Dagur - 25.05.1995, Qupperneq 13

Dagur - 25.05.1995, Qupperneq 13
Fimmtudagur 25. maí 1995 - Afmælisblað ÚA DAGUR-B 13 Gísli Konráðsson varfram- kvæmdastjóri Utgerðarfélags Akureyringa í ríflega þrjá ára- tugi, eða frá 1958-1989. Hann upplifði mikil umbrot í sögu fé- lagsins. Flestir þekkja vel- gengni ÚA undanfarin ár en staðan var ekki alltaf svona góð. Reksturinn var korninn að fótumfram þegar Gísli tók til starfa og hans biðu erfið verk- efni næstu árin. Það erfiði var síðan ríkulega launað og öflugt sjávarútvegsfyrirtæki byggðist upp á Akureyri. - Gísli, varst þú ekki upphaf- lega ráðinn sem eftirlitsmaður á vegum bæjarins til að fara ofan í saumana á rekstri UA? „Jú, bæjarstjómin óskaði eftir því vió mig að ég yrði umsjónar- maður með rekstri félagsins. Bær- inn hafði þá ákveðið að taka ákveóna fjárhagslega ábyrgó á framhaldsrekstri, en á undan var mikið búið að rífast um hvað gera skyldi. Félagið var á heljarþröm. Sumir vildu Ieggja það niöur en það varð ofan á að bærinn tæki að sér um óákveðinn tíma að ábyrgj- ast reksturinn fjárhagslega. Ég var fenginn til að hafa umsjón með því hvemig það þróaðist en ég hafði áður starfað hjá Útgerðarfé- lagi KEA hf.“ - Það urðu síðan fljótlega framkvæmdastjóraskipti hjá félag- inu, ekki satt? „Það er rétt. Ég kom til Útgerð- arfélagsins sem umsjónarmaður 9. febrúar 1958. Guðmundur Guð- mundsson framkvæmdastjóri lét af störfum í maí sama ár og ég var þá ráðinn í hans stað. Um haustið var Andrés Pétursson frá Reykja- vík ráðinn framkvæmdastjóri við hlið mér. Tildrögin voru af pólit- ískum toga. Ég var talinn á vinstri væng stjómmálanna og þá var tal- ið nauðsynlegt að fá jafnvægi frá hægri. Ég hafði ekkert nema gott um þetta að segja og tel að tveggja manna kerfið hafi blessast vel.“ „Þurfti að taka reksturinn föstum tökum" Gísli segir að markmiðið með tveggja manna kerfinu við stjóm Útgerðarfélagsins hafi gengið upp og hann lofar samstarfið við Andrés, sem vann við hlið hans til ársloka 1964, og eftirmann hans Vilhelm Þorsteinsson, sem sömu- leiðis var talinn fulltrúi hægri manna. Andrés og Vilhelm eru nú báðir látnir. Gísli telur þessa pólit- ísku jafnvægislist hafa verið fé- laginu til góðs og hann var ósáttur þegar jafnvæginu var raskað. Þeg- ar Gísli lét af störfum 1989 var nefnilega sjálfstæðismaóur ráðinn í stólinn sem vinstri menn töldu sig eiga tilkall til og þar með var komin hægri slagsíða. Hvorki Gísli né aðrir sem gagnrýndu þessa ráðningu beindu spjótum sínum að Gunnari Ragnars per- sónulega, þeir vildu aöeins halda áðumefndu jafnvægi. En um þetta má allt saman lesa í sögu Jóns Hjaltasonar. - Menn eru sammála um að þú hafir verið mikill nákvæmnismað- Gísli Konráðsson á skrifstofu fram- kvæmdastjóra um það leyti er starfsferli hans var að ljúka hjá Út- gcrðarfélaginu. Mynd: Snorri Snorrason. meirihlutanum í Útgerðarfélag- inu? „Bærinn sjálfur þarf ekki endi- lega að eiga meirhluta, en ég tel vænlegra að meirihlutaeignin sé á höndum bæjarins og nátengdra fé- lagasamtaka í bænum. Þar get ég nefnt samtök á borð við Kaupfé- lag Eyfirðinga og verkalýðssam- tökin. Að mínu mati verða Akur- eyringar að halda meirihlutanum og þá aðilar sem ekki eru líklegir til að fiytja starfsemina burt úr bænum.“ Eins og áður segir þurfti Út- gerðarfélagið að ganga í gegnum hremmingar áður en það rétti úr kútnum og segir Gísli að upp- byggingin hafi verið jöfn og stöð- „A góðar og Ijúfar endurminningar“ segir Gísli Konráðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri ur, Gísli. Varstu harður í hom að taka sem framkvæmdastjóri? „Um það verða aðrir að dæma, en vissulega þurfti ég að taka reksturinn föstum tökum strax og ég vildi að rétt væri rétt. Það var ansi mikil óreiða í bókhaldi, birgðahaldi og öðrum hlutum og margt sem þurfti að lagfæra. Þetta voru erfiðir tímar. Bærinn lagði fram fé í reksturinn í þó nokkur ár en skuld félagsins við bæinn var síðan breytt í hlutafé. Þar með tel ég að bærinn hafi fengið það full- greitt sem hann lagði fram og ekki skaðast á þessum viðskiptum. Við megum heldur ekki gleyma því að bærinn fékk útsvarstekjur af starfsfólkinu. Útgerðarfélagið var beinlínis stofnað til að efla at- vinnulífið á Akureyri og atvinnan var mikils virði fyrir bæjarfélagió. Til að þessu markmiði yrði náð varð félagið náttúrlega að ná sér á strik og það tókst.“ Akureyringar haldi meirihlutanum Gísli segist alltaf hafa litið þannig á að hagsmunir Akureyrarbæjar og Útgerðarfélagsins hafi farið saman og þama á milli hafi verið órjúfanleg tengsl. Hann segist líka hafa haft þessa sameiginlegu hagsmuni að leiðarljósi þegar hann lýsti því yfir opinberlega að hann teldi skynsamlegra að ÚA semdi við íslenskar sjávarafurðir um sölu á afurðum félagsins í stað þess að halda samstarfinu við Sölumiðstöð hraöfrystihúsanna áfram. „Ég er sannfæróur um að það hefði verið betri kostur. Þetta er ekki sagt af óvild í garð Sölu- miðstöðvarinnar, sem félagið hef- ur átt gott samstarf við, heldur A árinu 1984 var lokið við miklar cndurbætur á matsal starfsfólks UA og þóttu þær takast afskaplega vel, enda vistarverur hinar giæsilegustu. (Myndasafn Dags). taldi ég þetta vænlegri kost frá sjónarhóli Akureyrarbæjar. En niðurstaðan er fengin og ég vona að þetta blessist," sagði Gísli. - Viltu að Akureyrarbær haldi ug á sjó sem í landi. Félagió hafi stöðugt verið að breyta og bæta án þess að reisa sér hurðarás um öxl og smám saman hafi það vaxið og dafnað. Afbragðsgott starfsfólk - Hvað er þér eftirminnilegast frá framkvæmdastjóraárunum, Gísli? „Ég á góöar og ljúfar endur- minningar um dvöl mína og störf hjá Útgerðarfélaginu. Að vísu var lengi við ramman reip aó draga þar sem peningaleysið var annars vegar en það sem mestu máli skipti var aó félagið hafði alltaf afbragðsgott starfsfólk, bæði á sjó og í landi. Það var stolt starfs- fólksins aó koma rekstrinum upp á við og það vann vel. Samheldnin var mikil og góð samskipti hvar- vetna. Ég hafói nánasta samvinnu við Andrés og Vilhelm og var hún með ágætum. Hver starfsmaður var líka ávallt velkominn til okkar og þannig mynduðust góð tengsl. Þá vil ég einnig taka fram að sam- starf við stjóm félagsins var jafn- an mjög gott. Voru það fyrst og fremst stjómarformenn, sem við höfðum samband við, en þeir voru á starfstíma mínum Helgi Pálsson, Albert Sölvason, Jakob Frímanns- son og Sverrir Leósson, taldir í tímaröð. Arekstrar við stjómina voru nær óþekktir. Við þurftum að glíma við fleiri erfiðleika en peningaleysið. A tímabili var mjög erfitt að manna skipin og það varð mikill höfuð- verkur. Þetta var einkúm meðan eldri togaramir voru við líði en staðan breyttist þegar skuttogar- amir komu og aðbúnaðurinn batn- aði um borð.“ - Svo rann kveðjustundin upp. Þú lést af störfum fyrir aldurs sak- ir 1989. Hvemig tilfinning var það að hætta? „Hún var góð. Ég var náttúr- lega kominn vel yfir aldur, enda fæddur 1916. Aðalatriðið er að ég var sáttur við sjálfan mig þegar ég hætti og mér finnst ánægjulegt að hafa upplifað þetta tímabil og tek- ið þátt í því að koma félaginu á góðan rekspöl. Ég held sambandi við félagið og kem oft í heimsókn á skrifstofumar.“ - Að^ lokum, áttu einhverja ósk handa Útgerðarfélaginu á 50 ára afmælinu? „Mín ósk er sú að vegur þess verði sem bestur. Ég vona að þar verði aldrei kyrrstaða heldur stöðug framför. Mér þykir ákaflega vænt um félagið og vona að það haldi sér í fremstu röð sjávarútvegsfyrir- tækja á landinu og verði áfram lyftistöng fyrir bæjarfélagið." Utanríkisráðherrann okkar, HaUdór Ásgrímsson, er ungur og efniiegur á þcssari mynd sem var tekin þcgar miðstjórn Framsóknarflokksins heimsótti útgerðarfciagið 1984. (Myndasafn Dags). M ð jbökk fyrir anæqfuieq viðekipti á liðnum árum færir Gúmmívinnslan hf. Utgerðarfelagi Akureyringa hf. beetu óekir á 50 ára afmæii féiaqeine. Mb ,r Gúmmívinnslan M. ^°a\\ar Réttarhvammi 1 • 603 Akureyri Sími 461 2600 • Fax: 461 2196

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.