Dagur - 25.05.1995, Síða 12
12 B-DAGUR
Afmælisblað UA - Fimmtudagur 25. maí 1995
PT
■0
Sendum okkar bestu kveðjur
í tilefni 50 ára afmaúis
Utgerðarfélags Akureyringa
BL
Hafnasamlag
Eyjafjarðar
Ráðhúsinu ■ Dalvík • Sími 466 1370
ja
PT
ig
Sendum okkar bestu kveðjur
í tilefni 50 ára afmaelis
Utgerðarfélags Akureyringa
BL
Baader-þjónustan hf.
Hafnarbraut 25 • Kópavogi ■ Sími 564 1300
ja
5T
ig
Óskum stjórn og starfsfólki
Utgerðarfélags Akureyringa
til hamingju með daginn
SANDFELL HF
! Laufásgötu • Akureyri • Sími 462 6120
5L
ja
PT
’m
Óskum stjórn og starfsfólki
Utgerðarfélags Akureyringa
til hamingju meðdaginn
J3.
A. KARLSSON HF.
Brautarholti 28 • Reykjavík • Sími 562 7444
SL
ja
Gunnar Lórenzson telur brettin og merkir áður en þau fara í útskipun.
Myndin SS
Frystrí grálúðu
landað úr Sólbak
Trystitogaravæðingin hefur að
sjálfsögðu haft breytta starfs-
hætti í för með sér og þá líka
við löndunina. Dagur fylgdist
með löndun úr frystitogaranum
Sólbak á dögunum og þar var
handagangur í öskjunni.
Sólbakur var að koma meó
vænan skammt af frystri grálúðu
og lagðist við norðurkantinn.
Brettin voru hífð í land og Gunnar
Lórenzson taldi upp úr togaranum
og merkti pakkningamar áður en
lyftari flutti brettin að frystigám-
um. Harðsnúið lið vaskra sveina
staflaði öskjunum í gámana og síð-
an átti að flytja gámana beint á
markað.
Það þýddi náttúrlega lítið að
trufla mennina að störfum en að-
spurður sagðist Gunnar hafa byrj-
að hjá Útgerðarfélaginu haustið
1947 og hann væri því næstelsti
starfsmaður félagsins á eftir Jóni
Aspar.
„Eg byrjaði við löndun og vann
við að ísa og fleira í kringum það.
Síðan var ég lengi verkstjóri í
frystihúsinu en núna vinn ég við
að telja upp úr togurunum og sé
um útskipanir," sagði Gunnar Lór-
enzson.
Gunnar Lórenzson
og ísinn
Gunnar minntist á ísinn og í Sögu
Útgerðarfélags Akureyringa er ein-
mitt að finna eftirfarandi frásögn
Gunnars á því þegar ísinn kom í
pokum niður á Sverrisbryggju og
karlarnir snöruðu þeim upp í skip-
ið:
„Þaö var venjulega einn sem
dró pokana til á vörubílspallinum
og lagði þá rétt fyrir aðra tvo er
slógu spotta undir og vippuðu
þeim þannig upp á lunninguna
þar sem félagi þeirra tók við og
hellti ísnum í rennuna sem lá inn í
lúguna. Isinn fór beint í steisinn og
rann þaðan í stíurnar. Seinna var
útbúin trekt á rennuna er beindi
ísnum út í síðuna.
Stundum var hægt að losa ísinn
af vörubílspallinum og beint í
rennuna, þetta fór allt eftir því
hvernig stóð á sjávarföllum.
Áður en hraðfrystihús ÚA kom
til sögunnar fengum við ísinn frá
frystihúsi KEA. Það var mikið verk
fyrir kaupfélagsmenn að búa hann
til, vatni var hellt á pönnur og fryst
í tæpan sólarhring. Síðan var sleg-
ið úr pönnunum í trekt er lá í vél
er malaði ísinn en úr henni fór
hann í pokana sem voru keyrðir
niður á Sverrisbryggju."
(Birt með leyfi Jóns Hjaltasonar).
Harðsnúið lið staflar grálúðuöskjunum í gáma.
Fyrsti túr Kaldbaks
„Togarinn Kaldbakur kom
úrfyrstu veiðiför sinni sl.
sunnudagsmorgun og hafði
þá verið 9 sólarhringa að
veiðum. Skipið Itafðifull-
fermi. Þykir Kaldbakur
hafa aflað með ágætum í
þessari fxyrstu för. Skipið
lagði af stað til Englands
síðdegis á sunnudag."
(Dagur; 4. júní 1947).
í næsta blaði greinir Dagur
frá því að Kaldbakur hafi selt
afla sinn í Grimsby. Reyndist
hann vera 4217 kit og seldist
fyrir 11.309 sterlingspund,
sem þótti gott.
í byrjun júlí seldi Kaldbak-
ur aftur í Englandi, nú 4160 kit
fyrir 10.688 sterlingspund og í
ágúst kom hann úr þriðju
söluferð sinni til Englands. Þá
seldi hann 3700 kit fyrir 9700
pund.