 34 7 8 19 36:49 29
Burnley 31 6 10 15 30:49 28