Dagur - 25.05.1995, Qupperneq 10
10 B - DAGUR Afmælisblað ÚA - Fimmtudagur 25. maí 1995
Helga Brynjólfsdóttir sýnir hér fimleg handtök en annars vinnur hún mest við gæðaeftirlit. Myndir Robyn.
„Ákvað að prófa þetta“
- segir Helga Brynjólfsdóttir sem er að hætta
eftir tæplega 30 ára starf
Þegar eftirlaunaaldurinn nálg-
ast líður óhjákvæmilega að
starfslokum. Helga Brynjólfs-
dóttir, eftirlitskona í frystihúsi
UA, er einmitt í þessari stöðu.
Hún lætur afstörfum í vor.
„Eg má reyndar vinna eitt og hálft
ár í viðbót en ætla að sleppa því.
Eg ætla bara að hafa það gott,"
sagói Helga sem hóf störf í frysti-
húsinu í október 1968.
- Hvernig atvikaðist það að þú
byrjaðir í frystihúsinu? Var þetta
starf sem þú hafðir í hyggju að
sinna til starfsloka?
„Nei, ég hugsaði nú ekki þann-
ig og renndi varla í grun um að
svo yrði. Eg var búin að vinna á
mörgum öðrum vinnustöðum og
ákvað að prófa þetta. Mér hlýtur
aö hafa líkað vinnan vel fyrst ég er
búin að vera hérna í öll þessi ár."
- Hefurðu alltaf verið í sömu
störfum?
„Eg hef verið mest í eftirlitinu
og er það enn þótt ég sé núna á lín-
unni fram að hádegi. Eftirlitið er
mitt starf."
- Ertu kannski hörð í horn að
taka og vekur ugg og ótta hjá kon-
unum í vinnslunni?
„Nei, nei. Þær eru orðnar svo
meðvitaðar um að það þarf aó
vinna vel og þær gera það. Þetta er
gæðaeftirlit en ekki neinar njósnir.
Starfsfólkið kemst fljótt upp á lag
með vinnuna og það er heldur ekki
svo mikil hreyfing á því þannig að
þetta er yfirleitt jafnt og gott."
- Hvernig líður þér núna þegar
starfslokin nálgast?
„Bara ljómandi vel. Þetta er mín
ákvörðun og ég er sátt við hana.
Það er gott að hætta að vori. Ég á
samt eftir að sakna vinnufélaganna
og verkstjóranna líka."
- Sérðu fram á að hafa nóg fyrir
stafni? Jón Aspar ætlar að fara að
spila golf þegar hann hættir. Ætlar
þú kannski að skreppa á golfvöll-
innlíka?
„Hann tekur mig kannski með
sér," segir Helga og hlær. „Nei, ég
mun hafa nóg að starfa. Ég á stóra
fjölskyldu og hlakka til að sinna
henni betur."
- Hvað er þér minnisstæðast úr
vinnunni?
„Ja, ætli það sé ekki helst flæði-
línan. Þetta er veigamesta breyt-
ingin hérna. Svo má Iíka nefna
þegar hópbónusinn tók við af ein-
staklingsbónus. Það var miklu
meiri hraði á öllu þegar einstakl-
ingsbónusinn var."
Lífið hjá Útgerðarfélagi Akur-
eyringa er ekki bara vinna. Þar er
öflugt starfsmannafélag, „Iifandi
og gott" eins og Helga orðaöi það
og hún sagðist eiga góðar minn-
ingar bæði úr leik og starfi.
„Mér hlýtur að hafa líkað vinnan vel fyrst ég er búin að vera héma öll
þessi ár," segir Helga.
Gæoaverölaun
Utgerðarfélag Akureyringa
vann á síðasta ári til hinna eft-
irsóttu gæðaverðlauna sem
dótturfélag SH, Coldivater Sea-
food, veitir árlega þeim fram-
leiðendum sem þykja skara
fram úr í gæðum.
Félagið fékk þessi verðlaun fyrir
landfrystingu en einnig fékk Slétt-
bakur EA 304 þessi verðlaun fyrir
framúrskarandi gæði í sjófryst-
ingu. Þannig hlaut félagið tvenn af
þeim fjórtán verðlaunum sem
Coldwater úthlutaði.
A síðasta ári var að fullu frá-
gengið að koma á innra eftirliti í
frystihúsinu, frystitogurum og ís-
fisktogurum félagsins. Eftirlit þetta
byggir á svokallaðri Haccp-
áhættuþáttagreiningu og hefur fé-
lagiö verið í fremstu röð innan
sölusamtakanna í að innleiða þetta
gæðakerfi. í því sambandi sóttu 20
starfsmenn í landi og 60 sjómenn
námskeió er veitti þeim réttindi frá
Fiskistofu sem Ieióbeinendur í
Haccp- gæðastjórnun.
Alltaf er unnið að verkefnum í
anda altækrar gæðastjórnunar og
má í því sambandi nefna verkefni
er leiddi til mikillar lækkunar á
yfirvigt í framleiöslunni, sem aftur
á móti gerði það að verkum að nýt-
ing jókst til muna. Lauslegt mat
bendir til þess að nýting hafi auk-
ist um 4-5% á undanförnum árum
vegna altækrar gæðastjórnunar og
þátttöku starfsmanna í umbótum á
framleiðsluferlinu.