Dagur - 23.03.1995, Side 15

Dagur - 23.03.1995, Side 15
IÞROTTIR Fimmtudagur 23. mars 1995 - DAGUR - 15 SÆVAR HREIÐARSSON Urslitaleikir KA og Vals: íslandsmeistara- bikarinn í KA-heimilið Húsvíkingar eru stoltir af íslandsmeisturum sínum og það var vel tekið á móti stúlkunum við hcimkomuna. Aftari röð f.v.: Haraldur Haraldsson, formaður handknattleiksráðs, Kristjana M. Kristjánsdóttir, Jóna Birna Óskarsdótt- ir, Elva Birkisdóttir, Særún Jónsdóttir og Magnús Eggertsson, þjálfari. Fremri röð f.v.: Anný Björg Pálmadóttir, fararstjóri, Jóhanna Gísladóttir, Sigurbjörg Stefánsdóttir, Sigurbjörg Hjartardóttir og Helga Björg Pálmadóttir. Á myndina vantar: Huldu Hallgrímsdóttur, Hörpu Sigurjónsdóttur og Huld Hafliðadóttur. Handknattleikur - 5. flokkur kvenna: Húsvíkingar eignast íslandsmeistara - stelpurnar í Völsungi með snilldartakta Þá er komið að þriðju lotu í bar- áttunni um íslandsmeistaratitil- inn, þar sem KA og Valur glíma af mikiu harðfylgi. Eins og flest- um er kunnugt er staðan 1:1 í viðureignum félaganna en þrjá sigra þarf til að tryggja sér titil- inn. Það er því ljóst að liðin þurfa að minnsta kosti tvo leiki til viðbótar til að knýja fram úr- slit. Þriðja viðureignin verður í kvöld í Valsheimilinu og á laug- ardag eigast liðin við í KA- heimilinu. Hvort sem KA eóa Valur sigrar í kvöld er öruggt að sigurliðið get- ur tryggt sér titilinn á Akureyri á laugardag. Forráðamenn HSÍ mæta því í KA-heimilið með ís- landsmeistarabikarinn þar sem 01- afur B. Schram, formaður HSI, verður tilbúinn til að afhenda bik- arinn. Hvort bikarinn stoppar stutt í KA-heimilinu eða veróur varð- veittur þar næsta árið á síðan eftir að koma í ljós. Valdimar Grímsson, fyrrum Valsmaður í KA-liðinu, hefur reynst hinum gömlu félögum sín- um erfiður og skorað 23 mörk í þeim tveimur leikjum sem búnir eru. Hann hefur mikla trú á aó KA hampi bikamum í ár en segir þetta mjög jöfn lið. „Það tala allir um það að Valsmenn séu yngri, með meiri breidd, minna þreyttir og þar fram eftir götunum og kannski mikið rétt í því en á móti kemur að við KA-menn höfum gaman af því að spila handbolta og sýnum sterkan karakter. Við peppum hvom annan mjög vel upp og er- um að mörgu leyti með leikreynd- ari menn, þannig að ég held að við stöndum á mjög jöfnum grund- velli,“ sagöi Valdimar Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, vildi ekki meina að tvö bestu lið landsins væru að leika til úrslita en er Valdimar sammála því? „Nei, ég mundi segja þetta bestu liðin. Við lékum til úrslita í bikarkeppninni og er- um hér að leika til úrslita í Is- landsmótinu og ég held að það hljóti aó vera tvö bestu lió lands- ins sem gera þaó. Það alltaf hægt að stimpla það sem tilviljun að komast í úrslit í bikar en þegar lið- in leika bæði í bikarúrslitum og úrslitum í íslandsmóti þá held ég að það sanni það bara að þetta séu tvö bestu liðin á Islandi í dag. Við erum að spila góðan handbolta, spilum sterkan vamarleik og fáum upp markvörslu á heimsmæli- kvarða þegar okkur tekst hvað best upp og þá skora lið ekki mik- iö hjá okkur. Það er talað um Valsmenn sem besta sóknarlið landsins en við getum sagt á móti að við séum besta vamarlið lands- ins og við ætlum að vinna þennan titil, það er ekki spuming,“ sagði Valdimar. Hópferð Handknattleiksdeild KA stendur fyrir hópferð á leikinn í Valsheim- ilinu í kvöld og verða áhugasamir að hafa samband við KA-heimilið til skráningar fyrir hádegi í dag. Þar eru cinnig veittar frekari upp- lýsingar en flogið verður til Reykjavíkur síðla dags og verðið er kr. 6.000,- og er takmarkaður fjöldi sæta sem liðið hefur. Forsala Forsala fyrir leikinn í KA-heimil- inu á laugardaginn hefst í dag í versluninni Toppmenn & Sport á Akureyri og er æskilegt að tryggja sér miða í tíma þar sem búast má við troðfullu húsi á laugardag. Sjónvarpað Ríkissjónvarpið mun sýna seinni hálfleik leiksins í kvöld og á laug- ardag verður mikill vióbúnaöur á Akureyri þar sem sýnt veróur beint frá Akureyri í tvo klukku- tíma. Að sögn Samúels Amar Erl- ingssonar, starfandi yfirmanns íþróttadeildar RÚV, þykir um- gjöróin í kringum heimaleiki KA glæsileg og sjónvarpið vill leyfa þjóðinni að njóta stemmningarinn- ar heima í stofu. Valdimar Grímssyni þykir ekki leiðinlegt að sauma að gömlu félög- unum í Val og hefur gert 23 mörk í síðustu tveimur lcikjum. Mynd: Robyn. Handknattleiksstulkur ur Völs- ungi tryggðu liðinu fyrsta ís- landsmeistaratitil félagsins í nær 20 ár þegar þær sigruðu í úrslitakeppni 5. flokks kvenna fyrir skömmu. Sigurinn var glæsilegur og verðskuldaður en í úrslitaleiknum voru það FH- stúlkur sem lagðar voru að velli, 9:6. Úrslitakeppnin var haldin í Iþróttahúsi Fram í Reykjavík 11. og 12. mars. Ekki var búist við að Völsungsstúlkur blönduðu sér í í gær tilkynnti Þorbergur Aðal- steinsson, landsliðsþjálfari, val sitt á undirbúningshóp íslands fyrir HM ’95. í honum er 21 leikmaður en hópurinn verður skorinn niður í 17 menn í byrj- un maí en 15 leikmenn eru á leikskýrslu í hverjum leik. KA- menn eiga þrjá fulltrúa í hópn- um, þá Sigmar Þröst Óskarsson, baráttuna um titilinn og Stjaman hafði bestan árangur eftir þær þrjár undankeppnir sem haldnar voru í vetur. Liðsandinn var þó mikill hjá norðlensku stelpunum og þrátt fyrir tap gegn FH og IBV í millirióli komst lióið áfram með sigri á Gróttu og hagstæðu marka- hlutfalli. I undanúrslitum sigruðu Völsungsstúlkur stöllur sínar úr Val og FH sigraði Fylki í hinum undanúrslitaleiknum þannig að ljóst var að einvígið var milli Völsungs og FH; Patrek Jóhannesson og Valdi- mar Grímsson. Þorbergur hefur fengið marga kunna kappa til að aðstoða sig við undirbúninginn og vekur þar mesta athygli að Jóhann Ingi Gunnarsson mun sjá um sálfræði- ráðgjöf og verður liðinu til halds og trausts. Þá munu þeir Þorbjöm Jensson, Kristján Halldórsson og Brynjar Kvaran sjá um forvinnu fyrir leiki og „njósna" um and- stæðinga íslands. Landsliðió byrjar æfingar 27. mars og fram að keppni verða nær stöðugar æfingar og leikir. Japanir koma í heimsókn og leika tvo æf- ingaleiki í Kópavogi og á ísafirói 12. og 13. apríl og Danir verða sóttir heim 20. apríl og tveir æf- ingaleikir spilaðir áður en Biku- ben mótið tekur við tjórum dögum síðar. Austurríkismenn leika síðan gegn Islendingum í Kaplakrika 28. apríl og nýja gólfið í Laugar- dalshöllinni verður vígt gegn Austurríkismönnum daginn eftir. Landsliðshópurinn er þannig skipaöur: Markverðir: 1. Bjami Frostason 12. Guðmundur Hrafnkelsson 16. Bergsveinn Bergsveinsson 20. Sigmar Þröstur Oskarsson Vinstri hornamenn: 9. Konráó Ólavson 2. Gunnar Beinteinsson Rétthentar skyttur: 15. Júlíus Jónasson Húsavíkurdömur komu ákveðn- ar til úrslitaleiksins og voru staö- ráðnar í að tapa ekki aftur fyrir Hafnftrðingum. Þegar upp var staðiö var ljóst að Völsungsstúlkur vom með sterkara lið, sigurinn var öruggur, 9:6, og Islandsmeistara- titilinn í höfn. Það er því Ijóst að framtíðin er björt í kvennahandboltanum á Húsavík og áhuginn er fyrir hendi. Ef stúlkumar halda áfram á sömu braut eru þama á ferðinni afreks- konur framtíóarinnar. 10. Héðinn Gilsson 7. Patrekur Jóhannesson 14. Einar G. Sigurósson Leikstjórnendur: 3. Jón Kristjánsson 6. Dagur Sigurósson Örvhentar skyttur: 13. Sigurður V. Sveinsson 21. Ólafur Stefánsson 19. Jason Ólafsson Hægri hornamcnn: 5. Valdimar Grímsson 4. Bjarki Sigurösson Línumenn: 11. Geir Sveinsson 8. Gústaf Bjamason 17. Róbert Sighvatsson 18. Birgir Sigurðsson. Innanhúss- knattspyrna Hin árlega Firma- og félagakeppni Þórs í innanhússknattspyrnu, fer fram í íþrótta- skemmunni laugar- daginn 25. mars nk. Nánari upplýsingar gef- ur Ragnar B. Ragnars- son í síma 26040. HM-getraun Dags og HM '95 miðasölu i 45 dagar fram að HM Hver eftirtalinna hefur skorað flest mörk í landsleikjum fyrir Islands hönd? ( ) Alfreð Gíslason. ( ) Geir Hallsteinsson. ( ) Kristján Arason. KrossiS við rétt svar og sendiS seSilinn til: Dagur - HM-getraun, Strandgata 3 J, 600 Akureyri. Símanúmer HM '95 miðasölu: 96-12999 Miðvikudaginn 29. mars verður dregið úr réttum lausnum fyrir dagana 18., 21., 22., 23., og 24. mars og nöfn vinningshafa birt í blaðinu fimmtudaginn 30. mars. Vinningshafi hvers dags fær að launum HM-bol og minja- gripi vegna HM-95. Auk þess verða lausnarmiðar 18., 21., 22., 23. og 24 mars settir í pott og úr honum dregn- Sendandi:_________________________________ ir tveir miðar. Hinir heppnu fá hvor um sig tvo miða einn leikdag (þrjá leiki) í D-riðli HM '95 á Akureyri. Þátttakendur geta sent lausnarseðla í umslagi fyrir hvern dag en einnig er heimilt að senda lausnarseðla fyrir fyrstu fimm daga getraunarinnar í einu umslagi. Það skal ítrekað að fyrsti útdráttur verður miðvikudaginn 29. mars. Sími: Landsliöshópur íslands fyrir HM ’95 tilkynntur í gær: Sigmar Þröstur í hópnum - Jóhann Ingi sér um sálfræðiráðgjöf fyrir leikmenn

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.