Dagur - 25.05.1995, Page 3

Dagur - 25.05.1995, Page 3
Fimmtudagur 25 maí 1995 - Afmælisblað ÚA DAGUR - B 3 í dag, á því herrans ári 1995, er Útgerðarfélag Akureyringa hf. stöndugt fyrirtæki í sjávarútvegi og eftirsótt á hlutabréfamarkaði. Flestum er í fersku minni sam- keppnin um sölumálin sem end- aði með því að Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna bauð gull og græna skóga til að fá að selja fiskinn frá UA áfram. íslenskar sjávarafurðir sátu eftir með sárt ennið. Þetta stolt bæjarbúa og meirihlutaeign þeirra hefur þó ekki alltafverið svona stöndugt og eftirsótt. Margir töldu útgerð- ina dauðadæmda í upphafi, reksturinn komst íþrot á tíma- bili ogpólitískar rimmurfylgdu félaginu lengi vel, sérstaklega þó á upphafsárunum. En það er ein- mitt upphafið sem við ætlum að líta á í þessari grein; stofnun Út- gerðarfélags Akureyringa. Eftir heimskreppu, örbirgð og ládeyðu á fjóröa áratug aldarinnar var stríðsgróöinn kærkomin búbót í íslenskt þjóöfélag upp úr 1940. Ahrifin voru sláandi. Peningarnir flæddu inn í landið og þjóðin lagð- ist í fjárfestingarfyllerí. Landbún- aðurinn stökk skyndilega inn í nú- tímann með gríóarlegri vélvæð- ingu í sveitunum 1942-44 og sjáv- arútvegurinn tók sömuleiðis kipp. Arið 1943 var samið viö Svía um smíði á 45 fiskibátum fyrir íslend- inga og umræður um togara vökn- uðu til lífsins. Akureyringar voru ekki með í ◄ Uppskipun úr Svalbak f febrúar- mánuði 1985. (Myndasafn Dags). bær fékk aðeins einn, vegna form- galla sem ekki verður rætt um hér. Þess má geta að Guðmundur Jör- undsson úr Hrísey krækti líka í einn togara. Eftir að Ólafur Thors gekk í málið eftir þrýsting frá áhrifamönnum á Akureyri voru tveir Bretatogarar pantaðir til við- bótar og Akureyringum boðinn annar. Bæjarstjórn samþykkti á fundi 11. október 1946 að ganga að tilboöinu. Aðeins Jón G. Sólnes og Þorsteinn M. Jónsson voru á móti. Aður en máliö með seinni tog- arann komst á hreint var búið að reka smiðshöggið á stofnun Út- gerðarfélags Akureyringa hf. á framhaldsstofnfundi 8. júní 1946. I stjórn voru kjörnir Steinn Steinsen, Jakob Frímannsson, Guðmundur Guðmundsson, Tryggvi Helgason og Albert Sölvason. Stjórnin fór strax að huga aó ráðningu mannskaps á fyrsta tog- arann en 30. júní 1946 var Kaldbaki hleypt af stokkunum í skipasmíða- stöð í Selby, skammt frá Hull. Það leið þó tæpt ár þangað til togarinn sigldi fullbúinn áleiðis til heima- hafnar. „Oskabarn Akureyrar" Nú var að komast fullmótuð mynd á Útgerðarfélag Akureyringa hf. Skipstjórinn og stjórnarmaðurinn Guðmundur Guömundsson var ráðinn fyrsti framkvæmdastjóri fé- lagsins. Sem fyrr segir var fariö aö Stofnun Útgerðarfélags Akureyringa: Hlutafé safiiað um allan bæ - pólitískar þrætur áberandi í upphafi kaupum á Svíþjóðarbátunum en þó var ríkur vilji fyrir því að efla útgerð í bænum. Háværar raddir fóru að heyrast um að stofna bæj- arútgerð eða hlutafélag með þátt- töku bæjarins. Stjórnmálaflokkar sem og verkalýðsfélög settu nú kröfuna um vélskip á oddinn. Þessi saga verður ekki rakin í smáatrióum hér, það gerir Jón Hjaltason mæta vel í sögu Útgerð- arfélags Akureyringar sem er að koma út um þessar mundir. Rétt er þó að staldra við helstu atriði er lúta að stofnun félagsins. * Utgerðarfélagið formlega stofnað I mars 1945 var haldinn fundur sex stéttarfélaga og Sjálfstæðisfélags Akureyrar þar sem samþykkt var ályktun um stofnun útgerðarfélags til að kaupa tvö 150-180 tonna fiskiskip til bæjarins. Útvegsmála- nefnd Akureyrarbæjar kom aó málinu og samþykkti fyrir sitt leyti að bærinn legði fram 25% hlutafjár. Útgerðarfélag KEA gaf vilyrði fyrir 20%. Þá var fjölskyldum bæjarins boðið hlutafé þar sem minnsta ein- ingin var ríflega tvöföld mánaðar- laun verkamanns en söfnunin gekk engu að síöur allvel. Hins vegar var enn deilt um stærð og fjölda skipa hjá þeim sem að mál- inu stóöu og ekki síst meðal bæjar- fulltrúa og pólitískra andstæðinga. Slíkar þrætur áttu eftir að setja mark sitt á félagið fram eftir öllu og er jafnvel ekki séó fyrir endann á þeim enn, enda sjaldan logn- molla í kringum pólitíkina. Um miðjan apríl var búið að safna tæpri hálfri milljón í hluta- fjárloforð en takmarkið var 540 þúsund hið minnsta. Takmarkið náðist ekki fyrir stofnfundinn 26. maí 1945, en við þann dag miðast stofnun Útgerðarfélags Akureyr- inga hf. enda var stofnsamningur samþykktur á þessum fundi svo og nafn félagsins. Helgi Pálsson var formaður fyrstu stjórnarinnar og með honum sátu Steingrímur Aðalsteinsson, Gunnar Larsen, Guðmundur Guðmundsson og Jón E. Sigurðsson. Pólitíkin yfir og allt um kring Stjórn ÚA fór að huga frekar að hlutafjársöfnun um sumarið og hugmyndir um bátakaup voru skoðaðar. Nú fór hins vegar að komast skriður á togaradraum landsmanna því ríkisstjórnin undir forsæti Ólafs Thors reri fast á þau mið. Um haustið voru 30 togarar pantaðir á einu bretti frá Bretlandi og því nóg að gera í skipasmíða- stöðvum þar í landi. Nú ætluðu Akureyringar að vera með. í september 1945 sam- þykkti bæjarstjórn að óska eftir því að Akureyringar fengju tvo af Bretatogurunum. Jafnframt var ákveðið að auka hlutafé í ÚA því ekkert benti til þess að meirihluti bæjarstjórnar undir forustu Fram- sóknarflokks vildi að þetta yrði bæjarútgerð. Ekki kom til greina að bærinn gengist í ábyrgð fyrir bæði skipin. Annar togarinn fauk út í hafs- auga í moldviöri þessara umræðna og 11. desember varð úr að Steinn Steinsen, bæjarstjóri, sótti formlega um einn Bretatogara fyrir hönd Akureyrarbæjar. Kaupandi yrði Útgerðarfélag Akureyringa hf. Þetta var stórpólitískt mál eins og gefur að skilja. Meirihluti Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks var harkalega gagnrýndur af minnihluta Sósíalistaflokks og Al- þýðuflokks sem hélt fast við hug- myndina um tvo togara. Þá setti Alþýðuflokkurinn bæjarútgerð á oddinn í kosningunum í janúar 1946. Mannskapur ráðinn á fyrsta togarann Svo fór að minnihlutinn jók fylgi sitt verulega í kosningunum en fékk þó ekki hreinan meirihluta og þurfti að leita á náóir þriöja flokks- ins. Niðurstaðan varð reyndar fljótlega sú að flokkarnir fjórir sameinuðust um málefnasamning og voru sammála um öll helstu stefnuatriði nema bæjarútgerð. Þar skáru sjálfstæðismenn sig úr, en þeir voru eindregið á móti slíku fyrirtækjaformi og þurftu vinstri menn að slá af kröfum sínum. Á hinn bóginn var nú samþykkt að óska eftir tveimur togurum í stað eins. Við úthlutun togaranna á árinu 1946 kom á daginn að Akureyrar- ◄ Gamli Sólbakur EA 305, óhrjáleg- ur og með dældað stefni haustið 1991. Hann var seldur í brotajárn 1993. (Myndasafn Dags). ráða mannskap á Kaldbak og skip- stjórastarfið kom í hlut Sæmundar Auöunssonar. Stóra stundin rann upp 17. maí 1947. Akureyringar fjölmenntu á ytri Torfunefsbryggju þegar Kald- bakur EA 1 sigldi inn á höfnina. Skip í höfninni og hús í bænum voru fánum prýdd. „Óskabarn Ak- ureyrar" var komið heim. Þor- steinn M. Jónsson, forseti bæjar- stjórnar, flutti ræðu til heiðurs óskabarninu og Guðmundur Guð- mundsson, framkvæmdastjóri ÚA, lýsti skipinu. Grípum niður í ræðu Þorsteins: „Það er merkisatburður í sögu þessa bæjar, að þessi togari er kominn hingaö, búinn út á bezta hátt með hjálp hinnar miklu nútíð- artækni. Við komu þessa togara eru bundnar miklar vonir bæjar- búa. Hann er í dag óskabarn bæjar- ins. Og margir bæjarbúar vænta þess að koma hans boði nýtt tíma- bil í atvinnu- og þróunarsögu bæj- arins." (Dagur, 21. maí 1947). Já, nýtt tímabil í útgerðarsögu bæjarins var runnið upp. Útgerðar- félag Akureyringa hf., sameign bæjarbúa, var búið að eignast tog- ara. Á þessum tímamótum lýkur þessu stikli um fyrstu spor Út- gerðafélagsins. Einstaklingar og fyrirtæki í bænum áttu meirihluta í félaginu eóa 55%, Akureyrarbær 25% og Útgerðarfélag KEA 20%. Þetta var því ekki eiginleg bæjarút- gerð fyrstu árin, og varð raunar aldrei, en deilur um einstaklings- framtak og sameign risu aftur hátt í gífurlegri fjárhagskreppu félags- ins áratug síðar. Þá eignaðist Ak- ureyrarbær meirihluta í félaginu og var raunar með ÚA í sérstakri ábyrgð 1958-1968 og létti af því ýmsum gjöldum. En síöan fór sólin að skína á ný. (Hér er að meshi stuðst við handrit að sögu Útgerðarfélags Akureyringa hf. eftir Jón Hjaltason svo og Dag frá 1945-47).

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.