Dagur - 23.03.1995, Blaðsíða 1
Venjulegir og demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Orlofshúsin í Kjarnaskógi:
Samið við Sauðkrækinga og
Akureyringa um smíði 10 húsa
Samið hefur verið um smíði
fyrstu 10 húsanna í orlofs-
húsahverfið við Kjarnaskóg. Það
eru sem kunnugt er Úrbótar-
menn hf. á Akureyri beita sér
fyrir þessari framkvæmd og
verða húsin síðan seld öðrum.
Það voru alls 19 aðilar sem buðu
í smíði húsanna og nú hefúr ver-
ið samið við þá aðila sem áttu
tvö lægstu tilboðin. Húsin sem
um ræðir eru 55 fermetrar.
Verða þau smíðuð hjá tilboðsað-
ilum og síðan flutt á sinn stað í
heilu lagi. Að sögn Sveins Heið-
ars Jónssonar, eins Úrbótar-
manna, verður gatnagerð og
undirstöður húsanna boðnar út
innan tiðar.
Lægsta tilboðið kom frá þrem-
ur aðilum á Sauðárkróki: Tré-
smiðjunni Borg/Friðriki Jóns-
syni/Trésmiðjunni Eik sf„ í alls 10
hús. Næst lægsta tilboðið kom frá
aðilum á Akureyri, en þar tóku sig
saman Friðrik Jónsson, Viðar Þor-
steinsson, Guðmundur Jóhannsson
og Ingólfur Hermannsson. Fyrir-
Vélsmiðjan Vík hf. á Grenivík:
Mikið um fyrirspurnir
um snióblásara
Vélsmiðjan Vík hf. á Greni-
vík hefur framleitt snjóblás-
ara til notkunar á dráttarvélar,
sem best nýtast með þrítengi-
beisli beint framan á vélinni.
Verð slíks snjóblásara er um 1,8
millj. króna utan virðisauka-
skatts.
Fyrsti blásarinn kom á markað
í febrúarmánuði 1989 og síðan
hafa verið seldir 12 snjóblásarar.
Einnig eru framleiddir á Grenvík
stærri snjóblásarar, sem hægt er
aó hengja á gröfur og stærri tæki
og eru þeir með sjálfstæðan mótor
og hafa tveir slíkir verið seldir,
annar til Vegagerðarinnar á Húsa-
vík en hinn til Vegagerðarinnar á
Patreksfirói. Hægt er að afgreiöa
næsta snjóblásara sem pöntun
berst í eftir um vikutíma en af-
greiðslutími næsta snjóblásara þar
á eftir yrði nokkuó lengri.
Jakob Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri Vélsmiðjunnar Vík-
ur hf., segir að töluvert hafi verið
spurt um snjóblásara aó undan-
fömu í ófærðinni og hafi það ekki
síst verið frá bændum, en einnig
hafi fyrirspumir borist frá fyrir-
tækjum og sveitarfélögum, þó að-
allega af vestanverðu Norðurlandi
og Vestfjörðum. Hann segist eiga
von á einhverjum pöntunum fyrir
næsta vetur, snjóalög í vetur hafi
minnt menn á að vetur á Islandi
geti verið ansi snjóþungir. GG
Norðurland vestra:
Bilun i simkerfi
Um sjöleytið í fyrrakvöld
varð bilun hjá Pósti og síma
á Sauðárkróki, sem er móður-
stöð fyrir Skagaförð, Húna-
vatnssýslur og Strandasýslu. Bil-
unin var í móttökueiningu í Qöl-
síma á ljósleiðara. Hægt var að
bregðast fljótt við, varabúnaður
sem var á Húsavík var fluttur
vestur og klukkan rúmlega eitt í
fyrrinótt var allt komið í samt
lag.
Bilunin olli því, að sögn Ár-
sæls Magnússonar, umdæmis-
stjóra Pósts og síma á Norður-
landi, að sambandslaust var á
langlínu við báðar Húnavatnssýsl-
ur og Strandasýslu, en eftir því
sem best er vitað var áfram sam-
band innbyrðis á hverri stöó. „Það
er á áætlun hjá okkur að hafa sím-
kerfið hringtengt og þá koma
svona útföll væntanlega ekki fyr-
ir,“ sagði Ársæll. HA
Akureyri:
M m ••
Annriki hja logreglunni
Lögreglan á Akureyri hafði
ekki undan í gær að sinna
aðstoð við ökumenn vítt og
breitt um bæinn. Færi á götum
var erfitt í hlákunni og ástandið
því slæmt í íbúðarhverfum.
Bjöm Snorrason, varðstjóri hjá
lögreglunni, sagði að bílamir hafi
sokkið í blautan snjóinn á götun-
um og setió unnvörpum fastir.
Litlu skiptir í þessu ástandi þótt
menn séu á þokkalega vel búnum
bílum, jafnt þeir fjórhjóladrifnu
lentu í vandræðum sem aórir.
Bjöm sagði erfitt fyrir moksturs-
menn að hreinsa götur því þær eru
orðnar þröngar og lítið rými fyrir
ruðninga. JOH
tækin á Sauðárkróki munu smíða
7 hús en Akureyringamir 3 hús.
Hafa byggingaraðilamir reyndar
þegar rætt saman um samvinnu
varðandi efniskaup.
Guðmundur Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Trésmiðjunnar
Borgar, sagist reikna með að um
10-12 menn frá fyrirtækjunum
þremur muni vinna að smíði hús-
anna. „Þetta er þó nokkuð viða-
mikið verk og við þurfum að af-
henda húsin í byrjun júlí þannig
að það þarf að láta hendur standa
fram úr ermum,“ sagði Guðmund-
ur. Að hans sögn hefur verkefna-
staða Borgar verið nokkuð góð, en
því væri ekki að neita að minna
væri í sjónmáli en oft áður, sér-
staklega af stærri verkefnum. Tré-
smiðjan Borg framleiðir meðal
annars hinar landsþekktu Kvartett
innréttingar sem Egill Ámason hf.
í Reykjavík selur.
Aó sögn Stefáns Jónsonar á
Akureyri munu þeir hefja smíði
húsanna um eða upp úr mánaða-
mótunum. „Við hugsum okkur að
smíða öll húsin í einu, vinna þetta
allt sem eitt verk og taka hvem
verkþátt út í gegnum öll húsin.
Þannig teljum við okkur ná mestri
hagkvæmni.“ Hann sagði alveg
ljóst að þetta verkefni kæmi sér
afar vel, enda vægast sagt verið
dauft yfir byggingamarkaði á Ak-
ureyri að undanfömu. „Við lítum
líka þannig á að við stöndum vel
að vígi gagnvart frekari fram-
kvæmdum," sagði Stefán, en alls
er gert ráð fyrir milli 30 og 40
húsum á svæðinu. HA
Sumum þykir orðið nóg um
snjóinn á þessum vetri og má
sannarlega taka undir þaó miðað
við þessar myndir úr Svarfaðar-
dal. Þeir bmgðu þar á leik Guð-
mundur Karlsson, mjólkureftir-
litsmaður KEA og Hjalti Guð-
mundsson, mjólkurbílstjóri, í
fyrradag og tóku myndir í
snjógöngum á veginum milli
bæjanna Ytra- og Syðra- Hvarfs.
Þegar litið er á myndina hér að
ofan þá dettur fæstum annað í
hug en Guðmundur standi mitt í
mannhæðardjúpum skafli en svo
er aldeilis ekki raunin. Til að sjá
upp úr göngunum þurfti hann að
príla upp á þak á jeppanum, sem
þó er ekki í lægri kantinum. Og
ekki að undra því göngin voru
sex metra djúp þegar myndimar
voru teknar. Veðurfarið í gær
breytti stöðunni þó talsvert en
engu að síður verður langt þang-
að til allur þessi snjór verður
horfinn. JÓH
. .■ ■:
ÍSÍ 5 ' SJSi P'V"'
’v v' \ ''
V . ' .. ' '■?■ íf1'->■ ' .. v
■
§P? ''
■ ■■
af þaki jeppans!