Dagur - 01.04.1995, Qupperneq 17
POPP
Stórtíðindi
Sú stórfregn berst nú um
land vort að rokksveit allra
rokksveita, Rolling Stones,
sé á leió til landsins innan
skamms. Eru „Steinarnir“
sem kunnugt er af fréttum
nú að gera allt vitlaust í
Astralíu, en þar hefur hljóm-
sveitin verið á tónleikaferða-
lagi að undanförnu. Viróast
vinsældimar á heimsvísu
vera jafnvel meiri nú en
nokkru sinni fyrr og er þá
ansi mikið sagt. Voru þeir
Jagger, Richards og félagar
þar áöur í Austurlöndum
fjær, þar sem hreinlega allt
fór á hvolf og komust færri
að en vildu til að sjá þá.
Otrúlegt en satt. Þaó þarf því
vart að fjölyrða um hvílíkur
hvalreki þetta er fyrir ís-
lenska poppaðdácndur að fá
Rolling Stones hingaó til
lands. Samkvæmt þessum
fregnum, sem eru glóðvolg-
ar, er gert ráð fyrir að hljóm-
sveitin komi hér við á leið
sinni til Bretlands í lok maí
eða byrjun júní og haldi hér
eina ef ekki tvenna tónleika.
Hefur umsjónarmaður Popps það eftir áreiðanlegum
heimildum, að það sé enginn annar en kvikmynda-
leikstjórinn áræðni, Hrafn
Gunnlaugsson, sem slandi
á bak við þetta tiltæki.
Kappinn sá hefur líka
mikla reynslu í slíkum efn-
um, því hann stóð m.a. fyr-
ir því að Leonard Cohen,
Joan Baez og nú síóast
Donovan komu hingað til
lands auk margra frægra
djassleikara. Ekki er ljóst á
þessari stundu hversu um-
fangsmiklir tónleikarnir
hér verða. Geta menn rétt
reynt að ímynda sér hvurs-
konar ævintýri það yrði ef
hægt verður að hafa þá í
allri sinni dýrð, með öllum
sviðs- og ljósabúnaðinum,
sem vegur einhverja tugi
tonna. Það yrði nú aldeilis.
En það gæti líka komið til
að „aðcins“ yrði um „unpl-
ugged“ tónleika að ræða,
sem þó heldur betur væri
nú „flott“. Hafa menn
reyndar verið að vonast
eftir slíkum tónleikum hjá
Stones og síðan plötu auð-
vitað. Bob Dylan mun
væntanlega ef að líkum
lætur koma með „ótengda" plötu í ár, þannig að tími
er kominn á að Rolling Stones geri það líka.
Keith Richards mun kæta landann ásamt félögum í
Rolling Stoncs.
Ilnni i/ðknind ikirin n«
»WPP' ícmiiiiig ;urm n
snýr
aftur
Árið 1993 sló þungarokkssveit-
in margbrotna White Zombie
(Hvíti uppvakningurinn) eftir-
minnilega í gegn með plötunni
sinni Sexocisto, devil music Vol
1., sem m.a. náði platínusölu í
heimalandinu Bandaríkjunum
og fékk mjög góða dóma gagn-
rýnenda. (Var platan ef
mig misminnir ekki
víóa valin ein af þeim
10 bestu í rokkinu
þetta árið og hér-
lendis valdi
a.m.k. einn
plötupælari,
Andrea Jóns-
dóttir á Rás
tvö, hana sem
eina af tíu
bestu plötum árs-
ins.) Nú eftir
rúma viku, nánar
tiltekiö þann 10.
apríl, er hljóm-
sveitin, sem að
hluta til dregur
sitt af söngv-
aranum og forsprakkanum Rob
Zombie, að senda frá sér lang-
þráóa, nýja plötu sem ef rétt
telst til verður sú þriðja í röðinni
frá henni. Ber hún þann langa
og mikla titil, Astro-creep: 2000
songs of love, destruction and
other synthetic delusions of the
electric head! og markar nokkra
stefnubreytingu frá áóumefndu
plötunni á undan. Mun hinnar
svokölluðu „Industralstefnu“
gæta nokkuð á nýju plötunni, en
þó ekki meira en svo að aðeins
er um viss áhrif aö ræða að sögn
Zombies sjálfs. Má geta þess til
frekari fróðleiks að til industral-
rokksins teljast ekki minni sveit-
ir en Nine inch nails og Minis-
try, sem báðar hafa náó gríóar-
hylli, sérstaklega í Bandaríkjun-
um. Sú síðarnefnda kemur
reyndar með nýja plötu innan
skamms, þá fyrstu í þrjú ár og er
hennar beðið með eftirvæntingu.
tónlistarhúsi
íslcnskir hljónilistarmcnn, popp-
arar, rokkarar, klassíkerar og allt
hvað eina, hafa svo lengi sem
elstu menn muna, eða ailavega
árum saman, barist fyrir því að
byggt verði sómasamlegt tónlist-
arhús fyrir starfsemi þeirra. Hef-
ur á ýmsu gengiö og allt mögu-
legt verió reynt til að koma
þessu þarfa verki á framfæri og I
framkvæmd. Til dæmis hefur
pcningum í gegnum tíðina verið
safnað með því að gefa almcnn-
ingi kost á að kaupa sér stól í
framtíðarhúsinu og happdrætti
farið fram til styrktar bygging-
unni. Hafa töluverðir fjármunir
aflast meó þessu og þeir verið
ávaxtaðir, en betur má ef duga
skal ef takast á aó reisa hús sem
kostar nokkur hundruó milljónir.
Það nýjasta í þessum efnum er
aó plata með rokkverki Trúbrots,
Lifun, sem fyrst kom út fyrir lið-
lega tuttugu árum, hcfur nú verið
gefin út í þágu byggingar tónlist-
arhúss. Er á henni að finna rokk-
sinfóníska útfærslu Gunnars
Þórðarsonar á Lifun, sem flutt
var við mjög góðar undirtektir í
Háskólabíói í Rcykjavík af Sin-
fóníuhljómsveit íslands ásamt
mörgum af helstu poppurum
landsins, fyrir ári eða rúmlega
svo. Þeir sem vilja styrkja þetta
góða málefni frekar geta haft
samband viö samtökin um bygg-
ingu tónlistarhúss.
Laugardagur 1. apríl 1995 - DAGUR - 17
EMF eru með þeim bestu í bresku nýbylgjurokki.
Bresk nýbylgja
Framsækin bresk nýbylgjutónlist, sem segja má að sé nokkum
veginn mitt á milli „indiepoppsins“ annars vegar, sveita á borð við
Suede, Blur og Boo Radleys, og danspoppsins hins vegar, t.d.
Underworld, Prodigy, Shamen svo nokkrar séu nefndar, á sér all-
góðan hóp dyggra fylgjenda og það m.a.s. hér á Islandi. Þrjár
hljómsveitir koma óneitanlega strax upp í hugann þegar þessa
stefnu ber á góma, Jesus Jones, Carter USM og EMF, en tvær þær
síðamefndu hafa einmitt nýlega semt frá sér plötur. Carter, sem
m.a. hefur áður sent frá sér glæsiverk á borð við 30 something,
sendi frá sér Worry bomb í febrúar, en EMF, sem náði t.d. miklum
vinsældum með plötunni Schubert dip árið 1990, er nú rétt búin að
senda frá sér sína nýjustu afurð, Cha cha cha. (Er hún væntanlega
vel danshæf eftir nafninu að dæma)
Eazy E á í erfiðleikum en berst hetjulegri baráttu.
Rappgoð í blíðu og stríðu
Eftir miklar vangaveltur og sögusagnir þess efnis í bandarísku
popppressunni á síðasta ári, virðast nú sterkar líkur á því að ein af
stórsveitum rappsins, NWA, Niggers With Attitude, taki upp þráð-
inn að nýju eftir nokkurra ára hlé. Var það m.a. heiftarlegur
ágreiningur Eazy E og Dr. Dre og reyndar nokkm áður, brotthvarf
Ice Cube úr hljómsveitinni, sem stuðlaði að endalokum NWA, en
nú virðist semsagt gróið um heilt þar á milli. Það er reyndar næsta
ótrúlegt í ljósi þess, að bæði Dr. Dre og Eazy E, gerðu báðir plötur
í framhaldinu, sem báðar snémst um hversu mikið þeir hötuóu
hvor annan. Þeir „félagamir“ munu hafa á prjónunum, samkvæmt
fréttum að vinna plötu á þessu ári, sem síðan kænii út á því næsta.
Það sem hins vegar stendur í vegi fyrir þessu samkvæmt nýjustu
tíðindum, er að Eazy E á vió mikil veikindi að stríða þessa dagana
og er því miður ekki loku fyrir það skotið að um alnæmissmit sé
að ræða. Verður væntaniega meira af þessu og nánar að segja
fljótlega.
Aukaplata
Með nýrri útgáfu af síðustu plötu Dave Mustaine og félaga í
Megadeth, Youthanasia, fylgir sérstök aukageislaplata með átta
lögum sem hljómsveitin hefur m.a. lagt til í kvikmyndir, sjón-
varpsþætti o.fl. Þá er eitt laganna átta áður óútgefið, Problems,
sem er upprunalega úr smiðju pönkgoðanna margfrægu, Sex Pi-
stols.