Dagur - 06.05.1995, Qupperneq 5
Laugardagur 6. maí - DAGUR - 5
HM-frímerkin eru hönnuð af Akureyringnum Hallgrími Ingólfssyni:
Undirstrika sérstöðu náttúru landsins
með „handboltalegu“ ívafi
Segja má aó það sé daufdumba
maóur sem ekki hefur orðiö
þess áskynja að um þessa
helgi er að hefjast á íslandi
Heimsmeistarakeppni í hand-
knattleik. Að mörgu er að hyggja
fyrir slíka keppni og það af mörg-
um toga. Póstur og sími tekur þátt
í þeim undirbúningi, ekki bara
með því að leggja til ljósleiðara
og fleira sem nauðsynlegt er til
beinna útsendinga frá leikjum
keppninar heldur hefur stofnunin
gefið út frímerki tileinkuó keppn-
inni. Utgáfudagur frímerkjanna,
sem eru Evrópufrímerki, var 14.
mars sl. og má segja að útgáfa
þeirra hafi tvíþættan tilgang. Ann-
ars vegar aó vekja athygli á
Heimsmeistarakeppninni á erlend-
um vettvangi og hins vegar á
landinu og náttúru þess og undir-
strika frímerkin vel sérstöðu þess,
þ.e. eldfjöll, hveri, sólarlag, fugla-
líf o.fl. Útgáfa þeirra hefói
kannski mátt vera fyrr, til að
kynna keppnina enn frekar.
Hönnuður frímerkjanna er Ak-
ureyringurinn Hallgrímur Stefán
Ingólfsson inanhússarkitekt. For-
eldrar hans eru Anna Hallgríms-
dóttir, ættuð frá Onundarfirði, og
Ingólfur Arnason, fyrrverandi raf-
veitustjóri, og er Hallgrímur næst-
elstur fimm systkina. Kona hans
er María Jónsdóttir og eiga þau
þrjú böm, Onnu, Huldu og Jón
Inga.
Hallgrímur hélt til Danmerkur
og lauk prófi frá Skolen for bolig-
indrœtning, sem nú heitir Dansk
Designskole eftir sameiningu við
fleiri skóla á sama sviði. Hall-
grímur segir aó alltaf hafi blundað
í honunt áhugi á námi af þessu
tagi en aódragandi inntökuprófs-
ins í skólann hafi verió mjög stutt-
ur og hafi hann fengið lánaðar
rúmteikningar á Akureyri áður en
hann fór til Kaupmannahafnar í
inntökuprófió og segja megi því
að hann hafi lært rúmteikningu á
nokkrum dögum. Námið tók þrjú
ár og eftir það kenndi hann við
forskóla skólans sem hann var að
útskrifast frá og þaóan lá leiðin á
Konunglegu akademíuna í grafík-
nám.
Til starfa á Kanal-2
„Leiðin lá svo enn heim árið 1984
og fór ég að vinna hjá Kynningar-
þjónustunni í Reykjavík. Málin
æxluðust þannig að ég fór að
Hallgrímur Stefán Ingólfsson við
vinnu sína á StQ.
Þessi mynd Hallgríms var teiknuð
til notkunar á japanskar mjólkur-
umbúðir cn síðar notuð á kort til
minningar um kjarnorkusprengj-
una á Hirosima 6. ágúst.
vinna með dönskum hönnuói, Ole
Kortzau, sem var að kynna
plaggöt og í framhaldi af því bauð
hann mér út. Ég flutti því aftur út
1986 og þar var ég með fjölskyld-
una næstu sex árin. Ég vann hjá
Ole Kortzau næstu þrjú árin og
síóan hjá sjónvarpsstöðinni Kanal-
2 við sviðsmynda- og grafíkgerð.
Ég var ráðinn til að koma þessari
deild af stað en ég hafði áður unn-
ið nokkur verkefni fyrir þá. Ég var
þess síóan óbeint valdandi aö í
dag er „yfirpródúsent“ stöðvarinn-
ar íslenskur, þ.e. Maríanna Frið-
jónsdóttir. Hjá Ole Kortzau vann
ég að mörgum mjög skemmtileg-
um verkefnum, m.a. verkefni í
Japan sem fólst í hönnun mynda á
mjólkurumbúðir fyrir japanska
mjólkursamsölu, Nakasawa Cor-
portation. Margar okkar hug-
myndir voru nýttar á mjólkurum-
búðimar og einnig gaf fyrirtækið
út bók með með teikningunum
sem heitir Merry Farm Story. Ein
myndanna í þeirri bók eftir mig
var síóan notuð á kort sem árlega
er gefið út í japönsku borginni Hi-
rosima, 6. ágúst ár hvert, en þann
dag árið 1945 féll þar kjamorku-
sprengja eins og skráó er í mann-
kynssöguna. Myndin var talin
flytja mikinn frið sem er m.a. til-
gangurinn með kortaútgáfunni.
Svo skemmtilega vill til að 6.
ágúst er afmælisdagurinn minn,“
segir Hallgrímur Ingólfsson.
Frábærir starfsfélagar
- Þú kemur svo aftur heim árið
1991. Toguðu heimahagarnir allt-
afíþig?
„Já, það blundaði alltaf í mér
löngun að koma aftur heim og
starfa hér. Auk þess voru bömin
orðin þrjú og við vildum gjaman
að þau settust í íslcnska skóla. Ég
hafði ekki útvegað mér neina
vinnu, en daginn eftir að við kom-
um til Akureyrar hélt ég niður á
Auglýsinga- og skiltagerðina Stíl
hf. og falaðist eftir vinnu, og var
kominn í hana síðdegis þann dag
og starfa þar enn. Ég hef ekki ver-
ið þar í neinum afmörkuðum verk-
efnum, heldur tekist á við þaö sem
til fellur hverju sinni eins og aðrir
starfsmenn þar. Ég tel að hún hafi
á að skipa mjög góðu starfsfólki,
og m.a. hef ég átt gott samstarf
við Baldvin Bjömsson, auglýs-
ingateiknara, sem cr mjög fær
starfskraftur og góður vinnufélagi.
Ég reyni að komast á sjó á tog-
ara einu sinni á ári. Þaö er í fyrsta
lagi mjög góð afslöppun og um
leið hleður maóur batteríin og
kemur aftur til vinnunnar í landi,
cndumýjaður af starfsorku.“
Sigurvegari í lokaðri
samkeppni
Hallgrímur fékk tilboð um að taka
þátt í lokaðri samkeppni á hönnun
HM-frímerkja. Áður hafi Hall-
grímur tekið þátt í gerð danskra
jólafrímerkja meðan hann starfaði
hjá Ole Kortzau. Hann hafði árið
áður komið að máli við íslensku
póstþjónustuna og bent á það að á
Akureyri og víðar úti á landi væri
margt fólk sem væri mjög hæft til
þess m.a. að hanna frímerki.
„Ég tók því tilboði fegins
hendi. Fyrst byrjaði ég á því að
teikna merkin í höndunum og síð-
an var vinnan færð yfir á tölvu og
þar gekk ég frá hugmyndunum.
Ég tók strax ákvörðun um það aó
hanna landkynningarmerki, ekki
bara handboltafrímerki, og nýta
þannig þetta einstaka tækifæri til
að kynna land og þjóð og draga
fram sérkennin, en handboltinn er
settur inn í íslenska náttúru. Það
má kannski segja í gríni, að
Heimsmeistarakeppnin sé svo
merkilegur atburður að vió troð-
um upp í eldfjöllin okkar meðan á
henni stendur. Sólarlagið má sjá í
vestfirskri fjallagerð og goshvers-
útfærsluna fékk ég frá gosbrunni í
Kaupmannahöfn sem heitir Storke
springvandet, sem mikið hefur
verið ort um. Hann er kannski
þekktastur fyrir það að á afmælis-
degi drottningarinnar er lítil, gull-
húóuð kúla, látin dansa á gosbun-
unni allan daginn. Ég sendi einnig
inn aðra tillögu í nokkrum útfærsl-
um sem gekk út á hönd sem held-
ur á hnettinum. Hvort ég teikna
fleiri frímerki í framtíðinni verður
að koma í ljós. Ekkert slíkt er í
farvatninu,“ sagði Hallgrímur Ing-
ólfsson, hönnuður HM-frímerkis-
ins. GG
-------------------------------------------Á
AKUREYRARBÆR
Utboö
Bæjarverkfræðingur, f.h. bæjarsjóðs Akureyrar,
óskar hér með eftir tilboðum í steinefnavinnslu
og fiutning þeirra að Malbikunarstöð Akureyrar-
bæjar.
Magn steinefna er 7.500 tonn.
Gögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings
Geislagötu 9, Akureyri, frá og með þriðjudeginum 9.
maí 1995 kl. 13.00.
Tilboðin verða opnuð á sama stað föstudaginn 19.
maí kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
Bæjarverkfræðingur.
AKUREYRARBÆR
TÆKNIDEILD AKUREYRARBÆJAR
Laust er til umsóknar starf
verkfræðings/
tæknifræðings
á mælinga- og hönnunardeild Akureyrar-
bæjar.
Verksvið:
Starfið felst einkum í hönnun gatna og fráveitu-
lagna, gerð mæliblaða og umsjón með mælingum
og viðhaldi grunnkorta. Vinna við uppbyggingu
landupplýsingakerfis fyrir Akureyri, sem nú er að
hefjast, mun a.m.k. fyrst um sinn tilheyra starfinu.
Þekking á tölvunotkun vió hönnun og kortagerð er
nauðsynleg.
Krafist er menntunar í byggingarverkfræði eða
byggingartæknifræði.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Akureyrarbæjar
við verkfræðinga og stéttarfélag tæknifræðinga.
Upplýsingar um starfið veita starfsmannastjóri og
Gunnar H. Jóhannesson deildarverkfræðingur á
Tæknideild í síma 21000.
Umsóknir um starfið skulu hafa borist starfsmanna-
deild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, fyrir lokun þann
17. maí 1995.
Umsóknareyðublöð fást á starfsmannadeild Akur-
eyrarbæjar, Geislagötu 9.
Starfsmannastjóri.
J