Dagur - 28.03.1995, Blaðsíða 3

Dagur - 28.03.1995, Blaðsíða 3
FRETTIR Þriðjudagur 28. mars 1995 - DAGUR - 3 Siglufjöröur: Bæjarmála- punktar ■ Bæjarráói barst nýlega er- indi frá Foreldrafélagi Skíóafé- lagsins, þar sem bærinn er hvattur til að taka þátt í kostn- aði við kaup á snjóflóðalcitar- tæki. Bæjarráð samþykkti framlag að upphæð kr. 100.000.-. ■ Bæjarráói hefur borist erindi frá Jóni Trausta Traustasyni, vitaverði á Sauðanesi, þar sem óskað er eftír afstöóu ráðsins vegna forkaupsréttar Siglu- fjarðarkaupstaðar á jörðinni Sauðnes-Engidalur. Gert er ráð fyrir að sala á jörðinni fari fram í júlímánuði nk. Bæjarráð samþykkti að bæjarstjóri ritaði Jóni Trausta bréf, þar sem fram komi að Siglufjarðar- kaupstaður muni nýta for- kaupsréttinn en jafnframt að bjóða Jóni Trausti til samninga um nýtingu á jörðinni. ■ Bæjarráð hefur samþykkt að hafharsjóður greiói kr. 5.000.000,- afgjald á árinu. ■ Bæjarráói hefur borist upp- sögn frá skrifstofustjóra bæjar- ins, sem hyggst flytja úr bæn- um. ■ Bæjarstjóri viðraði þá hug- mynd á fundi bæjarráðs nýlega að setja upp toglyftu fyrir ofan bæinn, þar sem ekki er hægt að opna skíóasvæðiö í Skarðsdal. Ákveðið var að vinna áfram að málinu. ■ Forsvarsmenn Glaðnis hf. komu á fundu bæjarráðs ný- lega, til að ræða málefni Glaðnis hf. í framhaldi af er- indi frá fyrirtækinu. Þeir kynntu nýja vörulínu fyrirtæk- isins og sölusamninga sem gerðir hafa verið. Fram kom fyrri ósk um fjárstuðning vegna meiri kostnaðar við flutning fyrirtækisins til bæjar- ins en forráóamenn þess geróu ráð fyrir. Bæjarráð taldi sér ekki fært að verða við erindinu. ■ Kristján Guðmundsson, heilsugæslulæknir, kom á fund félagsmálanefndar nýlega, þar sem rætt var um þörf á þjón- ustu sálfræðings i bænum. Erla Eymundsdóttir, fulltrúi áfeng- isvamaráðs ríkisins, mætti cinnig á fundinn og var líka rætt um áfengisvamir og þörf á úrbótum. ■ Tækni- og umhverfisnefnd hefur lagt til við bæjarráó að stöóuleyfi vörubifreiða, hóp- feróabifreiða og vinnuvéla verói staðsett á innra hafnar- svæðinu sunnan Suðunanga og austan Snorragötu. Telur nefndin þetta heppilcgt fram- tíðarsvæöi fyrir Bifreiðastöð Sigluíjarðar. Á opnunartíma vörubílastöðvarinnar verði þeim heimilt að leggja vöru- bifreiðum austast á lóð vestan Mjölhúss SR. ■ Á fundi félagsmálanefndar nýlega kom fram að þjónustu- hópur aldraðra hefúr ákveðið að gera þjónustumat vcgna þeirra sem sækja um íbúð í Skálarhlíð. Þjónustumat þetta verður einnig gert vegna þcirra sem sóttu um íbúðir á árinu 1994. Tilgangur þjónustumats- ins er að auðvelda þjónustu- hópnum mat á aðstæðum vió- komandi umsækjenda. ■ Bciðni félagsmálanefndar um daggjöld vegna reksturs dagvistar aldraðra var hafnað en sótt verður um framlag fyrir árið 1996. Vegagerð í Eyjafjaröarsveit: Ari á Þverá lægstur í gær voru opnuð tilboð í lagn- ingu 3,9 km vegarkafla á Eyja- ijarðarbraut eystri frá Þverá að Laugalandi. Vegurinn verður byggður upp og klæddur og skal verkinu lokið 1. sept. nk. Níu aðilar buðu í verkið og lægsta tilboðið kom frá Ara Hilmarssyni á Þverá í Eyjafjarðar- sveit, 17,8 milljónir rúmar. Það er 66,46% af kostnaóaráætlun Vega- gerðarinnar sem er 26.863.715 kr. Jarðverk hf. Nesi bauð 69,56%, Klæðning hf. Garðabæ 71,41%, Jarðverk hf. Dalvík 73,88%, G. Hjálmarsson Akureyri 79,71%, Amarfell hf. Akureyri 86,85%, Ámi Helgason Ólafsfirði 88,51%, Vömbílstjóraf. Valur Akureyri 96,18% og Myllan hf. Egilsstöð- um 103,50%. Á þessu ári og næsta ári er áætlað að ljúka við um 700 m kafla frá vegamótunum vió Laugaland, á veginum sem tengir Eyjafjarðarbraut eystri og vestari. Að því verki loknu verður klæðn- ing komin á allan hringinn, þ.e. frá Akureyri, yfir brúna á Eyja- fjarðará við Hrafnagil og Lauga- land og aftur til baka. HA Höfum raðað i fermingarpakka sem eru á tilboðsverði. íSi}a/3jg&iiaj* jj'' n'jiúní JlneM&ndU .... - V* ÍM / Inmhald: Eplasali (49,9%), vatn, sykur, sýra (sftrónusj Næringargildi i 100 g: Pökkimardagur og best tyrir Sjá' Orka 190kJ / 45 kcal Best er að neyta safans innan 3 d p'«»m.......... 0.« 9 l'iopmin. ...... St!:=:’ͧS 2 Iftrar ]||||j !|||!|||||| Hrlililtlyrlt nolkunU |«»llnn| 5 [ll|ll5lllplll!llll epla 1 clryhhur G KEA AKURI ■íX'" r’ '.'.jt'VAí.'i'H’ifeSS Inmhald: Eplasafi (49,9%), vatn, sykur, sýra (sítrónusýra) Nænngargildi 1100 g: Orka 190kJ /45 kcal Prótein......... 0,0 g Kolvetni........11.2 g Fita........ 0.0 g Pökkunardagur og best fyrir: Sjá topp Best er að neyta safans innan 3 daga frá opnun. íl Hl (II 2 lítrar ÍKællvara Hrislist lynr notkun 690512 002156 MJÖLKURSAMLAG KEA AKUREYRI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.