Dagur - 23.03.1995, Page 3

Dagur - 23.03.1995, Page 3
Fimmtudagur 23. mars 1995 - DAGUR - 3 FRETTIR f Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf.: Samþykkt að bjóða út nýtt hlutafé Hluthafafundur í Fiskiðjusam- lagi Húsavíkur hf., sem haldinn var í gær, samþykkti að bjóða út hlutafé í fyrirtækinu að upphæð 200 milljónir króna. Núverandi hlutafé er 190 milljónir króna og á Húsavíkurbær stærstan hlut í fyrirtækinu og raunar meiri- hluta, eða um 54%. Rætt hefur verið um sölu hluta- bréfa til íslenskra sjávarafurða hf. (IS) en engin ákvörðun liggur fyr- ir um þá sölu, enda verður ekki gengið fram hjá forkaupsrétti nú- verandi hluthafa, og þá fyrst eftir að þeim hafa verið boðin hluta- bréfin með lögformlegum hætti er hægt að falbjóða þau öðrum aðil- um utan núverandi hluthafahóps. Mikillar óánægju gætti nýverið á Húsavík með þá ákvörðun Lands- banka Islands að leigja Utgerðar- félagi Akureyringa hf. togarann Jóhann Gíslason ÁR-42 með öll- um kvóta út fiskveiðiárið, þ.e. til loka ágústmánaðar þ.á., enda höfðu fulltrúar útgerðarfélagsins Höfða hf. reynt að fá skipið keypt með kvóta. Forráðamenn Höfða töldu Landsbankann mismuna viðskiptavinum sínum með því að leigja UA skipið með forkaups- réttarákvæðum. Áætlun Höfða hf. var að selja Júlíus Havsteen ÞH-1 án kvóta og þannig hefði fengist fjögurra ára gamalt skip á móti 20 ára gömlu auk þess sem fiskveiði- heimildir húsvískra togara hefðu aukist úr 2.346 þorskígildistonn- um í 3.945 þorskígildistonn, eða um 70%. Auk Júlíusar Havsteen ÞH er togarinn Kolbeinsey ÞH-10 gerður út frá Húsavík af íshafi hf. Sameining útgerðarfyrirtækj- anna Höfða hf. og íshafs hf., sem gera út sinn hvom áðumefndra togara, hefur verið ákveðin 1. september nk. samkvæmt sam- þykktum stjóma fyrirtækjanna og stefnt er að því að 1. september 1996 sameinist þau svo Fiskiðju- samlagi Húsavíkur hf. Þannig næst betri hagræðing veiða og vinnslu undir einni yfirstjóm. GG I I » » » » Davíð í þínu kjördæmí Davíð Oddsson efnir til þriggja funda í kjördæminu Húsavík Föstudaginn 24. mars á Hótel Húsavík kl. 20.30 Fundarstjóri Sigurjón Benediktsson Ólafsfjörður Laugardaginn 25. mars í Tjarnarborg kl. 11.00 Fundarstjóri Gunnar Þór Magnússon Akureyri Laugardaginn 25. mars á skemmtistaðnum 1929 kl. 13.30 Fundarstjóri Valgerður Hrólfsdóttir Að lokinni ræðu mun Davíð sitja fyrir svörum ásamt þremur efstu mönnum á lista Sj álfstæðisflokksins í kjördæminu -ÍV;

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.