Dagur - 01.04.1995, Page 7
i
Laugardagur 1. apríl 1995 - DAGUR - 7
1. deildinni núna og þá geturðu
ekki bara farið út og hlaupió öll
liðin af þér. Þú þarl't að hafa gæói
og það er fullt af mjög góóum
leikmönnum og liðum í þessari
deild. Mér finnst vanta miklu
meiri gæói í Stoke-liðið. Hann
hefur hann eytt milljón punda í
nýja menn og rúmlega það en það
hefur ekki gengið upp hjá þeim
sem hann hefur keypt.“
- Hvernig er andinn í hópnum
þegar það gengur svona illa?
„Tímabilió er búið aö standa
síðan í ágúst og það er mín skoðun
aö það sé frekar mikil andleg
þreyta í hópnum og ég held að þaó
sé einungis vegna þess aö við er-
um búnir að æfa alltof mikið lík-
amlegar æfingar frekar en að ein-
beita okkur að fótboltanum. Þaö
væri nær að spá í hvernig and-
stæðingamir eru heldur en að vera
nógu hraustur til að geta hlaupið
10 kílómetra. Það er óðagot á
þessu núna og við höfum verið að
spila mikinn vamarleik og það
hjálpar okkur ekki. Sjálfstraustið
hverfur og þaó gengur allt á móti
okkur. Þegar hlutirnir ganga illa
þá reynir miklu meira á fram-
kvæmdastjórann, hvort að kunn-
átta sé fyrir hendi. Þaö er ekkert
mál fyrir framkvæmdastjóra þegar
lióinu gengur vel en þegar illa
gengur þarf að snúa við dæminu.
Vió erum komnir ansi langt nióur
í deildinni og því fyrr sem menn
átta sig á því aó við getum fallið,
því betra.“
- Er Stoke nógu sterkt til að
sleppa við fall?
„Ég tel að við séuni með nógu
góða menn til aó vera í toppbarátt-
unni en til þess þyrfti aö velja lið-
ið aóeins öðruvísi. Vió höfum ver-
ió að spila með fimm til sex
manna vöm. Við erum með þrjá til
fjóra hafsenta að dekka tvo menn
og það segir sig sjálft að í enska
boltanum þýðir ekkert að verjast
svona, við verðum að sækja. Síðan
fara áhorfendur að gagnrýna fram-
herjann fyrir að skora ekki en
hann getur ekki skorað þegar bolt-
inn er alltaf á miðjum vellinum. A
móti Port Vale um daginn spilaði
ég frammi og vió fengum t.d. að-
eins eitt hom í öllum leiknum og í
síðari hálfleik áttum við aðeins
eina fyrirgjöf. Ég gaf fyrir markið
á þann sem var með mér frammi
og næsti félagi okkar var inni á
okkar vallarhelmingi. Það vantar
meiri sköpun í liðið og mér finnst
nokkur panik í þessu núna. Við
getum unnió hvaða lið sem er í
deildinni en okkur vantar allan
stöðugleika og ég held að það sé
vegna þess að við erum ekki nógu
skipulagóir.“
Ég er boltamaður
- Varð mikil breyting á leik liðsins
eftir að Macari tók við?
„Já, ég mundi segja það. Ég
veit ekki hvort þetta kallast „kick
and rush“ en ef við erum með
boltann á okkar eigin vallarhelm-
ingi þá vill stjórinn að við reynum
sem fyrst að koma boltanum það-
an og reyna svo aö ná honum hin-
um megin á vellinum. Hjá Joe
voru öðruvísi áherslur og þá átti
að reyna aö spila boltanum í lapp-
imar á framherjunum. Ég mundi
segja að ég væri frekar boltamaður
það hentaði mér t.d. vel að vera
hjá Clough hjá Forest þar sem
áherslan var allan tímann að
stoppa boltann og senda á næsta
mann.“
- Nú eru þessir stjórar sem þú
hefur verið með hérna mikið í
sviðsljósinu. Hver eru einkenni
þessara manna?
„Clough er sennilega þekktasti
framkvæmdastjórinn héma í Eng-
landi og hefur verið síðustu tvo
áratugi. Hann hefur persónuleika
sem er sér á báti og svo gjörsam-
lega óútreiknanlegur. Hann er bú-
inn aó ná frábærum árangri en á
sín vandamál eins og hver annar.
Clough var af þessum „gamla
skóla“ og skipulag var kannski
ekki alltaf eins gott og það á aö
vera. Hann lék meira af fingrum
fram frekar en að spá mikið í hlut-
ina. Hann var kannski með þaö
mikla reynslu að hann þurfti ekk-
ert að hafa fyrir þessu. Ég er mjög
ánægður meó Joe Jordan hvað
varðar skipulag og undirbúning.
Æfmgamar hjá honum voru mjög
skipulagðar og hann var búinn að
vera á Italíu í nokkur ár og var að
koma meó góða hluti hingað.
Hvort Lou Macari sé af „gamla
skólanum“ eða viti bara ekki bet-
ur, það er hlutur sem hann verður
sjálfur að svara.“
- Þegar þú varst hjá Forest
varstu oftast notaður sem kant-
maður og sama sagan var hjá ís-
lenska landsliðinu. En ertu kant-
maður?
„Þegar ég kom héma út fyrst þá
var ég miðjumaður en Clough
færði mig út á kantinn og það fest-
ist einhverra hluta við mig að ég
væri kantmaður. Ég hef aldrei ver-
ió kantmaður og barðist við það
heillengi að komast inn á miðjuna.
Síðan var náttúrulega önnur bar-
átta hjá Forest þar sem sonur þjálf-
arans (Scott Gemmill (innskot
blaðamanns)) var á miðjunni og
ég átti frekar erfitt uppdráttar.
Þetta hljómar kannski asnalega en
því miður var það svoleiöis. Þaó
var líka um tíma með íslenska
landsliðinu að ég var alltaf notaö-
ur sem vængmaóur og ég orðaði
það við Asgeir (Elíasson (innskot
blaðamanns)) að það væri ekki
mín staða og ég vildi helst ekki
spila sem vængmaður. Það hentar
mér engan veginn og ég held að
það hafi síðan reynst rétt hjá mér.
Það eru til betri menn í þá stöðu
og af hverju ekki að velja þá.“
Landsliðið
- Hefur þú einhvern tíma lent í
útistöðum við Asgeir Elíasson,
landsliðsþjálfara?
„Ég kann vel við Asgeir sem
persónu og hann hefur góðar hug-
myndir um fótboltann. Asgeir er
mjög þrjóskur karakter og stendur
meó sínum ákvörðunum og ég met
hann mikils fyrir það. Við erum
náttúrulega ekki alltaf sammála en
hann er þjálfarinn og hefur síðasta
orðið og maður verður að sætta sig
við það. Við erum báðir miklir
keppnismenn en það voru aldrei
neinar erjur okkar á milli. Ég var
ekki alveg sammála hans liðsupp-
stillingu og ákvað að taka mér
einn leik í frí. Hann valdi mig síð-
an aftur í liðið og lét mig sitja á
bekknum á meðan ég hefði getað
spilað meö Stoke og ég var nátt-
úrulega ekki sáttur við það.“
- Hvernig finnst þér staðan á
íslenska landsliðinu eins og er?
„Við erum ekki búnir að skora
mark í riðlinum okkar í Evrópu-
keppninni, búnir að spila þrjá leiki
og fá sjö mörk á okkur. Þetta er
náttúrulega ekki nógu gott. Leik-
urinn í Tyrklandi var mjög slakur
af okkar hálfu, alveg frá upphafi
til enda. I byrjun riðlakeppninnar
voru miklar væntingar og talað um
að við ættum loksins tækifæri á aó
komast áfram. Nú er engin glæta í
því en ég held að menn hafi ekki
verið nógu raunsæir í upphafi og
við erum einfaldlega ekki meö
nógu gott lið. Það skiptir í raun
engu máli í hvaða riðil við drög-
umst, við erum ekki í það háum
styrkleikaflokki."
Japan kitlar
- Nú er samningur þinn við Stoke
á enda í sumar, hvert verður fram-
haldið?
„Framtíðin er mjög óráðin, sér-
staklega þar sem ég hef orðið fyrir
miklum vonbrigðum með gengið í
vetur. Ég var að gera mér vonir
um að við myndum komast í úr-
slitakeppnina þar sem við komum
vel undirbúnir og vorum að spila
góðan bolta fyrstu tvo mánuðina.
Ég var að vonast til þess að vió
myndum komast upp og þá hafði
ég mikinn áhuga á að vera áfram
héma en nú er það bara að sjá til
eftir tímabilið og skoða málin í
lokin. Maður hefur meiri áhyggjur
af því að reyna að spila vel og
reyna aö halda liðinu uppi heldur
en að vera að hugsa um hvað mað-
ur ætlar aó gera sjálfur."
- Ensku blöðin hafa orðað þig
við ýmis stórlið. Er eitthvað til í
þeim sögum?
„Það er að sjálfsögðu mikill
heiður og það kitlar mann þegar
svoleiðis hlutir eru skrifaðir um
mann. Þetta eru hlutir sem ég mun
skoða í vor og ég veit náttúrulega
um hin og þessi lið sem hafa
áhuga en meðan maður er á samn-
ingi hjá Stoke þá geta þeir stoppað
allt. I lok tímabilsins er ég í þeirri
stöðu að geta skoðað og gert þaó
sem ég vil. Ég mun gera það.“
- Eru einhver lið búin að tala
við þig?
„Mér er ekki leyfilegt að tala
vió önnur lið á meðan ég er á
samningi og ég hef ekki opinber-
Þorvaldur lék á als oddi á æfíngunni sem blaðamaður Dags fylgdist mcð.
Hér kætist hann mjög og fagnar marki á mcðan Lárus frændi er frémur súr
á svipinn. Mynd: SH
Þorvaldur Örlygsson hefur unnið sér gott orðspor sem leikmaður með Stoke
City undanfarin tvö ár og er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum fé-
lagsins og almennt talin „stjarna liðsins.“
lega gert það. Það verður spenn-
andi að sjá hvað verður og auðvit-
að kitlar það manni að spila í úr-
valsdeildinni en það er ekki það
mikilvægasta hjá mér. Það eru
einnig fullt að góðum liðum í 1.
deildinni og það er oft á tíðum
betra að vera bara rólegur og fara í
mjög gott lið í 1. deildinni heldur
en að stökkva inq í hóp í úrvals-
deildinni og lenda í sama málinu
og hjá Forest þar sem að maður
fer bara aftast í röðina ef maður
dettur út úr liðinu.“
- Hvaða lið eru það sem helst
eru nefnd?
„Maður sér náttúrulega hin og
þessi lið nefnd í blöðununt héma
og ég held að það eigi einungis
eftir aö orða mig við þrjú lið í úr-
valsdeildinni, þrjú efstu liðin.
Þetta er hluti af blaðamennskunni
héma en hvort að það er sann-
leiksfótur fyrir þessum fréttum eða
ekki er erfitt að segja. Því er nátt-
úrulega neitað á öllum vígstöðvum
að eitthvað sé að gerast, fram-
kvæmdastjóramir í hinum liðun-
um segja ekkert því opinberlega
má náttúrulega ekkert tala um
þetta. I lok tímabilsins kemur í
ljós hvort eitthvað sé til í þessu og
ég mun skoða hvort ég verð áfram
í Englandi eóa færi mig um set og
spili annars staðar. Ég hef mestan
áhuga á að vera í Englandi örlítið
lengur en maður veit aldrei hvað
verður.“
- Eru líkur á að þú spilir utan
Englands?
„Ég hefði alveg áhuga á að
skoða aðra hluti eins og einhvers
staðar erlendis ef þeir kæmu upp á
borðið og ef þeir koma þá mun ég
gera það og aldrei að vita nema
maður færi sig eitthvað lengra í
burtu. Núna verður maður bara að
hugsa um að standa sig héma út
tímabilió og þetta er fljótt að
breytast, sérstaklega ef lióið hryn-
ur ennþá lengra niður deildina þá
gæti áhugi annarra liða breyst.“
- Nú hefur komið upp aðt jap-
önsk lið hafi áhuga á þér, er eitt-
hvað til í því?
„Þaó hefur komið til tals og
það kitlar okkur að fara til Japans
en því miður byrjar tímabilið þar
sjöunda maí þannig að ég veit ekki
hvað verður úr því. Þaó er spenn-
andi dæmi að fara til Japans en
þaó er hlutur sem gæti verið dauð-
ur þegar að tímabilið hér er búið.
Eins og gengið er núna þá er
klúbburinn ekki tilbúinn til að láta
mig fara. Það verður bara að koma
í Ijós hvort maður veróur aö læra
að elda japanska fæðió eða ekki.“
— Að lokum, ef Lou Macari
verður hérna áfram, verður þú
hérna áfram?
„Ég hef mjög litla trú á því.
Vissulega verður klúbburinn að
bjóða mér samning í lok tímabils-
ins og hann hefur lýst yfir að hann
ætli að bjóða mér samning en ég
tel svona 99,99 prósent líkur á að
ég verði ekki hér áfram.“ SH
Þorvaldur á fleygiferð með knött-
inn. Allar likur eru á því að hann sé
nú að leika sína síðustu leiki í Stoke-
búningnum.