Dagur - 25.05.1995, Síða 14

Dagur - 25.05.1995, Síða 14
14B-DAGUR Afmælisblað ÚA - Fimmtudagur 25. maí 1995 ET 1S Útgerðarfélag Akureyringa hf. fímmtíu ára: Þú bjartsýni fluttir í bœinn og bjargmði kim yfir saeinn. Að a, mcgir hljóta ómœldan kvóta erósk vord afmœlisdaginní Við sendum stjórn og starfsfólki félagsins ámaðaróskir með þökk fyrir ánægjulegt samstarf. Kynning og úfgáfuþjónusta Hafnarstræti 88 Akureyri Sími 462 7682 • Símbréf 462 7290 __________________________________B ■MMMMNMMWM Öskum Útgerðarfélagi Akureyringa til hamingju meó 50 ára afmœlió i* BLIKKRÁS HF Hjalteyrargötu 6 • Akureyri • Sími 462 7770 Stúlkurnar í snyrtingunni skapa þjóðarbúinu mikil verðmæti eins og aðrir sem starfa við sjávarútveginn. Myndir: Robyn. „Hér er góður andi og gott staifsfólk“ segir Birna Tobíasdóttir Bima Tobíasdóttir er í hópi þeirra sem kynntust frystihúss- vinnunni á unglingsárum sín- um og þótt hún hafi ekki unnið hjá Útgerðarfélaginu sleitu- laust síðan er starfsferillinn orðinn um tuttugu ár. „Ég byrjaði hérna 1978 en vann áð- ur í frystihúsinu sem unglingur 1961-63. Fyrri tvö árin vann ég yfir sumartímann og síðan vann ég með Gagnfræðaskólanum veturinn 1962 og líka '63. Frá 1978 hef ég hins vegar verið hér stöðugt." - I hverju hefur starf þitt veriö fólgið? „Lengst af snyrting og pökkun. Hin síðari ár hef ég verið í gæða- eftirlitinu." - Hefur ekki margt breyst í frystihúsinu á þessum tíma, þótt fiskurinn sé náttúrlega alltaf sá sami? „Jú, handtökin hafa breyst og nýjar vélar og tæki komið til sög- unnar. Pakkningarnar hafa Iíka breyst. Fiskurinn sem við fáum er hins vegar alltaf svipaður. Sumir eru ekki hrifnir af grálúðunni. Hún er feit og maður verður dálítið sóðalegur við að vinna hana og lyktin er kannski ekki góð, en mér finnst hún ekkert leiðinleg." Viðhorfið til fiskvinnsl- unnar að breytast - Varstu ákveðin í því að þetta yrði ævistarf þitt? „Ja, aðstæðurnar hjá mér voru þannig að þegar ég byrjaöi hérna '78 voru dætur mínar tvær komnar yfir fermingu. Þá Iá leið mín út á vinnumarkaðinn og ég fór að vinna hérna hálfan daginn. Þegar heimilishaldið varð léttara byrjaði ég að vinna allan daginn og þetta hefur því orðið mitt fasta starf." - Eru þetta mikið sömu konum- ar sem hafa verið hérna um árabil? „Þær em nú ekki mjög margar sem hafa verið hérna síðan ég byrj- aði. Þetta er fastur kjarni en svo er alltaf nokkur hreyfing. Konurnar komast á aldur og nýjar byrja í staðinn. Svo er auðvitað mikið af sumarafleysingafólki og sumt ílengist hérna í lengri eða skemmri tíma. Það er dálítið skrítið með það að þótt margar stelpurnar segist ekki ætla að koma aftur þá tínast þær inn. Þetta er ekki eins slæmt og fólk kann að halda og ég held að viðhorfið til fiskvinnslunnar sé að breytast. Þegar ég var ungl- ingur þótti alls ekkert fínt að vinna í fiski og stelpurnar sögðust vera „bara" á frystihúsinu þegar þær voru spurðar um vinnuna." Skoðum vöruna frá A-Ö - Hefur ekki aðbúnaður og hagur fiskvinnslufólks batnað líka? „Jú, það má segja að allur að- búnaður hafi batnað. Svo held ég að premíukerfið hafi orðið til hins betra fyrir fólk. Þá fékk það að minnsta kosti borgað í samræmi við vinnuframlag sitt, bæði nýt- ingu og afköst. Þetta hefur reyndar breyst aðeins með tilkomu flæði- línunnar en það er þó mikill ávinn- ingur af henni." - Nú ert þú í eftirlitinu, Birna. í hverju er það fólgið? „Éftirlitið er tverrns konar, ann- ars vegar á línunum sem slíkum og hins vegar skoðum við fullunna vöru eins og hún kemur fyrir þeg- ar hún fer frá okkur á neytenda- markað. Reyndar er líka eftirlit í móttökunni, flökun og tækjasal. Þegar við skoðum fullunna vöru opnum við pakkningarnar, leitum að ormum og beinum, losmetum og vigtum flakapakkningar. Við skoðum sem sagt vöruna frá A-O. Mannsaugað hefur alltaf úrslita- þýðingu í gæðaeftirliti þrátt fyrir alla tölvuvæðingu. Við úrvinnslu gagna erum við hins vegar farin að nota tölvu. Það er framtíðin. Þá hættir þessi mikla pappírsvinna." - Að lokum, Birna. Hvernig er að vinna hjá Útgerðarfélaginu? „Mér líkar það vel. Hér er góð- ur andi, gott starfsfólk og góðir yfirmenn." - Það vantar bara að þú nefnir góð laun. „Já, launin mega auðvitað alltaf vera hærri." Birna Tobíasdóttir er í eftirlitinu og hún segir að varan sé skoðuð frá A-Ö til að tryggja fuil gæði.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.