Dagur - 07.03.1995, Page 16
[MM.
Akureyri, þriðjudagur 7. mars 1995
Skagfirðingur SK-4 fékk 111 króna
meðalverð í Bremerhaven:
Búist við verðupp-
sveiflu í dymbilvikunni
Kodak Express ðæðaframköllun
E
Kodak
GÆDAFRAMKÖLLUN
...munið afsláttarkortin
^Pedfomyndir?
Skipagata 16 Sími 23520
Togarinn Skagfirðingur SK-4
seldi í gær 211 tonn af karfa
í Bremerhaven fyrir 23,4 millj-
ónir króna og meðalverð því 111
krónur, sem er betri sala en
Drangur SH-511 gerði fyrir
helgina, en hann seldi 145 tonn
og var meðalverð þeirrar sölu 83
krónur. Drangur SH er eign
Hraðfyrstihúss Grundarfjarðar
hf. sem Skagfirðingarnir hafa
keypt meirihluta í. Sala Skag-
firðings SK er eitthvað lægra
verð en útgerðin, Skagfirðingur
hf. á Sauðárkróki, gerði sér von-
ir um.
Nú er sá árstími þar sem búast
má við vissri lægð í sölunni fram
undir páska en þá eykst fiskneysla
aftur, ekki síst af trúarlegum
ástæðum í dymbilvikunni. Skag-
firðingur SK á næst söludag í
páskavikunni og þá má búast við
mun hærra verði.
Allgóð karfaveiði hefur verió
hér viö land að undanförnu en um
mánaðamótin janúar/febrúar fór
Hlföarfjall:
Það er einn
Ijós punktur
- segir ívar Sigmundsson
Það er ekkert að frétta annað
en að það er alltaf norðanátt,
snjókoma og skafrenningur og
því alltaf lokað,“ sagði ívar Sig-
mundsson, forstöðumaður Skíða-
staða í Hlíðarfjalli, í samtali við
Dag.
„Þaó var lokað á þriðjudag,
miðvikudag og fimmtudag í síð-
ustu viku vegna veðurs, þaö var
opið á laugardag vió sæmilegar
aóstæður en allt lokað á sunnudag
og í dag (í gær). Veðurspáin er
svipuð fram á föstudag og því
ekkert veður til aó vera úti.“
Ivar sagðist ekki muna eftir
svona löngum snjóakafla áður en
hins vegar hefði hann séð meiri
snjó í Hlíðarfjalli, sem hefði fallið
á mun skemmri tíma. Hann segir
að álitið sé að það geti verió snjó-
flóðahætta efst í fjallinu, ekki á
skíðasvæðinu, heldur í tveimur í
brekkum sem hægt er að komast í
ef menn fara í efstu lyftuna.
„Það er einn ljós punktur í
þessu öllu og hann er sá að þaó er
kominn nægur snjór í fjallið og
þetta er því skárra ástand en ef
það væri snjólaust. - Og seinni
parturinn í júní veróur örugglega
góður hér í fjallinu.“ KK
VEÐRIÐ
Það fer að verða frekar leiði-
gjarnt að spá um veðrið,
endalausar norðanáttir og él
svo langt sem veðurspámenn
sjá. Búast má við leiðinda-
veðri á vestanverðu Norður-
landi í dag, norðan hvassviðri
og vaxandi éljagangi. Austar á
Norðurlandi verður norðan
eða norðaustan stinningskaldi
og él. Svipuðu veðri er spáð
fram að helgi í það minnsta.
verðið að sveiflast og fór t.d. í síö-
ustu viku upp í 140 kr/kg, en þá
seldi Haukur GK-25 frá Sand-
gerði. Mikið framboó er á fiski í
Þýskalandi þessa dagana, m.a.
selja Færeyingar um 100 tonn af
karfaflökum í hverri viku.
Aðrir togarar Skagfirðings hf.
eru á heimaslóð á ýsu-, ufsa- og
karfaskrapi fyrir vinnsluna á
Sauöárkróki en eitthvað af auk-
fiskinu fer í gáma til útfiutnings.
GG
A blaðamannafundi í lok kosningaráðstefnu Þjóðvaka, f.v.: Katrín Theodórsdóttir framkvæmdastjóri Þjóðvaka,
Agúst Einarsson ritari, Jóhanna Sigurðardóttir formaður, Svanfríður Jónasdóttir varaformaður og Hrannar B.
Arnarson kosningastjóri. Mynd: GG
Kosningaráðstefna Þjóðvaka á Akureyri:
Munum ekki styðja Sjalfstæðisflokkinn
til valda að loknum kosningum
- skorað á önnur félagshyggjuframboð að gefa svipaða yfiriýsingu
Kosningaráðstefna Þjóðvaka,
hreyfingar fólksins, var
haldinn í Kjarnarlundi við Ak-
ureyri um helgina og voru þar
saman komnir allir helstu for-
ystumenn þessa nýja stjórn-
málaafls. Þar var m.a. áréttað að
stefna Þjóðvaka snúist um þrjú
lykilhugtök: trúnað - velferð og
velmegun. Þjóðvaki stefnir að
því að verða forystuafl nýrrar
ríkisstjórnar félagshyggjuafla
sem hafi að leiðarljósi hugsjónir
jafnaðar og mannúðar. Jóhanna
Sigurðardóttir, formaður Þjóð-
vaka, segir að megintilgangur
með stofnun Þjóðvaka sé að
brjóta upp gamla flokkakerfið
þar sem það hafi ekki dugað til
að jafna lífskjörin og breyta
tekjuskiptingunni í þjóðfélaginu.
„Við ætlum ekki að taka þátt í
kapphlaupi félagshyggjuflokkanna
um valdastóla eftir kosningar und-
ir forystu Sjálfstæðisflokksins en
fólk þarf aö hafa skýra valkosti
um það í kosningum hvemig ríkis-
stjóm verði mynduð aó þeim
loknum. Við munun ekki styðja
Sjálfstæðisflokkinn til valda að
loknum kosningum og skorum á
öll önnur framboð félagshyggju
og jafnaðarmanna að gefa sams
konar yfirlýsingu og taka þar með
þátt í nýsköpun flokkakerfisins.
Nýgerðir kjarasamningar hafa
valdið þessari hreyfingu miklum
vonbrigðum því þeir færa há-
launafólki miklu meiri kjarabætur
Biönduós:
Kostnaður við snjómokstur
meiri en allt siðasta ár
Aætlað er að snjómokstur
hafi verið búinn að kosta
bæjarsjóð Blönduóss um 1,7
milljónir króna um sl. mánaða-
mót en í drögum að íjárhags-
áætlun Blönduóssbæjar er gert
ráð fyrir að verja 2,1 milljón
króna til snjómoksturs á öllu ár-
inu 1995. Fyrri umræða í bæjar-
stjórn Blönduós um fjárhags-
áætlun ársins 1995 verður 14.
mars nk. í byrjun ferbrúarmán-
aðar var bókfærður kostnaður
nær 1,3 millj. króna, sem er nán-
ast sama upphæð og var varið til
snjómoksturs allt árið 1994.
„Við höfum ekki álitið það
heppilegan kost að troða niður
snjóinn í götunum eins og sum ná-
grannasveitarfélögin gera í stað
þess að moka honum þótt segja
megi að þaö sé hagkvæmt út frá
fjárhagslegu sjónarmiði. Komi
hins vegar smá bloti þá detta bíl-
amir niður úr þessu og þá fer allt á
annan endann. Hér em allar götur
mokaðar, auðvitaó mismunandi
mikið, en stofnbrautimar hafa for-
gang. Það er meiri snjór í Húna-
vatnssýslum nú en ég man eftir.
Vegurinn hefur t.d. iðulega teppst
í Víðidal og snjóþykktin í Mið-
firði er með ólíkindum. Þar er eins
- geypilegt fannfergi í Húnavatnssýsium
og yfir jökul að líta,“ segir Skúli
Þorðarson, bæjarstjóri á Blöndu-
osi.
Töluvert atvinnuleysi er á
Blönduósi en ástandið er þó skárra
en var á sama tíma fyrir ári síðan.
Ekki eru fyrirsjáanlegar neinar
byggingaframkvæmdir á Blöndu-
ósi á komandi sumri, engar um-
sóknir um lóðir eða innlagðar
teikningar varðandi bygginga-
framkvæmdir eru fyrirliggjandi.
Eina framkvæmdin á vegum
Blönduóssbæjar á komandi sumri,
auk almenns viðhalds á eignum
bæjarins og gatnakerfi, veróur
nióursetning á viðlegukanti við
höfnina á norðurhlið gömlu
bryggjunnar og til þess kemur
fjárveiting frá ríkinu að upphæð
11 milljónir króna en mótframlag
Blönduóssbæjar veróur um 8
milljónir króna. Verkið verður
boðið út á vormánuðum. GG
Aðalfundur Skinnaiðnaðar hf. haldinn í gær:
Starfsemin fram úr
björtustu vonum
Igær var haldinn aðalfundur
Skinnaiðnaðar hf á Akureyri,
fyrir árið 1994, fyrsta heila
starfsár fyrirtækisins. Eins og
þegar hefur komið fram var
hagnaður ársins tæpar 100 millj-
ónir kr. Heildartekjur voru tæp-
ar 700 milljónir og rekstrarhagn-
aður 158 milljónir. MeðalQöldi
starfa á árinu var 122 og námu
launagreiðslur 187,3 millj. kr.
A fundinum kom fram að starf-
semin hafi farið fram úr björtustu
en láglaunafólki og það er ábyrgð-
arhluti af stjómvöldum að ávísa 4
milljarða króna víxli sem fylgir
þessum samningum yfir á nýja
ríkisstjórn“, sagði Jóhanna Sig-
urðardóttir.
Þjóðvaki leggur fram 10
áhersluatriði við stjómarmyndun
félagshyggjuflokka eftir kosning-
ar. Þar má nefna aó koma skal á
siðareglum í stjómmála- og við-
skiptalífi, meðal annars meó lög-
gjöf um starfsemi stjómmála-
flokka og afnema beri bílahlunn-
indi og dagpeningabruðl æðstu
embættismanna; jafna atkvæðis-
rétt landsmanna og fækka þing-
mönnum í 50 og gera þingið þar
með ódýrara og skilvirkara og
einnig auka áhrif kvenna í stjóm-
málum, atvinnulífi og stjómsýslu;
tekjutengja persónuafslátt þannig
að hann hækki í 67 þúsund krónur
en það samsvarar 4% launahækk-
un hjá fólki með tekjur undir 80
þúsund krónum og jafna beri hús-
hitunarkostnað landsmanna sem er
forgangsverkefni til aó jafna kjör-
in; endurskipuleggja heilbrigðis-
kerfið og fækka lífeyrissjóðunum
en rekstur þeirra kostar um 700
milljónir á ári og auka framlag til
menntamála úr 4% af landsfram-
leiðslu í 6-7% til að standa jafn-
fætis hinum Norðurlöndunum.
GG
r Innanhúss'-1
vonum. Uppsveifla var á öllum
helstu mörkuðum, eftirspum því
mikil og umtalsverðar hækkanir
náðust á söluverðum. Mest var selt
til Ítalíu, Bretlands, Skandinavíu
og S-Kóreu, en alls var flutt út til
22 landa. Endurskipulagning, hag-
ræðingar- og gæðaverkefni sem
verió hafa í gangi hjá fyrirtækinu
hafa skilað verulegum árangri í
lækkun framleiðslukostnaðar, betri
nýtingu og bættum gæðum. Eru
horfur góðar fyrir þetta ár. HA
mólning
10 lítrar
kr. 4.640.-
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 2356^j