Dagur


Dagur - 01.04.1995, Qupperneq 6

Dagur - 01.04.1995, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Laugardagur 1. apríl 1995 „Það kitlar okkur að fai - segir Þorvaldur Örlygsson, sem líklega er á förum frá Stc Þorvaldur Örlygsson er sennilega sá norðlenski knattspyrnumað- ur sem hefur náð hvað bestum árangri á erlendri grund á síðari árum. Eftir að hann varð íslandsmeistari með KA sumarið 1989 hélt hann utan og gerðist atvinnumaður með Nottingham Forest í Englandi. Eftir misgóða tíma þar söðlaði hann um og gekk í raðir Stoke City sumarið 1993 þar sem honum var strax vel tekið. Hann er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum liðsins og er almennt talað um hann sem skærustu stjörnu félagsins. Þessu fékk blaða- maður Dags að kynnast þegar hann heimsótti Stoke fyrir skömmu þar sem Þorvaldur hefur komið sér vel fyrir ásamt eiginkonu sinni, Ólöfu Ellertsdóttur. Þegar komið er inn í verslun Stoke City við leikvang félagsins, Victoria Ground, blasir við ýmis varningur í litum félagsins. Tvær Iiðsskyrtur eru hengdar upp til að auglýsa sölu á búningum liðsins, önnur hvít og rauð og hin græn og blá. Á annarri skyrtunni stendur „Toddy“ og á hinni „Orlygsson“ og sagði starfsmaður verslunarinnar þetta langvinsælustu áletrunina hjá aðdáendum liðsins. Eftir að hafa fylgst með æfingu hjá félag- inu á illa leiknu æfmgasvæði þess tók blaðamaður Þorvald tali í íbúð þeirra hjóna í rólegu hverfi í útjaðri Stoke-on-Trent. Alltaf íslendingur - Hvernig líkar þér lífið í Eng- landi? „Eg er búinn að vera héma síó- an 1989 eða í sex ár og okkur Olöfu líkar báðum rosalega vel héma. Eg hef alltaf kunnað mjög vel við mig héma og nrundi segja að ég sé búinn að koma mér vel fyrir.“ - Ertu orðinn „Tjalli"? „Nei, maður verður alltaf Is- lendingur, alveg sama hversu lengi maður mundi búa hérna. Helsta breytingin er kannski sú að maður borðar meira egg og beikon en maóur gerði áóur fyrr.“ - Ertu vel stœður peningalega eftir þessi sex ár sem atvinnumað- ur í Englandi? „Eg mundi allavega ekki segja að ég sé illa staddur og alveg ör- ugglega betur staddur en þegar ég byrjaði. Eg var mjög fátækur námsmaður sem lifói á foreldrun- um áður en ég fór út.“ - Hefiir orðið mikil breyting á þér sjálfum á þessum árum í at- vinnumennskunni? „Já, þaö er ekki spuming að hún er alveg geysileg. Það er þá kannski bæði líkamleg og andleg breyting. Það er t.d. aðeins farið að þynnast á mér hárið. Eg kom út þegar ég var 22 ára og maður hef- ur þroskast geysilega síðan. Eg er miklu rólegri og yfirvegaðri held- ur en ég var þá og ég held að ég sé ekki alveg eins blóðheitur og ég var.“ - Hvað gerir atvinnumaður í knattspyrnu utan við að leika fót- bolta? „Þaó eru jafn mörg áhugamál hjá mönnum eins og menn eru margir en típískur fótboltamaður gerir ósköp lítið. Þessi týpíski Breti sem maður hefur kynnst héma annað hvort veðjar á hestana sína eða eyðir bara deginum í að bíða eftir næsta degi. Menn reyna náttúrulega að hafa einhver áhuga- mál fyrir utan völlinn og gera eitt- hvaö meö tímann. Sumir reyna að koma sér í nám, því þegar upp er staðið þá geta menn ekki spilað fótbolta til eilífðar. Þó svo að menn séu með mikinn frítíma þá Þorvaldur hefur nú leikið í tæp sex ár sem atvinnumaður í Englandi. Hann iék fyrst með Nottingham Forest og færði sig síðan yfir til Stoke fyrir tveim- ur árum. Hér sést hann í baráttu við Gordon Cowans, leikmann Wolves. : iÆCíV'W 'oSÍm Þorvaldur Örlygsson hefur áhuga á að reyna tyrir sér í Japan ef honum stendur það enn til boða þegar knattspyrnu- tíðinni líkur í Englandi um miðjan maí. Mynd: SH er sá tími þannig að einn daginn áttu frí en síðan geta komið tvær vikur án þess aó eiga frí þannig aó það er erfitt að fara í nám með boltanum. Eg vona aö ég hafi ein- hverja möguleika þegar ég hætti að spila og maður verður að hugsa um að boltinn stoppar bráðum.“ - Nú hafa margir þá hugmynd um atvinnuknattspyrnumenn að þeir séu kœrulausir og skemmti sér fram úr hófi. Ert þú skemmt- anafrík? „Nei, ég held ég sé frekar ró- legur í þeirri deild. Eg neita því ekki að mér finnst ekkert leiðin- legt að fara út og skemmta mér en það á sér sinn tíma og stað og knattspymumenn geta ekki leyft sér allt.“ - Hvernig er samband atvinnu- manns við aðdáendur? „Þetta er ekkert líkt því sem er heima þar sem stuðningsmenn liósins eru meira og minna fjöl- skylda og vinir. Héma verður maður að passa sig á því hvað maður segir og hvað maður gerir. Eg hef aldrei komið í annað eins kjaftasögubæli og héma í Stoke og þeir eru fljótir að búa til sögumar og þær fljótar að berast.“ Frábær tími - Nú varstu í fjögur ár hjá Nott- ingham Forest og þurftir oft að dúsa fyrir utan liðið. Hvernig var sá tími? „Tíminn í Nottingham var al- veg frábær og mjög skemmtilegur þrátt fyrir að fótboltalega séð hafi gengið upp og niður. Eg er ekki að segja að það hafi gengið illa því þegar ég lít til baka er ég nokkuð sáttur við hvernig mér gekk. Eg hefði kannski viljað skora fleiri mörk og spila fleiri leiki en við vorum meö það stóran hóp aö þegar maður datt út úr lióinu lenti maður í röð á eftir tíu mönnum. Forest var á þessum tíma mjög sterkt og hópurinn mun betri held- ur en félagió hefur í dag og þar voru á milli 20 og 30 leikmenn sem voru með burði til að vera í aðalliðinu. Ef maður datt út þá lenti maður bara aftast í röðinni. Þaö var rosalega erfitt en þaö var góð reynsla og virkilega skemmti- leg líka.“ - Hver er svo munurinn á að vera að leika með Stoke þar sem þú ert mikils metinn og að vera hjá Forest þar sem þú varst ekki í hópiþekktari leikmanna? „Eg get ekki neitað því aó það er rosalega gaman að vera stóra stjaman í liðinu, ganga vel og skora reglulega. Þetta er tvennt ólíkt og héma er miklu auðveldara að verða hetja. Þó við séum í 1. deild þá er alveg jafn mikill og jafnvel meiri áhugi á fótbolta hérna en í Nottingham. Síðustu tvö ár hefur verið nokkuð gott gengi hjá okkur og við erum svo- lítið svekktir að hafa ekki farið upp í úrvalsdeildina á síðasta ári. Það var einungis fyrir klaufaskap aó við misstum af því.“ - Nýturðu einhverra forrétt- inda eða fœrð sérstaka athygli sem atvinnumaður hérna í Stoke? „Því er ekki hægt aó neita að fótboltamenn fá sérstaka meðferð og fólk vill þekkja atvinnumenn en það er jafn fljótt að snúa baki við þeim ef illa gengur. Þegar vel gengur þá er náttúrlega mjög gam- an og sérstaklega í samfélagi eins og hér í Stoke þar sem allt snýst um fótbolta hjá fólkinu. Hér er fólk almennt ekki með mikla pen- inga milli handa og þá er rosalega mikilvægt að hafa gott fótboltalið. Fólkið talar um fótbolta allan dag- inn og ég hef heyrt það hjá mönn- um í atvinnurekstri að þegar vel gengur hjá Stoke-liðinu þá er betri vinnuandi og miklu skemmtilegra að lifa. Fólkið tekur hrikalega nærri sér þegar illa gengur og þá færðu að heyra það.“ - Ertu orðinn frœgur? „Frægur eða ekki frægur? Eg er búinn að vera héma í nokkur ár og hérna í mið-Englandi er mikill áhugi. Eg er búinn að spila um tvö hundruð leiki meö Forest og Stoke þannig að ég mundi segja að ég sé búinn að skapa mér ágætis nafn sem fótboltamaður héma í Eng- landi.“ Skipulagsleysi - Stoke hefur ekki gengið mjög vel að undanförnu, hvað er að ger- ast? „Þegar ég kom héma fyrst var svona heldur losaragangur á öllu í sambandi við klúbbinn. Eg kom héma á meðan Lou Macari var stjóri en síðan fer hann til Celtic og þá fer aó ganga betur hjá okk- ur. Joe Jordan tekur vió og hann kemur skipulagi á hlutina. Hann kemur hlutunum í rétt stand hvað varðar æfingar og var að snúa klúbbnum í þá átt að vera alvöru klúbbur. Það er alltaf góð aðsókn héma í Stoke, alveg sama hvemig gengur, en Joe náði aldrei góðu sambandi við áhorfendur. Við vor- um þremur stigum frá því að kom- ast í úrslitakeppnina í fyrra en það hefur gengið niður á við síðan þá. I byrjun þessa tímabils vomm við að spila mjög góðan bolta undir stjóm Jordans. Við áttum gott undirbúningstímabil og vorum vel undirbúnir. Hann hafói ekki mikla peninga til aó kaupa og fékk ekki mikið til að bæta hópinn þannig að hann vissi að hann þurfti að vinna vel úr því sem hann hafði og hafa góða skipulagningu á hlutunum. Það gekk ekki alveg nógu vel í byrjun hjá honum, við töpuðum nokkrum leikjum í röð og það var einhvers konar pólitík bakvið það aó hann var rekinn. Þá var nýbúið að reka Lou Macari frá Celtic og hann tók aftur við Stoke. Ég held að við höfum verið í sjöunda sæti deildarinnar þegar Lou tók við lið- inu aftur en nú emm við í fimmta neðsta sæti og það segir ansi mik- ið. - Hvernig þjálfari er Lou Mac- ari? „Hann vill oft á tíóum einbeita sér meira að því aó hafa leikmenn í góðu formi frekar en að hafa þá undirbúna andlega og fótboltalega séð. Það er mjög góður standard á

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.