Dagur - 28.03.1995, Qupperneq 5
Föstudagur 28. mars 1995 - DAGUR - 5
Húsavík:
„Valið í kosnmgunum auðvelt“
- sagði Davíð Oddsson á fundi sjálfstæðismanna
Menningarmálanefnd Húsavíkur
hefur fitjað upp á nýbreytni í sam-
vinnu við Safnahúsið og Tónlistar-
skólann. A miðvikudagskvöld
verða haldnir tónleikar i Safnahús-
inu þar sem stigahæstu nemendur
Tónlistarskólans fá að spreyta sig á
lengri dagskrá en á hefðbundnum
nemendatónleikum, án þess þó að
um einleikstónleika sé að ræða.
Gunnar Rafn Jónsson, formaður
nefndarinnar, sagði að þessi hug-
mynd hefði komið fram, að nem-
endunum gæti hentað vel að glíma
við slíkt millistig á tónleikum. Að-
gangur er ókeypis og allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Sagðist Gunnar Rafn vona að fólk
styddi æskuna með góðri mætingu.
A tónleikunum leikur Jóhanna
Gunnarsdóttir á píanó verk eftir
Schumann og Chopin, og verk eft-
ir C. Francous og J. Revaux ásamt
Kristjáni Þór Magnússyni saxó-
fónleikara. Þórunn Harðardóttir
og Valmar Valjaots leika verk eft-
ir Schubert fyrir píanó og fiðlu.
Þorvaldur M. Guðmundsson leik-
ur á gítar verk eftir L. Brouwer,
Bach og I. Albemiz. IM
„Ég get alveg sætt mig viö að það
séu öðru hvoru vinstri stjómir í
landinu, það er eðlilegur hluti lýð-
ræðisins að menn láti á slíka hluti
reyna. En vinstri stjóm 4-5 flokka
sem em svona sundraðir er ekki
hagfelld lausn núna, þegar við er-
um að ná árangri eftir erfiða bar-
áttu,“ sagði Davíð Oddsson, for-
sætisráðherra, á fundi Sjálfstæðis-
flokksins sl. föstudagskvöld á
Húsavík. Um 70 manns sóttu
fundinn, þar á meðal margir kenn-
arar sem auðkenndu sig sem kenn-
ara í verkfalli.
Forsætisráðherra sagði efna-
hagsuppsveifluna meiri en hann
hefði óraó fyrir og valið í kosn-
ingunum yrði auðvelt, þar sem
ekki væri æskilegt að fá fimm
skipstjóra við stjómvölinn og þar
með stjórn sem myndi springa
þegar mest á reyndi.
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur
lagt meiri áherslu á samgöngumál
en aðrir flokkar. Fyrir okkur héma
fyrir noröan er það mjög þýðing-
armikill og afdrifaríkur þáttur í
þjóðmálum," sagði Halldór Blön-
dal, samgönguráðherra. „Við vit-
um að áherslan í samgöngumálum
þessa kjördæmis hefur verið í
kringum Akureyri, vegna þess að
umferðin er mest þar og mest hef-
ur reynt á vegina. Þess vegna er
ekki óeðlilegt að strjálu byggðim-
ar hér fyrir austan njóti þess nú að
við erum í stærsta dreifbýliskjör-
dæmi landsins.“
Trilluútgerð lóðrétt
á hausinn
Heimir Bessason, trillukarl, bar
fram nokkrar fyrirspumir til Dav-
íðs: m.a. hvort það hefði afgerandi
áhrif á þorskstofninn þó leyft yrði
að veiða 10 þúsund tonnum meira,
og hvort Þorsteinn Pálsson yrði
næsti sjávarútvegsráðherra sjálf-
stæðismanna, ef þeir yrðu í ríkis-
Heimir Bessason, trillukarl á Húsavík, og Davíð Oddsson, forsætisráðhcrra,
ræða málin á fundi Sjálfstæðisflokksins á Húsavík si. föstudagskvöid. Heim-
ir bar fram nokkrar fyrirspurnir til Davíðs og m.a. hvort Þorsteinn Pálsson
yrði næsti sjávarútvegsráðherra ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði með þann
málaflokk að gcra í næstu ríkisstjórn. Mynd: IM
Húsavík:
Nemendatónleikar
í Safinahúsinu
HEILBRIGÐISMÁL í GLERHÚSINU
stjóm og hefðu með þann mála-
flokk að gera. Hann sagöi að hús-
vísk trilluútgerð væri á leið lóðrétt
á hausinn með sama áframhaldi.
Davíð svaraði og sagói menn
ekki hafa fundið skárra kerfi en
kvótann. Hann sagðist ekki sér-
fræðingur í fræðunum, en að hann
hefði haldió að þaó myndi ekki
skipta sköpum um stofnana hvort
10 þúsund tonnum yrði bætt við
veiðiheimildir trillukarla. Hann
sagði afskaplega erfitt fyrir stjóm-
málamanninn að taka sér það vald
að segja að vísindamennimir
segðu þetta en hann sem valda-
maður ætlaði að ákveða hitt.
Varðandi sjávarútvegsráðherra
sagði hann ekki venju að ákveða
fyrirfram embætti þingmanna
Sjálfstæðisflokksins. Hann sagói
að gætilega þyrfti að fara við að
finna að störfum Þorsteins, þar
sem hann væri sjávarútvegsráð-
herra við mjög erfið skilyrði.
Friðfmnur Hermannsson spurð-
ist fyrir um eignaraóild að kvóta
og Snædís Gunnlaugsdóttir spurði
hvort nokkum tíma yrði hægt að
snúa aftur frá kvótakerfinu.
Forsætisráðherra sagði að því
Iengur sem kvótakerfið varaði
yrði það fastara í sessi og fleiri
þættir tengdust því. Skilgreiningin
á eignarrétti hefði þó ekki breyst,
kvótinn væri þjóðareign. IM
ÍSLANDSBANKl
NÁMSKEIÐ í
HEIMILISBÓKHALDI
Viltu ná tökum á fjármálum heimilisins...?
ÞRIÐJUDAGINN 28. MARS
MORGUNFUNDUR K L. 10.00
Guómundur Bjarnason, alþingismaður og fyrrverandi heilbrigðisráðherra,
ræðir um stefnuna í heilbrigðismálum.
SÍÐDEGISFUNDUR K L. 17.00
Guðmundur Bjarnason, alþingismaður og fyrrverandi heilbrigðisráðherra, leiðir
umræðu um heilsugæslu, heilsueflingu, hlutverk sjúkrahúsa og hið umdeilda
þjónustugjald.
Stuttar framsögur flytja Karolína Stefánsdóttir, félagsráðgjafi, Ólafur Hergill
Oddsson, héraðslæknir, og Halldór Jónsson, framkvæmdastjóri FSA.
Nú býðst tækifæri til að koma skipulagi á fjármálin.
Við bjóðum þér á námskeið í heimilisbókhaldi
fimmtudaginn 30. mars kl. 20-22 á Fiðlaranum,
Skipagötu 14, 4. hæð
Leiðbeinendur: Kristján Einarsson, rekstrarhagfræðingur
Guðrún Jóhannsdóttir, þjónustufulltrúi
Skráning og nánari upplýsingar fást
í utibuum bankans á Akureyri.
Guðmundur Bjarnason,
alþingismaður og
fyrrverandi heilbrigðisráðherra